Vísir - 29.01.1973, Page 3
Visir. Mánudagur 29. janúar 1973
3
hverri stundu hrunið, þar sem
bleyta var komin i öskuna og
þunginn mikill. Á efstu hæð
hússins i herbergi sonarins, hafði
rúða brotnaði og mikil aska hafði
komizt inn. öskuna skóf, og þvi
gat verið hætta á þvi að
svalardyrnar lokuðust, en það
var eina út- og inngönguleiöin,
sem hægt var að fara. Annað var
komið i kaf. En Árni pakkaði
samt sem áður niður pottum og
öðru sliku, þvi flestu varð að
bjarga
„Mér finnst, að eitthvert stór-
veldið ætti að styðja okkur Vest-
mannaeyinga og hjálpa okkur við
að byggja upp þorp einhvers
staðar. Það verður liklegast ákaf-
lega erfitt fyrir okkur að fara sitt
i hvora áttina, Vestmannaeyinga
sírstaklega þá, sem hér eru
fæddir og uppaldir, en það er ég
til dæmis”.
„Ég ætla mér ekki að koma
hingað aftur. Helzt vildi ég, að
aska legðist yfir allt saman og
setti svart strik yfir það, sem
verið hefur. Og liklegast fara
málin þannig að lokum”.
— Hvað missir þú mikið hérna?
„Ja, kunningi minn einn, sem
kom hér um daginn, verðlagði
húsið aðeins i gamni, og hann
komst að þvi, að það væri þriggja
og hálfrar milljón króna virði.
Það er kannski lán i óláni, að ég á
engan bfl, en húsið missir maður
allt”.
Fjölskylda Arna var þegar
komin til Reykjavikur, þangað
sem hún fór strax eftir að gosið
hófst, en Arni kom fljótt aftur til
Eyja til þess að hjálpa til. Það má
þá geta þess, að við björgunar-
starfið i fyrrakvöld fékk Árni
stóran öskustein i sig og var þvi
hálf vankaður, þegar Visir hitti
hann að máli, en hann ætlaði sér
að bjarga þvi, sem bjargað varð.
—EA
Reykjanesið sigldi upp ó Hvalbak
Dogfari bjargaði tveim
skipshöfnum ó sólarhring
Dagfari frá Húsavik
bjargaði tveimur skips-
höfnum á einum sólar-
hring. Reykjanes frá
Hafnarfirði strandaði á
Hvalbak klukkan 6:20 i
morgun. Ekkert var að
monnum.
Næstu skip voru Dagfari og
Höfrungur. Lestir Reykjaness
voru fullar af sjó, en skipið komst
aftur á flot. Enginn sjór var i
vélarrúmi. Klukkan 7:48 hafði
Dagfari komið linu á Reykjanes
og hélt siðan með Reykjanesið i
togi til næstu hafnar.
Fréttir voru enn nokkuð óljósar
laust fyrir hádegi, en Slysa-
varnarfélagið og sýslumaðurinn
á Eskifirði lögðu áherzlu á afrek
Dagfara. Skipstjóri Dagfara er
Sigurður Sigurðsson frá Húsavik.
Skipið hafði i gær bjargað skips-
höfn af Jóni Kjartanssyni, eins og
fram kemur i annarri frétt.
Sýslumaður sagði, að helzt væri
að skilja, að Reykjanesið hefði
siglt upp á klettinn Hvalbak land-
megin. Þar væru grynningar, en
sjávarmegin stæði kletturinn upp
úr sjó.
Reykjanesið er 250 tonn. Veður
var talið sæmilegt á þessum slóð-
um samkvæmt upplýsingum
Slysavarnarfélagsins.
— HH
Jón Kjartansson sökk tvœr mílur fró landi
IKKI OFHIEÐSLA
— segir Þorsteinn Gíslason einn eigenda skipsins
Það er alrangt, að Jón Kjart-
ansson hafi verið of hlaðinn.
Þarna hefur eitthvað óvænt gerzt,
sem við vituin ekki um. Þetta
sagði Þorsteinn Gislason, skip-
stjóri, i morgun um orsakir þess,
að Jón Kjartansson sökk i gær-
kvöldi.
Þetta mikla aflaskip sökk að-
eins tvær milur undan Vattarnesi.
Góðar vonir höfðu verið um að
bjarga skipinu eftir um niu og
hálfrar stundar baráttu i gær.
Þorsteinn Gislason, einn eig-
enda skipsins, fylgdist allan tim-
ann með björgunarstarfinu.
Nafni hans, Þorsteinn Erlings-
son, var skipstjóri á Jóni Kjart-
anssyni, en til hans náðist ekki i
morgun. Dagfari tilkynnti klukk-
an 10,24 i gærmorgun, að hann og
Vatnsleiðslan senn í hœttu
Vatnsleiðsla Vestmannaeyinga
er i mikilli hættu. Kortið sýnir,
hvernig hraun og gjall hleðst upp
á botni og hefur minnkað dýpið i
hafnarmynninu, þótt ekki tálmi
það siglingum enn. Þéttstrikaða
svæðið sýnir, hvar hraun og gjall
stendur upp úr sjó, en tölurnar i
metrum sýna dýpið.
Sést, að dýpi er aðeins 40 metr-
ar skammt frá vatnsleiðslunni.
Rafmagnslina er litlu fjær. Ofar á
kortinu eru strik, sem sýna dýpið
fyrir gosið, og það er enn óbreytt
á þeim slóöum. Slitnu strikin 20
m 30 m og 40 m sýna dýpið eins
og það mældist i gær og fyrradag.
Þessar dýptarlinur voru áöur i
svipaðri fjarlægð frá landi og þær
eru ofar, þar sem strikin eru heil.
Á þvi kemur fram, hvernig
hraun og gjall skriður fram,
þannig að endi þess nær næstum
til vatnsleiðslunnar.
Mælingar Arvakurs i fyrradag
og Þórs i gær sýna breytingu á
þeim hraun- og gjallmassa, sem
stendur upp úr. Hafði yzti hluti
massans brotnað á þessum sólar-
hring og flutzt inn að landi, eins
og sést með samanburði á
mælingu Árvakurs, þar sem
þéttstrikaða svæðið nær lengra út
frá landi, og mælingu Þórs, þar
sem feita brotna strikið sýnir,
hvernig massinn færðist til i
norður og upp að landi.
Grái hlutinn sýnir aðal hættu-
svæðið i landi.
t-riHUUL v/f>
AKJAlCuR
kL 19.00 27 I
S'jlJi'j.lJ \ rftF-Ukka V/i>
/yJbv Po* KL /9.00
tveir bátar fylgdu Jóni Kjartans-
syni, sem lónaði norður frá Hval-
baksmiðum með talsverðan bak-
borðshalla. Skipið var i mikilli
hættu, en menn taldir óhultir.
Klukkan 11.15 var bakborðshlið
sett upp i vind, en ekki fór betur,
þar sem þá lagðist skipið yfir á
stjórnborða með svipuðum halla.
Dagfari tók alla menn upp nema
þrjá, sem reyndu að sigla Jóni
Kjartanssyni á eigin vélarafli til
Eskifjarðar.
Hallinn jókst, og klukkan 19.45
gáfust menn upp. Dagfari bjarg-
aði mönnum, og skipið sökk kl.
20.35. Þá var dæluskip á leið frá
Eskifirði til að freista þess að
dæla sjónum úr skipinu, en þaö
náði ekki i tæka tið.
A Eskifirði er sagt, að hleðsla
muni hafa kastazt til á Jóni
Kjartanssyni, en ekki var upplýst
frekar um orsakir.
Jón Kjartansson var áður tog-
arinn Jörundur, smiöaður 1949 og
var 491 tonn. Vélar voru nýjar.
— HH
Ók niður víða-
vangshlaupara
Ekki eru allir hrifnir af
iþróttunum, að minnsta kosti ckki
þegar iþróttaiðkanir annarra
trufla mikiivæg störf
Viðavangshlaup héraðssam-
bandsins Skarphéðins og tR,svo-
kallað Kambahlaup var
haldið nú i gær. Hlupu þátt-
takendur frá Kambabrún til
Reykjavikur. Ekki voru samt
allir ánægðir yfir þessu hlaupi að
minnsta kosti bárust lögreglunni
margar kvartanir vegna hlaup-
aranna frá vegfarendum, sem
töldu iþróttamennina trufla um-
ferðina yfir heiðina.
Mikil umferð var á milli Þor-
lákshafnar og Reykjavikur, en
þar á milli voru bilar i stöðugum
ferðum við að flytja búslóðir, er
komiöhafði veriðmeðfrá Eyjum.
Urðu tíundu í
„Sunday Times"-
keppninni
— fast á eftir heimsmeistara og
kvikmyndahetjunni! Shariffs
ofan miðju, mundu verða
boðnir aftur til þátttöku að ári
liðnu.
Asmundur Pálsson og Hjalti
Eliasson, isienzku bridge-
spilamennirnir, sem þátt tóku
i Sunday Times-mótinu I
London núna um helgina,
höfnuðu i 10. sæti af 22 þátt-
takendum — fast á hæia
heimsmeistaranum Garozzo
og kvikmyndastjörnunni
Omar Shariff, sem höfnuðu i 9.
sæti.
Sunday Timeskeppnin nýtur
feikilegra vinsælda meðal
fremstu spilamanna heims og
þátttakan svo takmörkuð, að
ekki komast nærri allir að,
sem hefðu þó gjarnan viljaö.
En stjórnandi mótsins hafði
lýst þvi yfir, að þeir út-
lendingar, sem höfnuðu fyrir
Sigurvegarar að þessu sinni
voru Bandarikjamennirnir,
Altman og Sontag, meö 119 1/2
stig, en i öðru sæti lentu félag-
ar þeirra, Weichsel og Smith
með 116 stig. Heimsmeistar-
inn, Belladonna, með félaga
sinum Mondolfo hreppti þriðja
sætið með 115 stigum. —
Annars var röðin þessi:
4. Coyle-Silverstone, 111 1/2, 5.
Rose-Sheehan, 111 1/2, 6. Pri-
day-Rodrique, 109. 7. Morath-
Flodquist (Sviþjóð), 103. 8.
Titner-Yallouze (Frakkl.) 95
1/2, 9. Shariff-Garozzo, 94 1/2,
10. Asmundur-Hjalti, 93, 11.
Cansino-Flint, 92 1/2. _GP
Einn vörubílstjórinn varð meira
að segja fyrir þvi að aka aftan á
einn iþróttamannanna, sem
sennilega hefur ekki viljað
hleypa bilunum fram úr. Ekki
varö þá áreksturinn harður, þvi
hlauparinn hljóp strax af stað
aftur með miklum eldmóði og lét
það ekki á sig fá, þótt einn vöru-
bill keyrði á hann.
Vörubilstjórinn varð auðvitað
gramur yfir truflun þeirri, sem
iþróttamennirnir ollu og kvartaði
til lögreglunnar. Töluverð hálka
var á veginum og hafði bil-
stjóranum ekki heppnazt að
stoppa, áður en hann ók iþrótta-
manninn niður, sem ekki kenndi
sér þó nokkurs meins.
—ÞM
Það mátti vart tæpara standa að
bjarga húsgögnum út úr þeim
liúsum sem hér sjást fremst á
myndinni. A miðvikudagskvöid
var hlaupið til og sem flestu reynt
að bjarga út úr húsunum, þar sem
talið var að hraun gæti runnið til
byggða, og þá yfir þessi hús. Svo
varð þó ekki, þess i stað hefur
aska nú eyðilagt mörg hver húsin,
og sum eru illa á sig komin. Sums
staðar iogar enn i rústunum.
Ljósmynd: Bragi Guðm.
Eyjabótar
uppteknir
í flutningum
— og geta ekki byrjað
veiðar á meðan
„Við höfum verið að reyna að
ráðstafa Vestmannaeyjaflotan-
um og skipta honum niður á hafn-
ir, en hefur miðað lítið áfram
ennþá vegna þess að flotinn er
allur i flutningum”, sagði Guð-
iaugur Stefánsson, útgerðarmað-
ur úr Vestmannaeyjum.
„Okkur þykir að visu sóun, að
fiskveiöiflotinn skuli notaður i
björgunarstarfið i staö flutninga-
skipa, sem skortur hefur verið á—
en það er svo sem auövelt að vera
vitur eftir á”, sagði Guölaugur i
samtali við Visi i morgun.
Það mun vera búið að bjarga
öllum veiöarfærum úr Eyjum
nema allmörgum sildarnótum,
sem eru i tveimur veiðarfæra-
geymslum. — Sumir bátar, sem
byrjaðir voru netaveiði, eiga ó-
vitjuð net, sem legið hafa i sjó, frá
þvi áður en gosið byrjaði.
Hvenær geta þeir byrjaö veið-
ar?
„Það er okkar verkefni, Út-
vegsbændafélagsins i Vest-
mannaeyjum, að reyna að flýta
þvi eins og hægt er”, sagði Guð-
laugur Stefánsson, sem er með-
eigandi að aflaskipinu Halkion.
„Það var hafizt handa við að
skipuleggja það, daginn eftir að
gosið byrjaði, þvi að við gerðum
okkur engar grillur um að geta
stundað veiöarnar frá Eyjum”.
—GP