Vísir - 17.08.1974, Blaðsíða 8
8
Visir. Laugardagnr 17. ágúst 1«74.
OÐRU
EYRA:
Þrœlgóð
tónlist
— og textarnir
eru allrar
athygli verðir
— Plata fyrir
þó sem vilja
hlusta fremur
en dansa
SPARKS ,,KIM ONO MY
HOUSE”
Hér er á feröinni plata, er
krefst góörar hlustunar. Meö
albúminu fylgja textar laganna,
og mæli ég meö þvi, aö hver sá
sem eignast þessa plötu, lesi
textana um leiö og hann hlýöir á
tónlistina, þvi að þeir eru meö
þeim betri er ég hef lesið.
I textunum felast lúmskar
ádeilur, eins og t.d. i laginu
„Falling in love with my-self
again”, þar sem hjónabandið er
tekiö til meðferðar,: Similar
mother, similar father, similar
dog, cat and fish, and we’ll
make the same wish. Og lagið
Amateur Hour: dance, laugh,
wine, dine, talk and sing, But
those can not replace what is the
real thing, It’s a lot like playing
the violin, You can not start off
and be Yehudi Menuhin. Og svo
er fjölskyldumaðurinn tekinn til
meöferðar i laginu „In my
Family”: That’s how it’s gonna
be, Before and after me, Manu-
facturing many, many, me’s
Gonna hang myself from my
family-tree. En þetta var bara
smá sýnishorn úr vel saman-
settum textum, sem gera plöt-
una helmingi skemmtilegri. en
hún ella hefði verið. Þar meö er
ég ekki að setja neitt út á
tónlistina sjálfa, þvi hún er
þrælgóö, blönduð góöu „beati”,
strengjaleik, og oft bregður
fyrir góöum pianóleik. Aöal-
menn þessarar grúppu eru
bandarlsku bræöurnir Ron og
Rusell Mael, og hafa þeir samiö
öll lög plötunnar sjálfir, auk
þess sem Rusell sér um allan
söng, meö frábærum árangri
(þótt hann stundum hermi eftir
Bryan Ferry úr Roxy Music).
Kimono my house er góö
plata, sem á erindi til þeirra,er
hlusta, I stað þess aö dansa, auk
þess sem Sparks er nafn, sem á
framtiö fyrir sér.
P.S. Þeir, sem hafa gaman af
Roxy Music, ættu að veita þess-
ari plötu athygli.
Beztu lög:
Talent is Asset.
Conplaints.
Falling in love.-
MEÐ
MÍNUM
EYRUM
ORN
PETERSEN
SPARKS
Tími til komin að gefa þeim gaum:
TAKTFÖST TÓNLIST
STATUS QUO. „QUO”
Þaö er timi til kominn að
þessari ensku grúppu sé veitt
meiri athygli hérlendis, en
undanfarið. Það viröast vera
margir til, sem halda að Uriah
Heep, Deep Purple, og Zeppelin
séu einu grúppurnar I heimi,
sem geti fengið mann til að
stappa I gólfið, en það er af og
frá, hlustið t.d. á Queen og
STATUS QUO. Ég skal viður-
kenna, að textar félaganna eru
ekkert sérstakir, en þeir bæta
það sannarlega upp með
hröðum, og taktföstum hljóð-
færaleik, sem myndi fá hvern
sem er til að sparka i gólfið. eða
minnsta kosti lyfta litlu-tá.
Þegar ég t.d. heyrði þessa plötu
I fyrsta sinn, imyndaði ég mér,
að ég væri trommari og sló
trommurnar uppum alla veggi,
þið hefðuð bara átt sjá mig.?
Jæja, en sleppum þvi, þetta er
plata, sem á erindi til þeirra, er
unna hraðri rokk-stuð músik, og
sömuleiðis á hún erindi á hin
„fjöldamörgu” diskótek höfuð-
borgarinnar.
Þetta er annars sjöunda
albúm Status Quo, sem hafa
verið á ferðinni frá árinu 1968,
fyrri albúm þeirra eru:
„Picturesque Matchstickable
Messages”, „S t a t u s
Quotation,”, „Ma Kelly’ s
Greasy Spoon”, „Dog of two
Heads”, „Piledriver”, og
Helló”.
Beztu lög. Break the Rules
Don’ t think it matters.
Slow Train.
KEIMLÍKIR ÝMSUM ÖÐRUM
Ég skil bara ekki, hvers vegna
Jón Bæóog Ami eru að rifast
um Nazareth. En það stafar
eflaust af skilningsleysi
mlnu?? Já, vel á minnzt,
Nazareth taka ca. 350.000 fyrir
konsertinn, miðinn kostar
1.500 kr., og húsið rúmar ca.
5.000 manns, já reiknið þið svo
út. Hvers konar monki-bisness
er þetta eiginlega?
ROOF TOPS eru að gefa út
plötu, sem inniheldur m.a. lag
Hljóma „Rock Me”, þrumu-
góð plata, segja kunnugir, en
ég segi náttúrlega ekkert fyrr
en ég hef heyrt ’ana. Já, hvað
á maður að gera við pening-
ana, segir GREG LAKE, um
leið og hann kaupir sér gólf-
teppi sem kostar 600.000,-,
krónur, skyldi hann vera
eitthvað smá skrýtinn náung-
inn? Orðrómur er nú á kreiki
um það vestanhafs, að hinir
upprunalegu CREAM séu að
taka saman á ný, það vill
þýða, ERIC CLAPTON,
GINGER BAKER, og JACK
BRUCE.en er það ekki aftur-
för?? Þetta getur svo sem vel
passað, þvi að hljómsveitin
BECK BOGERT& APPICEer
leyst upp, og þeir tveir siðast-
nefndu reyna nú að stofna
nýja grúppu, ásamt ROBIN
TROYVER fyrrv. meðlim —
PROCULHARUM.
WHO vinna nú að næstu plötu
sinni, sú mun að sögn Pete
Townsend innihalda lög eftir
RAY DAVIES og FRANK
ZAPPA, m.a. sérstaklega
skrifuð fyrir WHO.
Þá er RICK WAKEMAN
endanlega búinn að segja
skilið við YES.
Þá er loksins komin á
markaöinn ný plata með
þeirri heimsfrægu hljómsveit
ROLLING STONES. Hún
nefnist IT’S ONLY ROCK’n
ROLL, og mun bara standa
bærilega undir þvi nafni.
Vissuð þið að JOHN DENVER
heitir i raun og voru einfald-
lega JOHN DEUTSCHEN-
DORF? Nú, jæja, þá vitið þið
það núna? ROY WOOD er um
þessar mundir að vinna að
næstu sólóplötu sinni, ásamt
fyrrv. samstarfsmanni sinum
úr ELO JEFF LYNNE, og
NEIL SEDAKA, (þessum
þarna á fimmtugsaldri, sem
vill gjarnan vera ennþá
tuttugu)?
TOMMY, kvikmyndin, mun
bjóöa upp á nokkur ný lög eftir
TOWNSEND, þ.á.m. „DON
NIX”, og CLAUDIA LINN-
EAR”.
Ný SANTANA plata á leiðinni,
og sömuleiðis er á leiðinni
önnur sóló plata ART GAR-
FUNKELS (vonandi jafn góð
og sú fyrri).
Sterkur orðrómur er nú á
kreiki i Bandarikjunum um
það, að BEATLES verði
„endurreistir”, en án
McCartneys. 1 stað hans mun
HARRY NILSSON koma, en
hver v i 11 BEATLES án
McCartneys??
Meiningin var, að MICK
JAGGer skyldi leika FRANZ
The Souther-Hillman-Furay
Band.
Þarna er ný hljómsveit á ferð-
inni með sina fyrstu plötu.
Hljómsveitin er skipuð þekktum
nöfnum, sem flest hafa verið
viðriðin heimsfrægar hljóm-
sveitir, sem sé þeim, J.D.
Souther-Chris Hillman (Byrds,
Manassas) — Richie Furay
(Buffaolo Springfield, Poco)-Al
Perkins (Manassas) — Jim
Gordon (Derek and the
Dominos m.a.) — og Joe Lala
(G.S.N. & Young, Manassas
m.a.) Þessi sveit myndaðist um
þær mundir, er til stóð að
endurlifga hljómsveitirnar
G.S.N. & Young, og Byrds i
upprunarlegri skipan þeirra, en
þaö hefði vitanlega verið á
kostnað þeirra. er störfuðu i
Manassas m.a. Það er fremur
óliklegt, að þessi hljómsveit nái
langt á framabrautinni, þar eð
þeir flytja tónlist keimlika
þeirri, er G.S.N. & Young og
Byrds flytja, þvi þær gnúbbur
tröllrlöa nú tónlistarbransanum
vestanhafs, að minnsta kosti á
sviði tónleikahalds. En tónlist
þeirra er engu að slður góð, flest
laganna eru eftir þá Souther
Hillman og Furay, og kennir
þar margra góðra grasa (eða á
ég kannski að segja TONA)?.
— Þarna er t.d. anzi gott rokk
lag Hillman’s „Safe at home”,
rólegt lag Souther’s „Deep Dark
and Dreamless,” og fallegt lag
Furay’s „Believe me”. Fyrir þá
er höfðu gaman af tónlist
Buffalo Springfield, og Poco er
þetta kjörin plata, en næstum
þvi einum of llk fyrri plötum
þessara hljómsveita.
Beztu lög: Believe me
Border Town.
Safe atHome.
LISZT i kvikmynd KEN
RUSSELS, en af þvi varð ekki,
þvl að RUSSELL þessi mun
hafa verið öllu hrifnari af
söngvara hljómsveitarinnar
WHO, ROGER DALTREY, og
þá fór Jagger I fýlu.
Bandariski trommuleikarinn
BUDDY RICH fékk væga löm-
un i hendur sinar fyrir
skömmu, og töldu læknar
hann ólæknandi, en Rich trúði
þvi ekki. Hann gekkst undir
kinverska nálastungulækn-
ingu og lemur nú húðirnar að
nýju, húrra fyrir þvi..
Nú, ég hef varla meira pláss I
dag, hittumst i næstu viku,
bless... öRP.
Rick Wakeman