Vísir - 23.01.1974, Qupperneq 9
8 Vísir. Miövikudagur 23. janúar 1974. Vísir. Miðvikudagur 23. janúar 1974. 9
Heimsmet:
80 klukku-
stundir í
borðtennis
Tveir ungir piltar við
háskólann í Michigan i
Bandarikjunum — Randy
Neumeyer og Randy
Behmledot — settu nýtt
heimsmet á mánudag, léku
borðtennis i 80 klukkustundir
stan/.laust.
Piltarnir sáu i Guinness
metabókinni að slikt heims-
met var 73 klst. og 10 min. og
þeir ákváðu að reyna að
hnekkja þvi. Þeir byrjuðu á
föstudag i læstu öryggisher-
bergi skólans —fengu 5 min.
á hverri klst. til að matast,
sem má samkvæmt reglun-
um — borðuðu hamborgara
og kartöflur. „Viö reyndum
að telja fyrstu 5 klst., en sá-
um að slíkt var vonlaust —
svo við slógum bara boltann
á miili okkar”, sagði Neu-
meyer eftir mctið.
Góður efniviður
Keppendur, sem léku til úrslita. Efri röð frá vinstri Jón Bergþórsson,
Ágúst Jónsson, Reynir Guðmundsson, Kristinn Helgason og Reynir
Þorsteinsson, þjálfari. Sitjandi frá vinstri, Valdimar Guðiaugsson,
Björg Sif Friðlcifsdóttir og Þorvaldur Þorsteinsson.
Innanfélagsmót unglinga í
badminton var haldiö i KR-
húsinu 19. janúar. Mikill
f jöldi þátttakenda mætti til
leiks, og var keppnin oft
mjög skemmtileg. Það er
auðsýnt að þjálfun ung-
lingaflokkanna i KR, undir
stjórn Reynis Þorsteins-
sonar ber góðan árangur,
því að á móti þessu mátti
sjá að keppendur eru í
mikilli framför.
Með sliku áframhaldi á ung-
íingastarfsemi ætti KR að eign-
ast marga ágæta badminton-leik-
menn á næstu árum. Athyglis-
verðustu leikmennirnir er fram
komu á mótinu voru:
i sveinaflokki: Jón Bergþórsson,
Kristinn Helgason, Reynir Guð-
mundsson, Agúst Jónsson, Frið-
rik Halldórsson, Kjartan
Birgisson.
Flokkur 12ára og yngri: Þorvald-
ur Þorsteinsson og Valdimar
Guðlaugsson.
Meyjaflokkur: Arna Steinsen,
Björg Sif Friðleifsdóttir, Þórunn
Öskarsdóttir.
Úrslit:
Mcyjaflokkur: Arna Steinsen
sigraði Björg Sif Friðleifsdóttur,
11-6, 11-2.
Flokkur 12ára og yngri: Þorvald-
ur Þorsteinsson sigraði Valdimar
Guðlaugsson i aukalotu 11-5, 5-11,
11-4.
Sveinaflokkur: Einliðaleikur:
Jón Bergþórsson sigraði Ágúst
Jónsson 12-9, 11-2.
Sveinaflokkur, tviliðaleikur: Jón
Bergþórsson og Ágúst Jónsson
sigruðu þá Kristin Helgason og
Reyni Guðmundsson i aukalotu:
18-14, 13-15, 15-10.
A þessu ári verður KR 75 ára,
og i tilefni þeirra timamóta mun
verða efnt til afmælismóts i bad-
minton, þar sem keppt verður i A-
flokki og meistaraflokki. Mótið
verður auglýst siðar.
GULLSKÓR
MULLERS!
Miðherji vestur-þýzka landsliðs-
ins er mesti markaskorari í Evrópu
— einstakt hvernig honum tekst að
nýta hina minnstu möguleika og
koma knettinum í mark. Ekki að-
eins fyrir landsliðið — heldur einnig
líðið sitt fræga, Bayern Munchen.
Þjóðverjar gera sér mikiar vonir
um að hljóta heimsmeistaratitilinn í
sumar og Gerd á að sjá um mörkin
eins og venjulega í landsiiðinu.
Hann var markhæsti leikmaður
Evrópu á síðasta ári. — Á myndinni
skemmtilegu hér að ofan hefur
„gullskór" Mullers unnið sitt verk
— knötturinn liggur í markinu.
Heimaleikirnir eiga að koma liði
Geirs í úrslit um meistaratignina!
Keppnin um efstu sætin í suð-
ur-þýzku deildinni í handboltan-
um er mjög hörð. Tvö efstu liðin
komast i úrslit um Þýzkalands-
meistaratitilinn — ásamt tveim-
ur efstu liðum norðurdeildarinn-
ar — og að ellefu umferðum, af
sextán, er lið Geirs Hallsteins-
sonar, Frisch Auf Göppingen, í
þriðja sæti í suðurdeildinni. Það
hef ur hlotið sextán stig — tveim-
ur minna en Rintheim og einu
minna en Huttenberg. Hins vegar
á Göppingen eftir að leika báða
heimaleiki sína gegn þessum lið-
um. Heimavöllurinn hefur gífur-
lega þýðingu — það er ekki ónýtt
að hafa þúsundir hliðhollra
áhorfenda með sér. Heima-
Geir Hallsteinsson skorar fyrir
Göppingen gegn sovézka lands-
liðinu, þó svo Klimov, sá frægi
kappi, og Ussaty reyni að stöðva
hann. Geir skoraði f jögur mörk í
leiknum.
leikirnir eiga þvi — ef að líkum
lætur — að tryggja Göppingen
sæti í úrslitum.
Nýlega lék Göppingen við Dietzenbach
á útivelli, en það lið er i næstneðsta sæti i
deildinni. Ahorfendur voru um 800 og urðu
fyrir vonbrigðum, þvi Göppingen komst
fljótt i 4-0 — en það breyttist. Næstu 13
min. skoraði Göppingen ekki mark og
heimaliðið jafnaði i 4-4. Það breyttist hins
vegar fljótt aftur — um miðjan siðari
hálfleikinn stóö 19-13 fyrir Göppingen.
Lokakaflinn varð æsispennandi — og
harka mikil. Göppingen komst i 20-15 — en
þá skoraði Dietzenbach fjögur mörk i röö.
20-19 og allt á suðupunkti, en svo skoraði
Geir 21. mark Göppingen og austurriski
landsliðsmaðurinn Patzer rétt á eftir
siðasta mark leiksins. 22-19 fyrir
Göppingen.
Geir og þýzki landsliðsmaðurinn Peter
Bucker báru af i liði Göppingen. Bucker
skoraði sjö mörk, en Geir sex. Patzer og
Arndt skoruðu 3 mörk hvor — aðrir færri.
Wehnert, sem er markhæstur i suður-
deildinni, var markhæstur i þessum leik
— skoraði átta mörk, þar af þrjú úr vitum.
Göppingen fékk eitt viti i leiknum, sem
Bucker misnotaði.
Gifurleg harka var i þessum leik og var
fjórum leikmönnum Göppingen visað af
velli — Emrick i sjö minútur, Patzer i
fjórar minútur, en Geir og Epple fengu að
„kæla” sig i tvær min. hvor. Þremur leik-
mönnum Dietzenbach var visað af leik-
velli — i tvær minútur hverjum.
Úrslit i öðrum leikjum i umferðinni
urðu þessi i suðurdeildinni.
Huttenberg—Grossvallstadt 19-16
Neuhausen—Milbertshofen 15-12
Rintheim—Leutershausen 19-16
Eftir þessa leiki var staðan þannig.
TSV Rintheim 11 9 0 2 198:168 18
TV Húttenberg ? 11 8 1 2 186:160 17
FA Göppingen 11 7 2 2 216:183 16
TSV Milbertshofen 11 4 2 5 156:168 10
TV GroBwalistadt 12 5 0 7 208:207 10
SG Leutershausen 11 4 1 6 192:191 9
TSV Butzbach 10 4 0 6 152:176 8
SG Dietzenbach 10 3 0 7 174:191 6
TV Neuhausen 11 2 0 9 150:188 .4
Markhæstu leikmenn i sðurdeildinni eru
nú .
H. Wehnert (SG Dietzenbach) 64/11
M. Möller (TSV Rintheim) 63/21
J. Hahn 'SG Leutershausen) 61/2
K. Klúhspies (TV GroBwallstadt) 55/13
G. 'Hallsteinsson (FA Göppingen) 53/1
W. Salzer (TV Neuhausen) 52/19
H. Spengler (TV Húttenberg) 51/6
W. Nagel (TSV Rintheim) 49/5
P. Bucher (FA Göppingen) 43/13
K. Reusch (TV Neuihausen) 43/28
A. Böckling (TV GroBwallstadt) 41/5
T. Turtkaly (TSV Butzbach) 40/9
A. Kotlas (TV Húttentoerg) 39/3
P. Barthelmey (TV Húttenberg) 35/23
C. Patzer (FA Göppingen) 33/12
Geir er sem sagt i fimmta sæti — hefur
skoraö tæplega fimm mörk i leik, sem er
mjög gott i hinni hörðu, þýzku deilda-
keppni.
1 norðurdeildinni hefur staðan breytzt
Gummersbach — liðinu, sem lék gegn Val
i Evrópukeppninni i haust — i óhag. Hansi
Schmidt og félagar hans eru ekki lengur
öruggirum sæti i úrslitakeppninni. Liðinu
hefur gengið illa að undanförnu og tapað
tveimur leikjum. Þegar lið Geirs sigraði
Dietzenbach lék Gummersbach við Ham-
burger SV á útivelli og tapaði með eins
marks mun. Gummersbach hafði þó tvö
mörk yfir i hálfleik 8-6, en missti það nið-
ur og Hamburgersigraði með 14-13 i leik,
þar sem spennan var gifurleg i lokin.
Gummersbach hafði þrjú mörk yfir 13-10,
þegar nokkrar minútur voru eftir, en
Hamburger tókst að jafna. A siðustu min.
fékk liðið svo aukakast, sem Pickel skor-
aði úr. Knötturinn fór af Hansa i mark
Gummersbach!!
Westebbe skoraði fimm mörk fyrir
Gummersbach, og var þó tvivegis vikið af
velli —tvær minútur i hvort skipti. Hansi
skoraði einnig 5 mörk — þar af 4 úr vita-
köstum, og hann fékk einnig að kæla sig i
tvær minútur. Hjá Hamburger var Pickel
rekinn af velli i 2 min. Hann var mark-
hæstur leikmanna liðsins með 4 mörk —
eitt viti.
Gummersbach er nú i 3ja sæti með 15
stig, en hefur leikið þremur leikjum
minna en Dankersen, sem er i öðru sæti
með 18 stig. Annars er staðan þannig:
TuS Wellinghofen 11 9 0 2 195:159 18
GW Daiikersen 13 9 0 4 232:177 18
VfL Gummersbach 10 7 1 2 179:142 15
TV Grambke 12 6 1 5 210:213 13
Bad Schwartau 12 4 4 4 207:200 12
PSV Hannover 11 5 0 6 157:186 10
Hamburger SV 12 5 0 7 158:164 10
Phönix Essen 11 4 1 6 201:201 9
Tusem Essen 12 3 0 9 164:209 6
Reinick. Fúchse 12 2 1 9 148:200 5
Markhæstu leikmenn i deildinni eru
þessir — og er heldur óvenjulegt að sjá
Hansa Schmidt svona neðarlega á listan-
um. Þessi mikli markakóngur er þó með
gott hlutfall — fimm mörk i leik að meðal-
tali.
P. Pickel (Hamburger SV) 80/28
R. Harjes (TV Grambke) 70/28
O. Weng (GW Dankersen) 63/23
H. Oberscheidt (Phönix Essen) 54/8
W. Lankenau (TV Grambke) 53
K. Lange (VfL Bad Schwartau) 52/13
H. Schmidt (VfL Gummersbach) 51/16
B. Munck (GW Dankersen) 51/17
H. Möller (TuS Wellinghofen) 47
B. Gröning (TuS Wellinghofen) 42/12
W. Braun (VfL Bad Schwartau) 39/4
K. Westebbe (VfL Gummersbach) 39/4
L. Loewke (Reinckend. Fúchse) 39/15
S. Berg (VfL Bad Schwartau) 37/18
Dieth. Finkelmann (Rein. Fúchse) 36/10
Spjall um getraunir:
Smáliðin koma
oft á óvart í
bikarkeppninni!
Enginn reyndist meö 12
rétta á síðasta getrauna-
seöli — skiljanlegt í því
jafntef lisf lóöi, sem þá
var í leikjunum. Hins
vegar voru þrír seðlar
meö 11 rétta og þaö er
bara góður árangur. i
hlut komu 123.500 krónur,
því potturinn var góður,
rúmlega hálf milljón.
Seldar voru 42 þúsund
raðir. 17 voru með 10
rétta og þar koma 9.500
krónur i hlut.
A næsta seðli, hinum 22,á get-
raunaárinu, eru leikir úr 4. um-
ferð ensku bikarkeppninnar,
sem háð verður um næstu helgi
— flestir leikirnir þó á laug-
ardag. Spá blaðsins er þannig:
Arsenal—Aston V 1
Coventry—Derby x
Everton—WBA 1
Fulham— Leicester 2
Hereford—Bristol C. x
Liverpool—Carlisle 1
Manch. Utd.—Ipswich 1
Newcastle—Scunthorpe 1
Nottm. For.—Manch. City x
Peterbro—Leeds 2
Portsmouth—Orient 1
Southampton—Bolton 1
Það er ekki mikið við að styðj-
ast i þessum leikjum — aðeins
tveir leikir milli 1. deildarliða,
Coventry—Derby, og Manch.
Utd.—Ipswich. Leikir Mið-
landaliðanna eru oftast jafnir —
i 1. deild nýlega á Old Trafford
sigraði Manch. Utd. Ipswich
með 2-0.
Arsenal ætti auðveldlega að
ráða við Aston Villa, frægasta
bikarliðEnglands, þvi leikmenn
Villa hafa gefið mikið eftir aö
undanförnu. Sama gildir senni-
lega um Everton gegn WBA —
þar á heimavöllurinn að ráða,
en WBA hefur náð sér vel á strik
eftir slæma byrjun.
Noel Cantwell, fram-
kvæmdastjóri Peterbro —
gegndi áður sömu stöðu
hjá Coventry. Einvígi
hans við Hörð Felixson á
Laugardalsvellinum
verður lengi minnisstætt.
Cantwell var þá miðherji
irska landsliðsins (1961),
þó hann léki sem bak-
vörður hjá Manch. Utd.
Leicester, sem af mörgum er
talið hafa mikla möguleika i
bikarkeppninni nú, er of gott lið
til að láta Fulham, miðlungslið
úr 2. deild, stöðva sig, þó svo um
útivöll sé að ræða. Hereford i 3.
deild vann það afrek að slá West
Ham út i 3. umferð. Nú mætir
það Bristol City, góðu liði úr 2.
deild, og skammt er milli Here-
ford og Bristol.
Liverpool lenti i erfiðleikum
heima gegn neðsta liðinu af öll-
um i deildunum fjórum,
Doncaster, I 3. umferð og það á
heimavelli. Mátti þakka fyrir
jafnteflið 2-2. Slikt hendir varla
liðið aftur á Anfield. Þá ætti
Newcastle að leika sér að Scunt-
horpe — slöku liði úr 4. deild —
en það skritna var i 3. umferð,
að áhugamannaliðið Hendon
náði jöfnu i Newcastle. Já,
bikarkeppnin er oft furðuleg.
Leikur Nottm. Forest og
Manch. City er erfiður — en
City, með skemmtilegustu
framlinumenn enskrar knatt-
spyrnu, ætti þó að minnsta kosti
að ná jafntefli — sigrar svo
heima. Peterbro, eitt efsta lið 4.
deildar, fær Leeds i heimsókn.
Þar verður slegizt um miðana á
leikinn. Peterbro hefur gjör-
breytzt til hins betra siðan
kappinn Noel Cantwell, fyrrum
fyrirliði Irlands (lék hér i irska
landsliðinu) og Manch. Utd.
(þegar liðið varð bikarmeistari
1963) tók við liðinu sl. vor. Þá
var allt i hruni hjá Peterbro, en
þvi tókst að skriða upp i sjötta
neðsta sætið i 4. deild. En það
verður ekkert nema kraftaverk,
sem þarna getur bjargað Peter-
bro.
Portsmouth hefur keypt leik-
menn fyrir hálfa milljón
sterlingspunda siðustu vikurnar
og á heimavelli ætti liðið að ráða
við Orient, sem er i öðru sæti i 2.
deild. Einhvern tima hefði hlut-
verkum verið skipt, þegar
Southampton og Bolton leika.
Nú hlýtur Southampton að telj-
ast mun betra lið en Bolton — já,
og það þó Bolton eigi hvað litrik-
asta sögu allra enskra liða i
bikarkeppninni.
Hart barizt á High-
bury á nýársdag.
Myndin var tekin,
þegar Newcastle, kom
i heimsókn. Það cr
bakvörður Newcastle,
Frank Clark, sem
leikið hefur i enska
áhuganiannalandslið-
inu, sem spvrnir
knettinum aftur fyrir
sig. Þeir, sem fylgjast
mcð, eru John Tudor,
lengst til vinstri, og
Jeff Blockley, mið-
vörður Arsenal, en
þeir léku eitt sinn báð-
ir með Coventry.