Vísir - 22.10.1973, Qupperneq 12
Markvörðurinn markhœstur!
— hjá Manch. Utd. Leeds sigraði meistara Liverpool örugglega
og hefur nú aftur náð fjögurra stiga forskoti í 1. deild
sEXAim
YOUNC
»«1 jwviiyrcu
rnmi
mpmr
tm p*.Kz 11
the oi
Soccer shocker:
England are shot
out of the Cup
€NC1AN0 S MHie* cjf gwng tx> 1fc« WoHd
Cwf» ♦#«*}» m y«**• wtt*
U*t mgK*.
' >•■• ‘tfv.x-ii'.iif >'■<*!» h *i % '»:•#>•:•<•»
'•:> *<•:>■•'• #0 ?«♦*>* W»»>:«*í <>»*<* _ í
,„ ,v í * un <**>» so. « *mí » |
StYU
í»vW.« Kx.H -. »«*>•*♦
: *♦ | ♦»■«, w<
9 | /«•••>• <•>>*■ « .x- ♦»<:
My«X’X Va* :*<■>>
wa
8!€ n
8AT1
**«.*«# w>*
is»1 ***** *t
♦>*<» **•?M <■
> £HH *it*>*/.
ro/?/f.
fflV
»■'<<♦> t*a «■:
'»>»> > *«• *»
s£vs»
Heimsendir — þaö munaði ekki um þaö — en þessi fyrir-
sögn i The Sun sl. fimmtudag átti þá ekki viö endalok
heimsins, heldur aöeins aö enska landsliðið i knattspyrnu
komst ekki i lokakeppni HM
Það var ekki hrun
hvað aðsókn snerti á
ensku deildaleikina á
laugardag eins og marg-
ir höfðu spáð vegna úr-
slita leiks Englands og
Póllands á miðvikudag
— siður en svo. Áhorf-
endur streymdu á vell-
ina eins og ekkert hefði i
skorizt — tæplega 50
þúsund voru á Old Traf-
ford og sáu George Best
birtast á ný i deilda-
keppninni eftir 11 mán-
uði — 45 þúsund sáu
Leeds sigra meistara
Liverpool og auka þar
með forustu sina, þvi
Burnley tapaði að venju
i Liverpool gegn Ever-
ton.
Kannski hafa enskir áhorfend-
ur minnzt oröa Franz Beckenbau-
er, fyrirliða vestur-þýzka lands-
liösins, sem sagði eftir leikinn á
miðvikud. — „Það var sorglegt
aö sjá England ekki vinna þennan
leik eins miklir og yfirburðir
enska liðsins voru” eða blaða-
mannsins, sem sagði, að þó pólski
markvörðurinn yrði 150 ára, þá
mundi hann ekki eiga slikan leik
framar. Já, enskir reyna að
gleyma sorg miðvikudagsins þó
það sé erfitt að kyngja þvi, að
enska landsliðið leikur ekki i úr-
slitum HM meðan lið frá Suður-
Kóreu, Astraliu, Marokkó og
Mexikó leika þar að likindum. En
kennarinn i knattspyrnu heimsins
verður nú að setjast á skólabekk á
ný og sleikja sárin.
En nóg um það. Mick Jones
skoraði sjötta deildamark sitt i
haust fyrir Leeds gegn Liverpool
og það nægði til sigurs — tvö
dýrmæt stig bættust i safn Leeds,
sem er eina liðið, sem ekki hefur
tapað leik. Það var sanngjarn
sigur betra liðsins — lið Liverpool
er ekki nema svipur hjá sjón
miðað við siðasta leiktimabil og
Leeds, sem alls ekki sýndi sinar
beztu hliðar, átti ekki i hinum
minnstu erfiðleikum. Það var á
33. min. sem Jones skoraði —
Peter Lorimer lék upp kantinn og
gaf vel fyrir, og áður en varnar-
menn Liverpool vissu af hafði
Jones skallað i mark. Norman
Hunter lék sinn 600. leik með
Leeds og var fagnað mjög fyrir
leikinn — og það svo, að hann
gleymdi mistökum sinum frá
leiknum við Pólland, sem kostuðu
mark.
Allra augu beindust að George
Best á Old Trafford óg kappinn
lék I framlinunni i fyrri hálfleik.
Þar var hann ekki nógu skarpur,
en sýndi mun betri leik sem fram-
vörður framan af siðari hálfleik.
15 min. fyrir leikslok varð hann
að yfirgefa völlinn vegna tognun-
ar — en hafði þó sýnt, að innan
fárra vikna verður hann aftur
kominn i hóp beztu knattspyrnu-
manna heims. Lið Manch. Utd.
lék ekki vel þó það næði sigri —
Birmingham var betra liðið allan
fyrri hálfleikinn, en tókst ekki að
skora mest vegna góðrar
frammistöðu Alec Stepney i
marki United. Og Stepney skoraði
eina mark leiksins á 67. min. úr
vitaspyrnu eftir að John Roberts
hafði bandleikið knöttinn eftir
hornspyrnu Markvörðurinn er nú
markhæsti leikmaður Manch.
Utd. i deildakeppninni — skorað
tvlvegis úr vitum —og alls úr sex
vftaspyrnum i haust. Það er hart
fyrir lið, sem aðeins fyrir nokkr-
um árum átti frægustu sóknar-
menn enskrar knattspyrnu, að
hafa nú markvörð, sem marka-
hæsta leikmann!!
Mesti áhorfendafjöldi var á
Baseball Ground i Derby i haust
— 34.203 — og vigbúnaður lög-
reglu mikill. Búizt var við átökum
vegna uppsagnar framkvæmd-
stjóra Derby, Brian Clough, og
deilu hans við Longson, stjórnar-
formann Derby. Báðir mættu á
völlinn, en svo hófst leikur Derby
og Leicester og var svo stór-
skemmtilegur, að áhorfendur
gleymdu öllu öðru. Kevin Hector
var frábær og skoraði fljótlega
fyrir Derby. Staðan var 1-0 i hálf-
leik, þrátt fyrir yfirburði Derby.
Og svo jafnaði Frank Worthing-
ton fyrir Lecester á 58. mtn. mjög
óvænt. Það stóð ekki lengi á 62.
min. skoraði McGovern sigurmrk
Derby.
En það er nú vist kominn timi
til að lita á úrslitin frá þvi á
laugardag.
1. deild
Arsenal—Ipswich 1-1
Coventry—West Ham 0-1
Derby—Leicester 2-1
Everton— Burnley 1-0
Leeds—Liverpool 1-0
Man.Utd.—Birmingham 1-0
Newcastle—Chelsea 2-0
Norwich—Tottenham 1-1
Sheff.Utd,—Man.City 1-2
Southampton—Stoke 3-0
Wolves—Q.P.R 2-4
2. deild
Aston Villa—Bristol C. 2-2
Blackpool—Nottm.For. 2-2
Bolton—Millvali 0-1
Cardiff—Sheff.Wed 0-1
C.Palace—Carlisle 0-1
Fulham—Sunderland 0-2
Hull—Portsmouth 4-1
Middlesbro—WBA 0-0
Notts. Co.—Preston 2-1
Orient—Luton Town 2-0
Swindon—Oxford 1-0
3. deild
Blackburn—-Cambridge 2-0
Brighton—Shrewsbury 2-0
Briston Rov.—-York 0-0
Charlton—Rochdale 3-0
Grimsby—Aldershot 1-0
Halifax—Wrexham 1-2
Oldham—Chesterfield 0-0
Port Val—Bournemouth 0-0
Watford—Plymouth 0-3
4. deild
Barnsley—Newport 1-1
Brentford—Rotherham 1-1
Chester—Gillingham 2-4
Crewe—Bury 1-0
Doncaster—Hartlepool 2-2
Lincoln—Darlington 2-1
Northampton— Exeter 1-2
Peterbro—Swansea 3-0
Reading—Mansfield 3-0
Stockport—-Bradford 0-1
Úrslit á föstudag. 3. deild
Southend—Hereford 2-1, South-
port—Walsall 1-1, Tran-
mere—Huddersfield 1-1. 4. deild
Colchester—Scunthorpe 2-0.
Minnsta Lundúnaliðið i 1. deild,
QPR, leikur beztu knattspyrnu
liöanna frá heimsborginni miklu
— og það rikasta þeirra Arsenal
hefur boðið hálfa milljón sterlings
punda I tvo leikmenn QPR, enda
gengur nú allt á afturfótunum hjá
Arsenal. Liðið verðskuldaði alls
ekki að ná jafntefli gegn Ipswich
á laugardag — það var mikið
heppnisstig. Ekkert mark var
skorað i fyrri hálfleik — en svo
skoraði Lambert fyrir Ipswich. A
lokaminútunni jafnaði Simpson,
miðvörður Arsenal eftir horn-
spyrnu, en það mark hefði ekki
átt að gilda. A meðan lék QPR
upp i Miðlöndum við Úlfana.
Derek Dougan skoraði i fyrri hálf
leik fyrir heimaliðið — en QPR
jafnaði með marki Bowles i siðari
hálfleiknum, og lokakaflann var
allt á suðumarki. Daly skoraði
fyrir Úlfana — aftur var jafnað og
siðustu 8 mínúturnar skoraði
QPR tvivegis. — Bowles skoraði
tvö af mörkum QPR i leiknum,
Francis, vitaspyna, og Leech hin.
Aðeins Chelsea tapaði af
Lundúnaliðunum — McDonald
skoraði bæði mörk Newcastle,
annað úr vitaspyrnu — og West
Ham vann sinn fyrsta sigur á
keppnistimabilinu i Coventry.
Það var bakvörðurinn McDowell,
sem skoraði eina markið I leikn-
um. Tottenham stefndi lengi vel i
sigur gegn Norwich. Hafði mark
yfir, sem Alan Gilzean skoraði i
fyrri hálfleik, lengi vel, en Doug
Livermore jafnaði fyrir heimalið-
ið.
Yfir 38 þúsund áhorfendur sáu
Everton sigra Burnley — að venju
má segja — og það var Dave
Clemence, sem skoraði eina
mark leiksins úr vafasamri vita-
spyrnu á 27. min. Clemence, sem
keyptur var nýlega frá
Sheff.Wed. er orðinn lykilmaður
Everton-liðsins, og það getur
áreiðanlega náð góðum árangri I
ve.tur, þvi enn vantar Kendall og
Royle, sem eru meiddir. Darracot
elti Leighton James i leiknum —
tók hann úr umferð — og sigur
Everton var mjög verðskuldaður,
þó markið væri vafasamt.
sigurmarkið nokkru fyrir leiks-
lok. Þarna kom í ljós, að hættu-
legt er að setja varamenn
snemma leiks inn á eins og Sheff.
Utd. gerði, og stóð svo uppi einum
færri þegar markvörðurinn ungi
slasaðist.
Þá meiddist kappinn frægi,
Nobby Stiles, snemma leiks gegn
Notts County — og varð að yfir-
gefa völlinn. Lið hans, Preston,
tapaði — fyrsta tap liðsins siðustu
vikurnar.
Staðan i 1. þannig: deildinni eru nú
Leeds 12 9 3 0 24-7 21
Burnley 12 7 3 2 21-12 17
Derby 13 7 3 3 18-11 17
Everton 12 6 4 2 14-9 16
Newcastle 12 6 3 3 20-13 15
Coventry 13 6 3 4 14-10 15
Liverpool 12 5 3 4 12-11 13
Leicester 12 3 7 2 14-13 13
Man.City 12 5 3 4 16-15 13
Southampton 12 5 3 4 17-17 13
Ipswich 12 4 5 3 19-20 13
Q.P.R. 12 3 6 3 19-18 12
Sheff.Utd. 12 5 2 5 15-15 12
Arsenal 12 5 2 5 14-15 12
Tottenham 12 4 3 5 14-16 11
Man.Utd. 12 4 2 6 10-13 10
Chelsea 12 3 2 7 16-19 8
Stoke 12 1 6 5 11-16 8
Wolves 12 3 2 7 15-23 8
Norwich 12 1 6 5 10-17 8
West Ham 12 1 4 7 11-19 6
Birmingham 12 1 3 8 10-24 5
IIISKIX
ER FLOGINN ÚR SUDURGÖTUNNII
Hátún 6A
£LAUGAVEGUR
HÁTÚNI 6A, SÍMI 24420
Varamarkvörður Stoke,
McDonald, átti slakan leik gegn
Southampton — fékk fyrsta
markið beint úr hornspyrnu
Terry Paine. Siðan skoraði Stokes
tvö mörk gegn Stoke og var stað-
an 3-0 i hálfleik. Fleiri urðu mörk-
in ekki.
Meiðsli settu svip á nokkra leiki
—.einkum þó i Sheffield. Þar hafði
Sheffield Utd. mark yfir gegn
Manch. City, þegar markvörður
liðsins, McAlister, fótbrotnaði i
samstuði við Rodney Marsh.
Knötturinn fór til Denis Law, sem
jafnaði. United hafði þegar notað
varamann sinn og fór Woodward i
markið — en útispilararnir voru
einum færri. Það nýtti Manch.
City — Rodney Marsh skoraði svo
Staða efstu og neðstu liða i 2.
deild Middlesbro 12 7 4 1 12-6 18
Notts County 12 7 2 3 18-14 16
Bristol C. 12 6 3 3 16-12 15
Aston Villa 12 4 6 2 17-10 14
Luton 10 6 2 2 21-14 14
Orient 12 4 6 2 17-12 14
Preston 12 5 4 3 14-10 14
Nottm.For. 12 4 5 3 18-11 13
Fulham 12 4 5 3 8-7 13
Sunderland 10 4 4 2 14-8 12
Swindon 12 3 3 6 8-13 9
Millvall 12 4 1 7 12-17 9
Oxford 12 2 4 6 6-15 8
C. Palace 12 0 3 9 9-24 3