Vísir - 17.08.1974, Blaðsíða 7

Vísir - 17.08.1974, Blaðsíða 7
Vísir. Laugardagur 17. ágúst 1974. 7 „Pabbi hefur tekið frá mér Andrés Önd" — Teiknimyndablöðin seljast í milljónaupplagi — og eru mest lesin af hinum fullorðnu Hafið þið lesið Andrés önd blöðin eða Daffy vel þessa viku? Fylgdust þið sam- vizkusamlega með, hvað Binni og Pinni voru að gera, eða hvað gerðist hjá Kruila? Hvað um Tarzan, Skugga eða Lisu og Láka? Margt bendir til þess, að þið létuö ekki bara börnin um það. Þaö hefur nefnilega komið i ljós við rannsókn, að hinir hundruð þúsunda lesenda teiknimynda blaöanna eru fullorðnir, það er að segja fólk milli tvitugs og fimmtugs. Þeir gleypa hinar svokölluðu teikniseriur i sig meö enn meiri áfergju en börn- in. Þetta segir bókaforlag i Dan- mörku, sem sendir út fréttatil- kynningar, þetta segja bóka- kaupmenn, kaupmenn i sölu- turnum og bókaveröir. Og viö getum vafalaust talað um ls- lendinga á sama hátt og Dani I þessu tilfelli, að minnsta kosti seljast stór upplög af teikni- myndablöðum. Ef við vikjum að Dönum i þessu tilfelli, þá segja þeir, aö þessi þrá hjá lesendum á þessu sviði sé svo einstæð, að það virðist gefa mynd af tiðar- andanum i dag og fólkinu á þvi herrans ári 1974. 1 framtiðinni fáum við ef til vill heilan her- skara af djúpt hugsandi sál- fræðingum (eða kannski heldur geðlæknum) til að gefa svör á þessum sérkennilega smekk fólks i vali á lestrarefni. Milljónaupplag Enginn þarf heldur að vera án teiknimyndablaðanna. Þar eru margir um boðið, en Andrés önd er langefstur með 210 þús. blöð á viku, og bók um Andrés önd kemur út á hverju ári I 150 þús. eintökum, og Tinnabók kemur út á hverju ári i 250 þús. eintökum. Eitt af forlögunum sem gefur út teiknimyndablöð, sendi út spurningarlista i sambandi við slik blöð. Þeir fengu ótrúlega mörg svör og ekki svo fá frá vel menntuöum mönnum en aðeins 1/8 af þeim sem svöruðu voru konur.. Það sýndi sig á þessu sem á öðru að flestir, sem lesa blöðin eru á aldrinum 20—45 ára. Engin tekur þetta samt sem tölfræðilega heimild, en það bendir á ásamt mörgu öðru, hvað það eru margir i heimi hinna fullorðnu, sem gaman hafa af svona lesningu. Þessi blöð, sem eru vissulega skemmtileg, eru auðvitað lika mjög mikið lesin af unglingum og börnum nokkru yngri en voru minnst lesin af ungum krökk- um. Hin nýja æskumenning A meðal blaðaútgefenda finnast þeir, sem segja blygðunarlaust: — Salan minnkar auðvitað eitthvað út af háu verði á papplr og vegna minnkandi kaupgetu viðskiptavinanna, en teikni- myndablöðin eru að verða að áhrifamiklum hluta i menningu æskunnar á sama hátt og kúrekabuxur eru orðnar hluti af tizku ungmenna. Teiknimynda- blöðin munu vinna mikið á og verða stærri og stærri hluti af útgáfu barnabóka. Aldrei hefur verið meira um góðar barnabækur i Danmörku en nú. Ein af þeim, sem er talin afbragðs bók, er einmitt eftir Per Carlsen, sama höfund og skrifar Tinnabækurnar vinsælu, sem fluttar eru út frá Dan- mörku og þýddar á mörg tungu- mál. —EVI Fullorðnir eru æstir i framhaldsblöð Það merkilega við þetta er, að á sama tima geta Danir (og við íslendingar liká) valið úr góöum bókum á öllum sviðum. Og nú eins og undanfarin ár eru bækurnar keyptar af nokkuð þeim sömu og slappa af eða fylgjast spenntir með teikni- mynda blöðunum. Það eru áreiðanlegar heimildir til fyrir þvi, að pabbarnir eru fljótari en börnin að næla sér I Andrés önd eða Tinna og sökkva sér niður I blöðin, sitjandí i góðum hægindastól og hætta ekki fyrr lestrinum en blaðið er á enda. Siðan hugsa þeir um frétt- ir af Nixon, skattana og hvernig eigi að spara. OFT ÍR VANDI AÐ IIFA Láttu ganga Ijóóaskrá Menn virðast hafa haft allt annað að gera i sumarfriinu en að setja saman stökur og senda þættinum. Það er svo sem vel skiljanlegt, að þegar menn eru komnir i nána snert- ingu við náttúruna, detti þeim flest annað i hug en yrkingar. Þá er það ættjörðin, sem á hug þeirra allan. Sumir njóta hennar út um bilgluggann, öðrum finnst betra að þreifa á henni. Böðvar Guðlaugsson yrkir Ættjarðar- kvæði. Fullur af ættjarðarelsku um þina móa og börð fer ég á ýmsum endum, ástkæra fósturjörð. A tólf hundruð metra tindi timunum saman ég dvel. Þar skal min föðurlandsfegurð filmuð á Kodak-vél. Teyga ég landsins töfra, til dæmis liti og hljóm röitandi um ryðbrún holtin á reimuðum strigaskóm. Endiiangur i lautu leggst ég sem bleikur nár. Hrynja oni kræklótt kjarrið koniaksbiandin tár. Upp ris ég bráöum aftur, ek mér og sletti i góm. Þá er föðuriandsástin orðin sem afskorið stofublóm. Menn þreyta sig á fjallgöngum og hafa gaman af. Þórarinn Sveinsson má sækja á brattann án þess aö hafa sóst eftir þvi. örðugan ég átti gang, yfir hraun og klungur. Einatt lá mér fjall i fang frá þvl ég var ungur. Ungdómurinn kann trúlega að meta landiö sitt ekki síður en aðrir, og þótt timarnir hafi breyst þannig, að ekki verður mikið af hraunum og klungrum á vegi hans i lifinu, er þó ástin jafn stór þáttur I lifi mannsins nú og i gamla daga. Minningar um æskuást ævi langa geymast, — cinkanlega ef hún brást. En æskubrekin gleymast. Trúlega er þetta rétt hjá Þórarni og væri þvi ekki úr vegi að nota tæknina og taka æskubrekin upp á segulband eða jafnvel myndsegulband til að spila fyrir þá gömlu, sem sifellt eru að fella dóma yfir unga fólkinu. Leifur Eiriksson fellir sinn dóm, og getum við ekki til gamans imyndaö okkur, að hann sé að ræða um þá, sem halda þvi stöðugt fram, að ung- dómurinn fari versnandi meö hverju árinu, sem liður. Vaða flestir syndasjó, slna lesti bera, Oft eru verstir þeir, sem þó þykjast beztir vera. Að sjálfsögðu tala ekki allir illa um ung- dóminn, en þó vill það verða svo, að þvi er fremur komið á framfæri, sem miður er gert en hinu, sem vel er gert, enda fólk kannski minnugra á það fyrrnefnda eins og Indriði Þorkelsson segir: Höpp sln ekki margur má muna stundu lengur: stálminnugur er þó á allt, sem móti gengur. Svo eldistunga fólkið og ný og enn verri æska tekur við hlutverkinu. Með aldrinum fara minningarnar að gera vart við sig. Árni Guðjónsson yrkir: Þó ég engin nefni nöfn, neinu skal ei gleyma. Minninganna myndasöfn mér er ljúft að geyma. Minningarnar eru að sjálfsögðu mis- jafnar, en þó mun fólk yfirleitt reyna að halda þeim helst til haga sem bestar eru, eins og Einar Kristjánsson. Hafir þú um kyrrlátt kveld kysst og faðmað svanna, verður hlýtt við arineld endurminninganna. Margur stanzar stundarbið, strauma iifs að kanna, ilia lagðar vakir við verstu minninganna. En hvort sem minningarnar eru góðar eða slæmar, verða þær ekki frá okkur teknar. Sigurjón Kristjánsson segir: Þó að skapi skort og nauö skeytin atvikanna, frá mér tekur enginn auð endurminninganna. Og yfirleitt er það liklega svo með minningarnar, að þar blandast saman gleði og sorg eins og Sigurdór Sigurösson lýsir i næstu visu: Lit ég yfir liðin ár, læt þau hugann kanna, finn þar bæði bros og tár bernskuminninganna. En það dugir ekki að lifa i fortiðinni, þegar i nútiöinni biða mörg verkefni að fást við og leysa. Ber þar að vonum hæst efnahagsvandann og eins og ráðamenn okkar segja, verða allir að leggjast á eitt að leysa þann vanda. Ólöf G. Svein- bjarnardóttir yrkir: Góðar spýtur glæða hyr, af gnægðum rennur lindin. Stóru og smáu steinarnir styðja og reisa tindinn. Og þegar að þessu kemur er hætt við að vandlifað verði fyrir marga. Oft er strand við úfið hraun, oft er grand að klifa. Oft er blandin æviraun, oft er vandi að lifa. Þó fer ekki hjá þvi, að eitthvað slæöist með af minningum af verra tági. Stein- björn Jónsson yrkir: Þessi visa Einars Þórðarsonar er sú siðasta i dag. Ben.Ax.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.