Vísir - 02.02.1973, Síða 7

Vísir - 02.02.1973, Síða 7
Vísir. Föstudagur 2. febrúar 1973 7 leggja fyrirfram allar hugsanleg- ar varnir. Þaö þarf að undirbúa ráðstafanir til að verja bæjar- stæðið gegn hugsanlegu hraun- rennsli, stöðva það og bægja til hliðar. Til þess þarf stórvirk tæki að grafa gryfjur og hlaða garða og leita nýrra ráða til að breyta rennsli hraunstraums. Með sama hætti þarf að hafa viðbúnað til að verja höfnina og vatnsleiðslurn- ar. Ef til vill ætti til öryggis þegar að hefja gröft nýrrar innsiglingar gegnum Eiðið og flytja enda ann arrar vatnleiðslunnar i land á öðrum stað. Með neglingum fyrir glugga hefur eldsvoðahættunni verið bægt frá, og engin afsökun er nú lengur til að viðhalda ekki ýtrasta viðnámi gegn frekara öskufalli og moka jafnóðum gjalli burt af húsþekjum. En þetta er þó ekki nóg: Upp úr viðnáminu þarf að risa hið bráð- asta öflug viðreisn. Nú litur lika allt betur út, a.m.k. i bili. Nú er hljóðið orðið annað i Einari rika. 1 fyrsta vonleysinu var hann allra manna svartsýnastur, spáði þvi að allt myndi leggjast i rúst og vildi helzt flytja allt burt frá Eyj- um, enda spáði hann þvi, að höfn- in væri að lokast. Nú er annað hljóð i strokknum. Ég kannaðist eitthvað betur við Einar, þegar hann kom i útvarpið og sagöi — Nú er bara að moka, moka, moka. Það er einmitt lagið, piltar. Já, nú er að fara að moka og það með stórvirkustu vélum. Hér uppi á landi eru risastórar vél- skóflur og 20 tonna kaggar, sem notaðir hafa verið við stórvirka vegagerð. En hitt var dálitiö kyndugt, þegar einn verktakinn áætlaði, að mokstur frá hverju húsi myndi kosta 70-80 þús kr. Það vekur upp hugmyndir, að rannsaka þyrfti betur taxta verk- taka, ekki sizt ef ófyrirleitnir hyggjast notfæra sér björgunar- starf i Eyjum sem féþúfu. En fyrst og fremst þarf við- reisnarstarf að felast I þvi að hefja atvinnustarfsemi. Nú er þegar farið að kynda katla I fiski- mjölsverksmiðjum, og eins og ég sagði i siðustu grein væri það bezta vinarbragðið við Vest- mannaeyinga, ef einhver bát- anna, sem eru að fá fullfermi loðnu austur við Hvalbak, vildi snúa stafni vestur á bóginn og landa farminum undir gamla Heimakletti. Ég hallast lika að þvi,.að menn mikli um of fyrir sér erfiðleika á að hefja frystingu og aðra fiskvinnslu innanhúss. Og ekki er öllum konum greiði gerð- ur með þvi að vera svo yfirmáta herralegur við þær, að þær megi ekki taka þátt I viðnámi og við- reisn með karlmönnum. Þær eru miklu seigari og duglegri en herramennirnir halda og ekki sið- ur hugrakkar. Frá náttúrunnar sjónarmiði, þrátt fyrir eldstólpa i nýju fjalli og rykský við og við, held ég að miklu minni fyrirstaða sé að hefja aftur atvinnurekstur i Eyj- um en menn ætla. Meiri hætta er á, að fyrirstaðan verði meiri i og innan i mannfólkinu. Það er meira verk en aö blikka öðru auga að koma aftur á sam- félagi og skipulögðu atvinnulifi, þegar öllu hefur verið sundrað og drepið á dreif. Það verður að láta margt haldast i hendur, tryggja að þjónustuskortur verði ekki fjötur um fót, það þarf viðgerða- þjónustu, oíiu og bensin-af- greiðslu, afgreiðslu og vigtun við höfn, bankastarfsemi, póst og simaþjónustu, það þarf lækna- þjónustu, og ef bæjarfógeti vildi leyfa smádeild að vera annars staðar en i Reykjavik. Allt það fjölmenna lið, sem þarf til ýmiss konar þjónustu, spyr nú, hvort það eigi að starfa þar án fjöl- skyldu sinnar. Þó barnlausar konur og fjölskyldur með stálp- áða unglinga treysti sér til að snúa aftur, þá liggur kannski bú- slóðin öll hingað og þangað i vöru- skemmum eða geymslum. Og þó bátarnir ættu auðvelt með að landa afla I Eyjum, þá er nú búið að flytja þjónustu þeirra til Kefla- vikur. Það var auðvelt að fá fólk og flutning flutt ókeypis á flótta frá Eyjum, en hvað verður um flutn- inginn til baka til viðreisnar og sigurs á vandamálunum? Þetta er næsta viðfangsefnið, og þar verður að tryggja endurkomu fólksins gegnum margvisleg vandamál og erfiðleika. Þorsteinn Thorarensen. Umsjón: Edda Andrésdóttir NÚ ER LÍKT EFTIR GÖMLU STJÖRNUNUM í H0LLYW00D! Tizkan i vor og sumar verður litrik eftir nýjustu fregnum frá Paris aö dæma. Og umfram allt kvenleg. Þvi miður heyrist enn litið um fatnað og stil karl- mannanna á komandi sumri, en vonandi líður að þvi, að þeir fái sinn skammt, þó að lítið fari fyrir þeim i tizkusýningasölum allra fyrirtækjanna i Paris. Það virðast hins vegar engin takmörk sett fyrir litagleðinni, þegar að kvennmanninum kem- ur. Nú fær konan tækifæri til þess að leika primadonnu eða hefðarmey eins og bezt gerðist á átjándu öldinni. Við getum sveipað um okkur refaskinnum og hreiðrað um okkur i djúpum og þunglamalegum hæginda- stólum. Margt virðist ætla að verða i gamla stilnum, þó að margt nýtt bætistað sjálfsögðu i klæðaskápinn. Nú farða konur sig eins og þær gerðu, þegar stjörnurnar i Hollywood blómstruðu. Þykkir augnskuggar, og nóg af þeim litriku, rauðar neglur og eldrauðar varir. Þannig er and- litsfarðinn hjá þeim, sem hafa hvað mest vitið i Paris. Hárgreiðslur og háralitur, sem slá jafnvel Ritu Hayworth út. Hrokkið hár verður ákaflega vinsælt, og þær, sem eru með stutt hár, geta látið liða hárið eins mikið og þeim þóknast. Undirfatnaðurinn verður ákaf- lega skrautlegur, og þeir, sem bezt þekkja, segja, að jafnvel fatafellurnar skratlegustu myndu verða grænar af öfund. Hálsfestar og armbönd verða mikið I tizku og yfirleitt allir skartgripir. Einhvern veginn finnst manni reynar eins og þessi tizka hafi einhvern tima verið boðuð áður. Allt á að vera litrikt og skræpótt. Tizkukóngar i Paris hafa reyndar áður boðað svipaða tizku, en einhvern veginn er eins og hún hafi ekki náð fram að ganga. En nú virðast þeir ekki ætla að gefast upp. Þeir vilja hafa konuna eins kvenlega og frekast er unnt, og hjálpað er til þess með öllum kúnstum og brögðum. Þessi tizka lifgar lika óneitan- lega upp á gráan hversdags- leikann, og hvort sem hún nær fram að ganga hér uppi á Islandi eða ekki, þá er áreiðan- legt, að einhver skriður er að komast á málin i Frakklandi. Liklega fyndist engum amalegt Þoð nýjasta úr tízkuheiminum að sjá kvenmann i likingu við Marilyn Monroe eða Ritu Hayworth ganga um Austur- strætið. Ekki nóg um það.. Þó að hér uppi á tslandi sé farin hver her- ferðin á fætur annarri gegn sigarettum og tóbaksreyking- um, þá virðast þeir ekki alveg á sama máli i Paris. Þar virðist þvert á móti meira gert til þess að vekja athygli á tóbakinu. A einni meðfylgjandi mynda má sjá unga stúlku, sem ber hliðartösku. Hliðartaskan er eftirliking sigarettupakka. Það virðist nokkuð mikið um þetta á tizkusýningum I Paris og ekki eingöngu hjá eldra fólkinu, heldur hefur svipuðum myndum verið komið fyrir á barnafötum lika. Liklega slær þessi nýjung ekki i gegn. Þeir sem ganga með gleraugu dags daglega og eiga kannski I erfiðleikum með að fá umgjörð um þau við sitt hæfi fá liklegast úr nógu að velja mjög brátt. Gert er ráð fyrir þeim lika i tizkuheiminum, en gleraugna- umgjarðirnar eru ögn skraut- legri en þær hafa áður verið. Á meðfylgjandi mynd má sjá eina slika umgjörð. Takið svo eftir skinninu um hálsinn. A annarri mynd er kjóll, hnepptur alveg niður að framan. Sfddin er aðeins niður fyrir hné. Kjóllinn er hvitur, en hvitt verður mjög vinsælt. Hvit vestispeysa fylgir með, og svo grófgert armband og hálsfesti. Klæðnaðurinn er frá Saint Laurent. Spennur ýmiss konar og nælur i fatnað eru hátt á lista, og einnig alls kyns hattar. Nú fær hugmyndaflugið svo sannarlega að ráða, eins og bezt sést á myndunum. Alls kyns nælum er komið fyrir i fatnaðinum á furðulegasta stað, svo sem á kraga peysunnar á einni myndinni. Þar hefur verið komið fyrir tveimur nælum: myndir af englum. Fatnaður er i ákaflega litrik- um og skrautlegum efnum. Rósóttog mynztruð efni eru vin- sæl og einnig einlit silkiefni eða einhvers konar gerviefni. Skór eru með háum hælum, en ekki ber mikið á þeim skóm sem nú hafa tiðkazt að undanförnu, með 10 sm háum hælum og tveggja til þriggja sm háum sól- um. Þá má einnig geta þess, að sumar skreyta fótleggi sina og skó með þvi að koma fyrir ýmsu skrauti á ökklunum, svo sem böndum eða jafnvel armbönd- um. Sidd á kjólum og kápum er yfirleitt um eða rétt fyrir neðan hné, og nú er fyrst tækifærið til þess að kikja inn i skáp hjá mömmu eða ömmu og vita, hvort þar leynist ekki einhver gamall kjóll frá þeirra beztu ár- um. Hann mætti áreiðanlega flikka upp á og nota siðan hvar sem er. —EA

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.