Vísir - 17.08.1974, Qupperneq 5
Visir. Laugardagur 17. ágúst 1974,
5
ERLEND MYNDSJÁ
Umsjón: BB/GP
Fantareið á
háhyrningi >
t Ohio-rlki I Bandarlkjunum eiga þeir Sædýrasafn, þar sem hann
starfar, hvalaþjálfarinn Bill Stratton. Bíll þessi og háhyrningurinn
hans, hann Shamu, hafa vakið feikna athygli, þvl að þeir skemmta
gestum dýrasafnsins með miklum buslugangi I hvalalauginni. —
Myndin hér við hliðina er tekin af Bill rlðandi á Shamu, og er Shamu á
leiðinni að stinga sér til botns. Þeir eru annars nokkrir félagar Bills,
sem sitja Shamu til skiptanna, þvl að það er ekki laust við að vera ögn
lýjandi að sitja á 2 smálesta hval.
Línu-
dans
Heilsulind
Trúaðir menn I Frakklandi
halda þvi fram, að Lind heilagr-
ar Jóhönnu sé mikil heilsulind,
og þar hafi margur fengið bót
meina sinna, eftir hressilegt
bað. Nýlega brá Frakklandsfor-
seti, Valery Giscard D ’Estaing
sér I lindina I sumarleyfi sinu,
en hann á bústað skammt þarna
frá. Ekki fylgir sögunni, að
hann. sé neitt heilsutæpur eða
trúaður á helgisögnina.
Ungi maðurinn á myndunum
hér til vinstri og að ofan vakti
heimsathygli I vikunni, þegar
hann gekk á línu milli skýja-
kljúfa I New York. Birtust
myndiraf honum I flestum blöö-
um heims, eins og þessi við fest-
ingarnar á linunni uppi á 1350
feta hárri World Trade Center.
Hann heitir Philippe Petit, er
25 ára og franskur að þjóðerni.
Petit (sem er annars franska
yfir lltill) hyggur á stærri sigra.
Hann hefur sótt um leyfi til þess
að ganga á streng yfir Niagara-
fossa. Umsóknin er til athugun-
ar og biður hann niðurstöðu
hennar. A efri myndinni sést
Petit virða fyrir sér næsta verk-
efni sitt.
■'Jfc
|
-
'>y,
Kattar-
drottn-
ing USA
Megum við kynna kattar-
drottningu Bandarikjanna. Hún
heitir Shanghai og er Slams-
köttur. Myndin var tekin af
henni, þegar hún var krýnd að
lokinni mikilli kattarsam-
keppni, sem fram fór á Miami
Beach — hvar annars — núna á
dögunum.
Nixon ó
hilluna
Það er engu likara en einhver
örvæntingarsvipur sé kominn á
vaxmyndina af Nixon, sem ný-
lega var fjarlægð úr sýningar-
básum vaxmyndasafnsins Mad-
ame Tussaud I Lundúnum.
Myndinni var komið fyrir i stál-
kofforti og hún flutt I geymslu,
þar sem hún er lögð á hilluna.
Ekki liggja þar fyrir nein leið-
indi. Fleiri mætir menn liafa
mátt fara þangað og biða þess,
að rykið verði cinhvern tlma
dustað af þeim aftur.