Vísir - 02.01.1973, Side 12

Vísir - 02.01.1973, Side 12
12 Visir. Þriftjudagur 2 janúar 1972 Umsjón: Þórarinn Jón Magnússon Þaö er stööugt veriö að tala um aukin finheit barnaleikfanga nú til dags, en skoöiö nú myndina hér aö neöan. Hún sýnir 200 ára gamalt brúöuhús, sem er búiö öllu, sem nöfnum tjáir aö nefna i sambandi viö hús og húsbúnaö — á þeirra tima mæiikvaröa. En þetta er sýnd vciði en ekki gefin. Þetta forláta brúöuhús er aöeins til sýnis. Þaö stendur á meöal annarra gamalla brúöu- húsa á sýningu, sem nýlega var sett upp i Hamborg. Vinnufélagar þessa 42ja ára gamla byggingaverkamanns, Clarence Hughes frá Arizona, USA, hylltu hann nýlega sem þann atorkusamasta og afkasta- mesta i sinum hópi. Þakkað getur hann það smæð sinni en hann er ekki nema 82 cm á hæð, svo það fer eðlilega ekki mikið fyrir hon- um i opi skolprörsins á myndinni. Clarence Hughes á þess vegna auðvelt með að komast allra feröa sinna, sama hvort skriða þurfi á bak við eitt eða annað, eða jafnvel inn i rör, sem gera þarf við, en aðrir vinnufélagar hans komast ekki aö með góðu móti. Engan skal undra, eins fimlega og hann getur unnið við erfiðustu aðstæður. Hann sagðist lika sjálf- ur hafa komizt oftlega upp i að hafa fimmfalt timakaup þegar hann vinnur i ákvæðisvinnu. „Danso - ég?!!" Það vakti óhemju athygli i þvi fræga Hilton hóteli i London, þegar sá frægi matreiðslumeist- ari frá I)evon, Barry Stell, sem jafnframt cr frægur fótboltaspil- ari, mætti i þessum búning til við- hafnarveizlu, þarsem voru meira en 500 manns. Þegar Ijósmyndarinn, sem þessa mynd tók, hafði lagt frá sér myndavélina, afréð hann, að bjóða Barry upp i dans. Hann fékk neitun. „Ég dansa helzt við kvenfólk,” úrskýrði hann. „Ekki endilega vegna þess, að ég hafi eitthvað á móti þvi að dansa við karlmenn. En núna á ég bara svo erfitt um vik. Ég get helzt ekki stigið skref aftur á bak i þessum skrúða.” Forstjóri Hilton hótels segir: — Við höfðum skrifað á aðgöngu- miðana, að gestirnir skyldu mæta i viðhafnarklæðum. í þessu til- viki með Barry stóðum við frammi fyrir miklum vanda. En i framtiðinni neyðumst við kannski til að viðurkenna þrjú kyn.... Eigi þeir eitthvað sameiginlegt, þessi drengsnáöi og hundurinn, þá er það þaö, að þeir fara báðir með hlutverk i kvikmynd, sem gerð hefur verið um ævi þess liöna VVinston Churchill (litla mvndin). Drengurinn er 8 ára gamall og heitir Russell Lewis. Hann fer meö hlutverk Churchill í bernsku, en þeir eru þrir sem fara meö Churchill-hlutverkiö i myndinni, sem valið var nafniö „Ungi Winston”. Russell litli hefur óneitanlega mikinn svip frá Churchill — þaö gera kjálkarnir. Bolabiturinn, sem- er með honum á myndinni er eins og til aö undirstrika þá einbeitni, sem einkenndi striðshetjuna gömlu. Kvikmyndin segir frá ævi Churchill frá barnæsku til manndómsáranna. En þeir tveir, sem fara með aðalhlutverkið i myndinni auk Russells, eru Ian Holm og Simon Ward. Skopast að eiginkonum —er ónœgður með sína annaðhvort. hefur fengið áhuga- verð verkefni og timafrek. Og oft vinnur hann af sliku kappi, að hann er ekki viðmælandi i marga daga. Grinmyndir sinar selur Quist til flestra Evrópulandanna. Hér á landi á Visir birtingarréttinn - þó mörg landsblaðanna vilji oft á tiðum laumast til að birta eina og eina. Þvi hver stenzt kimni Quist-brandaranna? Sovétrikin og Astralia eru sólgin i myndaskritlur grinist- ans. „En það er óttalega leiðin- legt að skipta við þau lönd. Það er svo erfitt að fá þarlenda til að borga,” segir Quist. Hann tekur sig stundum til og safnar saman heilum flokk myndaskritlna og gefur út i bók. Sú nýjasta af þvi taginu heitir „Samlif”. Hún hendir gaman að ánægju og erfiðleikum hjónabandsins. Ein af hnyttilegustu mynda- skritlum bókarinnar er ábyggi- lega sú, sem sýnir eiginmann- inn vera að þvi kominn að hengja sig, en~er stöðvaður af eiginkonunni með orðunum: — Hvað á þetta eiginlega að fyrir- stilla, Armand. Þú, sem átt enn- þá eftir að vaska upp. Hjónaband Quist sjálfs og Birgit hefur gengið ljómandi i 12 ár, og árangurinn er þrir synir og ein dóttir. Meðfylgjandi mynd var tekin ekki alls fyrir löngu, en hún sýn- ir þau Quist-hjónin leggja af stað i ferðalag um Frakkland á Lotus-sportbifreið sinni. Börn'in eru með i ferðinni, — ....og pabbi er búinn að lofa okk- ur þvi að rekja alla beztu tennisvelli landsins, upplýsti yngsti fjölskyldumeðlimurinn. En öll fjölskyldan iðkar tennis af mikilli eljusemi. Sjálfur hef- ur Quist náð frækilegum árangri i þeirri iþrótt og oftlega tekið þátt i meiriháttar tennis- keppnum lands sins. Þegar skopmyndateiknarinn Hans Quist, 50 ára gamall, er al- varlega þenkjandi og vill vera út af fyrir sig, situr hann við að teikna landslagsmyndir úti fyrir sumarhúsi fjölskyldunnar við vesturströndina, en Quist er danskur i húð og hár. Það er frú hans, Birgit, sömuleiðis. Hún leggur stund á frönskunám af kappi þegar húsbóndi hennar dregur sig i hlé með fyrrgreind- um hætti. Quist vinnur annars jafnan frá klukkan niu á morgnana þar til klukkan um fimm eftir há- degi. En hann leggur lika oft og iðulega nótt við dag, ef hann Hans Quist gerir oft og iðulega kátbroslegt grin að eiginkonum í myndaskritlum sfnum. En hann slær Birgit sinni stöðugt gull- hamra. Það er lika alltaf rúm fyrir hana I sportbflnum hans.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.