Vísir - 06.03.1973, Síða 4
Vlsir. Þriðjudagur 6. marz, 1973.
4
Við NÚ-siöuritstjórar erum
miklir dýravinir — og tileinkum
fáeinum dýrategundum þennan
dálk I dag: Hér eru þá fyrst
nokkrir hinna svokölluöu „flla-
brandara”. Sumir kannski
gamlir, en aðrir nýir:
Það fer vel á með þessum
myndariega ffl og músinni, sem
situr á rana hans. Hér á síðunni
eru nokkrar sögur af kunnings-
skap þeirra.
Hann þessi, um
fílinn og músina
Sá fyrsti er um filinn og mús-
ina, sem urðu samferða yfir brú.
Þá var það, sem flllinn sagði: —
Svakalega sveiflast brúin!
Og músin var fljót að bæta við:
— ...en við erum nú llka tvö!!!
Vesalings músin, hún Mýsla, lézt
einmitt þá er hún var I óöa önn að
éta útsæðiskartöflurnar I
kjallaranum hans Páls. Og hún lá
þar sem hún var komin, þangað
til Páll tók pokana og fór upp I
kartöflugarð að setja niður
Og viti menn: svo þegar hann
tók upp úr garðinum seinna, var
kartöflumús undir einu
grasinu..
Margir hafa heyrt talað um það,
hvernig hægt er að koma fimm
filum I Fólksvagn — Auðvitað
tveim frammí og þrem afturi,
segja brandarakarlarnir alltaf
drýgingalega.
En nú hefur aftur á móti verið
bent réttilega á að málið er ekki
svo einfalt — þvl hvernig ætti sá,
sem situr I miðið aftur I, eiginlega
að komast I öskubakkann...???
Það er haft fyrir satt, að eitt
sinn hafi fillinn sagt við músina:
— Iss, hvað þú ert eitthvað litil og
ræfilsleg!
Svariö: Já, það er satt. Ég hef
verið svo ósköp lasin upp á
slðkastið....
Tvö ljón sátu uppi I tré og höfðu
það huggulegt. Skyndilega hróp-
aði annað þeirra uppyfir sig: —
Sérðu! Það flýgur fill yfir tréð
okkar.
Stuttu seinna hrópaði ljónið svo
aftur: — Þarna flýgur annar fill
yfir tréð. — Æöislegt!
— Nú, hvað er svona æðislegt,
umlaði þá hitt ljóniö. Það hlýtur
einfaldlega að vera hreiöur
hérna I nágrenninu.
Svo var það, að fílarnir og
mýsnarfóru I fótboltakeppni. Við
vitum raunar, að fílar eru tals-
vert stærri en mýs, og þvi kemur
það ekki á óvart að heyra, að i
mestu látunum varö einum filn-
um það á að stiga á eina músina
og merja hana til bana.
Og ffllinn varð alveg miður sin
af leiðindum.
En fyrirliði músanna reyndi að
hugga hann og sagði: — Taktu
þetta ekki svona nærri þér, fIII.
Þetta hefði alveg eins getað kom-
ið fyrir einhverja okkar........
Hún varaf öðrum toga spunnin,
viðureign filsins og mauranna,
sem voru 1000 talsins. I þvi tilviki
var beinlinis um strið að ræða.
En leikurinn var ójafn og ffllinn
fór létt með að hrista af sér maur-
ana. Alla nema einn. Hann sat
rigfastur á rananum.
Þáhrópuðu félagar hans 999
hástöfum: — A hann, Albert —
á’ann!!!
MARK SPITZ
hefur átt i stöðugu höggi við þann
söguburð, að hann hafi látið laga
á sér andlitið með plastað-
gerðum. — Það hefur hvorki
verið hreyft við nefi minu eða
öðrum hlutum andlitsins hið
minnsta, segir hann.
OMAR SHARIF
kvikmyndakóngur og bridge-
snillingur, hefur hafiö búskap að
nýju með eiginkonu sinni, kvik-
myndaleikkonunni Faten
Hamama. Þau höfðu ekki átt neitt
saman að sælda siðustu tiu árin.
Umsjón:
Hrarinn Jón
Magnússon
BOBBY FISCHER
heimsmeistari I skák, hefur af-
þakkaö tilboð frá áhugamönnum
um skák, sem vilja láta hann hafa
sem svarar 100 milljónir Isl.
króna fyrir það eitt, að leggja
nafn sitt við keöju skákklúbba,
sem komið skal á fót vitt og breitt
um Bandarikin.
RAYMOND
heitir óheppinn ávlsanafalsari i
Bandarikjunum. Hann fann fyrir
tilviljun ávisun i simaskrá i al-
menningssimaklefa. Hún var
undirrituð af einhverjum Miles F.
Hunt, svo Raymond freistaðist til
að ljúka við að útfylla tékkinn og
gera tilraun til að selja hann i
næsta banka. En ólánið lék við
Raymond þann daginn — banka-
gjaldkerinn, sem veitti ávisuninni
viðtöku, var einmitt Miles F.
Hunt, og kvaddi hann lögregluna
þegará staðinn. Ótrúlegt, en satt.
ANDY WARHOL
— kvikmyndaséni — mátti ný-
veriðsætta sig við, að mynd, gerð
eftir æviminningum hans, var
bönnuö af hæstu dómstólum
Englands. Dómurinn var kveðinn
upp aðeins fáeinum dögum áður
en myndin skyldi sýnd ifejónvarpi.
Dómstólunum þótti lif Warhols
full „ósiðlegt” til að koma fyrir
almenningssjónir.
DIAHANN CARROLL
— sú 37 ára gamla söngkona —
sýndi og sannaði, að ástir
skemmtikrafta eru af allt öðrum
toga spunnar en ástir annarra.
Það hefur ábyggilega ekki farið
fram hjá nokkrum einasta blaða-
lesanda I veröldinni, að Carroll
var farin að slá sér upp með sjón-
varpsstjörnunni David Frost.
Blöð um víða veröld birtu myndir
af þeim tveim leiðast hönd i hönd
— og tengdamútter lét hafa það
eftir sér, að sonurinn væri leyni-
lega trúlofaöur söngkonpnni.
En núna — þegar fólk er rétt
farið að sjá hjónasvip með þeim
Carroll og Frost — og einstaka
slúðurdálkur farinn að dagsetja
brúðkaupið — giftir söngkonan
sig — óvænt og allt i einu.
En það var ekki Frost, sem hún
giftist , heldur einhver stórkaup-
maður, sem er tveim árum eldri
en hún, heitir Freddé Glusman og
lítið sem ekkert þekktur. Ja, ekki
nema þá sem eigandi mikils
fjölda tizkufataverzlana i Las
Vegas.
Það er ekki vitað, hver
viðbrögð Frosts voru — en slúður-
dálkahöfundar Ameriku urðu all-
ir kjaftstopp.
Tll HAMINGJU MfÐ
SPRCNGIDAGINN,
CRÆNDUR
í dag er liklegt að þorri lands-
manna sé með auman maga eftir
allar bollurnar, sem voru á boð-
stólum I gær. Og núna er það svo
saltkjötið og baunasúpan, sem
innbyrða skal.
Það er af þvi tilefni, sem við
birtum hér mynd af einum
ágætum frænda okkar. Hann á
raunar heima i Bretlandi — og
við vitum ekki fyrir vist, hvað
• • •
hann er að bralla. Kannski það
liggi heldur ekki svo ljóst fyrir.
En hann nýtur sin óneitanlega
vel I kokkagallanum.
Og það gætu alveg eins verið
bolludagsbrauðbollur, sem hann
er að hræra þarna deig i. Svona
bollur eins og mamma bakar þær
,,.... hvernig var það nú aftur,
sem hún fór að..??”
Bezti pappirinn
kemur frá Finnlandi
i yfir aldarfjórðung hefur CONVERTA selt papplrsvörur til islands. Við
eruin mjög ánægðir með þær undirtektir, er framleiðsluvörur okkar hafa
hlotið á islenzka markaðnum — og I tilefni þessara timamóta vildum við
gefa islenzkum húsmæðrum tækifæri til þess að kaupa framleiðsluvörur
okkar á afar hagstæðu verði um takmarkaðan tlma.
Spyrjið kaupmann yðar um verð á hvers konar finnskum pappirsvörum
s.s. toiletpappír — eldhúsrúlium — andlitsþurrkum — servlettum og hillu-
papplr til heimilisnota.
Kitchenroil
KAUPIÐ FINNSKAR VÖRUR — OG ÞÉR KAUPIÐ ÚRVALSVÖRUR A
BEZTA FAANLEGA VERÐI.
CONVERTA
toaletíi
Finnish Paper & Board Convertors Association
Helsinki, Finland.