Vísir - 17.08.1974, Qupperneq 16
Laugardagur 17. ágúst 1874.
16
| í DAG | í KVÖLD | í DAG | I KVÖLP | í DAG
SJÓNVARP •
Laugardagur
17. ágúst 1974
20.00 Fréttir.
20.20 Veður og ííiuglýsingar,
20.25 Læknir á lausum kili-
Breskur gamanmynda-
flokkur. Siðdegisraunir
Þýðandi Jón Thor Haralds-
son.
20.55 Stengir slegnir. Tveir
bræður, Sergio og Edwardo
Abreu, leika saman á gitara
lög eftir ýmsa höfunda.
(Nordvision — Finnska
sjónvarpið)
21.15 Hvað er hægt að gera?
Fræðslumynd frá Sam-
einuðu þjóðunum um ráð-
stafanir, sem gerðar eru til
að koma i veg fyrir tjón af
völdum jarðskjálfta, eld-
gosa og annarra náttúru-
hamfara. Þýðandi og þulur
Kristmann Eiðsson.
21.40 Elmer Gantry. Banda-
risk biómynd frá árinu 1960,
byggð á sögu eftir Sinclair
Lewis. Leikstjóri Richard
Brooks. Aðalhlutverk Burt
Lancaster, Jean Simmons
og Arthur Kennedy. Þýð-
andi Jóhanna Jóhanns-
dóttir. Aðalpersónan,
Elmer Gantry, er banda-
rfskur farandprédikari seint
á öldinni sem leið. Hann er
sjálfur meir en litið' blend-
inn i trúnni, en prédikanir
hans hrifa almenning með
meiri krafti en hann gat
sjálfan órað fyrir.
23.35 Dagskrárlok.
Sunnudagur
18. ágúst.
18.00 Skippi. Ástralskur
myndaflokkur fyrir börn og
ungiinga. Þýðandi Jóhanna
Jóhannsdóttir.
18.25 Sögur af Tuktu.
Kanadiskur fræðslumynda-
flokkur fyrir börn. Þýðandi
og þulur Jóhanna Jóhanns-
dóttir.
18.40 Steinaldartáningarnir.
Bandariskur teiknimynda-
flokkur. Þýðandi Guðrún
Jörundsdóttir.
19.00 Hlé.
20.00 Fréttir.
20.20 Veður og auglýsingar.
20.25 Bræðurnir. Brezk fram-
haldsmynd. 6. þáttur.
Samningsgerð.Þýðandi Jón
O. Edward. Efni 5. þáttar:
Veislan hjá Carter heppnast
miður en hann hafði vonað.
Aðeins Mary Hammond og
Kingsley-mæðgurnar koma.
Eftir að gengiö hefur verið
frá sameiningu fyrirtækj-
anna láta ökumenn Hamm-
ond-fyrirtækisins i ljós
megna óánægju með, að
menn Carters, sem ekki eru
i stéttarfélagi, skuli njóta
sama réttar og þeir sjálfir.
Boðað er til fundar um mál-
ið. Brian hittir Pamelu
Graham aftur og býður
henni á kvöldtónleika, en
áður en hann fer, kemur
Ann óvænt heim og virðist
ekki hugsa sér að fara aftur.
21.20 Andstæður.Tónverk eftir
Béla Bartók. Flytjendur
Rut Ingólfsdóttir, Gisli
Magnússon og Sigurður
Snorrason. Stjórn upptöku
Egill Eðvarðsson.
21.40 Sinn er siður i landi
hverju. Brezkur fræðslu-
myndaflokkur með saman-
burði á siðum og venjum
fólks i fjórum heimsálfum.
3. þáttur. Unglingarnir.
Þýðandi og þulur Gylfi
Pálsson.
22.25 Að kvöldi dags. Sr.
Sigurður Haukur Guöjóns-
son flytur hugvekju.
22.35 Dagskrárlok.
Sjónvarp
sunnudag
kl. 20.25:
SAMNINGAGERÐ
„Brœðurnir"
„Bræðurnir” eru á dagskrá
sjónvarpsins annað kvöld, og
eins og vanalega þá gengur á
ýmsu bæði I fyrirtækinu og I
einkalifinu.
Bilstjórar Carters eru
ófélagsbundnir og vekur það
megna óánægju hjá ökumönn-
um Hammond-fyrirtækisins, aö
þeir skuli njóta sömu réttinda
og þeir. Liggur við, að verkföll
hefjist út af þessu, en þá er boð-
að til fundar um málið.
Frú Hammond, móðir bræðr-
anna, hefúr fengið vinnu i
verzlun góðgerðarstofnunar og
styttir sér leið heim til sin meö
aö heimsækja son sinn. David,
sem nú er enn á ný kominn meö
fyrirsætuna, (sem við könnumst
við úr fyrri þáttum), sem kær-
ustu. Fer vel á með þeim konun-
um.
Brian og kennslukonan eru
enn saman, en Anna dvelur hjá
honum um nótt i von um að geta
fengið átyllu til þess að fresta
skilnaði sinum og Brians.
Myndin sýnir Bill Riley, verk-
stjóra hjá Hammondbræðrun-
um, I þættinum „Bræðurnir”.
—EVI
r
Utvorp sunnudag
kl. 19.35:
Dagbókor-
brot úr
Tyrklands
ferð eftir
fréttirnar
„Ég mun lesa eitthvað upp úr
dagbókarblöðum mlnum frá
Tyrklandi, en ég ferðaðist um
Tyrkland f fyrrasumar I nokkra
mánuði, sem var afar skemmti-
iegt”, sagði Jökull Jakobsson,
þegar við forvitnuðumst um þátt-
inn hans „Eftir fréttir”.
Eins og kunnugt er, hefur hann
verið með þennan þátt i sumar a
sunnudögum og verður það áfram
til ágústloka.
Við spurðum Jökui, 'nvort nann
gæti lifað á þvi að skrifa.
„Jú, með þvi að þræla fyrir
' daglaunum fyrir útvarp og sjón-
varp, tekst að halda í báða
enda; ” var svarið.
Hann er um þessar mundir að
vinna að þætti um Hallgrlm Pét-
ursson, ásamt Sverri Pálssyni,
Þetta er fjallið Ararat I Tyrk-
landi, þar sem örkin hans Nóa
átti að hafa strandað á.
fyrir frétta- og fræðsludeild sjón-
varpsins.
. Um hvað væri nýtt i leikrita-
gerð.sagði hann, að nýtt stykki
eftir sig, „Grímudansleikur”,
yrði sýnt á litla svíðinu i Þjóðleik-
húsinu I haust. Verður það senni-
lega fyrsta islenzka stykkið, sem
frumflutt verður þar I vetur, en
þau verða tvö önnur ‘„Litla flug-
an” og „Ertu nú ánægð kerling”
verða áfram sýnd i haust. Þá
verða aftur teknar úpp sýningar
Þjóðleikhússins á „Klukku-
strengjum”, og Iðnó mun sýna
áfram „Kertalog”, hvort tveggja
eftir Jökul.
— EVI.
Sjónvarp í kvöld kl. 21.40' „Elmer Gantry
Bönnuð börnum!
„Þessi mynd er engan veginn
við hæfi barna, ýmislegt það,
sem sýnt er i henni, er lftið geðs-
legt, svo sem meðferö á trúar-
legu efni. Enda segja framleið-
endurnir þaö sjálfir, að hún sé
ekki ætluð börnum”, sagði Jó-
hanna Jóhannsdóttir, þýðandi
myndarinnar, er við forvitnuð-
umst um efni hennar.
Myndin fjallar um trúboð I
Ameriku og gerist árið 1917.
Aðalpersónan er farandtrrúboði
(Burt Lancaster) sem hrífur
áheyrendur sina með prédikun-
um sinum meira en hann sjálfan
gat órað fyrir, þvi að hann er
meira en litið blendinnyi trúnni.
Aðrir leikararrJean Simmons og
Arthur Kennedy. Leikstjóri er
Richard Brooks.
Sinclair Lewis, höfundur sög-
unnar, sem biómyndin er
byggð, á, er ákaflega vel þekkt-
ur höfundur, bæti i heimalandi
sinu, Bandarikjunum, og viðar.
Oft fjalla bækur hans um þá
þegna þjóðfélagsins, sem hallar
á.
Þessi mynd er einhver sú
lengsta, sem sjónvarpið hefur
sýnt.
— EVJ
„Ég fjalla um skáldið
Stephan G. Stephanson og lýsi
honum gegnum samtiðar-
mann hans, Vestur-tslending-
inn Jóhann Magnús Bjarnason
rithöfund,” sagði Ævar R.
Kvaran, er við spurðum um
þáttinn „Frá Vestur-ts-
lendingum’', sem hann sér
um.
Ævar les upp úr endurminn-
ingum Jóhanns um manninn
og skáldið Stephan, og auk
þess sagðist Ævar reyna aö
kynna Stephan sem höfund
óbundins máls og les ritgerð
hans „Hægt er að þreyja Þorr-
ann og Góuna”. Einnig les
hann stutt en mjög magnað
ævintýri um vizku og mannvit
eftir hann „Gráskegg” og þá
nokkur ljóð.
, ,,Ég legg áherzlu á að kynna
manninn sjálfan,” sagði
Ævar.
Þetta er S.þáttur hans um
Vestur-íslendinga, en hann
hefur verið beðinn um að taka
saman 10 þætti, og eru þeir á<
dagskrá útvarpsins annan
hvorn laugardag.
—EVI—
Ævar R. Kvaran ætlar að kynna
fyrir okkur I kvöid skáldið og
manninn Stephan G. Stephan-
son.
Utvarpið í kvöld kl. 21.15:
FRÁ VESTUR-
ÍSLENDINGUM