Vísir - 20.07.1973, Side 9
Einhvern tíma hefði
fsland fengið skelll
— eins snilldarlega og Þjóðverjarnir léku í gœrkvöldi. 2-0 sigurinn var
í minnsta lagi, en þó ótti Þorsteinn að verja bœði mðrk þýzka liðsins
Leikmenn þýzka alþýöu-
lýðveldisins sýndu í gær-
kvöldi einhvern bezta leik,
sem erlent lið hefur sýnt á
Laugardalsvelli og sigruðu
islenzka landsliðið örugg-
lega — landslið, sem leikið
hefur fjóra leiki á átta
dögum, nokkuð, sem
jafnvel atvinnumenn
mundu kikna undir. Sigur
Þjóðverja 2-0 var jafnvel í
minnsta lagi. Þeir fóru illa
með sín beztu tækifæri —
en fengu hins vegar tvö
ódýr mörk, sem Þorsteinn
ólafsson, markvörður
íslands, hefði hiklaust átt
að koma í veg fyrir.
Einkum hið fyrra, mikið
klaufamark.
Yfirburðir þýzka liðsins voru
miklir úti á vellinum, en þú komst
islenzka liðið vel frá leiknum, og
enn voru leikmenn þess rændir
góðu marki. Ásgeir Eliasson
skoraði aðeins til að sjá linuvörð
— islenzkan — veifa rangstöðu á
leikmann, sem engin áhrif hafði á
leikinn, og einnig var vafasamt
hvort hann var yfir höfuð rang-
stæður. Það hefur verið grát-
legast i sambandi við lands-
leikina við Þjóðverja, að það hafa
verið islenzkir linuverðir, sem
komið hafa i veg fyrir mun betri
úrslit en raun varð á — úrslit, sem
þó allir geta vel við unað. Það er
ekki skömm að tapa fyrir þessu
þýzka landsliði jafn snilldarlega
knattspyrnu og það getur sýnt, og
velgt hefur miklu þekktari mót-
herjum undir uggum.
Þó þýzku leikmennirnir
sköpuðu sér all góð tækifæri i
leiknum til að skora var islenzka
örlagarikt augnablik i ieikn-
um i gærkvöldi. Gisli Torfason,
lengst til vinstri, hefur gefið
knöttinn inn i vitatcig til Ásgeirs
Eliassonar — Asgeir skauzt
framhjá þýzkum varnarmanni
— náði knettinum og skoraði svo
gott mark eins og miðmyndin
sýnir. Ásgeir hefur þar sent
knöttinn framhjá þýzka mark-
verðinum. Marteinn Geirsson
fylgist spenntur með. En von-
brigöi urðu mikil — Hinrik
Lárusson, linuvörður leiksins, á
austan verðum vellinum (eins
og Rafn Hjaltalin i fyrri
leiknum Iveifaöi rangstöðu á
Matthias llallgrimsson, sem ef
til vill — ef til vill ekki — var
fyrir innan þýzku varnar-
mennina, en áhrif hafði
Matthias ekki nokkur á leikinn.
Honum sárnaði svo, að hann
hljóp beint til linuvarðarins og
gerði sinar athugasemdir.
Þarna var aftur gott mark tekið
af islenzka landsliðinu vegna
fljótfærni linuvaröar — tvö
mörk i báðum leikjunum, sem
islenzka liðið skoraði, en
komust ekki til skila vegna
islenzkra linuvarða. Það er of
mikið af þvi góða — það heföi
borgaö sig að fá einnig linuveröi
frá Skotiandi!
Á neðstu myndinni er ÖRN
Óskarsson, sem sýndi góðan
lcik, kominn i færi. Þýzki
markvörðurinn (hönd hans sést
til vinstri) er einn til varnar, en
hörkuskot Arnar lenti beint i
andliti þess þýzka og knötturinn
hrökk út á völl. Markvörðurinn
meiddist og varð að yfirgefa
völlinn. Ljósmyndir Bjarn-
leifur.
vörnin kjarni landsliðs okkar. Aö
visu misgóð — Þorsteini urðu á
gróf mistök, en sýndi á milli hver
ágætis markvörður hann getur
verið en Ástráður Gunnarsson
hefur ekki hæfni til að leika á móti
þetta sterkum mótherjum, þvi
miður.
Tveir leikmenn hrifu mig mjög
i þessum leik — Ólafur Sigurvins-
son og Einar Gunnarsson — og
gáfu þeir beztu Þjóðverjunum
ekkert eftir. Þeir sýndu hreint
snilldarleik i vörninni og hafa
ekki i annan tima leikið betur.
Guðni Kjartansson, fyrirliði gaf
þeim ekki mikið eftir, þrátt fyrir
meiðsli. Þá var Marteinn
Geirsson ágætur — leikmaöur,
sem aldrei á slæman leik.
Guðgeir Leifsson, Asgeir Sigur-
vinsson og Ólafur Júliusson, sem
þó átti mun betri leik en i fyrri
landsleiknum, voru teknir út af —
tveir þeir fyrst töldu meiddir. 1
stað þeirra komu Asgeir Elias-
son, sem var einn albezti maður
isl. liðsins. örn óskarsson og
Teitur Þórðarson. Sóknin var
beittari við þetta i siðari hálf-
leiknum, og skapaðist þá
stundum hætta við þýzka markið.
Ásgeir skoraði — örn komst einn
inn fyrir, en þýzki markvöröurinn
Þýzki markvörðurinn Dieter
Schneider sýndi oft mikið öryggi i
landsleikjunum. Hér gripur hann
knöttinn öruggum höndum.
varði hörkuskot hans. Orn komst
yfirleitt prýðilega frá leiknum.
Gisli Torfason er mjög vaxandi
leikmaður — en mikið hefur verið
álagið á þessum unga pilti siðustu
daga. t framlinu barðist
Matthias Hallgrimsson af
miklum krafti — leiknari
leikmann eigum við ekki — en
gæzlan var oft þrælsleg á honum.
Þrátt fyrir tapið getur islenzka
liðið vel unað sinum hlut — og
einhvern tima, jafnvel fyrir
örfáum árum, hefði islenzkt
landslið mátt þola stórtap fyrir
liöi af styrkleika Þjóðverjanna.
Framförin hjá okkur er svo
greinileg, svo mikil, að þar er um
hreina stökkbreytingu að ræöa.
Við eigum gott landslið — þótt
alltaf megi um það deila hvort
Pétur sé betri en Páll i þessari
eða hinni stöðunni.
Sem betur fer, er óhætt að
segja — eigum við næstum
tuttugu leikmenn, sem mundu
sóma sér vel i landsliði — slikur
Erfiðasta
vika í ísl.
knatt-
spyrnu
Erfiðustu viku i islenzkri
knattspyrnu er lokið — og
það er ekki annað hægt að
segja, en að islenzku lands-
liðsmennirnir hafi komizt
sérlega vel frá þeirri miklu |
raun, sem þeir hafa staðið i
siðustu daga. ,
Þrir landsleikir við Svia og
Austur-Þjóðverja — knatt- ,
spyrnulið, sem eru i fremstu
röð — og vissuieg fengu þau
verðuga mótstöðu frá
islcnzku landsliðsmönnun-
um. Ofan á þetta bættist svo
pressuleikurinn þannig, að
margir islenzku landsliðs-
mannanna hafa leikið fjóra
erfiða leiki á átta dögum.
Atvinnumenn mundu
kvarta undan þvi að þurfa að
leika fjóra leiki á svo
skömmum tima — og fyrir
áhugamenn hlýtur slíkt að
vera mjög erfitt. En það var
ekki kvartað og margir leik-
mannanna léku jafnvel i síð-
ast leiknum eins og hinum
fyrsta.
lúxus hefur ekki áður þekkzt i -
islenzkri knattspyrnu.
Austur-þýzka liðið skoraði
fyrra mark sitt á 18 min. fyrri
hálfleiks. Hans-Jurgen Kreische,
sem skoraði bæði mörkin i fyrri
leiknum, lék þá upp að enda-
mörkum — spyrnti fast fyrir
markið. Knötturinn hefði senni-
lega farið framhjá — en
Þorsteinn greip inn i og missti svo
knöttinn i markið. Grátlegt.
Siðara markið skoraði þekktasti
leikmaður þýzka liðsins,
Eberhard Vogel á 3. min. siðari
hálfleiks. Hann lék næstum i gegn
frá miðju vallarsins — án þess að
vera að ráði hindraður — og
spyrnti fast á markið nokkru
utan vitateigs. Knötturinn lenti i
hægra markhorninu, alveg niður
við jörð. Þorsteinn var of seinn að
kasta sér— slikt mark fá ekki
snjallir markverðir á sig.
Aðdragandinn var langur — og
ekkert, sem hefti útsýnið. Þetta
er harður dómur — en hins vegar
var Þorsteinn oft vel á verði, og á
33. min. varði hann svo snilldar-
lega frá Vogel að sjálfur Gordon
Banks hefði ekki getað gert betur.
—hsim.
1 wm
.. - '.-.'vrVv •
Knötturinn á leið i mark Þjóðverja — Matthias Ilallgrimsson. lengst til hægri, spyrnir á markið án þess
Klaus Sammer komi við vörnum. Knötturinn fór allur yfir marklinuna áður en þýzki markvörðurinn
greip hann. Þctta var á 5 min. fyrri landsleiksins — en samt var ekkert mark dæmt vegna mistaka
islenzks linuvarðar. Ljósmynd Bjarnlcifur.
Nú er að vinna Norð-
menn í HM-leiknum!
—sagði Albert Guðmundsson við íslenzku landsliðsmennina í lokahófi KSÍ í gœrkvöldi
„Ykkur hefur kannski
fundizt það miskunnar-
leysi, að við Hafsteinn
Guðmundsson skyldum
velja ykkur í siðari
leikinn gegn Austur-Þjóð-
verjum— allir þreyttir og
sumir með minni háttar
meiðsli" sagði Albert
Guðmundsson, formaður
KSi, við íslenzku lands-
liðsmennina í hófi Knatt-
spyrnusambandsins „en
við erum ángæðir með
frammistöðu ykkar — og
treystum ykkur".
— Það er ekki vafi á
því, að íslenzk knatt-
spyrna er í mikilli
framförog sá hópur, sem
byggður hefur verið upp
landsliðinu getur orðið
öðrum íslenzkum æsku-
mönnum til fyrirmyndar.
Við berum mikið traust
til ykkar innan vallar
sem utan — og kröfurnar
aukast. islenzkir áhorf-
endur munu gera þær
kröfur, að þið sigrið Norð-
menn á Laugardalsvell-
inum 2. ágúst næst-
komandi, sagði Albert
ennfremur
í hófi KSi var skipzt á
gjöfum að venju eftir
landsleiki. Albert afhenti
fyrirliða austur-þýzka
landsliðsins nítján ösku-
bakka úr hrauni og merki
leikir
í 1.
Fjórir
deild á sunnudag!
Boltinn heldur áfram
að rúlla i 1. deildinni á
sunnudag — fjórir leikir
verða háðir. Eftir hina
miklu knattspyrnuvið-
burði undanfarinna
daga hefðu margir
haldið að ástæða væri til
að leikmenn, sem staðið
hafa i eldlinunni,
hvidust, en það er öðru
nær. Nú er alvara 1.
deildarinnar fram-
undan.
Mesta athygli mun leikurinn á
Akranesi áreiðanlega vekja.
Efsta liðið i deildinni, Keflavik,
kemur i heimsókn, og leikur við
Akurnesinga. Þetta ætti að geta
orðið mikill baráttuleikur milli
hættulegrar framlinu heima-
manna og góðrar varnar Kefla-
vikur. Fyrirfram eru Kefl-
vikingar sigurstranglegri — en
flestir leikmanna liðsins hafa
staðið i ströngu undanfarið og þvi
ekki vist, að þeir nái sinu bezta á
Skaganum. Leikurinn hefst kl.
fjögur.
Á sama tima leika Akureyri og
Fram fyrir norðan, en kl. tvö
hefst leikur Vestmannaeyja og
KR i Njarðvikum. Um kvöldið
verður svo leikur Vals og Breiða-
bliks á Laugardalsvelli.
KSI handa öllum lands-
liðshópnum þýzka, en
nítján leikmenn voru f
förinni hingað. Einnig
fengu fararstjórar liðsins,
þjálfararog læknir gjafir,
og knattspyrnusambandið
þýzka fagran vasa.
Fararstjóri þýzka liðs-
ins, Schneider, hélt einnig
ræðu og þakkaði móttökur
hér. Þá kallaði hann í
Guðna Kjartansson,
fyrirliða islenzka lands-
liðsins, og afhenti honum
gjafir til íslenzku lands-
liðsmannanna — falleg
veski, merki þýzka sam-
bandsins, og hornveifu
þess, Þá afhenti hann
KSi fagran krystalvasa
að gjöf — og stjórnar
mönnum KSi gjafir.
Dómari leikjanna,
Skotinn Gordon, fékk
gjafir frá báðum knatt-
spyrnusamböndunum, og
einnig línuverðir í
leikjunum.
Hófið fór hið bezta
fram og meðal annars
kom fram í ræðu Alberts,
að þegar íslenzka lands-
liðið ætti leið nálægt
landamærum þýzka al-
þýðulýðveldisins mundi
það leggja lykkju á leið
sína og endurgreiða þessa
landsleiki. Kynni við
þýzku leikmennina hefðu
verið sérstaklega góð —
hann hefði ekki áður
kynnzt hér leikmönnum
sem hefðu komið fram
jafn kurteislega innan
vallar sem utan — það
væri fyrirmyndar agi hjá
þýzka liðinu.
AFRAM
strakar,
jafna!
Sendiherra þýzka alþýðu-
lýðveldisins á tslandi — með
aðsetri i Osló — kom gagn-
gert til tslands i gær til að
horfa á siðari iandsleik
islands og Austur-Þýzka-
lands . Hafði hann hina
bcztu skemmtun af leiknum
og lét það i Ijós i hófi KSt I
gærkvöldi.
Margir fyrirmenn sáu
leikina -ráðherrar voru fjöl-
margir á fyrri leiknum,
Einar Ágústsson, Magnús
Torfi Ólafsson, Halldór
Sigurðsson, Hannibal Valdi-
marsson, og Magnús
Kjartansson, sem var á
báðum leikjunum.
Þcgar islenzka liðið náði 1
forustu i fyrri leiknum
kallaði Magnús Kjartansson
„Afram strákar — jafna”,
svo spenntur var hann en
gleymdi því augnablik,
að islenzka liðið liafði náð
forustu. Varla hefði Itann
farið að hvetja leikmenn al-
þýðulýðveldisins á islenzku!