Vísir - 07.11.1973, Síða 7

Vísir - 07.11.1973, Síða 7
7 Vlsír. Mi&vikudagur 7. nóvember 1973. „Áberandi hversu betur konur hugsa um húð sína hér á landi en erlendis" Rœtt við Heiðar Jónsson, fyrsta fegrunarsérfrœðing af hinu kyninu Eye-liner er aftur kominn á markaöinn og notaður, þó ekki svartur. Varalitir eru vinsæl- astir i orangegulbrúnum lit, og sá litur er rikjandi i öllum merkjum. — en bregður, er þœr sjá karlmenn við snyrtingu — Haustskógarlitir númer eitt eiga helzt ekki að sjást á andlit- inu. Sumar tizkusýningardömur taka augabrúnirnar hreinlega af, og teikna þær siðan sjálfar á. Við venjulega andlitssnyrtingu eru augabrúnirnar alveg látnar eiga sig, þær eru ekkert málaðar, og ég greiði þær jafn- vel ekki. Hérlendis finn ég fyrir þvi, að konum bregður og þær næstum „sjokkerast”, þegar þær sjá karlmann við snyrtingu, en þvi er ailt öðruvisi farið úti,” sagði Heiðar Jqnsson fegrunarsér- fræðingur, þegar við röbbuðum við hann fyrir stuttu, en i fyrsta skipti i sögu Islenzkra fegrunar- og snyrtisérfræðinga hefur karlmaður nú verið tekinn inn i Samband Islenzkra fegrunar- sérfræðinga. Heiðar starfar við Yardley- snyrtivörur og við röbbuðum litillega við hann i tilefni þessa. Hann hefur meðal annars starfað litillega erlendis og er nýkominn til landsins aftur. „Það er áberandi, hversu miklu betur íslenzkar konur hugsa um húð sina en t.d. kyn- systur þeirra í Danmörku og Bretlandi. Þar hugsa konurnar fyrst og fremst um það að ilma vel.” — Er mikið um nýjungar i sam- bandi við andlitssnyrtingu nú? „Já, það hefur aldrei verið eins mikið um nýjungar og nú. Það er óskaplega mikið að gerast á sviði snyrtivörunnar. Við getum nefnt sem dæmi það, hversu mikið læknisfræðin er komin inn á þetta svið og hvað eftirlit er orðið miklu meira en það var áður.” — Hvað um tizkuna i haust og vetur? ,,í andlitssnyrtingunni eru haustskógarlitir númer eitt, svo sem brúnir, beige, kóralrautt og þeirlitirsem við sjáum á trján- um á haustin. Það verður meira „make-up” á andlitinu en verið hefur, t.d. i sumar. Hingað til hefur verið mikið um dagkrem eingöngu, en nú hverfur það. Hins vegar kemur „make-up” alveg i þess stað og Dúður yfir. Aferðin er höfð mött, en ekki glansandi. Ég kynnti mér þessar nýjung- ar i London, og þar kom meðal annars fram, að augabrúnirnar „Kvöld ,,make-up” er hins vegar i öðrum litum. Þar er geysilega mikið um demtansliti, t.d. rúbinrauða varaliti, smargaðsgræna augnskugga og hvita. Það má segja svo, að áður fyrr var það klæðnaðurinn, sem var ákaflega frjáls, en andlits- snyrting hins vegar bundin og takmörkuð Nú myndi ég segja, að þessu væri alveg öfugt farið i tizkunni.” — Veiztu til þess, að karlmenn Hér sýnir Heiðar svo stjórn Sambands fegrunarsérfræðinga og nokkrum fegrunarsérfræðingum árangurinn. A myndina vantar for- mann sambandsins. Ilér snýrtir ileiöar Jónsson Kryndlsi Torfadóttur samkvæmt nýjustu tizku. Pensillinn minnir hclzt á listmálara! séu i þessu námi eða við það að komast inn i annað hvort félagið? „Ég veit ekki til þess, en hins vegar held ég, að á Selfossi sé einn lærður, sem þó er ekki starfandi.” — Hvað um erlend fyrirtæki? „Þar er þetta algengt. Kevlon er t.d. með karlmenn i meiri- hluta sem snyrtisérfræðinga. Ég er hins vegar fyrsti karl- maðurinn, sem starfar við þetta merki.” — Væri ekki æskileg að Sam- band islenzkra fegrunarsér- fræðinga og Félag islenzkra sny rtisérfræðinga sam- einuðust? „Það væri jú æskilegt að sam- eina þessi félög, það þefur verið um það rætt, en það hefur ekki tekizt ennþá.” Þennan kjól saumaði Gróa Guðnadóttir. Þetta er skemmti- iegur kvöldkjóli úr þykku crepeefni og með refaskinni á ermum. Hæfir islenzku veðrátt- unni vel. KJÓLARNIR ALLIR FLEGNIR f BAKIÐ! Það var kannski ekki furða, þó að kjólameisturunum yröi aö orði, að kjólatizkan i dag minnti óneitanlega mikið á tizkuna, eins og hún var fyrir 30 árum! Staðreyndin er jú sú, að þeir, sem lögum og lofum ráða i 11 z k u h e i m i n u m , sækja hugmyndir sinar langt aftur og I vetur ekki styttra aftur en um 30 ár. Annars er tizkan að þvi er virðist lifleg og skemmtileg i ár. Hugmyndir um kvöldklæðnað virðast einkum sóttar aftur i timann. Venjulegur dag- klæðnaður er aftur á móti ekki svo frábrugðinn þeim, sem ver- ið hefur. Kjólameistarar buðu til sin Hann var óneitanlega giæsileg- ur þessi kjóll Dýrleifar Armann. Þetta er ballkjóll, bieikur að lit, efnismikill og með tilheyrandi slá úr sama efni. Kjólatízka íslenzku meistaranna svipuð og fyrir 30 árum! Umsjón Edda Andrésdóttir blaðamönnum, einmitt i tilefni þess, að um 30 ár eru liðin frá stofnun Félags kjólameistara. 1 tilefni þess heldur félagið tizkusýningu I Súlnasal Hótel Sögu á fimmtudagskvöld. Þar veröa sýndir hvorki meira né minna en 36 kjólar, sem allir eru saumaðir sérstaklega i tilefni afmælisins á módelin sem sýna. Margir kjólanna eru ákaflega glæsilegir og sumir sérkenni- legir. Það sem gekk eins og rauöur þráður i gegnum þá sýn- ingu, sem blaðamönnum vár boðið upp á, var bert bak. Samkvæmiskjólarnir voru næstum allir flegnir i bakið, með gati á maganum eða aftan á bakinu, og þannig mætti áfram telja. Sumir hverjir voru ákaflega skrautlegir, með pif- um og öllu tilheyrandi, aðrir voru einfaldir, en skemmtilegir þó. Islenzkir kjólameistarar virð- ast ekki alveg hafa látið tízkuna fram hjá sér fara. Hann er kvenlegur þessi munstraði kjóll úr indversku silki. Kjólinn saumaði Einhild- ur Alexandersdóttir. KjóIIinn er meö skyrtusniði, felidu pilsi og lokufellingu I baki.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.