Vísir - 10.06.1974, Qupperneq 9
9
um
hugsað
tilboð
— segir Ásgeir Sigurvinsson, en tvö frönsk
knattspyrnulið í 1. deild vilja fó hann til sín
Ég hef ekki fengið
bein tilboð, en foráða-
menn tveggja félaga í
Frakklandi hafa talað við
mig og spurt, hvort ég
hafi áhuga á að koma til
þeirra þegar samningi
mínum hjá Standard
Liege er lokið á næsta ári.
Þetta eru félögin
Marseille og Nice, sem
bæði leika i frönsku 1.
deildinni.
Ég hef ekkert hugsaö um
betta enn sem komið er, enda er
nægur timi til stefnu, og ég kann
ágætlega við mig þarna hjá
Standard”.
Þetta sagði Asgeir Sigurvins-
son, knattspyrnukappi frá Vest-
mannaeyjum, sem nú er at-
vinnumaður með belgiska 1.
deildarliðinu Standard Liege, er
við spjölluðum við hannn á
Laugardalsvellinum i gær, en
þar var hann að horfa á sina
gömlu félaga leika við Fram i 1.
deild.
„Ég kom hingað heim i fri, en
fer aftur út um mánaðamótin
júni/júli, þvi þá hefjast æfingar
hjá okkur aftur af fullum
krafti.”
Hvernig vegnaði þér og liðinu
þinu i vetur?
„Okkur vegnaði ekki vel. Við
urðum i f jórða sæti i deildinni á
eftir Anderlecht, Antwerpen og
Racing, og vorum slegnir út i
þriðju umferð i bikarkeppninni.
Mér gekk vel i vetur — slapp
við teljandi meiðsli — og fékk
góða dóma i blöðunum og hjá
stjórnendum liðsins. Með
Standard eru sex útlendingar og
má aðeins nota þrjá i hverjum
leik. Ég var ekki með i fyrstu
átta leikjunum i deildinni, en lék
þann niunda og siðan tuttugu
leiki i röð án þess að vera settur
úr aðalliðinu. I þessum leikjum
skoraði ég 5 mörk.
Þá lék ég 15 aðra leiki með
aöalliðinu, bæði i bikarkeppn-
inni og i öðrum mótum, og kom
að ég held nokkuð vel út úr þeim
og skoraði slangur af mörkum.
Þegar ég frétti siðast frá
Standard, var vitað um fimm
leikmenn, sem búið var að
ákveða að selja, þar af voru
nokkrir gamlir og góðir lands-
liðsmenn, sem eru orðnir um og
yfir þritugt. Atti sýnilega að
fara að yngja upp liðið. Ég veit
ekki hvaða mannskapur kemur
fyrir utan einn Argentinumann,
sem mikill áhugi var fyrir.
Það verður gaman að fara út
aftur og sjá nýja liðið og byrja
að æfa og leika aftur. Ég kann
orðið mjög vel við mig —
sérstaklega eftir að ég gat farið
að skilja og babla eitthvað i
frönskunni — en við það opnað-
ist mér margt i þessum atvinnu-
mannabransa, sem ég hef
áhuga fyrir að kanna betur”.
— klp —
Ásgeir Sigurvinsson hélt sæti sinu i aðalliði
Standard Liege eftir að hann komst inn i það og
skoraði 5 mörk i deildarkeppninni. Bjarnleifur
tók myndina á Laugardalsvelli i gær.
„Bflastœðafótboltinn"
var Akureyringum dýr!
— Víkingur sigraði á Akureyri á laugardag með 2-0
Fyrsti leikur Akureyr-
inga á heimavelli á
þessu keppnistimabili
verður heimamönnum
varla lengi minnisstæð-
ur, nema þá helzt fyrir
PUMA
íþróttabuxur
(tvöfaldar)
verð kr. 997-1095.
* í-Ægi m
það, hvað þeirra menn
voru slakir og létu nýlið-
ana i deildinni fara illa
með sig.
Veður var heldur kalt fyrir
norðan á laugardaginn, en eins og
sönnum Vikingum sæmir, létu
gestirnir það ekki á sig fá og
kusu meira að segja að leika á
móti vindi i fyrri hálfleik.
Allur fyrri hálfleikurinn var
þófkenndur og leiðinlegur á að
horfa. Liðin skiptust á broddlaus-
um sóknum, sem ekkert kom út
úr. Vikingar áttu þó skalla i þver
slá, og Akureyringar áttu tvö góö
skot að marki. Annað varði Dið-
rik meistaralega, en hitt fór fram
hjá.
Heimamönnum óx þó örlitið
ásmegin siðast i hálfleiknum, en
voru oft rangstæðir — alls voru
þeir „handteknir” 17 sinnum fyr-
ir innan aftasta mann Vikings i
þessum leik.
Vikingarnir byrjuðu siðari hálf-
leikinn af miklum krafti og sköp-
uðu sér þegar nokkur góð tæki-
færi til að skora.
Það var þó ekki fyrr en á 25.
min hálfleiksins, sem það tókst,
og þá eftir hræðileg varnarmistök
Akureyringa.
Þeir ætluðu sér að leika hinn
fræga „bilastæðisfótbolta” eins
og Kirby þjálfari Akurnesinga
kallaði það, er hann sá þá vera að
senda boltann á milli sin á nokk-
urra fermetra svæði rétt við
markið.
Kári Kaaber komst á milli
varnarmannanna og átti auð-
velda leið inn að marki, þar sem
hann skoraði á enn auðveldari
hátt.
Eftir þetta tóku Vikingarnir öll
völd á vellinum og skoruðu sitt
annað mark skömmu fyrir leiks-
Kolombía sœkir
um HM 1986
I í
Sportvöruverzlun
Ingólfs Óskarssonár
KUppanllK M — Sbnl UTÖ — Rcyijavtk
Allt bendir nú til þess, að
Kolombia sjái um heims-
meistarakeppnina i knatt-
spyrnu eftir tólf ár — eða 1986.
Nefnd innan FIFA (alþjóða-
knattspyrnusambandsins) hef-
ur eindregið mælt með þvi, að
Kolombia fái að sjá um keppn-
ina — en hins vegar verður það
endanlega ákveðiö á ársþingi
FIFA, sem hefst i Frankfurt á
miðvikudag. Þingið er haldið i
sambandi við heimsmeistara-
keppnina i Vestur-Þýzkalandi,
sem hefstá fimmtudag með leik
heimsmeistaranna Braziliu og
Júgóslaviu.
Akveðið er, að heims-
meistarakeppnin 1978 verði háð
i Argentinu — og á Spáni 1982.
Spánn hafði aðeins einn keppi-
naut i sambandi við keppnina
1982, Júgóslaviu, og landið hefur
nú dregið tilboð sitt til baka.
Það hefur verið regla hjá
FIFA, að halda heimsmeistara-
keppnina tii skiptis i Evrópu og
Ameriku — og samkvæmt þvi
ættu möguleikar Kolombíu á
keppninni 1986 að vera mikiir —
þó svo Afrlku- eða Asiu lönd
gætu hugsaniega farið að koma
inn i myndina.
Knattspyrnusamband
Kolombiu hefur tilkynnt FIFA,
að 12 borgir i landinu hafi boðizt
til að sjá um einstaka leiki á IIM
1986 — og að iþróttaleikvangur-
inn i höfuðborginni Bogota, sem
nú tekur 60 þúsund áhorfendur,
verði stækkaður svo þar rúmist
100 þúsund áhorfendur.
lok. Kári Kaaber stóð þá allt i
einu einn og óvaldaður á mark-
teig með boltann á tánum, og
Samúel markvörður á fferðalagi
langt úti i teig. Var þvi ekkert
auðveldara fyrir hann en að
skora, sem hann og að sjálfsögðu
gerði.
Leikurinn i heild var lélegur.
Þetta var einn af verstu dögum
Akureyringa i fótboltanum, og er
þá mikið sagt. Gunnar Austfjörð
virtist að vanda vera eini maður-
inn, sem reyndi að berjast og
gera hlutina á réttan hátt ásamt
nafna sinum Blöndal i framlin-
unni. Snemma i siðari hálfleik
skiptu Akureyringar um tvo
menn. Þormóður Einarsson og
Eyjólfur Ágústsson voru teknir
útaf, en inn settir Sigurður
Lárusson og Kári Árnason. Voru
þetta undarleg skipti.
Beztur Vikinganna i þessum
leik var Kári Kaaber, sem virðist
vera mjög snjall og hættulegur
leikmaður. Þá var Gunnar
Gunnarsson einnig góður, byggði
vel upp og stjórnaði sinum mönn-
um eins og Vikingaforingja sæm-
ir.
Dómari var Grétar Norðfjörð
og dæmdi hann vel.
(HÓ-AE).
Nú puntar maður eldhúsið og matarborðið eins og I gamla
daga. Þessar eggjahænur eru mjög skemmtilegt eldhús-
skraut og um leið nytsamar — 4 stærðir.
Skólavörðustig 8 og
l.augavegi 11. (Smiðjustigsmegin )