Vísir - 10.06.1974, Page 6
6
Vfsir. Mánudagur 10. jáni 1974
VISIR
Útgefandi:
Framkvæmdastjóri:
Ritstjóri:
Fréttastjóri:
Ritstjórnarfulltrúi:
Fréttastj. erl. frétta:
A*í'glýsingastjóri:
Auglýsingar:
Afgreiðsla:
Ritstjórn:
Askriftargjald 600 kr.
Reykjaprent hf.
Sveinn R. Eyjólfsson
Jónas Kristjánsson
Jón Birgir Pétursson
Haukur Helgason
Björn Bjarnason
Skúli G. Jóhannesson
Hverfisgötu 32. Simar 11660 86611
Hverfisgötu 32. Simi 86611
Siðumúla 14. Simi 86611. 7 linur
á mánuði innanlands.
t lausasölu 35 kr. eintakið. Blaðaprent hf.
Beggja handa járnið
Alþýðuflokkurinn biður nú sjálfstæðismenn
opinberlega um aðstoð i kjörklefunum 30. júni, á
þeim forsendum, að flokkurinn sé í lifshættu. Það
er óneitanlega ósvifið að biðja þannig um hlaupa-
reikning, ekki sizt þar sem Alþýðuflokkurinn er
vis til að gerast fjórða hjólið undir endurnýjaðri
vinstri stjórn eftir kosningar.
Alþýðuflokkurinn er raunar öruggur með kjör-
dæmakosna þingmenn, bæði i Reykjavik og
Reykjaneskjördæmi. Það er fráleitt, að flokk-
urinn þurrkist út af Alþingi i kosningunum, eins
og Alþýðublaðið er að reyna að gefa i skyn um
þessar mundir til að magna samúð manna með
flokknum. Menn þurfa hvorki að hlakka til né
hafa áhyggjur af andláti Alþýðuflokksins.
Talið er öruggt, að mikill fjöldi Alþýðuflokks-
manna hafi kosið Sjálfstæðisflokkinn i borgar-
stjórnarkosningunum, bæði vegna góðrar mál-
efnastöðu sjálfstæðismanna i borgarstjórn og
vegna óvinsælda Steinunnar Finnbogadóttur
meðal Alþýðuflokksfólks. Nægilega margt af
þessum kjósendum mun snúa aftur til sins heima
i alþingiskosningum til að tryggja Alþýðu-
flokknum mann i Reykjavik. Alþýðuflokkurinn
þarf þvi ekki hlaupareikning hjá sjálfstæðis-
mönnum til að koma mönnum á þing.
Hitt er svo ljóst, að enginn andstæðingur
vinstristjórnar má kasta atkvæði sinu á Alþýðu-
flokkinn. Visast er, að það atkvæði verði notað til
myndunar endurnýjaðrar vinstristjórnar með
Alþýðuflokkinn sem fjórða hjól stjórnarvagnsins.
Eina öryggið, sem kjósendur hafa gegn upp-
vakningi vinstristjórnarinnar, er fjöldastuðn-
ingur við Sjálfstæðisflokkinn, eina heilsteypta
aflið gegn vinstristjórn. Slik stjórn verður ekki
hindruð, nema sjálfstæðismenn, óháðir kjós-
endur og ungir kjósendur taki saman höndum i
þingkosningunum á sama hátt og þeir gerðu i
byggðakosningunum um daginn.
Það er jafnljóst, að enginn fylgismaður land-
varna á Islandi má kasta atkvæði sinu á Alþýðu-
flokkinn né Framsóknarflokkinn. Hinn siðar-
nefndi hefur framhald vinstristjórnar og brottför
varnarliðsins á stefnuskrá. Og hinn siðar-
nefndi hefur haft uppi tillögur um verulégan
samdrátt i varnarliðinu á Keflavikurflugvelli.
Eina öryggið, sem kjósendur hafa gegn afnámi
landvarna. á íslandi, er fjöldastuðningur við
Sjálfstæðisflokkinn, eina heilsteypta afl land-
varnamanna um þessar mundir. Varnarleysi
verður ekki hindrað, nema sjálfstæðismenn,
óháðir kjósendur og ungir kjósendur taki saman
höndum i þingkosningunum á sama hátt og þeir
gerðu i byggðakosningunum um daginn.
Kjósendur mega umfram allt ekki treysta
Alþýðuflokknum. Hann er opinn fyrir samstarfi
til vinstri og hægri, með og móti landvörnum. Sá,
sem kýs þann flokk, veit ekki, hvernig það at-
kvæði verður notað á Alþingi.
Menn vita hins vegar, að öll atkvæði Sjálf-
stæðisflokksins nýtast gegn vinstri stjórn og gegn
afnámi landvarna, hvort sem þau nýtast til fleiri
kjördæmakosinna þingmanna eða fleiri upp-
bótarþingmanna. Uppgjörið er milli Sjálfstæðis-
flokksins annars vegar og vinstri glundroðans
hins vegar.
—JK
„Stefna íslands ekki
i takt við tímann"
— Stefna sú, sem is-
lenzka rikisstjórnin
hefur fylgt og með það
markmið i huga að loka
varnarstöðinni á Kefla-
vikurflugvelli, er alls
ekki i samræmi við það,
sem er að gerast annars
staðar i heiminum.
Þannig komst dr. Nils Örvik
prófesor að orði, þegar Visir
ræddi við hann núna fyrir helgi.
örvik er Norðmaður, og hann er
prófessor í stjórnmálafræðum við
Queens University i Kingston i
Kanada, þar sem hann stjórnar
einnig rannsóknum á sviði
alþjóðlegra stjórnmála einkum
með tilliti til öryggismála. Aður
en örvik fór til starfa i Kanada,
var hann i 10 ár kennari við há-
skólann i Osló, og þar áður starf-
aði hann sem rannsóknastjóri og
pólitiskur ráðgjafi við norska
varnarmálaráðuneytið. Hann
hefur ritað fjölda bóka og greina i
blöð og timarit.
— Doktorsritgerð min fjallaði
um hnignun hlutleysisins. Ég rit-
aði hana 1953 og sætti hún þá
nokkurri gagnrýni fyrir að vera
um úreltar kenningar, þar sem
hlutleysið ætti sér fleiri fylgjend-
ur en andmælendur og vegna þess
mundi fremur vaxa en hitt. 1971
var ritgerðin endurútgefin án
nokkurra breytinga. Þótti mér
það nokkur sigur yfir andmæl-
endum minum, þvi að það eru
ekki margar fræðiritgerðir um
alþjóðamál, sem nú á timum geta
staðið af sér tuttugu ára breyt-
ingatima, en samt haldið gildi
sinu.
Nils örvik segir, að mestum
tima hafi hann varið til að skrifa
þriggja binda verk um norsk
öryggismál á árunum milli
heimsstyrjaldanna. Við spurðum
hann, hvers vegna hann væri nú á
Islandi.
— Ég vinn nú að samanburðar-
rannsókn á viðhorfum til stjórn-
mála og öryggismála á norður-
slóðum. Ég er i forystu fyrir
rannsóknahóp i Kanada, sem
athugar valdskiptinguna milli
fylkisstjórna og sambandsstjórn-
arinnar þar og hef til þess styrk
frá Donner-Canadian stofnuninni.
Segja má, að tilgangurinn með
rannsókninni sé þriþættur.
1 fyrsta lagi könnum við inn-
byrðis valdaskiptingu milli hvitra
manna, Indiána og Eskimóa á
nyrztu svæðum Kanada. Til
samanburðahumþaðefni dvaldist
ég á siðasta sumri á Grænlandi og
kannaði samband hvitra manna
og Eskimóa.
í öðru lagi beinist athygli okkar
að baráttu hagsmunahópanna i
Norður-Kanada. Hvernig hvitu
Ibúarnir þar hafa komið sér fyrir
og hvernig sambúð þeirra er hátt-
að við Indiánana, sem gera kröfu
til eignarréttar á landi á þessum
slóðum. Á siðari timum hafa sið-
an nýir aðilar komið þarna til
sögunnar, þar sem eru stóru al-
þjóðafyrirtækin eins og Imperial
Oil og Bell-símafyrirtækið, sem
leita fyrir sér um landnýtingu.
í þriðja og siðasta lagi könnum
við þjóðerniskenndina meðal ibú-
Nils örvik, prófessor f stjórnmálafræðum og sérfræöingur I öryggis-
málum. Kom til tsiands til aö safna gögnum I samanburöarrannsókn á
högum minnihlutahópa I noröurhéruðum Kanada.
Ljósm. Bragi.
„Stefna sú, sem
íslenzka ríkisstjórnin
hefur fylgt með það
markmið i huga að
loka varnarstöðinni á
Keflavíkurflugvelli, er
allsekki í samræmi við
það, sem er að gerast
annars staðar í heim-
inum".
„Með það í huga,
hvað island hefur notið
sjálfstæðis í skamman
tíma, undrast ég, að nú
skuli ríkisstjórn lands-
ins vilja loka varnar-
stöðinni,/.
Ég hef mestan áhuga á að
kynna mér islenzku stjórnmála-
flokkana og afstöðu þeirra til
alþjóðamála. Sjálfur var ég virk-
ur félagi I Verkamannaflokknum
i Noregi. Mér virðast margar
hliðstæður vera með sundrungu
flokka og samsteypu I nýja hér á
landi og I Noregi.
— En nú hefur þú einnig fjallað
mikið um öryggismál. Hefur þú
ekki kynnt þér þau efni hér á
landi?
ingur i þeim efnum hef ég fylgzt
náið með þeim árekstri, sem orð-
ið hefur milli NATO og Banda-
rikjanna annars vegar og is-
lenzku rikisstjórnarinnar hins
vegar um framtið varna á Is-
landi.
Með það i huga, hvað tsland
hefur notið sjálfstæðis i skamman
tima, undrast ég, að nú skuli
rikisstjórn landsins vilja loka
varnarstöðinni. Undrun min staf-
ar ekki sizt af þvi, að óskin um
lokunina skuli koma fram á sama
tima og Sovétrikin hafa þanið svo
mjög út veldi sitt umhverfis ís-
land. Ég verð ekki var við það, að
áhrif Bandarfkjanna hér á landi
séu á nokkurn hátt á þann veg, að
það brjóti i bága við sjálfstæði ts-
lands.
Við megum ekki gleyma þvi, að
fyrir 10 til 20 árum var Finnland i
brennipunkti sovézkra áhrifa i
þessum hluta heims. Nú er
Noregur að komast i sömu að-
anna á þessum slóðum. Einmitt
varðandi þennan þátt rannsókn-
arinnar er fróðlegt að ferðast um
tsland, Færeyjar og Grænland.
tslendingar hafa nú verið sjálf-
stæðir um þriggja áratuga skeið.
Segja má, að sjálfstæðisbarátta
Færeyinga sé komin langt á leið,
og viljinn til sjálfstæðis er að
skjóta rótum á Grænlandi.
— Sem áhugamaður um
öryggismál og gamall sérfræð-
„Nú er Noregur að
komast i sömu
aðstöðu og Finnland
var í fyrir 20 árum".