Vísir - 23.01.1974, Blaðsíða 1

Vísir - 23.01.1974, Blaðsíða 1
• o VISIR 64. árg. — Miövikudagur 23. ianúar 1974. — 19. tbl. Góð veiði, gott veður — Loðnon aðeins klukkutíma stím fró landi — baksiða Stjórnar- skrifstofur seinvirkar — segir forstöðumaður Almannavarna — baksíða • Framsóknar- menn undirbúa stuðning við „Varið land" Nokkrir Framsóknarmenn, sem staðið hafa framariega i þeim flokki, munu nú vera að undirbúa ávarp, þar sem þeir lýsa yfir stuðningi við mótmæli samtakanna „Varið land” gegn brottför varnarliðsins og upp- sögn varnarsamningsins. Meðai þeirra sem að þessu ávarpi standa hafa veriö nefndir Sigur- jón Guðmundsson, fyrrum gjaidkeri Framsóknarflokksins, og jón Kjartansson, forstjóri Afengis og tóbaksverzlunarinn- ar, en hann sat á þingi fyrir flokkinn. Undirskriftalistar „Varins lands” eru viða i gangi og að þvi er Visir hefur fregnað, er ekki óalgengt, að mikill meirihluti starfshópa á stórum vinnustöð- um skrifi á listann. Ekki er óal- gengt að allt að 80% starfs- manna undirriti og jafnvel dæmi um 90% þátttöku á stórum vinnustöðum. Þá gaf flokksstjórn Alþýðu- flokksins út þá yfirlýsingu að hún væri efnislega samþykk stefnu „Varins lands”. —ÓG Geir skoraði sex! í leik Göppingen og Dietzenbach i suður-þýzka hand- boltanum á dögunum var allt á suðu- punkti, þar til Geir Hallsteinsson tók af skarið og skoraði 21. mark Göppingen. Sigurinn var i höfn. Sjá iþróttaopnu. TROÐFUU KIRKJA OG BARH SKÍRT — þegar Eyjamenn minntust ársafmœlis gossins í gœrkvöldi Kirkjusókn i Eyjum hef- ur víst sjaldan veriö jafn mikil og hún var í gær- kvöldi. öll sæti voru full, stólum þurfti aö bæta við, og margir stóðu. Tilefniö var heldur ekki svo lítið, eitt ár frá upphafi goss, og helmingur íbúanna mættur til leiks og starfs á ný. Eitt barn var skirt i kirkjunni i gærkvöldi, það má kalla það eins- konar miðnæturskirn, þó messa .hafi staðið yfir frá klukkan hálf niu til klukkan 10. Harla óvenju- legur timi, bæði fyrir skirn og messu. Barnið, sem skirt var, er drengur og hann var skirður Óðinn. Þetta er ekki fyrsta skirn- in i Eyjum eftir gos, þvi nokkur börn hafa verið skirð þar áður, enda mannlifið orðið eðlilegt. Biskup íslands og sóknar- prestarnir séra Karl Sigurbjörns- son og Þorsteinn Lúther messuðu, ÞANNIG VAR SAGA GOSSINS — sjá gosannál á bls. 3 Ár frá upphafi gossins: GOSLOKUNUM FAGNAÐ MEÐ HÁTÍÐ 3. JÚLÍ ,,Það verða engin látíðahöld á vegum >æjarins í tilefni dagsins. -lins vegar munum við iera eitthvað til hátíða- >rigða þann 3. júlí nk., en >á var gosinu sagt lokið. Dkkur finnst það frekar viðeigandi". Þetta sagði Magnús Magnús- son bæjarstjóri i Eyjum, þegar við ræddum við hann, en i nótt kl. 02 var einmitt eitt ár liðið frá þvi að stór sprunga opnaðist á Heimaey og eldgos hófst. Sjálfsagt taka einhverjir sig til og fagna þvi, að eitt ár er liðið frá þessum ósköpum og að ekki fór eins illa og stundum áhorfðist. Menn mæta til vinnu sinnar eins og gengur og gerist, en guðsþjónusta var þó haldin i Eyjum i gærkvöldi. Þar var biskup Islands, en þetta ár mun sjálfsagt seint liða Eyjaskeggjum úr minni. —EA en guðsþjónustan var það eina, sem setti svip á daginn. _ ea. LOÐNAN NÆSTUM 100% DÝRARI í ÁR Loðnuverðið hækkaöi veru- lega i ár frá þvi scm var i fyrra. Eins og Visir skýrði frá á mánudaginn, verður nýja verðið á bræðsluloðnu 3,75 krónur hvert kg. frá 1. jan. til 20. febrúar. Þá tekur við nýtt verð, 3,35 kr. hvert kg. og gild- ir til 1. marz. Til 31. marz verður verðið svo 2.95 og úr þvi eða til 15. mai verður það 2,65 kr. hvert kg. I fyrra giltu tvö verð. Fyrra verðið var 1,96 krónur, en hið siðara 1,76 krónur. Þá var gjaldið i loðnuflutningasjóð 15 aurar, en er i ár 23 aurar. Þannig er verðið á bræðslu- loðnunni næstum þvi 100% hærra en i fyrra. Sveinn Finnsson hjá Verð- lagsráði sjávarútvegsins sagði Visi i morgun, að nú væri aðeins eftir að ákveða verð á hörpudiski og verður það væntanlega gert i þessari viku. Loðnuverðið, sem nú gildir, er uppsegjanlegt með viku fyrirvara miðað við 1. marz. —GG Lyfjum stol- ið úr bát Brotizt inn í Heimaeyna VE Hrotizt var inn i tvo báta i Reykjavikurhöfn i nótt. Báðir þessir bátar liggja við Grandagarð, og var stolið úr þeim einhverju magni af lyfjum. Aðallega pillum. Undanfarið hafa margir loðnu- bátar legið i höfninni, þar sem verið er að búa þá út á veiðar. Heimaeyin, annar bátanna sem brotizt var inn i, fer væntanlega á loðnu bráðum. Lögreglan heldur jafnan vakt á Grandagarði, ekur um svæðið, en þar sem mikil bátamergð hefur Íegið við Grandann undanfarið, hefur eflaust verið erfitt að hafa nákvæmt eftirlit með öllum mannaferðum. Siðan farið var i talstöð ein- hvers báts og send út falstilkynn- ing um strandaðan bát við Grindavik, hafa menn reynt að læsa bátum sinum, en þó munu einhverjir bátar hafa verið ólæst- ir i nótt. A.m.k. komst lögreglan um borð i þá. —GG

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.