Vísir - 07.11.1973, Qupperneq 8
Umsjón: Hallur Símonarson
Við breyttum engu
grundvallaratriði
— Fróðlegar umrœður með Karli Benediktssyni, landsliðsþjálfara,
Gunnsteini Skúlasyni, fyrirliða landsliðsins, og Björgvin Björgvinssyni
Ég verð að segja, að mér
finnst ég hafi orðið fyrir að-
kasti í skrifum ýmsra blaða
eftir landsleikinn við Frakka á
sunnudaginn — og það langar
mig til að ræða i bróðerni við
ykkur. Það er margt í þessum
skrifum, sem ég skil ekki — og
ég er hissa á ýmsu. Það þarf
að leita að forsendunum fyrir
því, sem gert er — og það er
miður ef slíkt endurtekursig í
vetur, sagði Karl Benedikts-
son, landsliðsþjálfari, á
fundi með blaðamönnum í gær-
kvöldi. Það var hinn fróðleg-
asti fundur — stóð i um f jórar
klukkustundir — og um margt
var rætt — í fyllsta bróðerni.
Á fundinum voru einnig staddir
Gunnsteinn Skúlason, fyrirliði
Islenzka landsliðsins, og Björgvin
Björgvinsson, linumaðurinn snjalli I
Fram.
Ekki er tækifæri að gera þessum
fundi nema að litlu leyti skil — en
vissulega kom fram nokkur skoöana-
munur i fyrstu, einkum I sambandi við
taktik og skrif um taktik, en bilið
brúaðist mjög eftir þvi, sem á leið.
Það var mikiö talaö um breytingu á
leik islenzka liösins eftir leikhléið við
Frakka — og mikið skrifað um það
mál. Björgvin Björgvinsson sagði. —
Þaö var ætlunin að við spiluðum
vörnina „flatari” i fyrri hálfleik, en
við fórum ekki eftir þvi, sem ákveðið
hafði verið. Þetta var lagaö i siðari
hálfleiknum, mikið rætt um hvað
hafði farið úrskeiðis i fyrri hálfleikn-
um — og hreáfanleikinn i vörninni var
miklu meiri i siöari hálfleik.”
Gunnsteinn sagöi. ,,Við breyttum
ekki neinu grundvallaratriöi i siðari
hálfleiknum — lékum þá eins og rætt
hafði verið um i upphafi”.
t þessu sambandi er rétt að það komi
fram strax — og þeir Björgvin og
Gunnsteinn svöruöu þeirri spurningu,
sem til þeirra var beint á fundinum i
gærkvöldi, að Jón Erlendsson,
formaður landsliðsnefndar, var ekki
með liðinu fyrir leikinn eða kom inn i
búningsherbergin i leikhléinu, ræddi
Gunnsteinn Skúlason
Karl Bencdiktsson. landsliðsþjálfari
þvi ekki við leikmenn eða nefndar-
menn.
Karl ræddi talsvert um uppbyggingu
liösins. Hann sagöi, að Geir
Hallsteinss. hefði æft tvær stöður hjá
Göppingen, það er á móti vinstra
bakverði eða i vinstra horninu. Þetta
kom sér vel fyrir islenzka liðið — þvi
þaö hefur alltaf átt i erfiðleikum með
mann utan varnar mótherja hægra
megin, en hins vegar nógir menn til aö
leika stööuna vinstra megin. Þetta
breytti miklu — og Karl sagði, að það
væri mikil taktik leikin i Göppingen-
liðinu. Þaö varð að samkomulagi,
eftir að Karl hafði rætt við Geir á
fimmtudag, þegar hann kom frá
Þýzkalandi, að Geir léki hægra megin
i sókninni, og ölafur H. Jónsson yrði
linumaður þeim megin. Axel Axelss.
þvi fyrir utan vörn vinstra megin og
Björgvin að sjálfsögðu linumaður fyrir
framan hann. Uppstilling var 2-4 i sókn
— ekki frjáls, og sama leikaðferð allan
leikinn — aðeins munur á útfærslunni
og á getu liðanna.
Þá gat Karl þess, að islenzkur hand-
knattleikur væri ekki spilaður nógu
taktiskt. Slikt gengur kannski gegn
veikari liðum, en þegar leikið er viö
beztu lið heims, sem hafa frábæra
markmenn og vörn, verður að leika
mjög taktiskt til þess að ná einhverj-
um árangri gegn slikum liðum. Leik-
flétturnar verða þá að ganga upp til
þess varnir opnist.
Blaðamönnum lá auðvitað mjög á
hjarta aö fá fréttir af þeim ágreiningi,
sem varö i landsliösnefnd — þó Karl
færðist lengi vel undan að svara þvi.
En hann fékk ekki frið og sagði.
— Það var aldrei ágreiningur innan
nefndarinnar nema um val leikmanna
Að einhvern tima hafi verið rætt
um að hafa Axel Axelss. ekki i liðinu
er hreinasta fjarstæða — allir nefndar-
menn töldu Axel sjálfsagðan i liðið og
um flesta aðra leikmenn var einnig
algjör eining.
Jón Erlendsson vildi fá Hjalta
Einarsson og Ólaf Benediktsson til að
annast markvörzluna gegn Frökkum i
stað þeirra Gunnars Einarssonar,
Haukum, og Guðjóns Erlendssonar,
Fram, sem leikið höfðu i Metz i
markinu. Einnig vildi hann setja
Sigurberg Sigsteinsson i liðið i staö
Einars Magnússonar. Um þessa menn
varð ágreiningur — Hjalti var valinn i
stað Guðjóns Erlendssonar, en Gunnar
og Einar héldu stöðum sinum frá
Metz-leiknum. Persónulega taldi ég
ekki rétt — að þaö væru ekki rök fyrir
þvi — að velja leikmenn, sem stóðu
fyrir utan landsliöshópinn — menn,
sem ekki höfðu æft meö liðinú, sagði
Karl.
Þannig var rætt um málin fram og
aftur á fundinum i gærkvöldi, sem
áreiðanlega var hinn nytsamasti.
Astæðulaust er aö fjalla um þann
skoðanamun sem i fyrstu gerði mjög
vart viðsig i sambandi við taktik
landsliðsins — skoöanamun Karls og
blaðamanna á taktik og ýmsum öðrum
smáatriðum. Sem betur fer lita ekki
allir sömu augum silfriö — skoðana-
munur á leik liðs er oft jafn fjöl-
breytilegur og áhorfendur eru margir.
Það eru til svo margir „sérfræðingar”
á þvi sviði, og vonandi verður það
alltaf. Þá kom einnig fram, að
blaðamenn töldu að Karl setti sig ekki
alltaf nógu vel inn i störf þeirra —
þeirra störf væru fyrst og fremst þjón-
usta við lesendur, ekki við.stjórnir
félaga, sambanda eða landsliðs-
nefnda, en sennilega hafa allir verið
sammála þvi, sem Gunnsteinn sagði i
lokin. — „Það er slæmt, að þessir
menn skuli ekki geta unniö saman” og
átti þá við Karl Benediktsson og Jón
Erlendsson.
Wm
mmm
Björgvin Björgvinsson.
Framkvæmdastjóri alþjóöaknattspyrnusambandsins, dr. Helmut Kaeser meö hinn mikla grip, sem
keppt verður um i heimsmeistarakeppninni i knattspyrnu i Vestur-Þýzkalandi næsta sumar.
Verða Sovétríkin
dœmd úr leik
i HM í knatt-
spyrnunni!
Alvarlegur ágreiningur
er nú risinn upp milli FIFA
— alþjóðaknattspyrnu-
sambandsins — og Sovét-
ríkjanna í sambandi við
fyrirhugaðan leik Chile og
Sovétríkjanna í heims-
meistarakeppninni, sem
settur hefur verið á i
Santiago i Chile í þessum
mánuði. Sovétrikin neita
að leika þar, þrátt fyrir
ströng fyrirmæli um, að
landið verði dæmt úr
heimsmeistarakeppninni
taki það ekki þátt i leikn-
um.
Eftir stjórnarskiptin i Chile
fóru Sovétmenn fram á, að leikur
þeirra viö Chile færi fram i hlut-
lausu landi. FIFA sendi þá sér-
stakan eftirlitsmann til Chile til
aö kanna aðstæöur þar, og siðan
tók stjórnin þá ákvörðun, aö leik-
urinn skyidi háður i Chile. Þvi
hafa Sovétmenn ekki viljað una.
Þeir hafa slitið stjórnmálasam-
bandi við Chile — og málið er nú
komiö i sjálfheldu. Sennilega ekk-
ert annað framundan en lið
Sovétrikjanna verði dæmt úr
keppninni. I fyrri leik landanna,
sem háður var i Moskvu, varð
jafntefli 0-0 og standa Chilebúar
þvi anzi vel að vigi meö leik á
heimavelli eftir. Sovétrikin sigr-
uðu i 9. riöli Evrópu — Chile i 3.
riðli Suður-Ameriku, en þetta var
eina tilfellið, þar sem sigurvegar-
ar úr riölum þurftu að halda
áfram keppni.
Nú hafa nokkur lönd veitt
Sovétrikjunum stuðning i þessu
máli — meðal annars Aust-
nr-t»v7lfalnnH oP tlnpverialand.
Segja Austur-Þjóðverjar meðal
annars að útilokað sé fyrir
Sovétrikin að leika á leikvelli,
sem notaður hafi verið sem fang-
elsi. Það kann jafnvel að draga
dilk á eftir sér i sambandi við
framkvæmd keppninnar i Vest-
ur-Þýzkalandi næsta ár ef FIFA
dæmir Sovétrikin úr. Hætta þá
önnur austantjaldslönd, sem unn-
ið hafa sér rétt, þátttöku — til
dæmis Austur-Þýzkaland og Pól-
land? Þetta eru stóru spurning-
arnar i dag — en hætt við að svör
fáist ekki i bráö.
Löndum, sem vinna sér rétt i
lokakeppnina, fjölgar stöðugt —
og litla Afrikurikið Zaire er nú á
góðri leið með að vinna óvæntustu
úrslitin i allri undankeppninni. A
sunnudag vann Zaire Zambia 2-0 i
úrslitum Afrikuriðilsins i leik i
- Lusaa og viröist nú standa með
Afriku-pálmann i höndunum. Áð-
ur hafði Zambia sigrað Marokkó,
þriðja landið i úrslitum, með 4-0.
550 leikir á íslands-
mótinu í 153 flokkum!
—, Stórleikir þegar fyrsta kvöldið í íslandsmótinu í handbolta, sem hefst í
Laugardalshöllinni í kvöld
Annað umfangsmesta
iþróttamót á Islandi —
Islandsmótið i handknatt-
leik — hefst í Laugardals-
höllinni í kvöld. Aðeins
Islandsmótið í knattspyrnu
er stærra i sniðum og f jöl-
mennara — en þróunin í
handknattleiknum hefur
verið gifurleg siðustu árin.
Á nokkrum árum hefur
þátttakendaf jöldinn á
islandsmótinu meira en
tvöfaldazt — f lokkar verða
fleiri og keppt um leið í
ýmsum deildum, þar á
meðal fyrstu, annarri og
þriðju deild karla.
A þriðja þúsund keppendur
taka þátt i íslandsmótinu að
þessu sinni frá þrjátiu félögum.
Leiknir verða 550 leikir i 153
flokkum og deildum. Af þvi sést
bezt hve gifurleg vinna veröur i
sambandi viö framkvæmd móts-
ins — og nú verður einnig i fyrsta
skipti keppt i fyrstu deild karla og
kvenna norður á Akureyri.
Ferðalög þátttakenda verða þvi
miklu meiri en nokkru sinni fyrr
— eða þegar íslandsmótið
miöaöist nær eingöngu við lið hér
á Faxaflóasvæðinu.
Eins og áður mun athyglin fyrst
og fremst beinast að keppninni i
1. deild karla. Það er spá þeirra,
sem bezt hafa fylgzt með hand-
knattleiknum hér á landi, að
keppni verði nú mjög hörð —
raunverulega erfitt að spá fyrir
um úrslit, og hver einasti leikur
hafi þar upp á vissa spennu að
bjóða. Liðin I 1. deildinni muni
mjög skipta með sér stigunum
innbyrðis — það verði hörku-
barátta bæöi á toppi og á botni.
Atta lið eru I 1. deildinni að
Einar Magnússon, Víking, var
markhæstur á siðasta tslands-
móti með 100 mörk. Veröur Einar
aftur markakóngur eða nær ein-
hver annar þeim eftirsóknar-
verða titli?
venju. Islandsmeistarar Vals,
Fram, Vikingur, Armann og IR
frá Reykjavfk, FH og Haukar úr
Hafnarfirði, og Þór, Akureyri.
Nokkrar mannabreytingar hafa
orðið hjá liðunum — nema
Islandsmeisturum Vals, sem
tefla fram sama liöi og i fyrra-
vetur. Vikingur hefur endurheimt
Jón Hjaltalin frá Sviþjóð og feng
ið Sigurgeir Sigurösson frá
Haukum. Þá eru miklar breyt-
ingar hjá Haukunum — þeir hafa
fengið tvo kunna leikmenn úr
röðum FH. Hörð Sigmarsson og
Kristján Stefánsson. Fram hefur
endurheimt nokkra góða leik-
menn — Arnar Guðlaugsson,
Pálma Pálmason og Stefán
Þórðarson.en Ingólfur Öskarsson
hefur lagtskóna á hiiluna. Miklar
breytingar eru einnig hjá IR —
Brynjólfur Markússon leikur nú
noröur á Akureyri, en i stað hans
hafa IR-ingar fengið nokkra unga
leikmenn úr öörum félögum, auk
þess, sem Asgeir Eliasson, leikur
með IR á ný. Mest er breytingin
hjá FH — Geir Hallsteinsson
leikur nú i Þýzkalandi, og
nokkrir leikmenn hafa farið i
önnur féiög. Liðið ætti þvi að vera
i erfiðri baráttu i vetur — en það
er mikill efniviður i Hafnarfirði.
Mótið hefst í 1. deild i kvöld og
óhætt er að fullyrða aö vel hefur
tekizt til við niðurröðun i fyrstu
leikina. Spennan ætti strax að
komast i mótiö. Valsmenn hefja
vörn meistaratitils sins meö leik
gegn Viking og hefst hann kl.
8,15. Strax að honum loknum
verður annar stórleikur, ný-
bakaðir Reykjavikurmeistarar
Fram gegn Haukum, en ekki alls
fyrir löngu sigruöu Haukar FH
suður i Hafnarfirði.
Þeír skora mest
Malcolm McDonald,
hinn marksækni miðherji
Newcastle, er markahæst-
ur i 1. deildinni ensku það
sem af er keppnistímabil-
inu. Hann hefur skorað 12
mörk — en er nú á
sjúkrahúsi. Skorinn upp
við liðmús og verður frá
leik i nokkrar vikur.
Mike Channon, Southampton,
er i öðru sæti, með niu mörk i 1.
deild, siðan koma Tommy
Baldwin, Chelsea, Derek Dougan,
Wolves, og Mick Jones, Leeds,
með átta mörk hver. Kevin
Hector, Derby og David Johnson,
Ipswich, hafa skoraö átta mörk.
I 2. deild er Duncan McKenzie,
-Nottm. Forest, markhæstur með
12 mörk, en Bobby Gould, Bristol
City, og Mike Bullock, Orient,
hafa skorað niu.
Netzer
heim aftur?
Korráðaiiienn þýzka inoistara-
liðsins i knattspyrnunni, Baycrn
Munchen, eru nú með ntiklar
áætlanir á prjónunum að kaupa
Gunther Netzer - bezta mann
vestur-þýzka landsliðsins - aftur
heim frá Iteal Mailrid.
Netzer lék áður með Borussia
Mönchengladbach, en fór i sumar
til Real Madrid lyrir stórpening -
um 65 milljónir isl.króna. Honum
hefur ekki tekizt að falla inn i leik
spánska liðsins - og vill sjálfur
fara heim.
Formaður Bayern, Wilhelm
Neudecker, er nú á förum lil
Spánar að reyna að semja við
Real Madrid. 1 þvi tilefni sagði
formaður Real — Santiago
Bernabeu — að hann væri vel-
kominn til þeirra, en bætti þvi við,
að enn vildu þeir ekki selja
Netzer. Þess má geta, að Netzer
hefur ekki' skorað mark i sex
leikjum með Real Madrid - og
áhorfendur eru orðnir mjög
erfiðir fyrir hann.
:IÍS
Malmö FF
féll út!
Maimö FF og Zurich frá Sviss
gerðu jafntefli 1-1 i Malmö á
sunnudaginn i sfðari leik sinum í
Evrópukeppni bikarhafa i knatt-
spyrnu. Þar nteð er sænska liðiö
úr keppninni, þó svo þaö tapaði
ekki fyrir Zurich.
t fyrri leik liöanna fyrir hálfum
mánuði, sem leikinn var I Sviss,
varð einnig jafntefli, en þar var
ekkert mark skorað, 0-0.
Svissneska liöið komst þvi i 3.
untferð keppninnar á markinu,
sem þaö skoraði á útivelli.
Ctimörk telja tvöfalt, þegar
stigatala liða er jöfn.
Liverpool slegið út
Mjög óvænt úrslit uröu í
Evrópubikarkeppninni á
Anfield í Liverpool í gær-
kvöldi. Rauða stjarnan
frá Belgrad sló þá ensku
meistarana Liverpool út í
keppninni — sigraði með
2-1 í gærkvöldi og vann
því báða leikina gegn
Liverpool með sömu
markatölu 4-2 samanlagt.
Þetta er fyrsti tapleikur
Liverpool heima i marga
mánuði.
Nokkrir aðrir leikir voru
háðir i Evrópukeppninni i gær-
kvöldi, en fjarritarasamband
við útlönd er alveg i molum —
ekki stafur af viti á NTB og AP,
svo litið er um fréttir i sam-
bandi við þessa leiki. Einnig er
mjög erfitt aö hlusta á erlendar
útvarpsstöövar
versta móti.
skilyröi með
Nokkrir leikir voru háðir i
deildabikarnum — og vegna
hinna slæmu skilyrða verðum
við að birta úrslitin i þeim með
fyrirvara — en þó i þeirri von,
að þar sé flest rétt.
Litla Lundúnaliöiö QPR vann
stórsigur gegn Sheffield Wed
8-2 á leikvelli sinum i Lundúnum
og er nú sannarlega komiö á
gott skrið. Þetta fylgir i kjölfar
sigra yfir Arsenal og Derby i 1.
deildinni. Leikurinn var i 3. um-
ferð.
Úrslit i öðrum leikjum urðu
þau, að Carlisle tapaöi heima
0-1 fyrir Manc. City, York úr 3.
deild vann Orient með 2-1, en
jafntefli varð i fyrri leik liðanna
i 3. umferð. Coventry sigraði
Bristol City með 2-1, og Bolton
tapaði á heimavelli fyrir Mill-
vall 1-2 eftir aö hafa náð jafn-
tefli i Lundúnum.
Mest kom á óvart — ef hægt er
aö tala um óvænt úrslit I þessari
keppni, og i þeirri von að úr-
slitin séu rétt, að efsta lið 2.
deild Middlesbro tapaöi á
heimavelli fyrir Stoke 0-1.
Jafntcfli varð i leik liðanna fyrst
i Stoke og töldu þá flestir daga 1.
deildarliðsins i keppninni nú
talda — en „gömlu” leikmenn-
irnir hjá Stoke voru vandanum
vaxnir, og tókst aö sigra. Það er
fyrsta tap Middlesbro heima um
langan tima.