Vísir - 13.09.1974, Side 8
Vlsir. Föstudagur 13. september 1974.
Vlsir. Föstudagur 13. september 1974.
GAGNKYNIN ER OFT
AST ÓSANNGJÖRN!
— Rœtt við þrjá íslenzka alþjóðadómara, Guðmund Haraldsson,
Hannes Þ. Sigurðsson og Magnús V. Pétursson
tslenzkir knattspyrnudómarar — a.m.k. þeir sem dæmt hafa stærri leikina I sumar — hafa sjaldan orðiö fyrir eins
harðri gagnrýni og I ár, og eru þeir þó ýmsu vanir frá fyrri áruin.
Flestir áhorfendur hafa verið óánægðir með þá, blaðamennirnir hafa skammað þá og þjálfararnir hafa hakkað þá
i sig i blaðaviðtölum og hvar sem færi hefur gefizt.
En hvað segja dómararnir sjáifir um þetta? Við höfðum tai af þrem þeirra nú I vikunni og báðum þá um að segja sitt
álit og útskýra hlutina eins og þeim koma þeim fyrir sjónir. Þessir menn hafa allir dæmt lengi — eru misjafnlega vinsæl-
ir — en eiga það sameiginiegt, að þeir eiga að dæma vlða um Evrópu I næsta mánuði i hinum ýmsu Evrópumótum I
knattspyrnu.
Guðmundur Haraldsson:
„Leikirnir i sumar hafa ekki verið
verr dæmdir en áður ef á heildina er
litið. Þvi er þó ekki að neita, að ein-
staka dómarar og linuverðir hafa
verið óheppnir i leikjum sinum, og það
hefur þýtt, að allir dómarar hafa verið
settir undir sama hatt og sagðir óhæfir
i alla staði.
Ég held, að ástæðan fyrir þessari
miklu og hörðu gagnrýni sé sú, að hinir
útlenzku þjálfarar hafa veriö kritiskir
á allt nema sin lið og kennt dómurun-
um um, þegar þeim hefur ekki vegnað
nógu vel.
Sérstaklega hefur mér fundizt þetta
vera áberandi i sambandi við KR i
sumar. 1 flestum þeirra leikjum var
alltaf einhver hasar, hvort sem það
var nú tilviljun eða þjálfaranum Tony
Knapp að kenna, enda var hann óspar
á að skammast út i dómarana, ef svo
bar undir.
Persónuiega held ég, að það hafi
verið mistök að halda ekki fund með
þjálfurunum og dómurunum. A þvi
hefðu báðir aðilar áreiðanlega grætt.
Það er fjarstæða að halda þvi fram,
að þessir menn hefðu ekki getað sagt
okkur eitthvað nýtilegt, eins og þeir
þjálfarar og framkvæmdastjórar sem
halda fyrirlestra á dómararáðstefnun-
um, sem við höfum sótt erlendis, enda
eru þeir flestir með svipaða reynslu og
skóla að baki.
Þessi hugmynd um að skipta dóm-
urunum i A og B grúppur, hefur áður
komið til tals og er góö svo langt, sem
hún nær. Ég held, að ef á að fara að
greiða laun fyrir dómgæzluna i stór-
leikjunum, hætti þeir að dæma, sem
ekki komast i þann hóp, og þá er illt I
efni fyrir knattspyrnuna hjá okkur”.
Hannes Þ. Sigurðsson:
,,Ég hef verið að reyna að gera mér
grein fyrir þessari gagnrýni, sem hef-
ur verið óvenju hörð i sumar, enda
taldi ég mér bera skyldu til þess, þar
sem ég hef séð umþá litlu fræðslu, sem
dómarar fá hérlendis.
Þessi gagnrýni er oft á tiðum ómak-
leg og kemur af þvi, að fólk setur sig
ekki i spor dómarans eða vill ekki gera
það.
Blöðin skamma dómarana fyrir
minnstu mistök, sem þeir gera, en það
kemur varla fyrir að þeir skammi
leikmann, sem jafnvel getur eyðilagt
allan leik liðs sins með keðju af mis-
tökum og það jafnvel hvað eftir annað.
Ég hef oft undrað mig á þvi, að
nokkur maður skuli fást i að dæma upp
á þetta. Menn setja mannorð sitt aö
veði með þvi að gefa sig i þetta starf,
og það er af og frá, að þeir afli sér vin-
sælda á nokkurn hátt.
Dómari er engin yfirnáttúrleg
vera. Hann getur gert mistök eins og
allir aðrir og það verður fólk að skilja,
áður en þaö fellir sinn dóm. Gagnrýni
þjálfaranna og forráðamanna félag-
anna er oftast af öðrum toga spunnin.
Þar er aðeins hugsað um velgengni
liðsins og þægilegast að kenna dómar-
anum um allt ef illa tekst upp.
Til að þessari gagnrýni linni eitt-
hvað verða dómarar að fá að njóta
sanngirni meðal áhorfenda og ann-
arra, og fólk verður að setja sig i
þeirra spor.
Þá verða leikmenn að læra betur
réglurnar, sem knattspyrnan er leikin
eftir, en á þvi er þvi miður mikill mis-
brestur, sem við dómararnir verðum
oft óþægilega varir við, þó svo að
áhorfendurnir sjái það ekki né heyri.
Og siðast en ekki sizt verða dómarar
að æfa — engu siður en leikmennirnir
— til að geta skilað sinu hlutverki eins
vel og æskilegt er hverju sinni”.
Magnús V. Pétursson:
„Ég visa þessari gagnrýni á is-
lenzku dómarana aftur til heimahús-
anna, þvi að Islenzkir knattspyrnu-
dómarar standa jafnfætis þeim dóm-
urum, sem ég hef séð i nágrannalönd-
um okkar.
Gott dæmi um það er hinn welski
dómari, sem dæmdi hér á dögunum.
Hann er sagður með frægustu dómur-
um Bretlands, en honum urðu samt á
mistök i leiknum og fékk skömm i
hattinn fyrir. Það er enginn dómari,
sem getur dæmt I 90 mlnútur án þess
að gera einhver mistök, litil eða stór, I
einum leik, og við hér heima erum
engin undantekning.
Ég er ekkert á móti gagnrýni, ef hún
er byggð á rökum, en á móti gagnrýni,
sem sett er fram I auglýsingaskyni,
eins og þvi miður vill oft verða hér.
Það er margt að i dómaramálunum
hjá okkur. Má þar t.d. nefna KSÍ, sem
er eini bakhjarlinn sem dómararnir
hafa, en gerir samt ekkert fyrir þá,
þrátt fyrir að þeir séu ómissandi
hlekkur i starfinu.
Það er kannski ákveðin lausn á mál-
unum, að velja ákveðinn hóp dómara
til að sjá um stórleikina. En það er
ekki nóg. Það verður lika að gera eitt-
hvað fyrir þá, sem dæma yngri flokk-
ana og veita þeim einhverja viður-
kenningu — t.d. að senda 5 til 6 þeirra
sem mest og bezt starfa á cllu landinu
erlendis á hverju ári og leyfa þeim að
sjá leiki og sækja ráðstefnur — væri
það t.d. upplagt i sambandi við þessar
hópferðir knattspyrnuunnenda, sem
farnar eru á hverju ári.
Þessir menn eru sumir hverjir ár
eftir ár að dæma litlu leikina og fá ekk-
ert fyrir það nema skammir og skit-
kast, þótt það komi nú ekki á prenti,
eins og við, sem dæmum stærri leik-
ina, verðum að sætta okkur við.”
Þegar sigur danska hiauparans, Tom B. Hansen, 1 1500 metra hlaupinu á Evrópumeistaramótinu I Róm, virtist nær öruggur — skeði óvæntur
atburður. Hansen var um þremur metrum á undan hópnum, þegar Austur-Þjóðverjinn tók hreint „æðisgenginn” lokasprett og það yzt úti
á brautinni. Hansen vissi bókstaflega ekki af Justus fyrr en hann hijóp I mark sem sigurvegari. Myndin sýnir, þegar Justus, lengst til vinstri,
slitur marksnúruna. Nr. 202 er finnski Olymplumeistarinn Pekka Vasala, en Tom B. Hansen er nr. 140.
Valur
ósigraður ó heima-
í Evrópukeppninni!
— Leikur við írska liðið Portadown í EUFA-keppninni ó Laugardalsvellinum
á þriðjudag og œtti að hafa góða sigurmöguleika
Valsmenn ætla sér að gera
stóra hluti á þriðjudaginn er þeir
mæta norður-Irska liðinu
Portadown á Laugardalsvellinum
i fyrri leik liöanna i UEFA-
keppninni. ÞJir ætla sér nefni-
lega að sigra I þeim leik og að ná
a.m.k. jafntefli i siðari lciknum
og komast þar meó I aðra umferð
I keppninni-
Það verður ekki I fyrsta sinn,
sem Valsmenn gera það — ef
þetta tekst hjá þeim á móti
Portadown.Arið 1967 komst Valur
fyrst og jafnframt eina islenzka
knattspyrnuliðið i 2. umferð i
Evrópukeppni i knattspyrnu Það
Los Angeles
keppir við
Moskvuborg
Los Angcles ætlar að keppa við
Moskvu um sumarleikana —
Olympiuleikana — 1980. 1 gær fór
fram atkvæðagreiðsla I borgar-
stjórn Los Angeies og var sam-
þykkt með 12 atkvæðum gegn
tveimur aö reyna að fá sumar-
leikana til borgarinnar. Um
kvöldið var svo samþykkt að
verja 25 þúsund dollurum til þess
að vinna að framgangi málsins.
Nýlega fór fram skoðana-
könnun meðal borgarbúa og voru
71.4% með þvl, að reynt yrði að fá
Olympiuleikana til borgarinnar
— þó með þvi skilyrði að það bitn-
aði ekki á skattgreiöslum borgar-
búa.
Umsókn Los Angeles verður
tekin fyrir á fundi Alþjóða-
Olympiunefndarinnar I Vinar-
borg hinn 22. október næst-
komandi — og má þar búast við,
að keppnin um lcikana konii ein-
göngu til að standa milli Mozkvu
og Los Angeles. Moskva hlýtur þó
að standa betur að vigi —
Olympiuleikar hafa aldrei verið
háðir í Sovétríkjunum — þar sem
leikarnir 1976 vcrða i Kanada. Og
1968 voru þeir lika i Ameriku —
Mexikó.
var eftir tvo jafnleikisleiki við
Luxemborgarliðið Jevnnesch
’Esch, 1:1 hér heima og 3:3 úti
Valsmenn hafa heldur aldrei
tapað leik i Evrópukeppni á
heimavelli.þ.e.a.s. á Laugardals-
vellinum. Við Luxemborgarana
gerðu þeir jafntefli 1:1, við
Standard Liege frá Belgiu varð
einnig jafntefli 1:1, og i ein-
hverjum frægasta knattspyrnu-
Valur-Benfica, varð einnig jafn
tefli 0:0, leik sem hér hefurverið
leikinn.
Litið er vitað um styrkleika
Portadown, en þarna er þó
áreiðanlega nokkuð gott lið á
feröinni, ef marka má þær upp-
lýsingar, sem Valsmenn hafa
fengið um liðið frá Norður írlandi
I þvi eru nokkrir landsliðsmenn
— áhugamannalandsliðið — og
einnig nokkrir leikmenn, sem
hafa æft og leikið með atvinnu-
mannaliðum á Bretlandi. Má þar
t.d. nefna Ronnie. sem lék m.a.
hér á íslandi með Dundee frá
Skotlandi fyrir nokkrum árum,
Robert Strain, sem keyptur var
til Manchester City fyrir skömmu
og Vic Fleming, sem var með
Dundee Utd- og Newcastle um
tima.
Þá er i liðinu Jimmy Cleary,
sem er talinn einn efnilegasti
knattspyrnumaður á Norður-
írlandi, en þegar hafa þrjú félög
Sheffield Wed., Tottenham og
Arsenal óskað eftir þvi að fá hann
yfir I sinar raðir. Einnig er þar
Billy Murray, sem alinn er upp i
sama félagi og ól George Best
upp. Gregagh Boys Club, en
Murray þessi er frægur fyrir sin
miklu vinstri fótar skot.
Leikurinn á þriðjudaginn hefst
kl. 17.30, en forsala aðgöngumiða
hefst I tjaldi við Austurstræti i
dag. í leikhléi á leiknum fer fram
„hindiunartrimm” en það er
Manchester-liðin keppa
í 3. umferð
í gær var dregið um það hvaða
lið leika saman I 3. umferð enska
deildabikarsins. Þar má nefna aö
Manchesterliðin lentu saman og
verður leikið á leikvelli
Manch.Utd. — Old Trafford. Þar
verður þéttsetinn völlur, þó svo
United leiki I 2. deild, en Manch.
City I þeirri fyrstu. Þá leika
Chelsea og Stoke á Stamford
Bridge, og Crewe, litla liðið úr 4.
deild, fær annað tækifæri til að slá
þekkt lið út. Leikur heima gegn
annaðhvort Everton eða Aston
Villa. Liverpool leikur á útivelli
gegn Bristol City. Nánar verður
skýrt frá drættinum, þegar ljósar
liggur fyrir hvaða lið leika
saman, en vegna margra
jafnteflisleikja úr 2. umferð er
það heldur ógreinilegt.
óæfður grinþáttur, sem margir
af þekktustu grinistum landsins
og fleiri hressir náungar taka þátt
i. —klp—
Miklatúnshlaup
Ármanns
Armann mun efna til Miklatúns-
hlaupa i haust og vetur eins og
undanfarin ár. Fyrsta Miklatúns-
hlaupið nú verður á morgun kl.
tvö og eru þátttakendur beðnir að
mæta tlmanlega.
Rekinn eftir 43 daga
hjó meistaroliðinu!
— Brian Clough hœttur sem framkvœmdastjóri Leeds
Brian Clough er ekki iengur hjá
Leeds. Styttri gat yfirlýsing vara-
formanns Leeds, Percy
Woodward, ekki verið I gær — en
þessi sjö orð hans settu þó allt á
annan endann i knattspyrnuheimi
Breta. Clough rekinn frá Leeds
eftir 43 daga sem framkvæmda-
stjóri liðsins. Stormasamir daga
hans hjá meisturum Leeds voru á
enda — meistaraliðið, sem Iék 29
leiki án taps i byrjun siðasta
keppnistimabil undir stjórn Don
Revie, hafði aðeins náð fjórum
stigum undir stjórn Clough af tólf
mögulegum.
Það var þó ekki þessi slaka
byrjun, sem felldi Clough. Nei,
þegar hann ákvað að selja einn
vinsælasta leikmann Leeds,
Terry Cooper, til Nottm. Forest
án samráðs við stjórn félagsins,
var mælirinn fullur. Selja Cooper,
sennilega bezta bakvörð Eng-
lands gegnum árin, fyrir smá-
peninga stuttu eftir að hann haföi
keypt Derby-leikmennina John
O’Hare og John McGovern fyrir
120 þúsund pund, var meira en
þeir i Leeds gátu þolað. Glough
var „höggvinn” og þar með lauk
einna stytztri framkvæmdastjórn
i sögu ensku knattspyrnunnar.
Enginn efast þá um hæfileika
Clough — þá hefur hann marg-
sannað, fyrst hjá Hartlepool,
siðan Derby, og jafnvel hjá
Brighton. Óheppnin elti hann hjá
Leeds — fyrst keppnisbann
Clarke og Hunter, siðan Billy
Bremner i sjö vikur. Einnig
meiðsli og svo þessi misheppnuðu
kaup McKenzie, sem hann keypti
frá Nottm. Forest. fyrir 250
þúsund pund, leikur i varaliðið
Leeds — i sumar var hann enskur
landsliðsmaður. Lánið er fallvalt
I knattspyrnunni
Brian Clough mætti á stjórnar-
fundi hjá Leeds i gær — og hætti
þar siðan störfum. Greinilegt er,
að leikmenn Leeds — ekki siður
en framkvæmdastjórnin og
áhorfendur, sem púað hafa á
Clough og MacGovern á leikjum i
Leeds, áttu þar hlut að máli. Þeir
greiddu atkvæði um Clough — og
þar kom greinilega fram að þeir
höfðu ekki traust á honum.
Brian Clough hefur verið einn
svipmesti persónuleikinn i enskri
knattspyrnu undanfarin ár —
kunnur sjónvarpsmaður, sem
lætur alltaf skoðanir sina i ljós,
hverjar svo, sem þær eru. Það
felldi hann hjá Derby — eftir
deilur við stjórn félagsins, tók
hann tösku sina og gekk út ásamt
aðstoðarmanni slnum, Peter
Taylor. Derby „logaði” — leik-
menn liðsins ætluðu að gera verk-
fall til að reyna að fá Clough
aftur. En hann fór ásamt Pétri til
Brighton — hljóp frá þvi liði i
sumar, en skildi Pétur eftir og
Brigton ætlar i skaðabótamál við
Leeds. Krefst 90 þúsund ster-
lingspunda. En kannski
gleymist það mál og Clough
hverfur bara aftur til Brighton —
3. deildarliðsins i skemmtiborg-
inni miklu á suðurströndinni.
Það tók stjórn Leeds 48 klukku-
stundir að ákveða þáð að reka
Clough. Siðar sagði formaðurinn
Manny Cussins . „Við munum
bæta Clough þetta — en ég vil ekki
nefna þá upphæð, sem hann fær”.
Clough sagði við blaðamenn. „Ég
held þetta sé mjög sorglegur
dagur fyrir knattspyrnuna —
ákvörðunin, að ég hætti, var ekki
tekin af mér”.
Þá kom Tottenham mjög á
óvart I gær— réð Terry Neil sem
framkvæmdastjóra. Neil hefur
stjórnað hjá Hull siðustu árin, og
verið með landsliði N-írlands.
Hann lék 59 landsleiki fyrir
írland , en er kunnastur fyrir leik
sinn hjá Arsenal um langt árabil.
Neil er 34 ára.
—hsim
Olympíumeistarmn
beið lœgri hlut!
Olympiumeistarinn, Renata
Stcicher, sem tapaði EM-meist-
aratitlinum sinum I Róm til
pólsku hlaupakonunnar, Irena
Szewinska, beið lægri hlut enn i
gær. Tapaði þá i 100 m hlaupi
fyrir hinni 21 árs Andreau
Lynch, bankakonu I London, og
það á leikvanginum, þar sem
hún var krýnd drottning sprett-
hlaupanna fyrir tveimur árum
— Olympiuleikvanginum i
Múnchen.
Hin svarta Lynch hljóp á 11.29
sek. og var einum hundraðasta
úr sekúndu — millimetra — á
undan Renötu, er hljóp á 11.30
sekúndum. Siðan var talsvert
bil i þá þriðju i hlaupinu — Lud-
milla Maslakova, Sovétrikjun-
um, varð þriðja á 11.43 sek.
Arangur var ekki eins góður á
þessu minningarmóti um Wil-
helm Braun i gær — eins og á
miðvikudag, þegar Spilidonov
setti heimsmetið i sleggjukasti.
En meðan Stecher var að tapa
náði annar Olympiumeistari,
Faina Melnik, Sovétrikjunum,
frábærum árangri i kringlukasti
— kastaði aðeins styttra en
heimsmet hennar er, eða 69.24
metra.
Þingmaðurinn Gunnhild Hoff-
meister sigraði lika auðveldlega
I 1500 m hlaupi kvenna á 4:06.1
min. nokkru lakara en þegar
hún var EM-meistari i Róm.
Af úrslitum i öðrum greinum
má nefna, að Mac Wilkins, USA,
sigraði i kringlukasti með 63.86
m. Hoffmann, Tékkóslóvakiu, i
5000 m á 13:43.6 min. aðeins á
undan Olympiumeistaranum i
maraþoni, Frank Shoter, USA,
sem hljóp á 13:44.4 min. Valery
Podlushni, Sovét, stökk 8.17 m i
langstökki, og EM-meistarinn i
400 m hlaupi, Karl Honz, V-
Þýzkalandi, sigraði i 200 m á
20.9 sek. Þá stukku Sovét-
mennirnir Vladimir Kischun og
Yri Isakov 5.40 metra i stangar-
stökki, og Annelie Erhardt
sigraði i 100 m grindahlaupi
kvenna á 13.13 sek
Israelsmenn beint í úrslitin!
Landslið Israel I knattspyrn-
unni kemst beint I úrslit á Aslu-
leikjunum i Teheran. Lið Norður-
Kóreu mætti ekki til leiks gegn
israel I gær og lið Kuwait, sem
vann Burmaí gær 5-2, tilkynnti að
það mundi ekki mæta i undanúr-
slitaleikinn gegn ísrael á laugar-
dag. i undankeppni knattspyrn-
unnar var lið israel mjög sigur-
sælt og talið líklegast til sigurs i
keppninni ásamt iran.
í undanúrslitum i körfu mætir
Israel Filippseyjum svo þar
kemur til vandræða, en möguleiki
er á þvi i úrslitum þvi Kina kom
ast einnig i undanúrslit.
Ester Rot, Israel, varð i gær
hlaupadrottning Asiuleikanna —
hin 21 ára stúlka, er varð móðir
fyrir þremur mánuðum — setti
Aslumet i 100 m grindahlaupi á
13.31 sek. Fyrr hafði hún sigraði i
200 m hlaupinu á leikunum, og
talin örugg með 100 metrana.
tsrael hefur nú hlotið fimm
gullverðlaun — ein komu á ódýr-
an hátt i gær, þegar Kinverjar
mættu ekki i úrslit tviliðaleiksins
i tennis. Asiumet var sett i 400 m
grindahlaupi karla, þegar Al-
Saffar Irak sigraði á 51.69 sek.
Orit Abramovitz, ísrael, sigraði i
hástökki kvenna — stökk 1.78
metra.
Mikil ólga er i lyftingunum.
Alþjóðasambandið hefur hótað að
reka Japan og Norður-Kóreu úr
sambandinu ef tveir keppendur,
sem unnu til gullverðlauna, en
voru dæmdir úr leik vegna lyfja-
notkunar (ephedrine) skila ekki
verðlaununum. Oscar State,
framkvæmdastjori sambandsins,
tilkynnti þetta um leið og hann
flaug frá Teheran til Filippseyja,
þar sem hann verður viðstaddur
28. heimsmeistaramótið i lyfting-
um.
Þá má geta þess, að talsverður
spenningur er nú i sambandi við
hástökk karla. Möguleiki er á, að
Chin-Chin sá er eitt sinn setti
heimsmet 2.27 m, en ekki hlaut
viðurkenningu, þar sem Kina var
ekki I alþjóðasamtökum keppi I
Teheran — en har.n hefur ekki
keppt utan Kina fyrr.
—hsini.
Volvo öryggi
Leikurinn hefst^N^
eftir klukkustund, '
án Bomma!
'"'Hvað eigum við
að gerá,
Allar huröir Volvo bifreiöanna eru búnar innbyggðum
öryggisbitum, sem vernda ökumann og farþega
hans í hliðarárekstri.