Vísir - 02.01.1973, Síða 17
Visir. Þriðjudagur 2 janúar 197:5 ____________________________________________________17
Lí □AG | Q KVÖLD | Q DAG | Q KVÖLD | Q □AG |
Sjónvarp kl. 20,30: Ashton fjölskyldan
Og áfram heldur stríðið
1 tilefni af því að i kvöld verður sýndur þáttur, þar sem mest er fjallað
um þau Margréti og Jón Porter, birtum við mynd af leikaranum, sem
leikur Jón, en hann heitir Ian Thompson og er tuttugu og átta eða niu
ára gamall (giftur).
Sjónvarp kl. 21,40:
Sœgon
og óhrif stríðsins
Þaó má kallast nokkuð
tímabært að sýna mynd um
fólkið í Víetnam, þvi að
undanfarið hefur þetta
land verið óvenju mikið í
fréttum vegna aukinna
loftárása bandaríkja-
manna síðustu vikurnar.
Myndin, sem sýnd verður i
sjónvarpinu i kvöld, er að visu
ekki frá Norður-Vietnam þarsem
sprengjunum rignir tiðast þessa
dagana, en hitt er áreiðanlega
ekki siður áhugavert, að sjá
hvernig fólkinu i Suður-Vietnam
liður og hvaða áhrif striðið hefur
á lif þess.
Kanadamenn hafa verið mjög
iðnir við gerð fræðslumynda og
ber þar hæst „Nationa! Film
Board of Canada”, en islenzka
sjónvarpið hefur mikið sýnt af
myndum þeirra. Ekki er að efa að
filman verður vönduð að gerð,
eins og annað frá þeim stað.
Myndin er tekin i Sægon (staf-
setning dagskrárritara sjón-
varpsins), höfuðborg Suður-Viet-
nam, og nágrenni hennar.
Jæja, nú geta landsmenn
andað léttar á ný, í kvöld
birtist Ashton fjölskyldan á
skerminum á ný eftir jóla-
fríið.
Þátturinn i kvöld fjallar aðal-
lega um þau hjónin Margréti og
Jón Porter. Jón er allur að bragg-
ast og jafnframt þvi, sem heilsan
skánar hjá honum verður sam-
band þeirra Margrétar hlýrra á
ný-
Þau fá sér göngu og fara inn á
krá, þar sem þau hitta aftur
rpann, sem á sinum tima gerði
skandal i brúðkaupinu þeirra með
þvi að fara að rifast við Sefton um
pólitik. Hann er enn með einhvern
uppsteyt en John býður honum
samt heim þar sem setzt er inn i
stofu og farið að spjalla saman.
Þegar talið berst hættulega nærri
sambandi Margrétar og Mikaels
rekur Margrét manninn á dyr.
Þátturinn endar siðan með þvi
að allt fellur i ljúfustu löð á milli
þeirra hjónanna og eftir það ætti
ekki að vera nein óvissa um hvorn
mannanna hún hefur valið til að
vera með það sem eftir er ævinn-
ar.
Um daginn þegar skrifað var
hér i blaðinu um Ashton fjölskyld-
una i tilefni þess að þáttur féll
niður þriðjudagskvöldið fyrir jól,
komu fram rangar upplýsingar.
Það var sem sé sagt, að Sviar
væru komnir álika langt með að
sýna myndaflokkinn eins og við
hér á Fróni. Hið sanna mun hins
vegar vera að þeir luku við að
sýna myndaflokkinn einhvern
tima á fyrri hluta siðastliðins
sumars. Eru Ashton aðdáendur
beðnir velvirðingar á þessu.
—Ló
Útvarp í dag kl. 17.40:
Uppstoppuð ugla rœðir
— í nýju barnasögunni
Krakkarnir ættu að setjast við
útvarpstækin i dag og byrja að
fylgjast með nýju barnasögunni,
sem heitir „Uglan liennar
Mariu”.
Sagan fjallar um litla
fjölskyldu, sem er dálitið öðruvisi
en flestar aðrar fjölskyldur, þetta
eru íoreldrar og tvær dætur
þeirra, Trina og Maria.
Þessi fjölskylda erfir sumar-
bústað eftir gamlan frænda og
þau fara strax á kreik til að lita á
þessa nýju eign sina. Þegar kom-
Útvarp í dag kl. 14.30:
Æskuminningar úr
Suðursveit
Frásöguþáttur sá, sem Einar
Bragi skáld byrjar lestur á i dag,
er ah stofni til minningar lians frá
þvi hann var eitt sumar i sveit á
bænum Sléttaleiti i Suðursveit.
Einnig er þar allmikið fjallað um
bóndann, sem þá var á bænum og
merkilega reynslu lians. Sveinn
Einarsson heitir liann og býr nú á
Hornafirði.
Einar Bragi skrifaði þetta i
Kaupmannahöfn, er hann var þar
ekki alls fyrir löngu.
Nafnið á bænum Léttaleiti, er
dálitið undarlegt, þvi að bærinn
stendur undir snarbröttu fjalli og
á þessum slóðum hrynur oft stór-
grýti úr fjallinu. Þetta er næsti
bær austan við Hala og er um það
bil tuttugu minútna gangur á
milli bæjanna.
Einar Bragi er Skaftfellingur
að móðurætt og mikið af hans for-
feðrum hefur búið i Suðursveit og
öræfum. Þegar Visir hafði sam-
band við hann, sagði hann, að sér
væru þessar slóðir kærar og hefði
hann reynt að rækja vel sin tengsl
við þessar sveitir. Annar hluti
frásöguþáttarins verður fluttur á
fimmtudaginn. — LÖ.
mólin
ið er á staðinn, kemur ýmislegt
dularfullt i ljós, eitthvað, sem
ekki er gott að skilja.
Uglan, sem sagan heitir eftir,
er uppstoppuð og Maria tekur
hana með sér, hvert sem hún fer.
Maria ræðir mikið við ugluna, og
uglan fær lif i huga hennar og þar
með i sögunni, og þær ræða sam-
an um allt sem gerist, eftir þvi
sem þeim dettur i hug hverju
sinni. Sagan er eftir Finn
Havrevold, en Sigrún Guðjóns-
dóttir islenzkaði. Olga Guðrún
Árnadóttir les söguna. — Ló.
ÚTVARP •
Þ RIÐJUDAGUR
2. janúar.
13.00 Eftir hádegið. Jón B.
Gunnlaugsson leikur létt lög
og spjallar við hlustendur.
14.15 Fræðsluþáttur um al-
mamiatryggingar.
14.30 Sumardagar i Suður-
sveit. Einar Bragi skáld
flytur fyrsta hluta frásögu-
þáttar.
15.00 Miðdegistónleikar.
16.00 Fréttir.
16.15 Veðurfregnir.
16.25 Popphornið.
17.10 Tónleikar.
W
W
Nl
f...."v
~ •
Hrúturinn,21. marz—20. april. Það litur út fyrir
að flest gangi heldur þunglamalega, og að tillög-
ur þinar fái ekki þann hljómgrunn, sem þú gerð-
ir ráð fyrir.
Nautið,21. april—21. mai. Athugaðu vel hvernig
málin standa, með tilliti til þess að vissum
áfanga er náð og nýr áfangi hafinn, eða er um
það bil að hefjast.
Tviburarnir, 22. mai—21. júni. Þú getur litið
vondjörfum augum fram á leið. Þér hefur gengið
margt i haginn að undanförnu, og á þvi mun
sennilega verða nokkurt framhald. *.
Krabbinn, 22. júni—23. júli. Farðú þér hægt og *I
rólega til að byrja með. Það er ýmislegt sem þú t
þarft aðathuga, að minnsta kosti ættirðu ekki að I*
ílana að neinu.
Ljónið,24. júli—23. ágúst. Það bendir allt til þess ‘*
að dagurinn verði nokkuð notadrjúgur, enda þótt *J
margt geti orðið fremur laust i reipunum, að I*
minnsta kosti fyrsL
Meyjan, 24. ágúst—23. sept. Það getur fanið svo *!
að þér gangi erfiðlega aðátta þig á hlutunum, að I*
minnsta kosti sumum og eins á viðhorfi vissra í
aðila gagnvart þér.
Vogin,24. sept.—23. okt. Það er sennilegt að þér
verði gert eitthvert tilboð i dag, sem virðist mjög
girnilegt. Flanaðu samt ekki að neinu en athug-
aðu allt gaumgæfilega.
I)rekinn,24. okt.—22. nóv. Dagurinn virðist geta
orðið þér að einhverju leyti erfiður, eða öllu
heldur að þú hafir einhverra hluta vegna ekki i
fullu tré við verkefnin.
Bogmaðurinn, 23. nóv.—-21. des. Beittu varúð i
öllum viðskiptum, þar sem um peninga er að
ræða, og einsskaltu hafa vaðið fyrir neðan þig i
öllum samningagerðum.
Steingeitin, 22. des.—20. jan. Góður dagur, að
minnsta kosti þegar á liður. Ekki óliklegt að þér
verði falið ánægjulegt verkefni, eða leitað til þin
um aðstoð við það.
Vatnsberinn, 21. jan,—19. febr. Góður dagur á
margan hátt og betri er á liður. Taktu samt ekki
neinar mikilvægar ákvarðanir fyrst i stað,
heldur athugaðu málin.
Fiskarnir,20. febr.—20. marz. Það bendir allt til
þess að þú getir komið ár þinni vel fyrir borð i
dag, ef þú litur vel i kring um þig og ferð þér ekki
óðslega að neinu.
17.40 Útvarpssaga barnanna:
„Uglan hcnnar Mariu” eftir
Finn Havrevold- Sigrún
Guðjónsdóttir islenzkaði.
Olga Guðrún Arnadóttir
byrjar lestur sögunnar.
18.00 Létt lög. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar
19.20 Fréttaspegill.
19.35 Umhverfismál.Haraldur
Ólafsson lektor flytur þátt
eftir Per Gárder.
19.50 Barnið og samfélagið.
Pálina Jónsdóttir kennari
nefnir þennan þátt: Þegar
börn byrja að spyrja.
20.00 Lög unga fólksins.
Sigurður Garðarsson
kynnir.
20.50 íþróttir. Jón Asgeirsson
sér um þáttinn.
21.10 Tékknesk óperutónlist
SJÓNVARP •
Þriöjudagur
2. janúar 1973
20.00 Fréttir
20.25 Veður og auglýsingar
20.30 Ashton-fjölskyldan
Brezkur framhaldsmynda-
flokkur. 34. þáttur. Stríðið
lieldur áfram Efni 33.
þáttar. David er hjá Grace
vinkonu sinni, i Lundúnum,
þegar eiginmaður hennar
kemur óvænt heim. Davið
tekur þetta nærri sér, en
skömmu siðar ferst vinur
hans og staðgengill i
árásarferð og Davið hringir
til föður sins. Hann er alger-
lega úr jafnvægi, fullur
iðrunar og svartsýni.
21.30 Þættir úr sögu Banda-
rikjanna: Ungt riki i mótun.
Jón R. Hjálmarsson skóla-
stjóri flytur erindi.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Rannsókn-
ir og fræöi. Jón Hnefill Aðal-
steinsson fil. lic. ræðir við
Björn Teitsson cand. mag.
um byggðasögurannsóknir.
22.45 Harmonikulög. Hljóm-
sveit Káre Korneliussens
leikur.
23.00 A liljóðbergi. Gjafir
vitringanna. — Claire
Bloom og Ed Begley lesa
tvær sögur eftir O. Henry.
23.35. Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
21.20 Rhapsody in Blue
Útvarpshljómsveitin i Oslo
leikur hið kunna tónverk
eftir George Gershwin.
Stjórnandi öivind Berg.
Einleikari Kjell Bækkelund.
(Nordvision — Norska sjón-
varpið)
21.40 llnipin þjóð i vanda
Kanadisk kvikmynd um
lifið i Saigon, höfuðborg
Suður-Vietnams, og hér-
öðunum þar i kring. I mynd-
inni er lýst áhrifum lang-
varandi ófriðar á hagi og
hætti landsbúa. Þýðandi og
þulur Ellert Sigurbjörns-
son.
22.35 Dagskrárlok.