Vísir - 06.03.1973, Síða 13

Vísir - 06.03.1973, Síða 13
Vísir. Þriöjudagur 6. marz, 1973. 13 □ □AG | D KVÖLD | n □AG | D KVÖLD | □ □AG | Hljóðvarp í kvöld kl. 19,35: NÝTING LIFANDI AUÐLINDA Nú hefur þátturinn Umhverfis- mál veriö fluttur reglulega I næstum eitt ár, einu sinni í viku, en hann er alltaf á þriöjudögum. Margir ágætir Islendingar hafa flutt erindi i þessum þáttum, oft- ast sin eigin, en lika hafa veriö flutt þar erindi eftir erlenda menn, t.d. Sigmund Kvaloy og Per Gárder, sem eru norskir, en þaö var Haraldur Ólafsson lektor, fyrrverandi dagskrár- stjóri Rikisútvarpsins, sem þýddi erindi þeirra og flutti. Þó viö islendingar eigum enn fagurt og tiltölulega hreint land, er samt langt frá þvi, aö viö séum lausir viö alla mengun og Síðasti þáttur um Ashtonfjöl- skylduna endaöi þannig, aö Freda Ashton og Jan McKenzie gengu I hjónaband eftir alltvisýnan for- mála, aö þvi er virtist. Þátturinn i kvöld heitir Fjöl- skyldubönd, en eins og flestir vita eru slik bönd mjög mis- jafnlega sterk og bresta stundum. Sheila er orðin mjög óánægð með tilveruna og finnst allt vera að, enda er David, eiginmaður hennar, búinn að koma skammarlega fram við hana og það oft. Hún hefur gert itrekaðar tilraunir að fá hann til að sam- þykkja skilnað, en hann hefur jafnan neitað I þeirri von, að hún muni hætta við þetta áform og taka hann i sátt. En ekki bólar á þvi. Þau hjónin, Jan og Freda, mengunarvalda af ýmsu tagi, og er vist óhætt að fullyrða, að mesti og hættulegasti mengunarvaldur- inn er við sjálf; maðurinn. 1 kvöld talar Siguröur Blöndal, skógarvöröur á Hallormsstað, um skynsamlega nýtingu lifandi auölinda. Areiöanlega skortir mjög á það, að við nýtum nógu skynsamlega þau lifandi auðæfi, sem við búum við, i mismunandi rikum mæli að sjálfsögðu. Þaö veröur trúlega mjög fróðlegt aö hlusta á erindi Sigurö- ar I kvöld, þvi þar fer maður, sem er vel kunnugur þessum málum og lætur þau, sem betur fer^ekki afskiptalaus. L-pjj bjóða Sheilu að dvelja hjá sér um stundarsakir, og þiggur hún það. Sheila biður barnsmóður Davids, sem nú er gift, að bera vitni um framhjáhald hans, en þannig fengi hún lögmæta ástæðu til skilnaðar. Hún vill gjarnan hjálpa Sheilu, en eiginmaður hennar er þvi mótfallinn, og við það situr. David kemur enn einu sinni á fund Sheilu og biður hana að sættast viö sig. Hún tekur þvi álika vel og þegar hundur reynir að stela mjólk úr kattarskál — og hvæsir á hann. Þá sér hann loks, að leikurinn er tapaður, og lofar henni þvi aö koma daginn eftir með full- nægjandi sönnun fyrir framhjá- haldi sinu, svo hún geti fengið skilnað. IÍTVARP • Þ RIÐJUDAGUR 6. marz 13.00 Eftir hádegiö. Jón B. Gunnlaugsson leikur létt lög og spjallar við hlustendur. 14.15 Til umhugsunar (endurt. þáttur) Þáttur um áfengismál i umsjá Arna Gunnarssonar. Rætt er við Pálma Frimannsson lækni um drykkjusiði tslendinga. 16.00 Fréttir. 16.15 Veðurfregnir. Tilkynn- ingar. 17.40 (Jtvarpsáaga barnanna: „Yfir kaldan Kjöl” eftir Hauk Agústsson Höfundur les (13) 18.00 Eyjapistili. Bænarorö. Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Tilkynningar. 19.20 Fréttaspegill 19.35 Umhverfismál Siguröur Blöndal skógavöröur talar um skynsamlega nýtingu lifandi auðlinda. 19.50 Barniö og samfélagiö Margrét Margeirsdóttir félagsráðgjafi talar viö Dóru Bjarnason félagsfræð- ing um rannsókn hennar á hjástundum unglina. 20.00 Lög unga fóiksins Ragn- heiður Drifa Steinþórsdóttir kynnir. 20.50 Jón Asgeirsson sér um þáttinn. 21.10 Gitarkonsert op. 30 eftir Guiliani John Williams og Enska kammersveitin leika: Charles Groves stj. 21.30 „Tyrkjans ofriki áfram fer” Sverrir Kristjánsson flytur þætti úr sögu Tyrkja- ránsins 1627: — þriöji hluti. 22.25 Tækni og visindi örnólfur Thorlacius dýra- fræðingur talar um bergmálsmiðun dýra. 22.45 Harmónikulög Arndt Haugen leikur 23.00 A hljóöbergi Maöurinn sem stöðvaði sólina. — Dagskrá i tilefni 500 ára af- mælis Nikulásar Kópernik- usar. Michael Hanu tók saman fyrir útvarpsstöövar Voice of America. SJDNVARP • ÞRIÐJUDAGUR 6. marz 20.00 Fréttir 20.25 Veöur og auglýsingar. 20.30 Ashton-fjölskyldan Brezkur framhaldsmynda- flokkur 43. þáttur. Þýöandi Heba Júliusdóttir. Efni 42. þáttar: Kvöldið fyrir brúð- kaup sitt fer Freda Ashton meö Doris og Sheilu út aö skemmta sér. Þær fá Tony Briggs meö sér til halds og trausts. Þegar liöur að lok- un krárinnar gerast þau nokkuð ölvuð. Freda og Tony taka að rifja upp ævintýri unglingsáranna, og á leiðinni heim gengur sú upprifjun skrefi lengra en þau höfðu ætlað. Um morguninn er Tony I þung- um þönkum og hálföfundar Jan af væntanlegri eigin- konu. Svaramaöur Jans boðar forföll á siðustu stundu, og Tony er beöinn að hlaupa I skarðið. Þrátt fyrir þetta allt tekst gifting- in ágætlega og að henni lok- inni er haldin vegleg veizla i stórhýsi brúðgumans og móður hans. 21.20 Aö falla bótalaust? Umræðuþáttur um trygg- ingu mannslifa og lima og bótarétt þeirra, sem hætta llfi sinu I þágu samborgar- anna eða missa sina nán- ustu af slysförum. Umræð- um stýrir dr. Kjartan Jóhannsson. 22.00 Frá Listahátiö ’72 Astralski gitarleikarinn John Williams leikur lög eftir Isaac Albeniz, Antonio Lauro o.fl. —LTH Nú eru þau Jan og Freda gengin I þaö heilaga, og ekki vantar þaö, aö hamingjusöm eru þau á svipinn. — En Sheila Ashton heldur áfram baráttu sinni fyrir þvi aö fá lögskiinaö frá David. Sjónvarp í kvöld kl. 20,30: Eins og kðttur hvœsandi .JAW.V.W.V.W.W.V.W.'AWiV.WAV.V.WWAV.V í 5 I ) I í i í í E2 Nl ..r n lrá Spáin gildir fyrir miðvikudaginn 7. marz Hrúturinn, 21. marz-20. april. Ef til vill berast þér einhver tilboð, annað hvort samkvæmt beiðni eða af öðrum ástæðum. Athugaðu þau nákvæmlega áður en þú tekur ákvörðun. Nautiö, 21. april-21. mai. Þaö bendir margt til þess að dagurinn geti orðið góður. Ef þú þarfnast aðstoðar, mun hana að finna innan fjölskyldunn- ar eða meðal nánustu ættingja. Tviburarnir, 22. mai-21. júli. Þú hefur að undan- förnu gert strangar kröfur til sjálfs þin hvað öll vinnubrögð snertir. Nú verður þú og að gera kröfur til vinnuveitenda þinna. Krabbinn, 22. júni-23. júli. Skemmtilegur dagur að mörgu leyti, einkum kvöldið. En það er hætt við að þú hafir mikið annriki fram eftir deginum vegna sérstakra viðfangsefna. Ljóniö,24. júli-23. ágúst. Fyrir samband þitt við menn langt að, er liklegt, að þú getir bætt mjög aðstöðu þina. Dagurinn verður þér að öllum likindum notadrjúgur, en dálitið erfiöur. Meyjan,24. ágúst-23. sept. Þú skalt ekki hika við að framkvæma það, sem þú hefur verið að hug- leiða að undanförnu. Jafnvel þótt einhverjir ná- komnir verði þvi mótfallnir i bili. Vogin, 24. sept.-23. okt. Aðstaða þin virðist eitt- hvað hæpin, annað hvort gagnvart maka þinum eða einhverjum mjög nákomnum. Farðu þér hægt og rólega á meðan málin eru aö skýrast. Drekinn,24. okt.-22. nóv. Margt virðist benda til þess að dagurinn geti orðið þér góður. Eitthvert vandamál mun leysast með aðstoð vina þinna áður en dagurinn er allur. Bogmaöurinn, 23. nóv.-21. des. Það má mikið vera ef þú þarft ekki að vera snöggur i snúning- um i dag. Það reynir að öllum likindum einhver að hafa af þér i viðskiptum. Steingeitin,22. des.-20. jan. Góður dagur að visu, en hætt við að einhver gráglettni örlaganna kunni aðsegjatil sin, og þá annað þýðingarlaust en taka þvi með jafnaðargeði. Vatnsberinn, 21. jan.-19. febr. Sitthvað gengur önugt þessa dagana og getur farið svo, að þú þurfir að taka á stillingunni, en allt mun þó falla i ljúfa löð áður en varir. Fiskarnir,20. febr.-20. marz. Hvað verður i pen- ingamálum i dag, er öldungis óvist, en vertu við öllu búinn, einkum að reynt verði að hafa af þér, „lögum samkvæmt”. í ! í [ í'.w.v.v.v.v.v.v.v.v.w.v.v.v.v.v.v.v.v.w.v.v.í Nauðungaruppboð annaö og siöasta á Þórarni Ólafssyni, RE 99, talin eign h.f. Skjaldfönn, fer fram viö skipið I Reykjavikurhöfn, fimmtudag 8. marz 1973, kl. 16.00. Borgarfógetaembættiö I Reykjavik. Nauðungaruppboð sem auglýst var I 64. 65.og 66. tbi. Lögbirtingablaös 1972 á hluta I Hæöargaröi 30, talinni eign Gunnars Brynjóifs- sonar, fer fram eftir kröfu Einars Viöar hrl. o.fl. á eign- inni sjálfri, fimmtudag 8. marz 1973 kl. 11.30. Borgarfógetaembættið I Reykjavík. Nauðungaruppboð sem auglýst var i 30. 31.og 33. tbl. Lögbirtingablaös 1972 á Hólatorgi 4, þingl. eign Kjartans Jónssonar, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar o.fl. á eigninni sjálfri, fimmtudag 8. marz. 1973, kl. 10.30. Borgarfógetaembættiö i Reykjavik.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.