Tíminn - 14.04.1966, Blaðsíða 1
Auglýsing í Tfmammi
cemnr dagiega fyrir aagu
80—100 þósond lesendi
83. tbl. — Fimmtudagur 14. apríl 1966 — 50. árg.
Andvígir
sprengju
Mikill fjöldi manna tók þátt í hinni árlegu Páskagöngu sam-
taka þeirra, sem vinna að útrýmingu kjarnorkuvopna, CND, í
Bretlandi, en slíkar göngur fóru einnig fram í öðrum löndum,
m.a. í Vestur-Þýzkalandi. I Bretlandi var gengið frá High Wy-
combe í Buckinghamshire til Trafalgar-torgsins í London, en sú
ganga tók þrjá daga. Meðal þeirra, sem í gönguna fóru, voru 12
hinna nýju þingmanna brezka Verkamannaflokksins. Myndin hér
að neðan er frá Trafalgar-torgi og sýnir lögregluna í átökum við
nok'kra göngumenn.
SAMEINAST UM
FRAMBODA SEL
TJARNARNESI
Alþýðubandalag Seltjarnarness, Alþýðuflokksfélag Sel-
tjarnarness og Framsóknarfélag Seltjarnarness standa sam-
eiginlega aS „Lista frjálslyndra kjósenda" í Seltjarnarnes-
hreppi við sveitastjórnarkosningarnar í maí 1966. Listinn er
svohljóðandi:
son, kompásasmiður, Þórsmörk.
Til vara: Ágúsí Jónsson, kaupmað-
ur, Melabraut 12.
Umboðsmaður listans er Jón
Grétar Sigurðsson, lögfræðingur,
Melabraut 3.
1. Jóhannes Sölvason, viðskipta-
fræðingur, Lindarbraut 2.
'2. Sveinbjörn Jónsson, fram-
kvæmdastjóri, Vallarbraut 16.
3. Sigurður Jónasson, múrari,
Lindarbraut 6.
4. Óskar Halldórsson, cand. mag.,
Miðbraut 10.
5. Auður Guðmundsdóttir, hús-
freyja, Bergi.
6. Gunnlaugur Árnason, verkstj.,
Melabraut 40.
7. Sigurður Jónsson, kaupmaður,
Melabraut 57.
8. Njáll Þorsteinsson, framkv.stj.,
Miðbraut 11.
9. Ásgeir Sigurgeirsson, kennari,
Melabraut 47.
10. Konráð Gíslason, kompása-
smiður, Þórsmörk.
Til sýslunefndar: Konráð Gísla-
f
Búddatrúarmenn: Kosn-
ingar eða meiri aðgerðir
NTB-Saigon, miðvikudag.
Áreiðanlegar heimildir segja, aff
samtök Búddatrúarmanna í Suð-
Þyrpast til
„töfralækn-
is“ í Svíþjóð
NTB—Stokkhólmi, miffvikudag.
Rúmlega 1000 stuffningsmenn
sænska „töfralæknisins“ Elis Sand
bergs komu i dag til Stokkhólms
í strætisvögnum, einkabílum, lest
um og flugvélum til þess að biðja
stjórnmálaflokkana að stöðva þaff
sem þeir kalla ofsóknir heilbrigð-
isyfirvaldanna á hendur Sandberg.
Var Tage Erlander, forsætisráff-
herra, og affrir flokksleiðtogar,
beffnir um að koma á hlutlausri
vísindalegri rannsókn á „allra-
meina-bót“ Sandbergs, sem Thym-
usextract (THX) kallast, og áhrif
þess á krabbamein og aðra sjúk-
dóma.
Heilbrigðisyfirvöldin hafa oft-
sinnis fordæmt mjög ákveðið með
al þetta og eins það, hvernig
þessi fyrrverandi dýralæknir með-
höndlar sjúklinga sína.
ur-Víetnam hafi ákveðið að sitja
á síffasta fundi „Þjóðarráðstefn-
unnar,“ sem Nguyen Cao Ky hers-
höfðingi hefur kallað saman í
Saigon, á fimmtudaginn og krefj-
ast þess þar, að samþykkt verffi
yfirlýsing, sem ákveði almennar
kosningar í Iandinu innan 4—6
mánaða. Ef fulltrúar stjórnar Kys
fallist ekki á þetta, muni Búdda-
trúarmenn hefja vífftækar mót-
mælaaffgerffir gegn ríkisstjórninni
m.a. með fjöldafundi í höfuffborg-
inni, Saigon, á fimmtudaginn.
Áður hafa samtök Búddatrúar-
manna neitað að sitja á ráðstefnu
þessari, en nú hafa þeir breytt
um skoðun. Segja heimildirnar,
að leiðtogar Búddatrúarmanna
hafi gert það vegna þei'rra há-
væru krafa, sem fram hafa kom-
ið á ráðstefnunni, um að kosn-
ingar verði haldnar fljótlega. Ka-
þólskir menn hafa einnig haldið
sig utan við ráðstefnuna, en
munu leiðtogar þeirra einnig reiðu
búnir að sitja lokafundinn á morg
un.
Þessar sömu heimildir segja, að
þeir 92 fulltrúar, sem ráðstefn-
una sitja, hafi í dag orðið óform-
lega sammála um að fara þess
á leit við stjórn Kys að almenn-
ar kosningar verði haldnar innan
sex mánaða Var síðan ákveðið að
halda síðasta fundinn í fyrramál-
ið, en upphaflega átti hann að
vera annað kvöld.
Ky hershöfðingi, sem að sögn
er sannfærður um að stjórn hans
muni lifa af andstöðuna, hefur í
kyrrþey flutt meira en eina her-
sveit hermanna og lögreglumanna
til Saigon.
Hermenn Víetcong gerðu aftur
í kvöld árás á Saigon, aðeins
nokkrum klukkustundum eftir ár-
ásina á flugvöll rétt utan við höf-
uðborgina í morgun, en þar fór-
ust átta menn og margir særð-
ust, en um 30 flugvélar eyðilögð-
ust eða skemmdust. Þessi síðasta
árás var gerð á tvær lögreglustöðv-
ar.
Bandaríkjamenn gerðu enn í
dag loftárásir á Norður-Víetnam,
og var ein flugvél þeirra skotin
niður með sovézkri eldflaug. Flug-
mannsins er ^aknað.
Könnunarflugvél flaug í dag yf-
ir Mugia-leiðina. en um þá leið,
sem er rétt við landamæri Laos
og Suður-Víetnam, hafa hermenn
Framhald a 14. síðu.
Flensan
geisar í
borginni
FB—Reykjavík, miðvikud.
Samkvæmt upplýsingum
Björns Önundarsonar, að-
stoðarlæknis borgarlæknis-
ins er talið líklegt að flensa
sú, sem herjað hefur Reyk-
víkinga að undanförnu sé
nú í hámarki. Björn tjáði
blaðinu í dag, að ekki neíðu
verið teknar saman tölur
um flensusjúklinga nú síð-
ustu daga, enda yrðu það
ekki tæmandi tölur, því að
margir lægju heima án þess
að sækja lækni, nú þegar
vitað væri, að flensa væri
að ganga. Verið er að
kanna af hvaða stofni flens
an er, og fyrr er ekki hægt
að skera úr um það, hvorr
hér kunni að vera um sama
stofn að ræða og flensuna,
sem gekk í Bretlandi og á
Framhald á 14. sfðu.
VILJA KAUPA JOHNSON
BAN DARÍ KJAFORSETA!
NTB-Port Moresby, miðvikudag.
Sérstæð dýrkun á Johnson
Bandaríkjaforseta meðal íbúa eyj-
unnar New Hanover í Nýju-Gui-
neu hefur valdiff áströlskum yfir-
völdum ýmis konar vandræffum,
og í dag var tilkynnt, að ákveð-
iff hefffi verið aff senda hersveit
til eyjunnar sem tilraun til þess
aff kveða LBJ-dýrkunina niffur.
íbúar eyjunnar hafa m.a. neit-
að að greiða skatta. í stað þess
setja þeir peninga í sjóð, sem
nota á til þess að kaupa Johnson
forseta og gera hann að æðsta
manni eyjunnar í fyrra gengu
íbúarnir svo langt, að þeir sendu
fyrstu afborgunina til trúboða
eins þar í nágrenninu!
Talið er, að rúmlega 2000
þeirra 7000. sem búa á eyjunni,
taki þátt í þessari óvenjulegi dýrk
un á bandaríska forsetanum. Er
dýrkun þessi tveggja ára gömul,
og komst að öllum likindum á
fót þegar oandarískir vísinda-
menn komu til eyjunnar, en þeir
fóru mjög lofsamlegum orðum
um forseta sinn.
Margir íbúanna hafa neitað að
taka þátt í kosningum, nema að
nafn Johnsons verði á kjörseðlin-
um. Rúmlega 500 hafa verið hand
teknir og settir í fangelsi fyrir að
neita að greiða skatta sína.
Yfirvöldin hafa enn ekki getað
kæft hreyfingu þessa, en nú á
sem sagt að gera nýja tilraun.
Verður hersveit í hátíðarbúningi.
: og með eigin sekkjapípu-hljóm-
1 Framhald á 14. síðu.