Vísir - 20.07.1973, Blaðsíða 3

Vísir - 20.07.1973, Blaðsíða 3
Vísir. Föstudagur 20. júli 1973. 3 Hœstu fyrirtœkin: Áfengið hef- ur yfirburði Hæstu greiðendur féiaga og fyrirtækja er Afengis- og tóbaks- verzlun rikisins, sem greiöir rúmlega 83 miiljónir i landsút- svar. Þar á eftir kemur StS með 34.6 milljónir og Oliufélagið hf. (Esso) með 34.2 milljónir. Hæstu gjaldendur einkafyrir- tækja, sem ekki greiða landsút- svör eru SIS., sem greiðir eins og áður sagði rúmlega 34 milljónir samtals, Loftleiðir eru aðrir i röðinni með 24 milljónir. Siðan kemur Hekla hf. með 22,7 mill- jónir, Eimskipafélag Islands, 19,6 milljónir, IBM 15,6 milljónir, Fálkinn hf. 14.1 milljón. Áfengis- og tóbaksverzlunin greiðir i landsútsvar rúmlega 83 milljónir eins og áður sagði, en siðan koma Oliufélagið hf., með 24.1 milljón, Oliuverzlun Islands hf. (BP) 15,2 milljónir, Skeljungur hf. 13,9 milljónir, Sementsverksmiðja rikisins 6,9 milljónir, Aburðarverksmiðja rikisins 3,9 milljónir. Þó fyrirtæki greiði ýmis konar skatta og gjöld þá þarf upphæð þeirra ekki endilega að segja neitt um rekstrarafkomu fyrir- tækisins, þar sem ýmsir skattar fara eftir veltu fyrirtækisins eða öðru. Til dæmis má taka, að Loft- leiðir, SIS og Oliufélagið hf., sem öll eru meðal hæstu gjaldenda, eru öll með engan eða litinn rekstrarafgang. Hæstu tekjuskattsgreiðendur félaga i Reykjavík eru IMB 13.6 milljónir, Hekla hf. 11.2 milljónir, Fálkinn hf. 11 milljónir, Hans Petersen hf. 8,4, Trygging hf. 8,1, Pfaff hf. 8,0 og Veckfræðistofa Sigurðar Thoroddsen sf. 6.4 milljónir. —ÓG Endurbœtur ó skólatannlœkningum „Skólatannlækningar eru að reyna að losna við gömul tæki og endurbæta smátt og smátt, og kaup á þremur nýjum stólum eru spor I þ'á átt, en stólarnir verða allir settir i skóla.” „Hér er þó ekki um neina stökkbreytingu að ræða,” sagði Guðmundur Skúlason tannlæknir hjá Heilsuverndarstöðinni, þegar blaöið hafði samband við hann. Þessir þrir stólar, sem nú er verið að kaupa, munu sem fyrr segir verða notaðir 1 þágu skóla- tannlækninga, og verða þeir stað- settir I Breiðagerðisskóla, Lang- holtsskóla og Melaskóla. Eru skólar, sem nú eru i þeim skólum ein elztu tæki hér. Smátt og smátt verður siðan gamall útbúnaður felldur niður, en búnaður þessi er keyptur frá Bandarikjunum. Einn slikur stóll mun kosta um 650-670 þúsund krónur kominn til landsins. „Það má segja,að þessir stólar séu börn sinnar tiðar, þetta er það nýjasta á markaðnum”, sagði Guðmundur ennfremur, „en stólarnir eru valdir i samráði við tannlækna.” — EA Menn gonga verr um í Þórsmörk en villimenn — skógrcektin hefur öðru þarfara að sinna en sorphreinsun, segir skógrœktarstjóri Þórsmörk hefur allt frá fyrstu tið verið opin ferðafólki á sama hátt og flest önnur skóglendi Skógræktar rikisins, enda fjöl- sóttustu staðir landsins að sumarlagi. Skógræktin lét friða Þórsmörk og Goöaland fyrir hart nær hálfri öld. Að sögn Hákonar Bjarnasonar skógræktarstjóra hefur um- gengni verið slik um Þórsmörk i sumar m.a. á ýmsum starfs- mannahópum frá ýmsum fyrir- tækjum, að þeir hafa hagað sér verr en nokkrir villimenn úti i guðs grænni náttúrunni. Og hefur þetta staðið yfir allt frá þvi á páskum, en þóeinkum um og eftir hvitasunnu. „Um mörg ár hefur verið farið fram á sérstakar fjárveitingar til þess að geta veitt ferðafólki sæmilegan aðbúnað og til hreinsunar eftir dvöl þeirra, sem eru hirðulausir um frágang sinn. Þessu hefur ávallt verið synjað. Skógrækt rikisins hefur staðið ein að þvi að verja þessi svæði fyrir beit og eins að sjá fyrir salernum, vatnslögn og sorp- hreinsun, nema i Laugardal, þar sem Ferðafélag Islands hefur skála sinn”, segir Hákon. ,,Nú er svo komið að Skógrækt- in hefur ekkert fé aflögu til að sinna hreinsun eða viðhaldi hreinlætistækja. Þvi var það i vor, að ég sagði starfsmönnum minum að réttast væri að láta hreinsanir vera að mestu til að menn mættu sjá, hversu ástandiö yrði. Þá kæmi og i ljós, hvað þeir hefðu lagt á sig á undanförnum árum i þágu gesta sinna. Af þess- um ástæðum var ekki hreinsað til i Húsadal i allt vor”, sagði Hákon. „Skógrækt rikisins hefur mörg- um öðrum þarfari störfum að sinna en að annast sorphreinsun eftir fólk, og þar til fást peningar til að hafa eftirlit með slikum stöðum sem Þórsmörk, verður varla hjá þvi komizt að banna ferðir um Mörkina, nema á veg- um Feröafélags Islands. Girðingin um Þórsmörk er reist að nýju og endurbætt á hverju vori eða sumri um það leyti og rekið er á fjall. Að visu er hún viða gömul og orðin fornfáleg, en hún er a.m.k. fjárheld að viðgerð lokinni. Annað mál er að bæði skilja margir eftir opið hlið ásamt þvi sem verra er, að girðingin er oft eyðilögð eftir að fé er rekið til fjalls,” sagði Hákon enn fremur. —EVI— Bandarískir hljóð- fœraleikarar safna Fyrstu íbúarnir fluttir í Hólahverfið: Rœktar blóðberg og baldursbró innan um vinnupalla „Jú, ég var einn af þeim allra fyrstu, sem fluttu inn i þetta liverfi. Eg flutti inn 20. mai og kann bara býsna vel viö mig nú orðið. Nú fer að fjölga hérna i kringum mig, og verður vist ekki eins einmannalegt hér i vetur, þcgar þúsundir hafa flutzt hér inn i húsin á Ilólnum”, sagði Högni Sturluson, þegar við hittum hann i ibúð sinni i Gaukshóium i Breið- hoiti III, en llólahverfið er nú sem óðast að byggjast og verður þarna fyrirsjáanlcga örasta upp- bygging ibúðarhverfis i sögu landsins til þessa. Högni sýndi okkur ibúðina sina, sem er á annarri hæð, en hann keypti hana tilbúna undir tré- verk, en þannig eru langflestar ibúðir i þessu hverfi seldar. ,,Ég hef nú lokið við þetta sjálfur að mestu leyti. Maður dreif sig i þetta. Við bjuggum i kjallaraibúð, og ég var orðinn dauðþreyttur á að vera grafinn niður i jörðina”. Og Högni drifur okkur út á svalir og sýnir okkur útsýnið, sem er stórfenglegt yfir bæinn, Sundin og Esjuna. Inn á milli vinnupallanna, sem ennþá þekja húsið, má sjá stöku stað sjá sokkabuxurhanga ásvölum.sem merki um það, að einhver er fluttur inn. Svalirnar hjá Högna eru þaktar islenzkum blómum af ýmsum tegundum, til dæmis er þarna blóðberg og baldursbrá i kössum. „Það er konan sem hefur gaman af þessu. Það veitir nú ekki af að lifga upp grasleysið hérna. Þetta er nú allt hálfeyði- legt ennþá” segir Ilögni. Nú ber verkstjórann i húsinu að, Marinó Finnbogason og hann fræðir okkur á þvi að hann hafi verið fyrsti ibúinn á Vestur- berginu, sem nú er að verað full- byggt. „Þessar byggingar hérna i kring hafa gengið yfirleitt mjög vel. Við höfum t.d. ekki verið nema ár með þessa 8 hæða blokk i smiðum. Nú fer fólkið að flytja inn i húsið, en húsnæðisvandamál neyða marga til þess að flytja áður en þeirhafalokið við ibúðir- nar. Það er greinileg nokkuð erfitt að fá ýmsa iðnaðarmenn núna, og fólk virðist yfirleitt hafa góðan fyrirvara með að panta innréttingar og annað i ibúðir- nar”. sagði Marinó. Nú máttum við ekki tefja þá Högna og Marinó lengur og kveðjum, eftir að við höfum skrifað i gestabókina hjá Högna, en hann kveðst ekki sleppa neinum út án þess.Gert er ráð fyrir að Breiðholt 3 verði barnflesta ibúðarhverfi borgarinnar, en i haust er búizt viðaðum 15þúsund manns verði fluttir i hverfið. —ÞS Högni og Marinó á svölunum á ibúð Högna, þar sem liann ræktar ýmis islenzk blóm i kössum innan um vinnupallana, sem þekja þessa átta hæða blokk. fyrir Eyjabúa Sinfónisk sveit 23ja ungmenna, 15-17 ára safnar fé fyrir Vest- mannaeyjar með hljómleikum I Dómkirkjunni I Reykjavfk i kvöld. Sveitin er bandarisk, og hljóð - færaleikararnir hafa sigrað i samkeppni viðs vegar i Banda- rikjunum. Allur ágóði rennur til Vest- mannaeyjasöfnunar. Annað kvöld leikur hljómsveit- in i Aðveutkirkjunni i Reykjavik og á sunnudagskvöld I Akureyr- arkirkju. Hljómsveitin nefnist The New England Youth Ensemble. 2 millj. til félagslegrar uppbygingar í Eyjum Samtök bindindisfélaga öku- manna i Sviþjóð hafa gefið rúm- lega 2,1 milljón islenzkra króna til félagslegrar uppbyggingar I Eyj- um- Gjöfin var afhent Rauða krossinum. Röng fyrirsögn Mistök urðu I umbroti blaðsins i gær sem ollu þvi, að i fáeinum fyrstu eintökum blaðsins var röng fyrirsögn á tilvisunarklausu á forsiðu. Fyrirsögnin „Styttist i sælu- dögunum” átti að vera tilvisun á forystugreinblaðsins. Var sá kostur tekinn til að komast hjá töfum að láta fyrirsögnina „I sæludögunum” vera á tilvisun á grein um Grikkland, enda mætti segja, að einnig þar sé ríkis- stjórn „i sæludögum”, sem óvist er, hversu lengi endast.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.