Vísir - 14.06.1974, Blaðsíða 4
4
stokiR YieuRci-
Dokkurz
úrz tjBuyh&ria
glaesilegt úrzooL
(JtsölustaÓtr:
GEFJUN, Austurstræti
KEA, Akureyri
HERRA TÍ/KVV Laugavegi
Visir. Föstudagur 14. júni 1974
AP/NTB ?GUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MOR
Lögreglumenn standa vörö meö hunda til taks i Kuaia Lumpur, eftir
aö lögreglustjóri Malaysiu, Abdul Rahman Hashim, var skotinn til
bana af tveim mótorhjólaunglingum, þegar bifreiö hans stöövaöi
viö umferöarljós. Moröingjarnir sluppu.
Simi
SKEIFUNN115
Hagkaup auglýsir
— fyrir 17. júní
Terylenefrakkar
dömu (Trench-coat).
Verð aðeins kr.
5490.00.
Dömu- tweedjakkar
og samstæðar buxur.
Vönduð drengjasett
úr burstuðu denim.
Bróderuðu telpna-
settin komin aftur.
Herrajakkar með
belti úr burstuðu
denim.
Fullt af nýjum blúss-
um og skyrtum.
Telpna- og dömu-
bikini i úrvali.
Allt í matinn á Hagkaupsverði
Opið til kl. 10 í kvöld og húdegis
á morgun
KomiQ og gerið góð kaup
Barnahjálpin á
seinni hálfleik
Gustaf Heine-
mann, forseti V-
Þýzkalands,
sneiddi aö heims-
meistarakeppninni
i knattspyrnu i
ræðu, sem hann
flutti á Evrópu-
ráðstefnu
UNICEF, barna-
hjálpar Sameinuðu þi<
Sagði Heinemann á ráðstefnunni, að
það væri létt verk að kalla til hundruð
milljóna manna til fótboltakeppni eða
til þess að gera risaknattspyrnuvelli.
— „Stórfyrirtæki verja risafúlgum til
auglýsinga, en þau nota leikina til að
draga athyglina að framleiðslu sinni.
— Allt þetta skeður meðan milljónir
barna um heim allan lifa i fátækt og
skorti,” sagði forsetinn og átti við, að
barnahjálpin stæðist ekki samkeppni
við heimsmeistarakeppnina i fótbolta.
,,Þvi tók ég með ánægju boði ykkar
um að sitja ráðstefnuna með ykkur
hér. I Frankfurt sá ég fyrri hálfleik, en
barnahjálpin á seinni hálfleikinn.”
Eiturgufur
Um 8 þúsundir uröu aö yfirgela
heimiii sin i Norman í Oklahoma i gær,
þegar hvitar gufur bárust með golunni
fyrir byggðina frá hrugu járnbrautar-
vagna sem lent höföu út af teinunum á
miövikudagskvöid.
Gufur þessar voru fosfórus
þriklórið, sem lak úr stáltunnum, sem
höfðu verið farmur járnbrautarlestar-
innar. Um leið og efnið komst i
snertingu við andrúmsloftið breyttist
það i gufu, sem er bæði bráðeldfim, og
eins stórhætt við sprengingu, ef hún
kemst i snertingu við vatn.
125 menn sem unnu að björgunar-
störfum við lestarhrúguna, hafa orðið
að leita lækninga vegna eituráhrifa frá
gasinu.
ítölsk pólitík
í rembihnút
Giovanni Leone,
forseti Italiu,
neitaði i gærkvöldi
að taka til greina
lausnarbeiðni
stjórnar Mariano
Rumor og bað
ráðherrana að
reyna að ná
einingu innbyrðis á
nýjan leik. — Áður
hafði Leone átt 3ja
daga viðræður við
Leone forseti. stjórnmálaleiðtoga
ttaliu.
Þær viðræður leiddu ekki til annars
en að Leone gaf út yfirlýsinguna, þar
sem hann skoraði á mið- og vinstri-
flokkana, sem sátu i sam-
steypustjórninni, að reyna til hins
ýtrasta.
Rumor forsætisráðherra lagði fram
lausnarbeiðni á mánudag, þegar ráð-
herrarnir gátu ekki orðið á eitt sáttir
umbvaða tökum skyldi tekið á efna-
hagsvanda landsins, einhverjum þeim
versta siðan fyrir strið.
Nancy á spítala
Nancy Kissingcr,
kona Kissingers
utanrikisráöherra,
var lögð inn á
sjúkrahús i Was-
hington f gær til að
gangast undir rann-
sókn vegna maga-
bólgu, sem hún hefur
lcngi átt við að
striöa.
Mótmœla leik Chile
Vestur-þýzkir kommúnistar ætla sér
að hundsa i dag bann lögreglunnar við
mótmælum meðan á leik Chile og V-
Þýzkalands stendur i V-Berlin.
„Dauða yfir fasismann i Chile” og
„Niður með lögreglubannið”.... i þess-
um dúr voru áletranir á dreifibréfum,
sem i gær var útbýtt meðal 5
kommúnistafélaga, þar sem þýzki
kommúnistaflokkurinn fór i broddi
fylkingar.
Chile leikur sinn fyrsta leik i dag, og
hefur lögreglan miklar áhyggjur af að
til uppþota kunni að koma meðan á
leiknum stendur. 1000 lögregluþjónar
verða til taks við leikvanginn.
IV
I