Vísir - 06.03.1973, Síða 5
Visir. Þriftjudagur 6. marz, 1973.
5
AP/IMTB ÚTLÖNOÍ MORGUN UTLÖND I MORGUN ÚTLÖND Umsjón Guðmundur Pétursson
—en fylgismenn Allendes bœttu
við sig atkvœðumog þingsœtum
Báðir telja sig
hafa sigrað —
Þegar lokið var taln-
ingu atkvæða i þing-
kosningunum í Chile,
kom i ljós, að stjórnar-
i andstöðuflokkarnir
höfðu hlotið 54,7% at-
kvæða, en sex flokka
samsteypan undir
stjórn Allendes forseta
hafði hlotið 43,4% at-
kvæða.
Hvor aðilinn um sig hefur hrós-
aB sigri yfir niðurstöðum kosn-
inganna.
Stjórnarandstaðan hafði gert
sér vonir um að vinna 2/3 meiri-
hluta i fulltrúadeildinni, þar sem
sitja 150 þingmenn, en sú von
brást. Tapaði hún þingsætum I
báðum deildum til stjórnarflokk-
anna, en heldur þó meirihluta sin-
um. — Leiötogar stjórnarand-
stöðunnar segja, að úrslitin sýni
enn og aftur, að Allende sitji að
stjórn með fylgi minnihluta
þjóðarinnar á bak við sig.
Allende haföi fyrir kosningarn-
ar sagt, að 40% atkvæöa mætti
skoða sem sigur, (en hann náði
36% atkvæöa 1 forsetakosningun-
um 1970).
Földu sprengju
á salerninu
-og önnur fannst 2 dögum fyrr
öflug sprengja fannst slödegis I
gær falin inni á salerni hjá banda-
risku ræöismannsskrifstofunum I
Casablanca. Var hún geymd i
skókassa, sem einn hinna banda-
risku starfsmanna fann. Hann
opnaöi kassann, en var fijótur aö
loka aftur, þegar hann sá málm-
hylki I kassanum.
Yfirvöldum Marokko var gert
viðvart, og sprengjusérfræðingar
hersins fjarlægðu sprengjuna og
geröu hana óvirka. Sögðu þeir, að
hér heföi verið um mjög öfluga
sprengju aö ræða.
Siðast á laugardaginn hafði
fundizt svipuð sprengja 1 bil, sem
stóö yfirgefinn fyrir utan ræöis-
mannsskrifstofurnar.
Gróf u féð í skógi
Vestur-þýzka lögreglan
fann i gærkvöldi 3/2
milljónir marka — eöa af-
gaginn af peningunum,
sem hurfu úr brynvörðum
peningaflutningabíl aöal-
bankans í Dusseldorf á
dögunum, en það var
stærsti peningaþjófnaður,
sem sögur fara af i Vest-
ur-Þýzkalandi.
Peningarnir fundust grafnir i
skógi skammt utan við Dussel-
dorf, en uppdráttur, sem lög-
reglan komst yfir, visaði henni á
felustaðinn.
Lögreglan komst yfir upp-
dráttinn, þegar Interpool fyrir
tveim dögum handtók tvo menn
i Hollandi. Voru þeir með upp-
dráttinn á sér og 800.000 mörk,
en alls höfðu veriö um fjórar
milljónir marka — eða nær 135
milljónir islenzkra króna — i
peningapokunum, sem voru I
brynvörðu bifreiöinni.
Allsherjarverkfall
í Stóra-Bretlandi?
130 stéttarfélög samþykktu sólarhrings verkfall
— Allsherjarverkfall
vofir yfir stjórn Ed-
wards Heath um leið og
hún leggur fyrir neðri
deild brezka þingsins i
dag frumvarp til fjár-
laga fyrir árin 1973 og
1974.
Tillaga um eins sólar-
hrings allsherjarverk-
fall til þess að mótmæla
stefnu stjórnarinnar i
launamáium var sam-
þykkt með yfirgnæfandi
meirhluta á fundi, sem
j 1000 fulltrúar hinna 130
stéttarfélaga héldu i
gær.
Enginn tiltekinn dagur var
ákveðinn til verkfallsins á fundi
stéttarfélaganna I gær. En þetta
| yrði fyrsta allsherjarverkfallið i
Stóra-Bretlandi siðan 1926, ef af
iverður. Um 75.000 brezkir
| launþegar hafa til þessa tekið
! þátt I skæruverkföllum og öðrum
mótmælaaðgerðum gegn launa-
! málastefnu Heaths.
Tilfinnanlegust hafa verið
áhrifin af aðgerðum starfsmanna
gasstöövanna, sem hafa leitt til
1 þess, að fólk hefur setið I óupphit-
uöum húsum i vetrarkuldanum.
Og svo aðgerðum starfsfólks
sjúkrahúsa, sem hafa komið við
nær hvert einasta sjúkrahús á
Bretlandseyjum.
Flestir búast við þvi, að f járlög-
in feli I sér hækkun eftirlauna um
leið og samdrátt i framkvæmdum
á vegum hins opinbera — annað
til þess að friða hina stríðandi að-
ila á vinnumarkaðnum og hitt til
þess að draga úr verðbólgunni. —
Stjórn Heaths haföi gripiö til
veröstöðvunar undir lok siðasta
árs (jafnt á laun og vöruverð) til
þess að sporna viö veröbólgunni
vegna inngöngunnar i EBE. —
Jafnframt hefur- þaö kvisazt, aö
fjárlögin muni fela I sér lækkun
skatta á hina lægstlaunuðu.
Flugmenn hlýddu ekki"
egja Frakkar, en samtök
nanna gruna flugumferðar-
■n Frakka um að eiga sök
gslysinu í gœr
4 milijónir marka hurfu úr
peningabil aðalbankans i
Dússeldorf, en þær fundust
grafnar I skógi I gær.
o
Alþjóðasamtök at-
vinnuflugmanna hafa
bannað félögum sinum
að fljúga yfir Frakk-
landi eftir slysið þar i
gær, þegar tvær
spænskar farþegaflug-
vélar rákust saman i
lofti og 68 manns fórust.
Brezka flugfélagið BEA og ann-
að til hafði strax og fréttist af
flugslysinu aflýst öllu flugi á sin-
um vegum til Frakklands vegna
slyssins og viðvarana franskra
flugstjóra, sem höfðu neitað að
fljúga i franskri lofthelgi, þegar
flugherinn tók við flugumferðar-
stjórninni á þriðja degi verkfalls
franskra flugumferðarstjóra.
Flugaðilar úr ýmsum áttum
hafa látið i ljós grun um, að slysið
hafi orðið vegna óöryggis i flug-
umferðarstjórn Frakka.
DC-9-þota frá spænska félaginu
Iberia hrapaði til jarðar skammt
frá Nantes, en hún var á leið til
London með 61 farþega og 7
manna áhöfn. Enginn komst lifs
af. — Convairþota frá Spantax
með 100 manns innanborðs tókst
að nauölenda á herflugvelli hjá
bænum Cognac, þrátt fyrir að 2
metrar höfðu brotnað af öðrum
vængnum og kviknað hafði i
einum hreyflinum.
Talsmaður Spantax hélt þvi
fram i gærkvöldi, að frönsk her-
þota af gerðinni Mystera kunni
að hafa rekist á DC-9 þotuna, og
að brak úr þeim hafi rekist á
Convairþotuna, sem flaug i minni
hæð. Benti hann á, að
Mystere-þotu væri saknað á þessu
svæði.
Franska varnarmálaráðu-
neytið hefur visað þessari
fullyrðingu á bug, og var þvi
neitað að nokkur Mystereþota
hefði verið á ferli á þessum slóö-
um. — Robert Galley, samgöngu-
málaráðherra, fullyrti i nótt að
DC-9 þotan hefði verið þrem
minútum á eftir áætlun, og
Convariþotan hefði verið ellefu
minútum á undan sinni áætlun.
„Flugmennirnir fylgdu ekki þeim
fyrirmælum, sem þeir höfðu
fengið hjá flugumferðarstjórn-
inni, og þvi varö slysið”, sagði
hann.
Ýmis stéttarfélög hafa gripið til skæruverkfalls tii þess að
mótmæla launamálastefnu stjórnarinnar — þ.á.m. starfs-
menn járnbrauta. Það var þvi tómlegt þann daginn á
Waterloo-stöðinni.