Tíminn - 14.04.1966, Page 9
:
llifií.
: : : ' ■
' ■ 'V;
■ : :
Fóstbræður, elzta söngfélag landsins, 50 ára:
SUNGU FYRST í BÁRUBÚÐ, SÍÐAN
í SEX SÖNGFERÐIR TIL ÚTLANDA
Sá kór, er á að baki lengsta
samfellda starfssögu íslenzkra
bóra, Karlakórinn Fóstbræður,
minnist hálfrar aldar afmælis síns
með samsön'gvuim í Austurbæjar
bíói sunnudaginn 17., mánudaginn
18. og þriðjudaginn 19. þ. m. En
raunar hefst afmælisrátíðin með
sérstökum einsöngvara-konsert í
Austurbæjarbíói laugardaginn 16.
apríl, svo sem nánar greinir frá
í annarri fregn hér í blaðinu í
gær. En síðasta vetrardag verður
loks afmælisins minnzt með veg-
legu hófi að Hótel Sögu.
Eins og mörgum mun kunnugt,
rekur Karlakórinn Fótsbræður
upphaf sitt til Kristilegs félags
ungra manna í Reykjavík, og
bar nafnið „Karlakór K.F.TJ.M."
fram til ársins 1936, en tildrögin
að stofnun kórsins voru f fáum
orðum þesisi:
Innan K.F.U.M. var töiuvert
sönglíf og voru þar margir góðir
raddmenn. Fjórir þeirra stofnuðu
kvartett á árunum 1909—19.10, og
skyldi hann einkum syngja liinum
yngri félögum K.F.U.M. til
skemmtunar. Kvartettsöngvarar
þessir voru þeir Sigurbjörn Þor-
kelsson, síðar kaupmaður í Vísi,
Karlakórinn FóstbræSur, fremst sitja einsöngvarar, undirleikarl og söngstjóri, Erlingur Vlgfússon (tenór), Carl
Billich píanóleikari, Ragnar Björnsson stjórnandi og Kristinn Haltsson (bassi).
Loftur Guðmundsson, síðar ljós-
myndari, Stefán Ólafsson, síðar
vatnsveitustjóri á Akureyri og
Hallur Þorleifsson aðalbókari,
hinn kunni karlakórsmaður og
söngstjóri. — Fyrirmyndin að
þessari kvartettstofnun var hins
vegar kvartettinn „Fóstbræður",
sem áður hafði haldið uppi söng
starfsemi í Reykjavík við miklar
vinsældir.
En árið 1911 var stofnað söng
Útlitsteikning af fyrirhuguðu félagsheimili Fóstbræðra á horni Langholtsvegar og Drekavogar.
félag innan K.F.U.M. og starfaði
það þar til í lo-k árs 1915 Þetta
söngfélag starfaði eingöngu ínnan
vébanda K.F.U.M. og voru stjórn
endur þess á víxl þeir Halldór
Jónsson cand. phil., Hallgrímur
Þorsteinsson og Jón Snædal. Það
stóð þessu söngfélagi mest fyrir
þrifum, að það fékk aldrei fasran
söngstjóra. Það lagðist því niður í
árslok 1915, sem fyrr segir. en
ýmsir félagsmenn vildu fyrir
hvern mun koma á fót nýjum kór
og fá'fastan söngstjóra. Þeir menn,
sem einkum beittu sér fyrir stofn
un kórsins voru þeir Hallur Þor
leifsson, Hafliði Helgason og Jón
Guðmundsson. Á árinu 1916 fóru
þeir þess á leit við Jón Halldórs-
son, bankagjaldkera, að hann tæki
að sér að stjórna nýjum söng-
flojcki. og lofaði hann að taka
þetta að sér til bráðabirgða i 1
ár. Var nú leitað til líklegra söng
manna. bæði úr hinu gamla fé-
lagi og annarra og gekk það að
óskum. Félagið var stofnað og
fyrsti foxmaður þess kjörinn Vig-
fús Guðbrandsson klæðskerameist
ari, ritari Haraldur Sigurðsson
verzlunaranaður og gjaldkeri Guð
mundur Bjarnason klæðskera-
meistari. Kórinn var eingöngu
síkipaður mönnum, sem voru fé-
lagar í K.F.U.M. og var í fyrstu
til þess ætlazt, að ekki yrðu aðrir
í félaginu en K.F.U.M.-menn. Þetta
breyttist þó fljótlega, eða árið
1924, en þá heimilaði framkvæmda
stjóri K.F.U.M. að aðrir mættu í
kórnum vera en innanfélagsmenn,
þótt hann bæri þetta nafn. Tengsl
in við K.F.U.M. rofnuðu að fuilu
árið 1936, er nafni kórsins var
breytt í „Karlakórinn Fóstbræð-
ur“.
Þessi þróun var mjöð eðlileg
vegna þeirrar stefnu, sem kór-
starfsemin tók snemma, sem sé
að efna til opinberra söngskemmt
ana í Reykjavík. Kórstarfsemin
fjarlægðist því fljótt hið uppruna
lega markmið, að vera til gleð-
skapar innan eins ákveðins fé-
lagssikapar, en vildi hins vegar
leitast við að skemmta öllum bæj-
arbúum höfuðstaðarins með árleg-
um söngskemmtunum. Það mun
ekki sízt hafa verið vilji söng
stjórans, Jóns Halldórssonar, að
keppt yrði að því að halda uppi
góðum kórsöng fyrir almennin-g,
og fór svo, að þegar vorið eftir
stofnun kórsins, eða hinn 25. marz
1917, var söngskemmtun haldin f
Bárubúð.
Síðan hefur kórinn starfað
óslitið og haldið opinbera sam
söngva í Reykjavík á hverju ári,
en auk þess farið fjölda söng-
ferða innanlands og sex sinnum til
útlanda, seinast til Finnlands og
Sovétríkjanna haustið 1961. —
Enn má þess geta hér, að fyrsta
hljóðritun með söng bórsins var
gerð árið 1929, og mun vera hin
elzta sinnar tegundar hér á landi.
Söngmenn úr Fóstbræðrum tóku
þátt í fyrstu óperu- og óperettu-
sýningum Þjóðleikhússins, „Rigo
letto“ og „Leðurblökunni". Þá
tóku Fóstbræður og þátt í flutningi
óperunnar „II Trovatore" árið
1956.
Tvívegis hefur kórinn komið
fram á tónleikum Sinfóníuhljóm
sveitar íslands. í fyrra sinnið í
febrúar 1963, er flutt var „Völu-
spá“ eftir J. P. E. Hartmann, und
ir stjóm Ragnars Björnssonar. En
á sinfóníuhljómleikum í Háskóla
bíói hinn 24. marz s. 1. fluttu
Fóstbræður ásamt hljómsveitinni
„Stríðsmessu" eftir B. Martinu,
undir stjóm Bohdan Wodiczko.
Sem fyrr getur, er aldur kórsins
talinn frá árinu 1916, er Jón
Halldórsson tók að sér söngstjórn
hans. Jón stýrði síðan kómum
við mikinn orðstír f samfleytt 34
ár, eða fram til ársins 1950. Verð
ur Jóns Halldórssonar æfinlega
minnzt sem einhvers glæsilegasta
og mikilhæfasta stjómanda, sem
starfað hefur að söngstjórn hér á
landi.
Er Jón Halldórsson lét af stjórn
Fóstbræðra árið 1950, þá rúmlega
sextugur að aldri, tók við söng
stjórninni Jón Þórarinsson tón-
skáld. Stýrði hann kórnum í 4
ár, og var m. a. stjórnandi hans
í mikilli söngför til meginlands
Evrópu og Bretlands, sem farin
var haustið 1954.
Frá árinu 1955 hefur Ragnar
Björnsson verið söngstjóri kórsins,
þar til nú í vetur, er hann dvelst
ytra við framhaldsnám, en Jón
Þórarinsson tók þá söngstjómina
að sér öðru sinni, og er hann aðal
stjórnandi kórsins á afmælissam-
söngvunum. Ragnar Björnsson hef
ur þó skroppið hingað heim í 111
efni af afmælinu og mun hann
stjórna hluta söngskrárinnar. m.
a. nýju lagi eftir sig sjálfan.
Þá verður og frumflutt nýtt lag
eftir Jón Þórarinsson, undir
stjórn höfundar. Af öðru íslenzku
efni á söngskránni má nefna lög
eftir Sveinbjörn Sveinbjörnsson,
Framhald á 14. sfðu.
FIMMTUDAGUR 14. aprfl 1966
Gamlir FóstbræSur eftir æfíngu fyrir 50 ára afmælið. Þeirra á meSal eru nokkrir af stofnendunum. En víðfrægastur í þessum hópi mun vcra
Einar Kristjánsson óperusöngvari, sem syngur 2. tenór á afmælistónleikunum.