Vísir - 10.06.1974, Side 2
2
Visir Laugardagur 8. júni 1974
risusm--
Gefur þú þér tima til líkams-
ræktar?
Sigurjón H. Guöjónsson, bilstjóri:
Ég keppti i 30 ár i sundi og sund-
knattleik. Ég sé alls ekki eftir
tlmanum, sem ég varði I það og
gegnum sundið á ég mina beztu
vini. Ég var á sjúkrahúsi, svo að
ég get ekki synt mikið núna, en
mig langar alltaf til að byrja
aftur.
Guömundur Hartmannsson, lög-
regluþjónn: Ég syndi mikið, 2-3
sinnum i viku. 1 tvo mánuði hef
ég farið i útreiðatúr á hverjum
degi. Ég fór litið á skiði i vetur,
en geri það annars oft.
Anna Hjaltadóttir, húsmóöir: Já,
ég gef mér talsverðan tima. Ég
kenni júdó á veturna. A sumrin á
ég meira fri, en æfi þó sjálf.
Hulda Ragnarsdóttir, nemi: Nei,
eiginlega ekki. Ég fer einstöku
sinnum i sund. Ég geng líka
mikið og ferðast á puttanum.
Hulda Jóhannsdóttir, verzlunar-
stjóri: Já, ég er i heilsuræktinni i
Glæsibæ þrisvar I viku. Svo hef ég
lika verið i heilsurækt Báru.
Ingi Guömundsson, skrifstofu-
maöur: Já, smávegi. Ég geri dá-
litið af æfingum sjálfur og fer i
gönguferðir einstöku sinnum.
Ólafur
Noregs-
konungur í
Vestmanna-
eyjum:
BÍLALESTIN NÁÐI
YFIR HÁLFA HEIMAEY
— þegar áhugasamir Vestmannaeyingar fylgdu Noregskonungi
eftir í skoðunarferð hans um gossvœðið
Mikill meirihluti Vest-
mannaeyinga þyrptist
niður á bryggju á
laugardagsmorguninn,
er ólafur Noregskon-
ungur sté þar á land.
Áður hafði 40-50 skipa
floti siglt á móti
konungssnekkjunni og
fylgdarskipum hennar,
og boðið konunginn vel-
kominn með þvi að
þeyta flautur sinar.
Fjöldi smábáta sigldi i
kringum bátinn sem
ferjaði konung i land.
Meðlimir úr hjálpar-
sveit skáta voru þar á
sinum björgunarbát og
veifuðu fána Vest-
mannaeyja, sem vakti
athygli, þvi hann var
álika stór og báturinn,
sem þeir voru á.
Þegar upp á bryggjuna var
komið, veifaði konungur til fólks-
ins, gekk um á bryggjunni til að
skoða og heilsa og leyfa fólkinu að
sjá sig.
Jeppar stóðu tilbúnir til aö
flytja konung og fylgdarlið hans
um eyna til að skoða það mark-
verðasta.
Bilalest fylgdi á eftir konungs-
liðinu, og voru svo margir bílar á
eftir að lá við að lestin teygði sig
yfir hálfa Heimaey.
Að vanda var Ólafur konungur
kátur og hress, og veitti hann um-
byltingunum I Eyjum mikla at-
hygli.
Uppi á hrauninu fékk hann að
gjöf frá Vestmannaeyjum
teikningar af þeim húsum, sem
áður stóðu i Kirkjubænum, nú 50
metrum undir fótum konungs.
Konungur og fylgdarlið hans
snæddi i Hótel Vestmannaeyjum i
boði bæjarstjórnar, en upp úr
hádeginu var farið niður að
bryggju aftur og konungur hélt út
i snekkju sina. Bátaflotinn fylgdi
allur á eftir og þegar komið var
vel út fyrir Bjarnarey, voru
flauturnar þeyttar I kveðjuskyni.
Þar með var þessari opinberu
heimsókn Noregskonungs á ts-
landi lokið.
Almenningur sýndi heimsókn-
inni mikinn áhuga, og þeir sem
Ólafur Noregskonungur sýndl umbyltingunum á gossvæöinu I Eyjum
mikinn áhuga. Ljósm. Visis: BG.
Konungsskipiö Norge sigldi aö hafnarmynninu I Vestmannaeyjum og
kastaöi þar akkerum. Ólafur Noregskonungur fór i land á léttbát skips-
ins. Ljósm. Visis: BG.
ætluðu að hringja til Vestmanna-
eyja þennan morgun fengu fæstir
svar. Allir voru úti við, enda gott
veður, þrátt fyrir strekking.
tslenzkir og norskir blaðamenn
ætluðu að fara til Vestmannaeyja
i boði utanrikisráðuneytisins.
En þar sem ólendandi var i
Vestmannaeyjum fyrir flugvél
Flugfélagsins, urðu þeir að láta
sér nægja að sjá hina glæsilegu
móftöku Eyjabáta úr lofti.
Liklega hefur þó enginn verið
eins vonsvikinn og einn hinna
norsku kvenkyns blaðamanna.
Hún hafði ætlað sér með
konungssnekkjunni til Noregs og
fara um borð i hana i Vestmanna-
eyjum, en komst aldrei þangað.
— ÓH/GS.
Hér verður i
A Þingvöllum er keppzt viö aö
ljúka nýrri þjónustumiöstöö fyrir
þjóöhátiöina. Er Visir átti leiö um
Þingvelli var veriö aö múra húsið
aö innan. Hjá húsameistara var
blaöinu tjáö, aö halda yröi vel á
spööunum til aö ljúka verkinu i
tima.
Reynt verður að koma húsinu á
það stig fyrir hátiðina aö það
þjóni sinum tilgangi. Ekki er hins
vegar vitað, hvort tekst að ganga
frá þvi til fullnustu.
Það er húsameistari rfkisins,
sem sér um framkvæmdir fyrir
hönd Þingvallanefndar. Þing-
vallanefnd kemur einnig til með
að reka þessa þjónustumiðstöð.
Húsið stendur á vegamótum
Gjábakkavegar og Þjóðgarðs-
vegarins og er 180 fermetrar að
stærð. Það kemur til með að hýsa
upplýsingamiðstöð, bensinsölu og
sjoppu, þar verður veiðileyfasala
og kortasala og hreinlætisaðstaða
fyrir tjaldsvæðið, sem verður á
Leirunum, rétt við húsið. -JB.