Vísir - 16.05.1974, Blaðsíða 8
8
Vfsir. Fimmtudagur 16. mal 1974.
Vísir. Fimmtudagur 16. mai 1974.
40 sek. eftir og
Bayern jofnaði
— Nýr úrslitaleikur í Evrópubikarkeppninni
Þremur min. fyrir ieikslok
framlengingar I úrslitaleik
Gvrúpubikarsins milli Atletico
Madrid og Bayern Munchen I
Brussel i gærkvöldi virtist
bikarinn örugglega I höndum
spánska liðsins. Það hafði verið
betra líðið I leiknum og loks,
þegar þrjár mln. voru eftir tökst
Luis að senda knöttinn framhjá
Maier I mark Bayern — beint úr
aukaspyrnu. Fögnuður leik-
manna Madrid-liðsins var mik-
ill — fyrsti sigur þeirra i
Evrópukeppninni blasti við, og
bikarinn var nú loks á leið til
Spánar I fyrsta skipti siðan 1966.
En leikmenn Bayern voru
ekki á þvl að gefast upp — þeir
geystust allir i sókn og
fagnaðarhróp spönsku áhorf-
endanna voru varla þögnuð,
þegar Georg Schwarzenbeck
tókst að jafna. Seinna mátti það
varla vera — aðeins 40 sekúndur
voru þá eftir. Markið kom eins
og þruma úr heiðskiru lofti.
Georg fékk knöttinn á miðjum
vallarhelmingi Spánverja, lék
aðeins áfram og spyrnti á mark-
ið. Knötturinn þaut gegnum
þéttan „skóg” af fótum varnar-
manna og beint i markið.
Miguel Reina sá ekki knöttinn
fyrr en hann rann framhjá hon-
um. Leikmenn stilltu sér upp á
miðju, en belgiski dómarinn
Bital Loraux flautaði leikslok.
Liðin sýndu oft glæsilega
knattspyrnu — einkum var
varnarleikur Atletico frábær.
Gerd Muller var alveg tekinn úr
sambandi — og það kom á óvart
hve sterkir leikmenn Atletico
Madrid voru. Liðið var yfirleitt
sterkara allan leikinn.
Eftir venjulegan leiktima
hafði ekkert mark verið skorað.
Þá var framlengt og lokaminút-
urnar voru spennandi. Ahorf-
endur voru aðeins 30 þúsund.
Þetta er i fjórða sinn, sem fram-
lengingu þarf i úrslitaleik
Evrópubikarsins — siðast 1970,
þegar Feyenoord sigraði Glas-
gow Celtic 2-1. Bayern og
Atletico mætast aftpr á föstudag
i nýjum úrslitaleik á sama velli.
— hsim.
JÁ, STRÁKARNIR
KOMAST ÁFRAM!
Já, ég er viss um það.
Strákarnir komast
áfram i undanúrslitin,
en þó verður róðurinn
erfiðari, sagði Árni
Ágústsson, formaður
unglinganefndar KSÍ,
við blaðið i gær. íslenzka
unglingalandsliðið held-
ur til Sviþjóðar á mánu-
dag og og á miðvikudag
hefst Evrópukeppni
unglingalandsliða —
leikmenn 18 ára og
yngri. ísland er i riðli
með Skotlandi, Rúmeniu
og Finnlandi — og þetta
er i annað sinn, sem ís-
land tekur þátt i úrslita-
keppninni.
Fyrsti leikur islenzka liðsins
verður gegn Skotlandi 22. mai i
Karlshamn. 24. mai er leikur við
Rúmeniu i Ronneby og siðasti
leikurinn I riðlinum verður við
Finnland 26. mai i Sölvesborg.
Efsta liðið i hverjum riðli — þeir
eru fjórir — kemst i átta liða úr-
slit og ef Island verður meðal
þeirra leikur liðið við efsta lið úr
C-riðli. Þar leika Wales, Dan-
mörk, Luxemborg og Búlgaria.
í B-riðli eru Pólland, Austur-
Þýzkaland, Tyrkland og Júgó-
slavía, en i D-riðli leika Portúgal,
Sviþjóð, Grikkland og Spánn. Það
vakti mikla athygli i undan-
keppninni, að lið frá sterkum
knattspyrnuþjóðum voru slegin
út — eins og Englands, sigurveg-
ara I keppninni siðustu þrjú árin,
Vestur-Þýzkalands, Italiu,
Belgiu, Hollands, Rússlands svo
nokkur séu nefnd. Island komst i
úrslitakeppnina eftir sigur gegn
trlandi.
Sextán leikmenn fara til
Sviþjóðar og nokkrir þeirra hafa
öðlazt mikla reynslu i slikum
unglingalandsleikjum eins og
Björn Guðmundsson, Viking,
Janus Guðlaugsson, FH, ólafur
Magnússon, Val, sem voru með á
ttaliu i fyrra. Aörir leikmenn eru
Guðjón Þórðarson, ÍA, Guðjón
Hilmarsson, KR, Viðar Eliasson,
IBV, Hannes Lárusson, Val,
Gunnlaugur Kristfinnsson, Vik-
ing, Kristinn Björnsson, Val, Ósk-
ar Tómasson, Viking, Jón
Þorbjörnsson, Þrótti, Arni
Valgeirsson, Þrótti, Arni Sveins-
son, tA, Ragnar Gislason, Viking,
Erlendur Björnsson, Þrótti og
Einar Arnason, KR. Myndina hér
að neðan tók Bjarnleifur nýlega á
æfingu hjá liðinu. Fararstjórar
verða Ellert Schram, formaður
KSt, Arni Agústsson, Gunnar
Pétursson, Albert Eymundsson,
og Sigurður Steindórsson.
Ef Islenzka liðið veröur slegið
út I undankeppninni — riðla-
keppninni —kemur það heim aft-
ur 27. mai — en ef það kemst
áfram verða piltarnir i Sviþjóð til
1. júni. Órslitaleikur keppninnar
verður 31. mai — og þá verður
einnig keppt um þriðja sætið.
Drslitaleikurinn verður i Malmö.
— hsim.
Verða að gera
betur en þetta!
— England sigraði Norður-írland 1-0
Enska liðið gjörbreyttist til hins
betra, þegar Joe Mercer tók Stan
Bowles, QPR, út af, þegar 10 min.
voru af síðari hálfleik og setti
Frank Worthington, Leicester, i
hans stað. Þá kom sveifla i leik
ensku framlinunnar. En liðið
verður að sýna miklu betri leik ef
það ætlar aö sigra Skotlaud á
laugardag, sögðu þulir BBC, sem
lýstu leik Englands og Norður-tr-
lands I brezku meistarakeppninni
á Wembley i gær.
England sigraði með 1-0 og
skoraði Keith Weller, Leicester,
markið á 68.min. eftir undirbún-
ing Channon og Worthington. Sá
siðarnefndi hefði getað skorað
sjálfur, en sýndi óeigingirni, þeg-
ar hann renndi knettinum á Well-
er. Eftir markið sótti enska liðið
mjög og það var aðeins vegna
frábærs leiks Pat Jennings i
marki trlands að mörkin urðu
ekki fleiri.
Leikurinn var slakur framan af
og til litillar ánægju fyrir 48.500
áhorfendur á Wembley. En siðari
hálfleikurinn var góður hjá enska
liðinu, en það var þó heppið, þeg-
ar Hughes braut illa á mótherja
innan vitateigs, og skozki dómar-
inn lokaði augunum og dæmdi
ekki neitt. Furðulegt að honum
yfirsást vitaspyrnan — hún var
greinileg héöan, sögðu þulir BBC.
Þetta er rétt áður en Weller skor-
aði sigurmarkið.
Frank Worthington lék sinn
fyrsta landsleik I gær og senni-
legt, að hann haldi stöðunni, þvi
Bowles átti afar slakan leik. Eng-
land hefur nú fjögur stig i keppn-
inni — þarf aðeins jafntefli gegn
Skotum á laugardag til að sigra.
Skotland og Irland hafa tvö stig,
Wales ekkert. —hsim.
Valsstúlkur
sigruðu
i Gróttumótinu
Valur sigraði i hinu árlega
Gróttumóti i kvennahandknatt-
leik, sem lauk nú I vikunni. Or-
slitaleikurinn var á milli Vals og
Vlkings, og lauk honum með sigri
Vals 11:6.
t undanúrslitunum léku Vals-
stúlkurnar við tslandsmeistara
Fram. Fyrri leiknum lauk með
jafntefli eftir framlengingu 15:15
en I sfðari leiknum sigraði Valur
14:8. Vikingur lék við Ármann i
hinum undanúrslitaleiknum og
sigraði með nokkrum mun.
r
Atök verða
í „sœnska"!
Kraftlyftingamót islands
verður haldið nk. laugardag i
sæn.ska frystihúsinu og hefst
keppni i léttari þyngdarflokkun-
um kl. 15.00, en i þeim þyngri kl.
17.00. Flestir beztu iyftingamenn
landsin:: verða meðal keppenda.
Held að FH hafi það í ór
íslandsmótið I knatt-
spyrnu 1974 hefst i kvöld
með leik á milli FH og
Breiöabliks i 2. deild.
Leikurinn fer fram á velli
FH við Kaplakrika og hefst
kl. 20.00.
Jón ólafsson, fyrirliði Vikings, sem
sigraði i 2. deildarkeppninni i knatt-
spyrnu i fyrra, segist liafa mesta trú á
að FH sigri i 2. deild i ár.
Þetta er þýðingarmikill
leikur fyrir bæði liðin enda
er talið að þau komi sterk-
lega til greina i baráttunni
um efsta sætið i deildinni og
þar með sæti i 1. deild næsta
ár.
Við lögðum þá spurningu fyrir Jón
Ólafsson fyrirliða Vikings, sem
sigraði i 2. deildarkeppninni i fyrra,
hvaða lið hann teldi að færi með sigur
af hólmi i 2. deildinni i ár.
„Keppnin þar verður áreiðanlega
mjög hörð og jöfn og erfitt að segja
um hvernig hún fer” sagði Jón. Ég
held að baráttan komi til að standa á
milli FH, Þróttar og Breiðabliks, en
hin liðin geta auðveldiega sett strik i
reikninginn.
Ég hef mesta trú á að FH hafi það i
þetta sinn, það er að segja, ef
strákarnir hugsa rétt og haldi vel á
spilunum. En það verður ekki neinn
dans á rósum fyrir þá, það þekki ég frá
þvi að við vorum þarna i fyrra.”
-klp-
Hlutu tvenn bronsverð-
Hvað gera foreldrar þínir? var teinkiverkefni,
sem Vikan lagði fyrirsjö ára börn á Selfossi
og árangurinn sjáum við í nýjustu Viku. Þá
heldur keppnin um titilinn Vorstúlka Vikunnar
áfram, Edvard Sverrisson skrifar um músík,
Eva Vilhelmsdóttir teiknar íslenzku vor-
tízkuna og fleira forvitnilegt efni er í blaðinu
Fyrsta eintak eftir
prentaraverkfall.
Man
laun í NM í lyftingum
— Óskar þriðji í þungavigt og Guðmundur í milliþungavigt
Þeiróskar Sigurpáls-
son og Guðmundur Sig-
urðsson hlutu þriðju
verðlaun i sinum
þyngdarflokkum á
Norðurlandamótinu i
NY VIKA
lyftingum, sem háð var
siðast í april i Noregi.
Óskar lyfti samtals 310 kg , 130 i
snörun og jafnhenti 180 kg i
þungavigtinni. Sigurvegari varð
Finninn Viktor Sirkia, sem lyfti
samtals 342.5 kg. Gústav Agnars-
son keppti einnig i þessum flokki.
Hannbyrjaðiá 160 kg snörun, en
tókst ekki að lyfta þeirri þyngd og
féll þvi úr.
t milliþungavigtinni náði Guð-
mundur þriðja sæti. Hann lyfti
samtals 320 kg — 140 kg i snörun
og jafnhenti 180 kg. Sigurvegari
þar varð Svíinn Hans Bettenburg
með 355 kg samtals, sem er jöfn-
un á Norðurlandameti. Finninn
Kailajaevi náði þvi samtals fyrr á
mótinu. Þá keppti Skúli Óskars-
son imillivigtog lyfti samtals 245
kg , sem er tslandsmet. Friðrik
Jósefsson keppti einnig — snaraði
135 kg , en tókst ekki að jafnhenda
165 kg og féll þvi úr.
Kristinn Björnsson, til hægri, unglingalandsliðsmaður Vals, skoraði eina mark liðsins gegn York I gærkvöldi. Ljósmynd Bjarnleifur.
Þá kom að því - Valsmenn
sýndu sínar góðu hliðar!
— en það nœgði þó ekki gegn Ywk sem sigraði með 3-1
Þrátt fyrir 3:1 tap gegn
enska 2. deildarliðinu York
City á Melavellinum i gær-
kveldi, voru stuðningsmenn
Vals á áhorfendapöllunum i
sjöunda himni yfir strákun-
um sinum, þegar þeir yfir-
gáfu völlinn i leikslok.
Þeir höfðu lika ástæðu til
þess i þetta sinn — Hliðar-
endastrákarnir léku þarna
sinn bezta leik á árinu og
gáfu útlendingunum litið
eftir. Það var aðeins tvennt,
sem skildi verulega á milli
liðanna — Bretarnir höfðu
meiri snerpu og voru at-
kvæðameiri upp við mörkin
og áttu þvi fleiri tækifæri en
Vaísmenn til að skora.
Sérstaklega voru þeir hættulegir upp
við mark Vals i fyrri hálfleik, en góður
varnarleikur og frábær markvarzla
Sigurðar Haraldssonar kom i veg fyrir
aö York City tækist að skora.
Sigurður hafði hendur — stundum
ekki nema rétt fingurgómana — á
boltanum hvað eftir annað og sló eða
hélt honum við erfiðustu aðstæður.
Þaö var ekki fyrr en á 38. min leiksins,
aö Bretunum tókst að koma boltanum
fram hjá honum i netið.
Valsmenn höfðu fengið aukaspyrnu
við vitateig York City, sem kostaði
mikið þras á milli dómarans, Guðjóns
Finnbogasonar, og miðvarðarins Loff-
ings, sem lauk með þvi að Guðjón bók-
aöi Bretann. Valsmenn fengu ekkert
úr úr aukaspyrnunni og Bretarnir
brunuðu upp með alla Valsvörnina á
hælunum. Þar tókst einum þeirra að
stöðva upphlaupið með ólöglegu broti,
sem þegar var dæmd aukaspyrna á.
Jones, þekktasti leikmaður York-City
— var keyptur frá Nottingham fyrir
nokkru — sendi knöttinn fyrir markið,
þar sem Seal kom á fullri ferð á móti
honum og skallaði laglega i netið.
A siðustu sekúndu fyrri hálfleiks var
dæmd hornspyrna á Val, sem Jones
tók á skemmtilegan hátt eins og venju-
lega. Boltinn þaut á milli manna i
markteignum og hafnaði loks fyrir
hægra fæti Seal, sem var ekki lengi að
afgreiða hann rétta leið.
A fyrstu min. siðari hálfleiks varð
Sigurður markvörður fyrir meiðslum
og varð að yfirgefa völlinn. t hans stað
kom nafni hans Dagsson og átti hann
náöugan hálfleik — fékk varla aurblett
á búninginn, þvi félagar hans úti á
vellinum stöðvuðu flest upphlaup York
City og áttu hættulegar sóknarlotur
undan roki og rigningu, sem þá skall
yfir.
Ingi Björn Albertsson átti m.a. skot i
stöng og Hermann Gunnarsson fast
skot að marki, sem markvörðurinn
rétt varði. Á 23. min. náðu Valsmenn
einu af mörgum góðum upphlaupum
sinum i þessum hálfleik. Boltinn gekk
vel á milli manna, þar til honum var
loks rennt fyrir fætur Kristins Björns-
sonar, sem sendi hann I netið með
föstu skoti, sem markvörður York City
átti ekki möguleika á að verja.
Eftir þetta áttu Valsmenn a.m.k. tvö
góð marktækifæri, en tókst ekki að
nýta þau eins og til var ætlazt.
Þegar 10 min. voru til leiksloka,
sóttu Bretarnir að marki Vals frá
vinstri. Þaðan var boltanum spyrnt
fyrir markið og féll þar á útrétta hönd
Jóhannesar Eðvaldssonar, sem ætlaði
að láta hann fara aftur fyrir markið.
Finnbogason, dæmdi samstundis vita-
spyrnu á Val, sem fyrirliði York City,
Holmes, skoraði örugglega úr.
Þetta urðu lokatölur leiksins — 3:1
fyrir York City — sigur, sem var verð-
skuldaður, en þó kannski helzt til of
stór.
Valsliðið lék allt mjög vel i þessum
leik og bar enginn sérstaklega af öðr-
um. Miðjan var stundum helzt til of
opin og fengu Bretarnir að valsa um of
á þeim hluta vallarins, en i staðinn var
vörnin þéttari.
Valsmenn styrktu liðið tveim
Þrótturum — Þróttur á heimsóknina
með Val — voru það þeir Halldór
Bragason og Guðmundur Gislason.
Fékk Guðmundur að leika með i siðari
hálfleik og kom vel frá leiknum i hin-
um rauða búningi Vals.
— klp —
- UEFA-keppni unglingalandsliða hefst í Svíþjóð ó miðvikudag
Island ^ riðli með Skotum, Finnum og Rúmenum