Vísir - 23.02.1974, Page 3
Visir. Laugardagur 23. febrúar 1974.
3
BLY I MATARILATUM
GETUR VERIÐ HÆTTULEGT
— en engin reglugerð er til um leyfilegt blý-og kadmiummagn
„Sjálf hef ég ekki séð þetta
hérna, en ég veit um eitt dæmi
þess frá konu, sem hafði sam-
band við okkur, að í einni
verzlun i bænum væru seldar
skálar, sem innihéldu of mikið
magn af kadmium", sagði
Sigriður Haraldsdóttir hjá
Kvenfélagasambandi isiands,
þegar við ræddum við hana, en
sambandið hefur nú sent
viðskiptaráðherra, Lúðvik
Jósefssyni, ljósrit af danskri
reglugerð um þessi mál, svo og
bréf, þar sem segir meðal
annars:
„Kvenfélagasamband tslands
leyfir sér að benda á, að i
nágrannalöndum okkar hafa
verið settar reglugerðir um blý-
innihald i leirmunum, glerj-
uðum munum og glermunum,
sem notaðir eru við matargerð
eða framreiðslu matar. Segir i
reglugerð frá Danmörku m.a.,
að slikir munir megi ekki gefa
frá sér meira en 3 mg af blýi i
hvern litra af sjóðandi ediks-
upplausn, sem hellt er i munina
þrisvar sinnum og látin standa i
þeim hálftima i senn”.
„Hér á landi er allveruleg
framleiðsla á leirmunum og
virðist sjálfsagt, að þeir lúti
sömu reglum og framleiðsla
annarra landa, enda sannað er-
lendis, að hætta stafar af of
miklu blýmagni i vörum, sem
koma i snertingu við matvæli.
Einnig er hætta á, að fluttir
verði til landsins munir með
hættulegu blýmagni, ef engin
ákvæði gilda hér um slikan
varning.
Einungis litirnirgeta gefið frá
sér kadmium, og á það sér-
staklega við um rauða, guia og
appelsinugula liti. Litir, sem
málaðir eru yfir glerunginn eru
hættulegastir i þeim efnum.
Allur matur og alls konar
drykkir geta leyst upp blý og
kadmium úr glerungi eða lit,
sérstaklega þó súr matvæli eins
og edikslögur, súrir ávextir,
ávaxtasafi, vin, Coca-cola o.fl.
„KALLIÐ MIG ALLS EKKI LISTAMANN"
— segir Snorri Helgason, sem opnar sína þriðju málverkasýningu á morgun
„Þið megið alls ekki kalla mig
listamann. Þá yrðu áreiðanlega
margir gramir út i mig”, sagði
Snorri Helgason, sem nú býr sig
undir að opna þriðju málverka-
sýningu sina. Hann er fristunda-
málari, og það sakar ekki að geta
þess, að hann er bróðir Gerðar
Helgadóttur listakonu.
„Ég hef dundað við blýants-
teikningar allt frá þvi ég man
fyrst eftir mér. Hins vegar eru
ekki svo ýkja mörg ár siðan ég fór
að spreyta mig á oliulitum”,
sagði Snorri i viðtali við Visi i
gær.
Það er ekki að sjá á myndum
hans, að þar sé einhver byrjandi i
málaralist á ferðinni. Eins og
meðfylgjandi ljósmynd ber ef-
laust með sér, eru myndir Snorra
afar sérstæðar, en það verða ekki
greind nein pensilför á léreftinu.
„Þetta verða 55 málverk, sem
ég sýni. Allt myndir, sem ég hef
málað á siðustu sex árum”, út-
skýrði Snorri.
Hann opnar sýningu sina i
Sýningarsal Eddu Borg við
Reykjavikurveg i Hafnarfirði
klukkan tvö á morgun, en
sýningin verður opin fram til 3.
marz alla daga frá klukkan eitt til
sex. Aðgangur er ókeypis.
Sveinbjörn Beinteinsson
allsherjargoði i fullum skrúða
„Hvers vegna
Ásatrú
á 20. öld?"
— heitir erindi sem
Sveinbjörn allsherjar-
goði heldur á morgun
Ásatrúarmenn halda kynn-
ingarfund að Hótel Esju á
morgun.
Sveinbjörn Beinteinsson
allsherjargoði ætlar að ræða
um Asatrú i ljósi samtimans.
Siðan ræðir Anna Sigurðar-
dóttir um „ýmislegt um
Ásatrú”, einkum þá stöðu
konunnar i Ásatrúnni.
örn Clausen kynnir helgisiði
og athafnir, sem sem nafn-
gjöf, unglingavigslu, giftingu
greftrun o.fl.
Loks talar Jörmundur Ingi
(áður Jörgen Ingi) um siða-
boðskap Ásatrúarinnar, og
væntanlega ætlar hann að
ræða um mismun á siðaboðun
kristninnar og siðaboðun Ása-
trúarinnar, og hann segist
ætla að færa rök fyrir þeirra
fullyrðingu Ásatrúarmanna,
að siðaboðskapur Hávamála
eigi meiri itök i Islendingum
en hin innflutta kristni.
Fundur Ásatrúarmanna
hefst á Esju klukkan 15 á
sunnudaginn. —GG
Jökull Jakobsson og „stjörnur” hans, þau Anna Kristln Arngrimsdóttir, sem leikur Láru, og Arni Blandon, sem leikur Kalla. Mynd.Bj. Bj.
Kertalog Jökuls frumsýnt á miðvikudaginn:
Ólíkt fyrrí verkum höfundar"
— segir leikstjórinn, Stefán Baldursson
„Kertalog”, nýjasta leikrit
Jökuls Jakobssonar, verður
frumsýnt hjá Lcikfélagi
Reykjavikur á miðvikudaginn
kemur.
Stefán Baldursson, sem leik-
stýrir verkinu ásamt höfundi,
tjáði Visi i gærkvöldi, að hann
teldi þetta verk að mörgu leyti
ólikt fyrri verkum Jökuls.
„Það fjallar aðallega um pilt
og stúlku, Láru, sem Anna
Kristin Arngrímsdóttir leikur,
og Kalla, sem Arni Blandon
leikur.
Og það gerist á geðveikrahæli
og út um bæinn. Það er ólikt
fyrri verkum Jökuls m.a. að þvi
leyti, að það er brotið upp i
mörg atriði og ekki eins fast i
tima. Atburðarrásin gerist á
rúmlega hálfu ári eða svo. Hins
vegar eru stileinkennin greini-
leg, og þarna eru mörg mjög vel
skrifuð samtöl,” sagði Stefán
Baldursson leikstjóri.
„Kertalog” skrifaði Jökull og
sendi i leikritasamkeppni, sem
L.R. efndi til árið 1972. Hlaut
leikritið fyrstu verðlaun ásamt
leikritinu „Pétur og Rúna” eftir
Birgi Sigurðsson, en það leikrit
sýndi L.R. i fyrra.
„Kertalog”, sagði Stefán
Baldursson, ,,er lika ólikt fyrri
verkum Jökuls að þvi leyti, að i
þvi eru margar persónur. Per-
sónurnar eru sextán, en reyndar
eru mörg hlutverkanna auka-
hlutverk. Verkið snýst að mestu
um atburði, sem verða eftir að
Kalli og Lára hafa kynnzt á geð-
veikrahælinu”.
—GG
ÞETTA ERU KJÖRSTAÐIRNIR
Búið er að ákveða kjörstaðina
i prófkjöri sjálfstæðismanna i
Reýkjavik dagana 2.-4. marz.
Laugardaginn 2. og
sunnudaginn 3. marz verða
kjörstaðir opnir i hinum ýmsu
hverfum borgarinnar, milli
klukkan tvö og sjö. Mánudaginn
4. marz verður aðeins einn kjör-
staður opinn fyrir alla borgina,
og verður hann I Tjarnarbúö og
opinn milli kl. 3 og 10 siðdegis.
Tvo fyrri dagana verða kjör-
staðirnir þessir: Fyrir Nes- og
Melahverfi i KR-heimilinu.
----Vestur- og Miðbæjarhverfi
að Laufásvegi 47, jarðhæð.
— - - Austur-, Norðurmýrar,
Hiiða- og Holtahverfi i
Templarahöllinni.
— - - Laugarnes-, Langholts-,
Voga- og Heimahverfi i sam-
komusal Kassagerðar
Reykjavikur.
----- Háaleitis-, Smáibúða-,
Bústaða- og Fossvogshverfi i
Miðbæ við Háaleitisbraut.
----Bakka- og Stekkjahverfi
að Urðarstekk 2.
----Fella- og Hólahverfi að
Vesturbergi 193.
— - - Árbæjarhverfi i kaffi-
stofu verksmiðjunnar Vifilfells,
Bæjarhálsi.
—HII
„Það eru tvö ár siðan ég hélt
fyrstu sýningu mina”, sagði
Snorri i viðtali við Visi. „Þá var
það aðeins til að gera smásprell.
Ég er alltaf til i smásprell. En svo
þegar fólk tók mig grafalvarlega
og allar myndirnar seldust. Já....
þá var þetta ekki neitt sprell leng-
ur” —ÞJM
„Það var bara til að gera sprell,
sem ég opnaöi mina fyrstu
sýningu fyrir tveim árum”,
segir Snorri, scm hér sést með
nokkrar þeirra ntynda. sent
fara á sýninguna i Hafnarfirði.
Ljósm. BP