Vísir - 20.07.1973, Page 5

Vísir - 20.07.1973, Page 5
Visir. Fösiudagur 20. júli 1973. AP/IMTB ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND Umsjón Guðmundur Pétursson að fresta enn um sinn Neyddust til tilraunasprengjunni Fyrstu tilraun Frakka með kjarnorkusprengju á þessu ári var frestað i gær fram á sunnudag „vegna óhagstæðra veðurskilyrða”, eftir þvi sem heimildir greina frá i Papeete á Tahiti. Það er talið vist, að tilraunin hafi átt að byrja i gær við Mururoaeyju suðaustur af Tahiti, en þar er tilraunasvæði Frakka. Ahöfn freigátunnar Otago, sem færði sig nær tilraunasvæðinu i gær, og var i aðeins 20 milna f jar- lægð frá stað, þar sem loftbelgur sást svifa i loft upp i rétta stöðu, en það er einmitt neðan i slikum loftbelgjum sem kjarnorku- sprengjur hanga, þegar tilraunir eru gerðar með þær ofanjaðar. t Papeete er það sagt, að til- raunin muni verða gerð á sunnu- dag, ef veður verður hagstætt, en aust-suðaustan áttar er krafizt af óryggisástæðum til þess að bera geislavirkt ryk á haf út, en ekki til Tahiti. Að margra mati er það þó nær- vera freigátunnar Otago, sem knúið hefur Frakka til þess að fresta tilrauninni tvisvar sinn- um að minnsta kosti. Freigátan og skonnortan FRI hafa verið á hættusvæðinu, þar til Frakkar tóku FRI á sitt vald og drógu hana burt af tilraunasvæðinu i fyrradag. Eftir að Frakkar stigu um borð i skonnortuna hefur ekkert frá henni heypzt, en Norman Kirk, forsætisráðherra Nýja Sjálands skýrði fréttamönnum frá þvi i morgun, að stjórninni hefði borizt orðsending frá Frökkum þess efnis, að skonnortan hefði verið dregin til eyju einnar utan hættu- svæðisins og væri áhöfnin við beztu liðan. Kirk sagði, að Frökkum hefði verið uppálagt að tryggja velferð áhafnarinnar og fljúga með hana til Papeete. Ambassador Frakka i Welling- ton neitaði að upplýsa, til hvaða eyju skonnortan hefur verið dregin. — En óstaðfestar fréttir hermdu, að FRI hefði verið dregið til Hao-kóraleyjunnar, sem er um 320 milur suðaustur af Tahiti. Það hefur þó verið dregið i efa, að unnt hafi verið að draga skútuna svo langt i ekki betra sjólagi en rikt hefur á þessum slóðum að undanförnu. Kirk forsætisráðherra sagði fréttamönnum i morgun, að stjórn hans hefði lagt á það rika áherzlu við Frakka, að hún hefði áhyggjur af velfarnaði Ný-Sjá lendinganna innan áhafnarinnar, og að Frakkar yrðu að ábyrgjast að ekkert illt henti þá. legg i lófa <----- karls <---------------------------- t orði kveðnu er strlðið að baki og vopnahléið hefur staðið i nokkra mánuði — en vandamál þessara heimilislausu munaðar- leysingja i Dalat i Suður-Vietnam er enn hið sama. Nefnilega hvernig þeir eiga að afla sér til næstu máltiðar. Slik sjón er al- geng, þar sem strið hefur geisað, og talaði vottur um, hve harðlynt fólk verður viö slikar aðstæður, er þessi mynd, þar sem velklæddar vietnamskar konur á markaðnum i Dalat, sem er vinsæll sælu- lundur um 60 milur norður af Saigon, gera ekki svo mikið sem renna auga til litlu betlaranna, sem biðjandi sýna þeim i tóman lófann. Sextíu sakaðir um samsœri Saxað á hermdar- verkasveitirnar Brezkar öryggis- sveitir hjuggu stórt skarð i raðir irska lýðveldishersins i gær, þegar handteknir voru 14 félagar úr sam- tökunum, og þar af þrir mjög háttsettir ráða- menn samtakanna. Mestur fengurinn var þar i hinum 24 ára gamla Gerry Adams, sem talinn er hafa verið yfirmaður IRA i Belfast, en auk þess voru teknir Brendan Hughes og Tom Cahill. Þessir þrir hafa verið eftirlýstir i marga mánuði, og þó Cahill lengur, en bróðir hans náðist fyrir nokkrum mánuðum, þegar Irar fundu smyglfarm vopna i skipi fyrir strönd Irlands, og tóku þar Cahill eldri um borð. Þessir fjórtán voru teknir i Belfast, en auk þess tóku brezkir hermenn tvo bilfarma af IRA-hermdarverkamönnum i bænum Armwgh. t Umgangsmiklar husrannsóknir voru gerðar i Belfast, þegar handtökurnar fóru fram þar i gær. Voru konur og börn jafnvel handtekin lika, en þeim siðar sleppt, þegar leið á daginn. Talsmenn brezka hersins vildu ekki láta uppi, hvernig þeir höfðu fengið visbendingar um, hvar þeir gátu fundið IRA-félagana. Engu að siður var það altalað i Belfast I morgun, að einhverjir úr röðum hinna róttækari i IRA hefðu sjálfir gefið Bretunum ábendingarnar. Sextíu grískir liðs- foringjar og stjórnmála- menn, þar á meðal Konstantin Karamanlis fyrrum forsætisráð- herra, voru i gærkvöldi ákærðir fyrir aðild að samsæri um að steypa núverandi stjórn landsins. í 70 blaðsiðna þéttskrifuðu ákæruskjali, sem lesið var upp yfir þessum 60, var komizt svo að orði, að þeir hefðu tekið þátt i konungshollri uppreisn innan flotans i mai I vor til þess að steypa stjórninni og koma Konstantin konung i hásætið aftur. Þetta ákæruskjal var afhent yfirstjórn hersins, sem afræður, hvort höfða skal mál á hendur mönnunum eða ekki. Karamanlis, sem var forsætis- ráðherra i átta ár, var sakaöur um að hafa tekið þátt i samsærinu. Fyrrverandi utanrikisráðherra, Evanghelos Averoff-Tositsas, var þarna á blaði og reyndar tveir ráðherrar aðrir, auk svo einkaritara Konstantins konungs, Mikaels Arnaoutis. Allir þeir, sem nefndir voru i ákæruskjalinu, sitja i varðhaldi, nema Karamanlis og Arnaoutis. Sadat á fundum með Arafat og Hussein Anwar Sadat, Egypta- landsforseti, tók á móti bæði Yasser Arafat, leið- toga skæruliðahreyfingar- innar, og Hussein Jór- daníukonungi í gær og átti með þeim sínum í hvoru lagi langa fundi. Ekkert hefur verið látið uppi um, hvað þeim hefur farið á milli, en það er allra mál, að á góma hafi borið tillaga Egypta um al- þjóðlega viðurkenningu Palestiu- rikis. Egyptar báru þá tillögu fram á fundi öryggisráðs Sam- einuðu þjóðanna i siðustu viku, að stofnað yrði sérstakt Palestinu- riki Araba. Hússen konungur lagi til i fyrra, að stofnað yrði nokkurs skonar furstadæmi Palestinu, sem yrði undir krúnu hans, en skæruliðahreyfingin og Egyptar höfnuðu henni. Þá er talið, að rædd hafi verið hugmyndin um að sameina Egyptaland og Libýu. Fréttastofa Palestinuaraba skýrði frá þvi i gær, að Arafat hefði borizt boð frá Fidel Castro, forseta Kúbu, um að vera við- staddur hátiðarhöldin vegna bylt- ingarafmælisins, sem hefst næst- komandi fimmtudag og skal Ara- fat vera aðalheiðursgestur há- tiðarinnar.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.