Vísir - 19.09.1974, Side 1
64. árg. — Fimmtudagur 19. september 1974 —179. tbl.
Vinningskák
Karpovs er
á bls. 5
Japanirnir urðu
að skila aftur
lausnarfénu
— sjá bls. 5
Liðhlaupar hafna
sakaruppgjöf
Fords forseta
— sjá bls. 5
„Rauði herinn#/ japanski er um 10 manns - sjá bls. 6
Þeir sœkja
á heims-
stjörnurnar,
— ungu
áhuga-
mennirnir
- ÍÞRÓTTIR
í OPNU
BLAÐSINS
íslenzk
fegurðardís
með erlent
nafn
NÚ-síðan á bls. 4
■■■
■■■■
,Verðum að endurskoða
aðildina að EFTA'
— segir formaður Félags íslenzkra iðnrekenda
„Það verður að teljast
furðulegt, að eftir fáeina
daga verða aðflutnings-
gjöld af vélum hærri en
þau voru, þegar EFTA
aðild ísland var ákveðin,"
sagði Davið Sch. Thor-
steinsson í viðtali við Vísi f
morgun.
,,A sinum tima átti aðild okkar
að bandalaginu að verða til þess
að efla Islenzkan iðnað, og banda-
„Að komast burt úr rykinu"
Helga Þórðardóttir heitir hún,
21 árs að aldri, búsett i Reykja-
vik.
Við festum hana á filmu, þar
sem hún sat upp- viö heystakk
úti i Nauthóisvik, tyggjandi
strá.
„Mjög”, svaraöi hún, þegar
við spurðum, hvort þaö væri
þægilegt að halla sér upp að
heystakknum.
Helga er kennari að mennt og
stefnir að þvi að ljúka stúdents-
prófi, sem hún á mjög litiö eftir
af. Það gengur samt „svona og
svona”, enda þarf hún að sinna
heimili, eiginmanni og syni
jafnframt náminu.
heimilunum ög það er enginn til
þess að lita eftir börnunum”.
Ekki sagðist Helga búast viö
þvi að fara aftur út á iand til
bess að kenna.
P „En svona þægilegir hey-
stakkar minna mann alltaf á
sveitina, og þá langar mann
eitthvað út I buskann frá borg-
arrykinu”, sagði hún.
Eins og viö höfum sagt frá
áður, mun Visir birta litmyndir
af nokkrum stúlkum til viðbót-
ar. Að þvi búnu birtast svo
myndir af þeim ölium I einu
blaði og lesendum gefinn kostur
á að greiða atkvæði um þaö,
hver stúlknanna skuli hljóta
ferð með fJtsýn til annað hvort
Italiu eða SDánar. Hefur feröa-
skrifstofan lýst sig reiðubúna til
aö flytja sigurvegarann hvort
heldur er til Costa del Sol eða
Gullnu strandarinnar. Þar
getur stúlkan valiö sér ibúð eða
hótelherbergi að eigin geöþótta,
og jafnframt tekið þátt i skoö-
anaferöum og öðru þvlumliku,
sem Útsýn hefur þar upp á að
bjóða.
„Þegar maöur hallar sér upp aö
heystakknum og finnur tööu-
lyktina, langar mann ósjálfrátt
til að komast i sveitina”, segir
Helga. - Ljósm. Bragi.
' ‘ >/. * ‘ • :
•' í t • 1m 1 \ *r—•-•
lagið tók verulega vel á móti
okkur með þvi aö fella sina tolla
strax niður I 0 en gefa okkur 10
ára aðlögunartima. En
skilningsleysi almennings og
stjórnvalda hefur gert þennan
aðlögunartima að engu. Við höf-
um búið við skekkta gengis-
skráningu, skort á tækniaðstoð,
skattaálögur hafa ekki verið lag-
færðar og vélar til iðnaöarins eru
ennþá skattlagðar.”
1 nýútkomnu hefti Frjálsar
verzlunar segir Davið, aö ekki
veröi komizt hjá þvi að gera þá
kröfu, aö aðlögunartiminn verði
lengdur sem svarar þeim tima,
sem verðstöövanir hafa veriö I
gildi hér frá inngöngunni IEFTA.
,,Ég sagði frá þessum fundi
iðnrekenda EFTA landanna i
Finnlandi á dögunum,” sagði
Davið viö Visi. „Ég er viss um, að
við höfum stuðning þeirra, ef við
fáum skilning islenzkra stjórn-
valda á málinu. Formleg beiöni
um það er nú á leiðinni og verður
lögð fram I næstu viku.”
1 fyrrnefndu viðtali skýrir hann
ennfremur frá þvi, að bæöi i
EFTA og EBE séu hvers konar
styrkir og samkeppnishömlur
óleyfileg, en rikin furðu lagin að
smeygja sér fram hjá sllku. Við
báðum hann um dæmi um slikt:
„1 Frakklandi er bannað að
auglýsa erlendar vörur I sjón-
varpi. 1 Bretlandi og viðar, m.a.
Italiu, viðgangast ýmiss konar
styrkir i skjóli þess, að um
byggðastefnu sé að ræða. —
framleiðendur fá ýmiss konar
friðindi á þeim grundvelli, að lega
fyrirtækjanna geri það nauðsyn-
legt.”
„Eins og málin hafa gengið til
hér undanfarið,” sagöi Davið
ennfremur, „hefur aðlögunartimi
okkar að EFTA veriö misnotaöur
af af Isl. stjórnvöldum. Ég vona,
aö nú takist aö nema staðar og
byggja upp iðnaðinn eins og
áætlaö var. Ef ekki, þýðir ekki
annað en að endurskoöa aðildina
að EFTA og jafnvel hætta henni,
enþaðteldiégmiðurfarið.” -SH
LÆGST-
LAUNAÐIR
VERÐA
HÍFÐIR
UPP
— bls. 3
íslendingar svara
ekki sendibréfum
- bls. 3
Hið Ijúfa líf
Kaupinhafnar:
ÞÆR ÍSLENZKU í „NUDDINU"
— baksíða