Vísir - 07.11.1973, Page 4

Vísir - 07.11.1973, Page 4
4 Vísir. Miövikudagur 7. nóvember 1973. SUÐRÆNN HITI FRA HITAVEITUNNI Óveðurstjóníð frádregið til skatts „Allt það tjón, sem varð í óveðrinu á dögun- um og ekki fæst bætt á einhvern hátt, mun sam- kvæmt skattalögum fást dregið frá skattskyldum tekjum við næstu álagn- ingu", sagði Magnús Guð jónsson fram- kvæmdastjóri Bjargráða- sjóðs ríkisins i viðtali við Vísi. „Mér finnst rétt að þetta komi fram strax, þannig að fólk athugi að útvega og halda eftir nægum gögnum máli sínu til sönnunar," sagði Magnús ennfremur. Aö sögn framkvæmdastjórans hefur uppgjör á tjónum borizt mun seinna til Bjargráðasjóðs en búizt hafði verið við. Svo virðist sem mest allt tjón i dreifbýlinu sé fullkannað. Aftur á móti vantar töluvert á, að gögn hafi borizt um skaða á þéttbýlissvæðinu suðvestan- lands. „Stöðugt hefur verið aö bæt- ast við beiðnir um mat á tjóni vegna óveðursins, og það er i þessu eins og öðru sá siðasti sem ræður feröinni”, sagði Magnús. ,,Viö getum þvi ekki ennþá gert okkur grein fyrir heildar- Mesta tjón einstaklings um tvœr milljónir Ekki búið að gera upp allt tjón tjóninu, sem Bjargráðasjóður þarf að hlaupa undir bagga með aöbæta.Reyndar verður heildar- skaðinn aldrei fullkomlega ljós. Vegna ákvæðanna um að ekki sé bættur úr Bjargráðasjóði neinn hluti þeirra tjóna, sem nema minna en 50.000 krónum hjá hverjum einstaklingi eða fjöl- skyldu falla mörg tjón burtu og eru ekki metin”. Þarna getur þó verið um mikil heildartjón að ræða, eins og þegar miklar skemmdir urðu á stórum fjölbýlishúsum, sem eru i eigu margra aðila. Að sögn Magnúsar Guðjóns- sonar virtist svo sem mesta tjóniö, sem einstaklingur varð fyrir í óveðrinu, hafi verið hjá eiganda hænsnabús nálægt Elliðaám. Þar fuku byggingar og nær allar hænurnar drápust. Sagði Magnús, að tjón eigand- ans næmi nálægt 2 milljónum króna. Einnig hefði orðið tæp- lega 800 þúsunda tjón hjá hús- byggjanda á Alftanesi, þegar hálfbyggt hús hans hrundi til grunna. Auk þess hefðu svo orð- iö stórfelld tjón hjá fyrirtækjum og stofnunum, svo sem I Alver- inu i Straumsvik og Sements- verksmiðjunni á Akranesi. - ÓG. SAMA UM PENINGANA, en skilríkin vill hnnn fn! Athyglisverðar hugmyndir hafa verið ræddar i borgarstjórn Reykjavikur um að lækka svo verð á heitu vatni til gróðurhúsa, að upp geti risið blómum skrýdd þjónustufyrirtæki eins og þau, sem eru svo vinsæl i Hveragerði. Ef rétt er á haldið, getur þetta oröið mjög jákvætt i borgarlifinu og ylurinn, birtan og gróöurinn orðið almenningi tiltækur,- einnig á löngum svölum vetrum. En það sem fyrst og fremst mælir með þessum hugmyndum er einmitt að hlýja fólkinu og bæta þvi upp grámyglu skammdegisins, og raunar að vinna á móti rysjóttum dögum allan ársins hring. Aftur á móti á sú hugmynd ekki rétt á sér að lækka svo hitaveitu- verðið, að hægt verði að keppa viö Hveragerði og aðra ylræktarstaði með stórfelldri gróðurhúsa- ræktun i Reykjavik. Það yrði þjóðhagslega óhagkvæmt. Kostir verkaskiptingarinnar eiga einmitt að fá að njóta sin, og i þessu tilfelli er bezt að rækta sem mest við sjálfar orkulindirnar. Reykjavik er það stór, að hún þarf ekki, og má ekki, gina yfir öllu. Fólk getur hins vegar ekki almennt notið upphitaðra garða að staöaldri, nema þeir sem búa i næsta nágrenni. Þess vegna væri mjög æskilegt að koma upp slikri aðstöðu I öllum helztu hverfum, sem Hitaveita Reykjavikur nær til. Þetta má gera á mismunandi hátt. Veita mætti fyrirtækjum og stofnunum, sem rækju svona garða, afsláttinn eftir sérstökum reglum, sem þó yrði ekki auðvelt að semja. Aöalreglan yrði sú, að allir gætu átt aðgang að upp- hituðu svæðunum sér til hvildar, upplyftingar og þæginda. Sem dæmi um staði af þessu tagi mætti nefna: t fyrsta lagi væntanlegt gler- hýsi á Hlemmi, þar sem verður strætisvagnamiðstöð og ýmsir þjónustuaðilar. Eitthvað sambærilegt þyrfti að koma á Lækjartorg, áður en langt um Hður. t öðru lagi Sundlaugin i Laugardal og næsta nágrenni. Komið hafa fram hugmyndir um að gera þar garða undir þaki, þannig að laugin yrði notuð sem eins konar baðströnd og fólk gæti unað sér þar langtimum saman. Laugin er einmitt svo stór, og svo mikið hefur verið i hana lagt, að rétt er að gera sem mest úr allri aðstöðunni þarna. Svipað mætti gera i smærri stil við Sundlaug Vesturbæjar og væntanlega sundlaug i Breiðholti. Væri án efa miklu meira gagn i slikum framkvæmdum heldur en að fara að eyða i gerð sjóbaðstaðar við Nauthólsvik. t þriðja lagi má benda á, að fyrir framan aðalinnganginn i Glæsibæ mættti byggja yfir allstórt svæði, ef eigendur vilja i það leggja, hita þar siðan upp á áðurnefndan hátt, setja þar upp bekki fyrir aðkomufólk og prýða siðan með suðrænum gróðri, sem gæti verið i umsjá nálægrar blómabúðar og veitingahúss. A likan hátt mætti koma upp gróðursvæðum við allar meiri- háttar verzlunarmiðstöðvar, sem eiga eftir að rísa. Ýmsar fleiri stofnanir mundu einnig njóta góðs af i framtiðinni, svo sem náttúrugripasafn, þegar það verður byggt. Forsendur fyrir þessu öllu eru að sjálfsögðu nægjanlegt heitt vatn og góður efnahagur hifa- veitunnar. En með þessu móti mundum við öll njóta heita vatnsins jafnvel enn meir en nú, og það á þann hátt, sem mundi gera borgarlifið ánægjulegra og þægilegra, og gerði nyrstu höfuð- borg heimsins til muna hlýlegri og athyglisverðari. Valdimar Kristinsson Ljósmyndastofa Hafnarfjarðar er flutt að Linnets- stig 1. Simi 50232 — íris. „Ppningana mina máttu eiga, en skilrikin vil ég fá”. Þetta segir norskur stúdent, sem staddur er hér á landi og varð fyrir þvi fyrir stuttu, að einhver ókunnugur fékk „lánað” peningaveskið hans. Hann var þá staddur i Nor- ræna húsinu, og var þetta á laugardaginn, á milli klukkan 14.00 og 15.00. Hefur hann sjálf- sagt ekki átt von á þvi, að ein- hver fengi lánað veskið hans, án þess að spyrja að þvi. tslenzki flugstjórinn hjá Cargolux, sem lenti i ryskingum við Araba eftir að hafa stillt til friðar i deilu milli HoIIendinga og Araba á hóteli I Karachi i En honum er nokk sama um peningana, sem voru i þvi. öllu frekar vantar hann skilriki sin „Það er erfitt fyrir mig að vera án þeirra, og það tekur langan tima að fá ný frá Noregi”, segir hann. Við skulum vona, að sá, sem fékk lánað veskið, skili þvi og skilrikjunum, enda vildu vist fæstir vera án skilrikja i útland- inu. Pakistan, er kominn til Luxem- burg heill á húfi. Þessar fregnir bárust I skeyti til Loftleiða i gærmorgun. STJÓRNUNARFÉLAG ÍSLANDS Funda- tækni Námskeið i fundatækni verður haldið að Hótel Sögu 20 22 og 29 nóvember og stendur yfir frá kl 1 5:30 — 1 8:00 alla dagana Fundarstörf eru veigamikill þáttur I stjórnun, og flestir stjórnendur eyða miklum tima á fundum Tilgangur námskeiðsms er að benda á, með hverjum hætti er mögulegt að nýta betur þann tíma, sem varið er til fundarsta rfa Leiðbeinandi verður Friðrik Sophusson framkvæmdastjóri Tölvu- tækni 1 7 00 Dagana 23 og 24, nóvember (föstudag og laugardag) kl 9:00- verður haldið námskeið I tölvutækni að Hótel Loftleiðum M a verður fjallað um gatspjöld og pappirsræmur — vélbúnað og hugbúnað tölvu — fjarvinnslu og forritunarmál — skipulagningu verkefna fyrir tölvur — hvenær borgar sig að taka upp sjálfvirka gagnavinnslu — stjórnun og tölvur Leiðbeinandi er Davið Á Gunnarsson vélaverkfræðingur og hagfræð- ingur. CPM CPM-námskeið verður haldið að Skipholti 37, 29 og 30 nóvember og 1 desember Critical Path Method er kerfisbundm aðferð við áætlanagerð, sem á að tryggja, að valin sé fljótvirkasta og kostnaðarminnsta leiðin að settu marki og sparar þvi tima. mannafla og fyrirhöfn CPM hentar hvers konar framkvæmdum hjá hmu opinbera og einka aðilum Námskeiðið er ætlað stjórnendum fyrirtækja og stofnana og öllum þeim sem sjá um skipulagningu verkefna Áhersla verður lögð á verklegar æfingar, Leiðbeinandi verður Egill Skúli Ingibergsson verkfræðingur Þátttaka tilkynnist í síma 82930. Aukin þekking gerir reksturinn öflugri og arðvænlegri. — EA íslenzki flugstjórinn kominn til Luxemburg

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.