Vísir - 23.02.1974, Síða 5
Visir. Laugardagur 23. febrúar 1974
5
ERLEND MYNDSJÁ
Umsjón: BB/GP
Slys í knattspyrnu
Urn áttatiu þúsundir höfðu
safnazt saman á knattspyrnu-
leikvangi einum i Kairó, þegar
pailarnir hrundu með óskapleg-
um afleiðingum. Fólkið tróðsl
undir. Fjörutiu og átta létu lifið.
Fjörutiu og sjö til viðbótar
siösuðust.
Þarna hafði átt að fara fram
leikur miili heimaliðsins,
Zamalek, og Dukla frá vina-
bænunr Prag. Af þvi varð þó
skiljanlega ekki, þvi fresta varð
leiknum.
Á myndinni hér fyrir ofan sést
sjúkraiið og lögregla stunrra
yfir fólki, sem tróðst undir.
Víða hefur fólk sýnt i verki mótmæli við Sovétstjórnina vegna brott-
vikningar hennar á Solsénitsin úr landi. Þessi mynd hér fyrir neðan er
af mótmælum. New York-búa við sendiráð Sovétrikjanna I New York,
eða öliu heidur bústað sendinefndar þeirra við Sameinuðu þjóðirnar.
I eldlínunni
Veinandi af sársauka
stökk Dennis Cameron út
í leirugt vatnið til þess að
siökkva logana, því eldur
hafði komizt í fötin hans.
Caineron brann á fótum og
höndum, þegar hann var vitni
að árás stórskotaliös uppreisn-
armanna á höfuðborg
Kambódiu núna á dögunum, en
þar hefur ekkert lát orðið á
bardögum.
Cameron er blaðamaður og
fréttamaður útvarps, ef svo ber
undir. Var hann þarna á vegum
American Broadcasting Co. —
Verðurekki annaðsagt, en hann
hafi verið i eldlinunni.
ðrkin
fundin?
Bandarískur öldungar-
deildarþingm^ður skýrði
frá því í fyrradag, að
gervitunglamyndir frá
Austur-Tyrklandi kynnu
að sýna leifar arkarinnar
hans Nóa á fjallinu Ara-
rat, sem sést hér á mynd-
inni.
Sagði Frank Moss þingmaður.
að myndirnar hefðu verið
teknar úr rúmlega 700 km hæð
og sýndu fyrirbrigði, sem litu
öðruvisi'út en næsta nágrenni.
Hann sagði einnig, að banda-
riskur guðfræðingur hefði sótt
um leyfi til að fara meö rann-
sóknaleiðangur á staðinn, sem
er á hernaðarsvæði við landa-
mæri Irans og Sovétrikjanna..
Fjallið Ararat er 3600 m hátt.