Vísir - 07.11.1973, Side 6
6
Visir. Miðvikudagur 7, nóvember 1973.
vísrn
0tgefandi:-Reykjapc8nt hf.
Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson
Ritstjóri: Jónas Kristjánsson
Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson
Auglýsingastjóri: Skúli G. Jóhannesson
x Auglýsingar: Hverfisgötu 32. Simar 11660 86611
Afgrei&sla: Hverfisgötu 32. Simi 86611.
Ritstjórn: Slóumtlla 14. Slmi 86611 (7,lfnur)
Askriftargjald kr. 360 á mánufti innanlands
I lausasölu kr> 22:00 eintakiö.
Blaöaprent hf.
Evrópa er aumingi
Ráðherrar hinna niu rikja Efnahagsbandalags
Evrópu samþykktu ekki i gær að styðja við bak
Hollendinga i oliukúgun Arabarikjanna gegn
þeim. Þess i stað samþykktu ráðherrarnir að
kyssa á vöndinn og lýsa yfir stuðningi banda-
lagsrikjanna við málstað Araba.
Loksins hafa riki Efnahagsbandalags Evrópu
sameinazt sem eitt afl i alþjóðapólitisku máli.
Þetta er þvi sögulegur viðburður, sem þjóðir
Evrópu vildu gjarnan vera stoltar af. En þvi mið-
ur hefur Evrópa nú sameinazt i mestu niðurlæg-
ingu sinni á siðustu öldum.
Hvað gerir Evrópa, þegar herir Bandarikjanna
eru farnir heim og Sovétrikin byrja að striða
henni? Gefst Evrópa þá ekki upp fyrir Sovétrikj-
unum i hverju málinu á fætur öðru, úr þvi að hún
gefst nú svo auðveldlega upp fyrir Aröbum?
Evrópa og Efnahagsbandalagið hafa opinberað
ræfildóm sinn. Þær vonir eru brostnar, að banda-
lagið sé að verða þriðja heimsveldið við hlið
Sovétrikjanna og Bandarikjanna. 250 milljón
manna veldið reyndist vera pappirstigrisdýr,
þegar á átti að herða.
Ræfildómur Evrópu gagnvart kúgun
Arabarikjanna hlýtur að æsa ráðamenn
Sovétrikjanna til að færa sig upp á skaftið gagn-
vart Evrópu. Þeir sjá fram á möguleika á að ýta
rikjum álfunnar smám saman i þá stöðu að vera
eins konar fylgihnettir hins sterka meginlands-
veldis, Sovétrikjanna, ekki sizt ef Bandarikin
fara senn að gefast upp á varnarsamstarfinu við
Evrópu.
Evrópurikin niu og Efnahagsbandalagið áttu
vissulega bágt. Oliukúgun Araba var sett fram af
fullri hörku. Riki Evrópu sáu fram á stórfelld
vandamál i samgöngum og iðnaði eftir áramótin.
En þau kusu ekki að láta kúgun mæta kúgun, eins
og hinn sterki hefði gert.
Ef ráðamenn Evrópu hefðu bitið á jaxlinn og
farið af fullum krafti út i oliustrið gegn Aröbum,
væri staða Evrópu i heiminum ekki eins eymdar-
leg og hún er nú. Það hefði vel verið hægt að
framkvæma neyðarráðstafanir i oliumálum, eins
og Hollendingar voru byrjaðir að gera. Og það
hefði vel verið hægt að hertaka oliulindir Libýu til
að sýna tennurnar.
í þessu máli var um að tefla stöðu Evrópu i
framtiðarþróun alþjóðastjórnmála. 1 stað þess að
leika sóknarleik lék Evrópa varnarleik, sem mun
kalla á fleiri og sterkari sóknarleiki af hálfu
þeirra, sem hafa hag af þvi að kúga Evrópu.
Almenningsálitið i flestum, ef ekki öllum hinna
niu rikja Efnahagsbandalagsins er eindregið með
ísraelsmönnum i deilu þeirra við Araba, ekki sizt
siðan Arabar réðust með vopnavaldi á Israels-
menn i fyrra mánuði. Þetta almenningsálit hunza
ráðamennirnir með hérahjörtun.
Hvergi i heiminum er stuðningurinn við Israel
eindregnari en einmitt hér á Islandi. Samband
landanna hefur verið sérlega náið siðustu tvo
áratugina, enda þykjumst við sjá ýmsar
hliðstæður i gamalli og nýrri sögu þjóðanna. Við
vonum þvi, að rikisstjórn okkar haldi uppi heiðri
okkar og geri á alþjóðavettvangi sitt til að styðja
vinaþjóð okkar, sem á nú um sárt að binda vegna
ægivalds Sovétrikjanna og Arabarikjanna og
ræfildóms Evrópurikjanna.
— JK.
Saigon-búar koma ekki til meft aft hlakka til jólanna aft þessu sinni
frckar en siftast, þótt orustugnýrinn þó fengi ekki fælt menn frá þvl
aö taka fram jólatréft.
INDÓKÍNA
EFTIR 9
MÁNAÐA
V0PNAHLÉ
Alger f riður virðist langt
i fjarska fyrir íbúa
Indókína, og eru þó liðnir
níu mánuðir frá því að
vopnahléssamningar fyrir
Víetnam voru undirritaðir
í París.
Stjórn S-Víetnam heldur
því fram, að nær 47.000
hermenn og óbreyttir
borgarar hafi fallið í
skærum og minniháttar
bardögum síðan samning-
arnir voru undirritaðir 27.
jan.
Stríðið heldur enn
áfram í næsta nágrenni,
Kambódíu, og bólar þar
hvergi á vopnahléi. Þar
með eru brostnar vonirnar
um, að vopnahlé í Víetnam
mundi leiða af sér annað
vopnahlé í Kambódíu.
A hinn bóginn hafa bardagar
stöftvazt i Laos, og horfur til
varanlegs friöar þar eru miklu
bjartari.
Opinberir embættismenn i
Saigon og i Phnom Penh segja,
aö margt bendi nú orðiö til þess,
að bardagar eigi eftir að harðna á
nýjan leik I S-Vietnam og að sizt
verði lát á átökunum i Kambódiu.
Samtimis þvi, aö svona horfir,
hafa borgaraleg öfl rekið úr landi
helztu fulltrúa hersins i stjórn
landsins, og bendir margt til þess,
að þar verði hægfara vinstri-
þróun, samt án vinslita við
Bandarikin.
t Suður-Vietnam tala nær allir
orðið um það sem nánast óhjá-
kvæmilega staðreynd, að
Norður-Vietnamar muni hefja
stórsókn, þegar þurrkatiminn
byrjar. Fleiri skærur og óbil-
gjarnari árásir á varðstöðvar
stjórnarhersins siðustu daga
virðast styðja þaö, aö þeir ætli að
reynast sannspáir.
Bardagarnir sýndust fara
harðnandi I S-Vietnam i október,
og hefur Thieu forseti margvarað
viö þvi, aö búast megi við, að
N-VIetnamar láti til skarar skriða
strax i upphafi næsta árs. Nokkrir
herforingjar hans telja þó, að
N-Vfetnamar veröi búnir að
sækja i sig veðriö fyrr og muni
láta slag standa jafnvel fyrir jól.
Daglega berast nú fréttir af
þessum slóðum um átök og njósn
arar Saigonstjórnarinnar kunna
að segja frá liðs- og hergagna-
flutningum norðanmanna, sem
þykja ekki boöa neitt gott. Mest
heyrist þó af viöbúnaði i
Tay-Ninhhéraðinu um 65 km frá
höfuðborginni. Eldri og reyndari
herforingjarnir telja, aö þar sé i
undirbúningi sókn gegn sjálfri
höfuðborginni I likingu við árásir
uppreisnarmanna I Kambódiu
gegn Phnom Penh. íbúar Saigon
hlakka þvi litið til jólanna i ár.
Embættismenn stjórnarinnar
telja, aö enn eitt tákniö um það,
sem koma skal, sé neitun Le Duc
Tho, sem hafnaöi friðar-
verðlaunum Nóbels. Tho til-
kynnti, aö hann kynni aö endur-
skoða afstöðu sina um aö deila
verölaununum með Henry Kiss-
inger, þegar varanlegur friður
yröi kominn á.
„Hann hafnaði verölaununum
til þess aö Hanoistjórn yrði ekki
séð i eins slæmu ljósi, ef hún hæfi
ófriðinn á ný”, sagöi talsmaður
Saigon-stjórnarinnar, Bui Bao
Truc, i viötali við fréttamenn á
dögunum. Hann var ekki i neinum
vafa um, að lesa mætti úr neitun
Thos viövörun.
Hernaðarsérfræöingar telja, aö
Norður-Vietnamar og Viet Cong
ráði yfir i mesta lagi 145.000.
manna herliði i Suöur-Vietnam.
Alita þeir að noröanmenn komist
ekki hjá þvi aö auka þann liðs-
styrk um aö minnsta kosti 70.000
manns, áöur en ráðizt yrði til
atlögu i ótakmörkuðu striöi. beir
segja, að með þvi að hafa gætur á
Ho Chi Minh-stígnum og fylgjast
með þvi, hvort umfangsmiklir
herflutningar fari fram eftir
honum i byrjun þurrkatima núna
I þessum mánuði, mætti ráða I
fyrirætlanir Hanoistjórnarinnar.
Illlllllllll
Umsjón:
Guðmundur
Pétursson
Það bólar ekki hið minnsta á
sáttum með hinum striðandi
aðilum, og þaö veikbyggöa kerfi,
sem sett var upp i Parisar-
sarnningunum til þess aö við-
halda vopnahléssamningunum,
er fyrir löngu hrunið.
Svo er komiö, aö Thieu forseti
hefur veitt her sinum fyrirmæli
um að gera fyrirbyggjandi
árásir, og óljósar fréttir herma,
aö Saigonherinn sé byrjaður að
sölsa undir sig hernaöarlega
mikilvæga staði, sem áöur voru á
valdi Viet Cong eða norðan-
manna.
Noröanmenn eru engir hvít-
þvegnir englar heldur. Hafa þeir
um skeið nartað I stöðvar
stjórnarhersins á einangruðum
stöðum, einkanlega þó I
miðhálendinu nærri bæjunum
Pleiku og Kontum. Ráðizt var á
tvær stórar herbúöir stjórnarinn-
ar viö Bu Pong og Bu Reang núna
um helgina, og er enn,
þegar þetta er skrifað, ekkert
vitað um afdrif 3000 stjórnarher-
manna sem þar voru. 1 septem-
ber réöust norðanmenn á aðrar
tvær stöövar stjórnarhersins og
náðu á sitt vald.
Viet Congar hafa verið iðnir viö
aö gera flugvelli á sínum yfir-
ráðasvæðum og vafið um þá
v'arnanet SAM-flugskeyta á borð
við þau, sem reyndust svo skeinu-
hætt israelskum orustuþotum I
striðinu við Egypta á dögunum.
Hafa mótmæli Saigonstjórnar-
innar og frá Washington ekkert
stoðaö til þess aö stöðva þessa
framtakssemi.
Til þess að mæta þessari ógnun
hefur stjórn S-Vietnams aldrei
staðið verr. Rlkisstjórn Thieus á
við efnahagsvanda að striða.
Þegar bandariska herliöið varð á
brottu, hurfu um leið 300 milljón
dollara tekjur, sem S-Vietnam
hafði, og 350.000 manns misstu at-
vinnu sina. Verðbólgan á siðasta
ári hefur numið að minnsta kosti
27% og hefur stundum þotið upp i
50%. Enginn fær séð, hvernig
S-VIetnam ætlar aö greiða fyrir
innflutning sinn, og greinilega
verður að gripa til alvarlegra
sparnaðarráðstafana.
Þeim, sem látið hafa i ljós
svartsýni og spáð S-VIetnam þvi
að veröa að falla fyrir noröan-
mönnum, hefur þó veriö bent á
stjórn Lon Nols, marskálks i
Kambódiu, sem allir ætluðu að
hlyti aö falla fljótlega fyrir
Khmer Rouge-uppreisnarmönn-
unum, eftir að Bandarikjamenn
hættu aö styðja hann með aðstoð
flughers. Hann þraukar þó enn.