Tíminn - 08.02.1966, Side 13
ÞRIÐJUDAGUR 8. febriiar 1966
nanaiMiiM
13
Þessa skemmtilegu mynd aS ofan tók Ijósm. Tímans, GE, frá leik FH og Dukla Prag á föstudaginn. ÞaS er
Elnar Sigurðsson, sem gerir tilraun til að skora hjá Dukla, en er hindra'ður á siðustu stundu af Duda (11) og
fékk vítakast fyrir bragðið. Ejnar Sigurðsson hefur verið valinn f lið blaðamanna gegn tilraunalandsliði á
miðvikudagskvöld.
Pressuleikur
annað kvöld
Bæði liðin hafa verið valin
Alf-Reykjavfk, mánudag.
Á miðvikudagskvöld fer fram
fyrsti pressuleikurinn í hand-
knattleik á þessu keppnistíma-
bili, en lcikurinn verður .for-
lejkur að leik Vals og SC. Leipzig
í Evrópubikarkeppni kvenna, sem
fram fer í íþróttahöllinni í
Laugardal. Landsliðsnefnd valdi
fyrir helgina tilraunalandslið, og
síðan völdu blaðamenn sitt lið.
Lið landsliðsnefndar er þann-
ig skipað:
Hjalti Einarsson, FH
Þorsteinn Björnsson, Fram,
Gunnlaugur Hjálmarsson, Fram,
Guðjón Jónsson, Frarn,,
Sigurður Einarsson, Fram,
Birgir Björnsson, FH,
Hermann Gunnarsson, Val.
Ágúst Ögmundsson, Val.
Stefán Sandholt, Val.
Karl Jóhannsson, KR;
Hörður Kristinsson, Ármanni:
Lið blaðamanna:
Karl M. Jónsson, FH
Jón Breiðfjörð, Val
Einar Sigurðsson, FH
Sigurður Óskarsson, KR
Matthías Ásgeirsson, Haukum
Örn Hallsteinsson, FH ,
Páll Eiríksson, FH
Stefán Jónsson, Haukum
Bergur Guðnason, Val
Tilraunin heppnaöist í flestu vel
Dukla Prag sigldi fram úr á síðustu mín. og vann ísl. tilraunaliðið 18:16.
Alf-Reykjavík, mánudag.
S.l. laugardag lék ísl. tilrauna-
landslið í handknattleik gegn tékk
nesku meisturunum Dukia Prag í
íþróttahöllinni í Laugardal. Svo
fóru leikar, að Tékkarnir unnu
með 2ja marka mun, 18:16, eftir
tvísýna baráttu. fsl. liðið hafði
forustu mest allan síðari hálfleik,
en á síðustu mínútunum sigldu
Tékkarnir fram úr og unnu með
18:16, eins og fyrr segir.
í heild má segja, að þetta til-
raunalð landsliðsnefndar hafi
komið vel frá leiknum. Hermann
Engarupp
lýsingar!
Alf-Rvík, mánudag.
Það er á miðvikudaginn
kemur, sem kvennalið Vals
mætir á-þýzku meisturun-
um frá Leipzig í Evrópubik
arkcppninni í handknattleik
en leikurinn fer fram í
íþróttahöllinni í Laugardal.
f dag boðuðu forráða-
menn handknattleiksdeildar
Vals blaðamenn á sinn fund
og höfðu í hyggju að gefa
einhverjar upplýsingar um
þýzka liðið. En þegar til
kom, höfðu Þjóðverjar svik-
izt um að senda upplýsing-
ar, svo að Valsmenn gátu
ekki frætt blaðamenn um
neitt varðandi þýzka liðið,
Eramhald 3 14. svðu
Gunnarsson sýndi og sannaði í
þessum leik, að hann á fyllilega
skilið sæti í landsliði og sömu
sögu er að segja um Guðjón Jóns-
son. Verst er, ef Hermann þarf
að leggja handknattleiksskóna á
hilluna, eins og hann hefur hugs-
að sér, vegna náms og annarra
anna. Tilraunin með Sigurð Dags-
son og Stefán Jónsson tókst hins
vegar ekki eins vel, og það er
greinilegt, að þeir koma ekki til
með að íklæðast fsl. landsliðs-
peysunum gegn Póiverjum.
Fyrst ég á annað borð er far-
inn að ræða um veiku hliðina á
tilraunaliðinu í leiknum, verður
að telja þá félaga Ragnar Jóns-
son og Birgir Björnsson með.
Ragnar er meiddur í hendi og á
helzt ekki að leika handknattleik
undir þeim kringumstæðum, enda
J
Handboltinn
um hetgina
1
Um helgina fóru nokkrir leikir
fram í íslandsmótinu í handknatt-
leik. Úrslit urðu þessi á laugar-
dag: 2. fl. kvenna: Akranes—KR
6:3, Fram—Þór 10:2. 1. fl. kvenna:
Valur—Víkingur 10:2, Fram—FH
3:2. 1 fl. karla: Víkingur—Valur
13:10, Fram—ÍR 27:9, KR—Ár-
mann 13:7.
Úrslit á sunnudag: 2. fl. kvenna:
Akranes—Keflavík 6:1, KR—Þór
8:6, Valur—Týr 14:4. 2. deild
kvenna: Keflavík—Þór 15:10. 3.
fl. karla: Valur—Breiðablik 16:9,
2. fl. karla: Fram—ÍR 16:14, Vík-
ingur—Þróttur 17:13.
fór svo í þetta skipti, að enginn
styrkur var af honum. Og Birgir
Björnsson var ekki í essinu sínu.
Hann tafði fyrir í sóknarleiknum
og var yfirleitt of seinn í vörn.
Það er leiðinlegur ávani — eftir
að hafa misst knöttinn, eins og
henti Birgir — að vera með kúnst-
ir frammi á vellinum í staðinn
fyrir að koma sér strax aftur í
vörnina á sinn stað. En sjálfsagt
á Birgir eftir að ná sér á strik
í leiknum á miðvikudag.
Leikmennimir, sem báru hjta
og þunga dagsins, voru þeir Gunn
laugur Hjálmarsson, Guðjón Jóns-
son, Hermann Gunnarsson, og
Hörður Kristinsson. Allir þessir
leikmenn sýndu mjög góðan leik
og þeir skoruðu öll mörk ísl.
liðsins. Þá var Sigurður Einars-
son, iðinn á línunni og fiskaði
víti. Þorsteinn í markinu stóð sig
einnig vel. Það er greinilegt, að
Guðjón á heima í landsliðinu, ef
hann leikur af svipuðum styrk-
leika og á laugardaginn, en þá
skoraði hann 3 ágæt mörk á
heppilegum augnablikum og
hafði sívakandi auga fyrir línu-
sendingum, en það var einmitt
línuspilið, sem Tékkunum tókst
einna verst að verjast, og var
þeim dýrkeypt vegna vítakasta,
sem þeir fengu dæmd á sig.
Til að byrja með náði Dukla
Prag forystu, 3:0, en ísl. liðinu
tókst að jafna á 15 mín. 3:3,
Framhald á bls. 14.
íslandsmótið í körfubolta hafið:
Armann og ÍR sigruðu
í 1. deildar leikjunum
íslandsmótið I körfuknatt-
leik hófst sl. laugardag að Há-
logalandi. Fyrsti leikur mótsins
var milli utanbæjarliðanna Skarp
héðins og Snæfells og sigraði
Skarpi.éðinn mef 72:60 í góðum
leik. Virðast þeir Skarphéð-
insmenn liklegir til afreka á þessu
keppnistímabiii, þó varasamt sé,
að spá nokkru í byrjun móts.
Á laugardaginn léku svo Ár-
mann og ÍKF og sigraði Ármann
með aðeins fjögurra stiga mun,
54:60.
Á sunnudagskvöld hélt mótið
áfram jg léku þá fyrst í 2. deild
stúdentar og Snæfell. Sigruðu
stúdentar með 71:56. Síðasti leik-
urinn var milli nýbakaðra Rvík-
urmeistara, KFR, og ÍR. Urðu
Rvíkurmeistararnir að lúta í
lægra haldi, en ÍR sigraði með 5
stiga mun í skemmtilegum leik,
sem lauk 81:76.
Gylfi Jóhannesson, Fram
Þórarinn Ólafsson, Víking.
Þess má geta, að Ragnar Jóns-
son, FH, er forfallaður vegna
meiðsla og kom því ekki til greina
í sambandi við valið.
Úrslit á Englandi og Skotlandi
s. 1. laugardag:
1. deild.
Arsenal—Burnley 1:1
Blackburn—Liverpool 1:4
Blackpool—Tottenham 0:0
Chelsea—Fulham 2:1
Everton—Stoke 2:1
Leeds—West Ham 5:0
Leicester—Aston Villa 2:1
Manch. Utd.—Northampton 6:2
Newcastle—Sheff. W. 2:0
Sheff. Utd.—Sunderland 2:2
WBA—Nottingham F. 5:3
Liverpool er efst í deildinni með
43 stig eftir 29 leiki, en Burnley
er í öðru sæti með 37 stig eftir
28 leiki.
2. deild:
Birmingham—Preston 1:1
Bolton—Plymouth 0:1
Bristol—Manch. C. 1:1
Carlisle—Wolves 2!1
Coventry—Rotherham 2:2
Derby—Bury 4:1
Ipswich—Charlton 1:4
Leyton O.—Cristal P. 0:2
Middlesbro—Huddersfield 1:3
Portsmouth—Southampton 2:5
Á Skotlandi var 1. umferð bik-
arkeppninnar leikin. Fresta varð
nokkrum leikjum, en hér koma
úrslitin í þeim leikjum, sem fram
fóru:
Ayr—St. Johnstone 1:1
Celtic—Stranraer 4:0
Dunfermline—Partick 3:1
Hamilton—Aberdeen 1:3
Hibernian—Th. Lanark 4:3
Morton—Kilmarnock 1:1
Queen O. South—Albion 3:0
Rangers—Airdrie 5:1
Stirling—Queens Park 3:1
Valur
ogFH
unnu
í gærkveldi fóru fram tveir
lcikir i 1. deild fslandsmótsins í
handknattleik. í fyrri leiknum
mættust Valur og KR, og sigraði
Valur 34:25 eftir að hafa haft yfir
í hálfleik 18—12.
í síðari leiknum léku FH og
Ármapn og sigraði FH 30—25, en
í hálfleik hafði Ármann yfir 16:15.
Nánar um leikina á morsmn.
i