Vísir - 29.01.1973, Blaðsíða 9
Vilberg Sigtryggsson, Ármanni, er kominn i hóp albeztu linumanna ís lands i handboltanum —og á miðvikudag reynir hann sig i pressuliöinu
gegn landsliðinu. Hér skorar hann í leiknum gegn FH þó nýliðinn i FH-liðinu, Sæmundur Stefánsson, virðist þrengja mjög að honum.
ÁRMENNINGAR FÉLLU
A OLLU OÐAGOTINU!
og FH settist aftur á toppinn í 1. deildinni
Mistök á mistök ofan
siðustu minútur fyrri
hálfleiks urðu Ármanns-
liðinu að falli gegn FH i
1. deild i handknattleik i
gærkvöldi. Fram að 27.
minútu var leikurinn
býsna jafn, en upp úr þvi
var ekki um annað að
ræða en sigur til Hafnar
fjarðarliðsins, sem þar
með hreiðrar um sig á
toppnum á ný.
Ármannsliðið er sannarlega
ekki svo vitlaust lið, og sifellt fer
það vaxandi. En það er eins og
vanti nákvæmnina og fyrirhyggj-
una i margar gerðir liðsins. Það
er góður kostur að halda höfði,
þegar á reynir, en það tekst ekki
nema leikreyndum mönnum eins
og þeim i FH og mörgum.
Annars kom það enn einu sinni i
ljós hvilikt þarfaþing það er að
hafa mann eins og Hjalta Einars-
son i markinu. Framan af vörðu
markverðir svo til ekkert, en eftir
að Hjalti kom inn tók hann að
verja skot, sem áður höfðu lekið
inn. Armenningar höfðu lika oft
yfir i upphafi og siðast á 19.
minútu, þegar Hörður skoraði 8:7
fyrir Armann úr vitakasti. En
undir lok hálfleiksins tókst FH að
ná forystu, mest vegna gallaðs
leiks Ármanns, en ekki vegna eig-
in verðleika. í hálfleik var staðan
þvi 14:10, sem er talsvert mikið,
þvi FH tapar ógjarnan sliku for:
skoti niður. ■
1 seinni hálfleik jók FH fremur
við en hitt, og undir lok leiksins
tókst FH enn að auka á muninn og
sigra með algjörum yfirburðum
26:18. Sannarlega var sá sigur
hvorki óvæntur né óverðskuldað-
ur. En ekki verður sagt að mikill
meistarabragur hafi verið á leik
FH. Aðeins leikið til sigurs, allt og
sumt.
Engir sérstakir leikmenn báru
af i liði FH, en þægilega kom þá
einn nýliði liðsins, Sæmundur
Stefánsson, bróðir Kristjáns og
Gils, á óvart. Þessi 18 ára
unglingur sýndi i tvö skipti hvaða
skotum hann hefur yfir að ráða og
óhætt er að fullyrða, að FH mun
ekki tapa á að eiga slikan skot-
mann i liði sinu. Þá verður að
geta Auðuns Óskarssonar, en
hann er greinilega i góðri þjálfun.
Auðunn heldur sig lika lagamegin
við reglurnar, sem er mikil
framför, en það virðist hald-
ast i hendur, leikbrot og æf-
ingaleysi. Gils Stefánsson má
vara sig á þessu, en bæði hon-
um og Þórarni Ragnarssyni var
visað af leikvelli vegna hrotta-
legra brota gegn „risa”
Armenninganna, Herði Kristins-
syni. Þá er að geta Viðars
Simonarsonar, sem átti uú einn af
sinum stóru leikjum, virtist geta
skorað hvar og hvenær sem var.
Geir var og góður, en langt frá
sinum stjörnuleikjum þó.
Armannsliðið virðist enn ekki
kunna að dempa niður hraðann
þegar það á við. Óðagotið varð
liðinu að falli. Stundum var
algjört stjórnleysi á liðinu inni á
vellinum og sendingarnar alveg
himinhrópandi vitleysa. En liðinu
fer fram, á þvi er vart nokkur
vafi, og i liðinu leika margir frá-
bærir leikmenn. Hörður Kristins-
son er sifellt að nálgast sitt gamla
„banvæna” form, og leikmenn
eins og Ragnar, Björn Jóhannes-
son og Vilberg, eru allir gulls
igildi.
Sannarlega var þessi leikur
ekki skemmtilegur á að horfa.
Eftir mistökin i fyrri hálfeik var
aldrei hægt að sjá örla fyrir
spennu i leiknum, — úrslitin virt-
ust öllum augljós. Og þegar FH
hafði 5 mörk yfir og 15 minútur
eftir af leik, virtist kæruleysið
heltaka Ármenninga, sem reyndu
fyrir sér i örvæntingu, en
uppskáru ekkert annað en bolt-
ann i eigið net. Hjalti Einarsson
var þeim of óþægur ljár i þúfu.
Dómarar voru þeir Haukur
Þorvaldsson og óli Ólsen og
dæmdu ágætlega.
Mörk FH i leiknum skoruðu
Viðar 7, Geir 6 (3 viti), Auðunn 5,
Birgir Björnsson 4, ólafur Ein-
arsson 2, og Sæmundur 2. Fyrir
Armann skoruðu Björn Jó-
hannesson 5, Hörður 5 (2 viti),
Ragnar Jónsson 4, Vilberg Sig-
tryggsson 3 (2 viti) og Jón Ast-
valdsson 1.
— JBP.
Boðin aðstaða
á Melavelli
Mikil grózka hefur
verið i iþróttastarf-
semi Vestmannaey-
inga á undanförnum
árum, og úr þeirra
röðum hafa komið
margir af vöskustu
iþróttamönnum
landsins, bæði i ein-
staklings- og hóp-
iþróttum.
Vegna hinna óvæntu og
vofveiflegu atburöa, sem
gerzt hafa i Vestmannaeyj-
um, var haldinn fundur i gær
með fulltrúa frá Iþrótta-
bandalagi Vestmannaeyja i
þvi skyni að kanna hvernig
mætti yiðhalda og halda
áfram iþróttastarfsemi
þeirra við þessar óvæntu
kringumstæður. Voru á
fundinum forseti 1S1,
iþróttafulltrúi rikisins,
iþróttafulltrúi Reykjavikur-
borgarog formaður og fram-
kvæmdastjóri Iþróttabanda-
lags Reykjavikur.
Fundurinn lýsti sig reiðu-
búinn til að gera allt sem
mögulegt væri til að
Vestmannaeyingar fengju
aðstöðu til að iðka þær
iþróttagreinar, sem þeir
leggja mesta áherzlu á.
1 þvi sambandi var
Vestmannaeyingum boðin
aðstaða á Melavellinum til
æfinga og samþykkt var að
fara þess á leit við iþrótta-
félögin i borginni, að þau létu
af hendi nokkra æfingatima i
iþróttahúsunum.
A fundi framkvæmda-
stjórnar ISÍ i gær var einnig
samþykkt að veita l.B.V. kr.
50.000.00 i fjárhagsaðstoð til
að byrja með við að koma
iþróttaæfingum af stað og
jafnframt er þeim boðin að-
staða til fundarhalda i
Iþróttamiðstöðinni i Laugar-
dal. Einnig heitir stjórn 1S1
Iþróttabandalagi Vest-
mannaeyja allri annarri
þeirri aðstoð, sem íþrótta-
sambandið kann að geta lát-
ið i té.
(Frá lSt)
Vorumarkaðurinn hf.
Armúla 1A • Reykjovllc • S. 84111
Unt sparikorlin
KR.
KR.
900,-
1000,-
malvörum.
INNLAGT KR. 1.000.OO
Heimsmeistarinn frá
1970 sigraði loksins
Úttekt kr.
Heimsmeistarinn i alpagrein-
um frá 1970, Frakkinn Jean Noel
Augert, sem er 23ja ára, sigraði
loks i keppninni nú — varð fyrstur
i svigkeppninni i Kitzbuehel i
Austurriki i gær og vel á undan
heimsmeistaranum tvö siðustu
árin, Gustavo Thoeni, ttaliu.
Timi Frakkans var 106.22 sek.,
en Thoeni keyrði á 107.07 sek. 1
þriðja sæti varð Bachleda, Pól-
landi, á 107.56 sek. og i fjórða sæti
hinn 18 ára Itali, Gros. Margir
kunnir kappar voru úr leik i
keppninni eins og spánski
Olympiumeistarinn Fernarndez-
Ochoa, Henri Duvillard, Frakk-
landi, David Zwilling, Austurriki,
og Christian Neureuther, Vestur-
Þýzkalandi.
A laugardag var keppt i bruni á
sama stað og þar sigraði Roland
Collombin, Sviss, og tryggði þar
með stöðu sina i keppninni um
heimsbikarinn. Hann er efstur
með 131 stig. Landi hans Bern-
hard Russi varð annar, en Bob
Cochran frá Bandarikjunum
þriðji. David Zwilling, sem er i
öðru sæti með 104 stig, féll og
einnig Thoeni, sem hefur 84 stig.
Nánar siðar.
Þau veita yður 10% afslátt þannig:
• Þér kaupið kort á 900 kr., en megið verzla
Heimilar vöruúttekt fyrir fynr 1-000 kr-
• Ef þér verzlið fyrir minna en 1.000 kr., þá rit-
d einingarverði 1 hreinltelis- og ar afgreiðslumaður innistæðu yðar á kortið.
• Þannig getið þér verzlað eins lítið og yður
hentar í hvert skipti.
• Þegar þér hafið verzlað fyrir 1.000 kr. (1
kort, sem kostar 900 kr.) kaupið þér nýtt
kort.
• Örfáar vörutegundir i stórum pakkningum
íara ekki inn á sparikortin t.d. hveiti og
sykur í sekkjum, ávextir í kössum, W.C.
pappír í pokum og þvottaefni í stórum um-
búðum. Þessar vörutegundir eru strax reikn-
aðar á sparikortaverði.
• S P A RI kortin gilda á 1. hæð, þ.e. í mat-
vörudeild. (Þau gilda einnig á hinum árlega
jóiamarkaði.)
Athugið að allar vörur eru verðmerktar
án afsláttar.
Sýnishorn ol SPARI-KORTI
NOTIÐ SPARIKORTIN
GERIÐ VERÐSAMANBURÐ
Hll
EINKAUMBOÐ FYRIR
Électrolux
VSrumarkaðurinn hf.
HEIMILISTÆKI
Ármúla 1A - Reykjavik
Matvörudeild Simi 86-111
Húsgagna- og gjafavörudeild 86-112
Vefnaðarvöru- og
heimilistœkjadeild 86-113
Skrifstofa. 86-114