Vísir - 19.09.1974, Blaðsíða 2
2
Vlsir. Fimmtudagur 19. september 1974.
vhissm:
Er til Biblia á heimili
yðar?
Guðrún Þorsteinsdóttir, starfs-
stúlka á Reykjalundi: Já, hún er
til og hefur veriö þaö i mörg ár
hún hefur reyndar alltaf verið til
á minu heimili. Ég hef lika lesið
heilmikið i henni. Ég grip oft i
hana og hef gaman af.
Vaiur Ragnar Jóhannsson, loft-
skeytamaður:Þaðer nú likast til.
Hún hefur verið til heima siðan ég
man eftir mér. Mér finnst það
sjálfsagtaðhafa hana til á hverju
heimili. Lesið hana? Jú, ég hef
gluggað aðeins i hana.
Jóhann Sigurjónsson, nemi: Já,
hún er reyndar tiltölulega ný-
komin, þvi að ég fékk hana i af-
mælisgjöf i fyrra. Ég hef aðeins
lesið ihenni, en haföi voöalega lit-
ið gaman af þvi.
ólafur Valgeir Guöjónsson.
nemi: Jú, hún er til. Ég veit ekki
hversu lengi hún hefur verið til
heima, en alla vega siðan ég
fæddist. Jú, ég held að ég hafi nú
einhvern tima litið i hana fyrir
svona 2—3 árum, en ég hafði ekk-
ert agalega gaman af þvi.
Gyða Guöbjörnsdóttir, húsmóðir:
Já, Biblian hefur verið til i 10 ár á
minu heimili. Ég hef gluggað i
hana, en kannski ég lesi hana al-
veg einhvern tima.
Kristin Friðriksdóttir, afgreiðslu-
stúlka: Hún er til á þýzku, pabbi
fékk hana i fermingargjöf, en
hann er þýzkur. Nei, ég hef ekki
lesið hana.
„Ekki samþykkir flutningi
á regnbogasilungnum fyrr
en rannsóknunum er lokið"
— segir Páll Pálsson yfírdýralœknir — Búast má við úrskurði
Fisksjúkdómanefndar fyrir áramót
„Enn er ekki liðið ár
frá þvi að veirurann-
sóknir hófust á þeim
regnbogasilungi, sem
ræktaður er i Laxalóni.
Verður það tæpast fyrr
en i kringum áramótin
næstu. Fyrr er þvi ekki
að vænta neinnar viður-
kenningar Fisksjúk-
dómanefndar á silungi
Laxalóns”. , Þannig
hljóðaði svar Páls Páls-
sonar, yfirdýralæknis og
eins nefndarmanna i
Fisksjúkdómanefnd,
þegar Visir leitaði
skýringa hans á þvi,
hvað væri i veginum
fyrir þvi, að flytja mætti
silunginn úr Laxalóni i
Ölfusið.
Eins og kom fram i Visi
i gær, eru þeir Skúli Pálsson
\ú standa sex tjarnir af átta þurrar, eftir að Reykjavíkurborg virkjaði uppsprettuna, sem vatniö var fengið úr áöur. Þaö, sem bjargar
laxa-ræktinni á Laxalóni, er önnur vatnsuppspretta, sem nægir alls ckki til að fullnægja vatnsþörfinni Ljósm.: Bragi.
LESENDUR HAFA ORÐIÐ
BLESSUNARLEGA LAUSIR VIÐ
HERFORINGJASTJÓRNIR
Vegna skrifa i lesendadálka
Visis þ. 13. þ.m. langar mig að
segja nokkur orð.
„Húsmóðir” skrifar pistil um
mun á einræði og kommúnisku
skipulagi. Ég þykist einnig sjá
mun á þessu en þó á annan veg.
Kommúniskt skipulag hefur oft-
ast þróazt undir niðri, þar sem
einræði hefur ráðið. Dæmi: Kina,
Sovétrikin, Kúba og fleiri þjóðir.
Þar er þaö fólkið sem myndar
hreyfingu og að lokum gerir það
byltingu. Þá taka fáir menn völd-
in og segja fólkinu að til þess að
halda sæmilegum lifskjörum
verði það að standa á veröi gegn
hverskonaróvinveittri starfsemi.
Og tilfellið er, að lifskjörin batna,
nægur matur og vinna og kerfið
fellur i fastar skorður.
Það er öðruvisi að farið með
einræði. Þar eru oftast fámennar
herforingjaklikur, sem taka völd-
in, þegar óvænt tækifæri býðst
með öflugum stuðningi herja við-
komandi lands.
Munurinn er þvi sá, að á bak við
byltingu kommúnista er fólkið og
viðleitni þess til bættra lifskjara,
en að baki byltingu herforingja er
valdagræðgi og vel launaður her.
Undantekningar eru þó til, svo
sem þegar herforingjar undir
stjórn Spinola hershöföingja veltu
einræðisstjórn Caetanos i Portú-
gal fyrir skömmu.
Siðari hluti bréfsins er ein sam-
felld rökleysa. Þar rekur bréfrit-
ari fyrst ástæður til þess, að her-
foringjastjórn komst á i Grikk-
landi. Astæðuna- telur hún vera,
að kommúnistar hafi verið búnir
að gera ólift með verkföllum og
öðru sliku. Herforingjarnir hafi
þvi neyðzt til að fremja valdarán.
Það er alrangt. Kosningar voru i
aðsigi, þegar herforingjarnir
eygðu tækifæri til að hrifsa völd-
in, sem þeir gerðu svo svikalaust.
öflug ritskoðun var sett á
laggirnar, „hreinsanir” fóru
fram I háskólum, fangelsanir og
aftökur voru daglegt brauð,
stjórnarskráin numin úr gildi og
þingið leyst upp. Svona fór her-
foringjastjórnin að „bjarga”
þjóðinni frá kommúnismanum.
Góðir menn þessir herforingjar.
Bjargvættir miklir.
Við tslendingar erum
blessunarlega lausir við báðar
þessar stefnur. Ef svo væri ekki,
gæti ég ekki mótmælt þessu van-
hugsaða bréfi.
8730-6534
HAUST
Þaö er farið að kólna og haustvindar næða naprir.
1 nóttinni myrkrið festir hér langar rætur.
Sólin er horfin og dagarnir gerast daprir,
þá dreymir um angan úr jöröu og bjartar nætur.
Og kræklótt tré sin lifsþreyttu laufblöð fella.
Slíkt lætur haustið sig ekki neinu varða.
Mikið horngrýti er hún nú góð þessi háfleyga della.
Ég held bara að ég sé skáld á landsmælikvarða.
Ben. Ax.