Vísir - 02.01.1973, Side 20
Þriðjudagur 2. janúar 1973
Straumsvíkur-
menn fá
minnst 8,62%
hœkkun —
sumir meira
Sumir starfsmenn ISALS
i Straumsvík hafa fengiö
verulega kauphækkun.
Minnsta hækkun sam-
kvæmt samningum, sem
voru undirritaðir á
gamlársdag, er 8.62
prósent, en nokkrir fá tals-
vert meiri hækkun.
Sex prósent hækkun kaups, sem
var samið um aö kæmi til 1.
marz næstkomandi, var flutt
fram til 1. desember slöastliöins,
en samningar gilda frá 1. des.
Auk þess var flokkakerfi, sem var
byggt á starfsmati, fellt niður. I
staö fjórtán slikra flokka koma
fastir niu flokkar, sem þýöir, aö
lægstu flokkarnir hafa veriö
felldir niöur. t þvi felst nokkur
kauphækkun til þeirra, sem áður
voru i neöstu flokkunum, til viö-
bótar hinni almennu kaup-
hækkun.
Samningafundir höföu staöiö
iinnulitiö i tvo og hálfan sólar-
hring, þegar samiö var. Samn-
ingar ná til nokkurra tuga
manna, hvergi nærri alls starfs-
fólksins. —HH
Atgangsharðir
við brennugerð
í Eyjum
Nýja áriö gekk ekki hávaöa-
laust i garö I Vestmannaeyjum.
Þar gætti talsverörar ölvunar, og
voru aö minnsta kosti sex hýstir
hjá lögreglunni fyrstu klukku-
tima ársins.
Tveir voru sömuleiöis teknir
ölvaðir undir stýri. öörum þeirra
haföi áður tekizt aö aka niöur tvo
vegfarendur. Þeir voru báðir
fluttir á slysavaröstofuna, en
reyndust ekki hafa hlotið til-
takanleg meiösl.
Þá var glatt i kringum allar
brennurnar, sem lýstu upp
Heimaey. En talsverörar tor-
tryggni gætti i garö eldiviöarins.
Nokkur brögð hafa nefnilega
veriö aö þvi, aö þeir, er söfnuöu i
brennurnar, hafi gerzt margir
hverjir heldur djarftækir. 1 sam-
keppninni um stærö bálkastanna
höföu þeir sumir jafnvel brotiö
upp geymslur hér og þar i leit aö
einhverju, sem brynni.
Sem dæmi um „brenni”, sem
dregið haföi veriö á einn bálköst-
inn, má nefna óuppteknar gler-
kistur, sem húsbyggjandi einn
náöi svo aö bjarga undan á elleftu
stundu. —ÞJM
Tveir bílor út of,
en ökumennirnir
stungu of
Tveir bilar fóru út af Gufunes-
vegi og Vesturlandsvegi I gær-
dag, og létu ökumenn sig hverfa.
Hefur ekki náöst til þcirra ennþá.
Viö Gufunesveg fann lögreglan
jeppabifreiö, sem haföi fariö út
af, og var þó litið skemmd.
Ekkert sást til ökumanns
bifreiöarinnar og hefur ekki náðst
til hans ennþá.
A Vesturlandsvegi haföi fólks-
bifreið fariö út af veginum, og var
hún ásamt jeppabifreiðinni tekin
og fjarlægð i nótt. Ekki náöist til
ökumanns hennar heldur og i
morgun haföi ekki náöst til hans
ennþá. Virðist hann hafa foröað
sér eins og sá á jeppabifreiöinni.
Fólksbifreiöin var ekki mjög
illa farin, en mikil hálka var á
vegum um þetta leyti. Uröu þó
fáir og smávægilegir árekstrar.
—EA
I STRIGASKONA
OG Á EFTIR ÞJÓFUNUM!
,,Ég skipti um skó,
brá mér i strigaskó og
hljóp siðan á eftir þjóf-
unum”, sagði Sæmund-
ur Pálsson, lögreglu-
maður, þegar Visir
hafði samband við
hann i morgun, en dæt-
ur Sæmundar komu
auga á tvo unglings-
pilta, sem gerðu tilraun
til þess að brjótast inn i
Sunnubúðina á gaml-
árskvöld.
„Strákarnir tveir, sem eru
um það bil 15 og 16 ára, brutu
rúöu I verzluninni, en þá sáu
dætur minar þaö og töluðu eitt-
hvaö um það, að þær skyldu
hlaupa heim og ná i pabba. Þeir
heyrðu það og tóku á rás, en ég
sá þá út um gluggann og hljóp á
eftir þeim”.
„Þeir voru eitthvað ölvaöir,
en samt sprækir á hlaupunum.
Ég náöi þeim þó og leiddi þá
niður á Nesveg, þar sem ég beið
eftir þvi, að lögreglan kæmi.
Ekki gátu piltarnir stoliö
neinu úr verzluninni að þvi er
Sæmundur sagði, en Sæmundur
kom einmitt við sögu þetta
kvöld i sjónvarpsþættinum
„Hvað er i kassanum?” —EA
LÖGREGLAN Á HÆLUM MIÐA-
FALSARANNA
— Létu prenta 50 miða ó Attadagsgleði
SHÍ og seldu fyrir 500 krónur
Fullvist er nú taliö, aö það hafi
veriö piltar úr Háskóianum, sem
stóöu aö fölsun aögöngumiöa aö
Attadagsgleöi Háskólastúdenta
sem fram fór I Laugardalshöll-
inni á Gamlárskvöld. Var þaö
prentsmiöjueigandi, sem geröi
viövart um miöaföisunina og var
þá strax lesin auglýsing þar aö
lútandi f útvarpi.
Lærlingur prentsmiöju-
eigandans haföi viöurkennt aö
hafa prentað 50 aögöngumiöa, en
fyrir hverja gat hann ekki
upplýst.
Miöar hans voru aö þvi leytinu
til ólikir hinum einu sönnu, aö á
þá vantaöi tölusetningar. t út-
iWp
Fyrsta barnið árið 1973:
„Sannkallað óskabarn!"
Fyrsta barniö, sem fæddist á
árinu 1973, var litiö stúlkubarn,
sem fæddist á Fæöingardeild
Landspitaians klukkan 1.45 á
nýársnótt. Visismenn heimsóttu
nýfædda borgarann í gærdag og
móöur þess og færöu þeim góöan
blómavönd.
Bæöi móöur og barni heilsaöist
ágætlega, enda sagöi móðirin
okkur aö fæöingin heföi gengiö
ljómandi vel. Stúlkan var 14
merkur og 50 cm á lengd og reglu-
lega myndarleg.
Móöirin er Karitas Isaksdóttir,
en faöirinn Halldór Magnússon.
Þau eiga 6 ára snáöa fyrir, og
sagöi Karitas þvi, aö stúlkan væri
sannkallaö óskabarn.
önnur stúlka fæddist svo á
Fæöingardeild Landspítalans
klukkan 12,45 I gærdag og svo
drengur klukkan 2.
Alls voru skráöar 1476 fæöingar
á Landspitalanum á árinu 1972,
en siöasta barniö þaö áriö fæddist
klukkan 21 á gamlárskvöld.
Fyrsta barniö á Fæöingar-
heimilinu viö Eiriksgötu fæddist
svo klukkan sex á nýársdags-
morgun, og var þaö stúlka.
—EA
varpsfréttum var skýrt frá þvi,
og hafa þá þeir sem höfðu fölsuöu
miðana undir.höndum, tekið sig
til i snatri og bætt úr þeim galla.
Ekki er vitað hvort einhverjir
kunni aö hafa fleygt fölsuðum aö-,
göngumiöum er þeim varð ljóst
hiö rétta, en um 20 til 30 geröu til-
raun til aö komast inn i höllina út
á falsaða miða.
Gáfu margir þá skýringu, aö
þeir heföu keypt miöa sina fyrir
500 krónur fyrir utan
innganginn . Fékk lögreglan þá
um leið til að ganga út fyrir með
sér, en þá var eins og jörðin heföi
gleypt miðasalana.
Forsala aögöngumiöa hófst i
o«<*
500-0°
vt»Ð **• . _
019»s
ve**> *«• 000,00
Sá númeraði er ófalsaöur. Falsararnir létu sig ekki muna um aö
númera fölsun sina, þegar þeim varö gailinn Ijós.......
Háskólanum um miðjan des-
ember og kostuðu miðarnir þá 500
krónur. Viö innganginn voru þeir
svo seldir á 640 krónur. Dágóður
skildingur, sem SHl hefur rennt
þannig i sjóö sinn, þvi tala gesta á
Attadagsgleöinni varö 2500.
Miöafölsunin ein saman kann aö
hafa dregið frá þeim allt að 25
þúsund krónur.
Vitað er, aö miðafalsararnir
höfðu leitað til annarra prent-
smiöja i bænum með prentun, en
verið visað frá.
—ÞJM
3 slasast í órekstri
Haröur árekstur varö á
I gærdag. Leigubifreið og fólks-
bifreiö, sem komu akandi á móti
hvor annarri eftir veginum,
skullu saman með þeim af-
leiöingum, að þrir farþegar, sem
voru i bifreiðinni, slösuöust.
Bifreiöarnar skemmdust
nokkuö, en farþegarnir þrir voru
fluttir á Slysavarðstofuna. Það
kom þó i ljós, aö meiösl voru ekki
alvarleg, og fengu þeir að fara
heim við svo búið. —EA
Lútið kertið
eiga sig, slökkvi
liðsmenn..."
Góðu heilli urðu útköll
slökkviliðsins á gaml-
árskvöld fæst af ann-
arri stærðargráðu en
það i Breiðholti. Þang-
að hafði liðið verið
kvatt að Hjaltabakka
10, en þar hafði einhver
séð eldbjarma á svöl-
um.
„Æ, þiö ætlið þó ekki aö
, slökkva á kertinu fyrir mér”,
sagöi ibúöareigandinn, sem
kom þar fram á svalir, þegar
slökkviliösbilar og algallaöir
slökkviliösmenn voru komnir á
staðinn og slöngur höföu verið
dregnar heim aö húsinu.
Slökkviliðiö sá aumur á kerta-
loganum, sem uppistandinu
haföi valdiö, og lét hann óáreitt-
an fyrir vægöarorð ibúðareig-
andans.
Að minnsta kosti tvær Ikveikj-
ur voru reyndar siðasta dag
ársins, en slökkviliðið var fljótt i
feröum, og náöi eldur hvergi aö
komast á legg.
Onnur ikveikjan var gerö I
Brautarholti. Þar hafði
sprengja veriö látin springa I
póstkassa, og náöi reykkófiö allt
upp á þriðju hæö, þegar slökkvi-1
liöiö bar að.
—ÞJM
Minna af bensíni
fyrir 16 krónurnar
Og nú er ekki lengur hægt aö fá
bensinlítrann á gamla góöa
veröinu. Sopinn er nú kominn upp
I 19 krónur eftir aö hafa veriö
seldur I liölega þrjú ár á aöeins 16
krónur.
Hækkunin tók gildi i morgun, en
bensin var selt á gamla verðinu
fram til klukkan þrjú á gamlárs-
dag.
Þeir bensinafgreiöslumenn,
sem Visir haföi tal af, voru á einu
máli um þaö, aö hækkunin hafði
ekki haft hamstur eins eða neins i
för meö sér. Viðskiptin viö
bensinafgreiöslurnar hafi ekki
veriö meiri en við var aö búast á
þessum degi. En þeir, sem á
annaö borö keyptu bensin á bif-
reiöar sinar, létu „fyll’ann. ÞJM