Vísir - 19.09.1974, Blaðsíða 7
Vísir. Fimmtudagur 19. september 1974.
7
cTMenningarmál
★ ★ ★ Macbeth:
Góð mynd um enn betra leikrít
Stjörnubió: Macbeth
Leikstjóri: Roman Polanski.
Framleiðandi: Hugh Hefner
Leikendur: Jon Finch, Francesca
Annis o.a.
Það er óhætt að segja það strax,
að þetta er góð mynd, enda er
stoðin og styttan i henni William
Shakespeare öllum öðrum frem-
ur.
Roman Polanski er leikstjóri
verksins og höfundur handrits
ásamt Kenneth Tynan. Fylgir
myndin i einu og öllu hinu sigilda
Shakespeareleikriti um þann
framagjarna Macbeth.
Efniviðurinn er þvi ekki af
verra taginu. Lýsingin á hugar-
striði Macbeths, er honum verða
ljós örlög þau, er hans biða, og
lýsingin á angist hans, er honum
skilst, að hann fær þessi örlög sin
ekki flúið, eru sterkustu atriði
leikritsins ásamt sturlun Lady
Macbeth, eftir að hún hefur tekið
þátt i vigi konungs.
bað skapast vandamál, þegar
þessi atriði eiga að flytjast yfir á
filmu. Það er hægt að sýna hryll-
inginn með þvi að láta blóðið
fossa, enda er blóðið ekki sparað i
myndinni. Og Jon Finch á mjög
skemmtilegan leik sem Macbeth
og Francesca Annis lika i hlut-
verki konu hans.
En þó, og þaö kann að vera per-
sónulegur smekkur, er sturlun
þeirra hjúa og hryllingurinn við
athafnir þeirra ekki nægilega vel
undirstrikað i kvikmyndinni.
Hryðjuverkin ná sinu hámarki,
er Macbeth hyggst hefna sin á
þeim ótrygglynda Macduff og
sendir herlið til að stráfella fjöl-
skyldu hans. Þetta atriði verður
furðulega flatt i höndunum á
Polanski, þótt hann sé nú maður,
sem þekkir hr-yllinginn i sam-
bandi við slik fjöldamorð af eigin
biturri raun.
Atriðið minnir nokkuð á spag-
hettimyndaslátrun án þess að
mannlegar tilfinningar greinist
þar i gegn. Eða kannski erum við
orðir, svo gegnum vætt af blóði
kvikmyndanna,aðþað er hætt að
hafa áhrif á tilfinningarnar.
Persónuleg skoðun er einnig sú,
að hugarstrið og angist Macbeth
hljóti að njóta sin betur þar sem
kempan tvistigur og mælir af
munni fram heldur en þar sem
hann stendur úti i horni með
„Love Story” svip og vot augu og
hugrenningar hans heyrast talað-
ar á bak við.
En þessi atriði, sem hér er
minnzt á, hindra þó ekki að
myndin sé stórgóð á að horfa.
Leikarar eru vel valdir i aðalhlut-
verkin og fátt til sparað til að
gera skozku heiðarnar sem
drungalegastar og kastalana
sem kuldalegasta. Sem sagt, góð
KVIKMYNDIR
Eftir Jón
Björgvinsson
mynd um ennþá betra leikrit,
mynd, sem óhætt er að mæla
með.
★ Hljóð nótt —
blóðug nótt:
Kópavogsbió: Hljóð nótt—Blóðug
nótt.
Leikstjóri: Theodore Gershuny
Leikendur: Patrick O’Neal, Jam-
es Paterson o.fl.
Það er sama sagan enn
einu sinni. Stórt afskekkt
hús, morðóður skikkju-
maður, sem enginn veit,
hver er eða að hverju
stefnir fyrr en í endinn,
dularfull rödd, orgelleikur
og loks drungaleg tónlist,
sem á að ýta undir hrylling
myndarinnar, þegar öll
önnur meðul hafa brugðizt.
Jeffrey Butler (James Patter-
son) hefur erft stórt hús i jaðri
niðurnidds þorps. Afi hans hafði
byggt húsið, og nú vill Jeffrey
koma þvi i verð. Lögfræðingurinn
kemur til að semja um söluna, og
um nóttina gamnar hann sér með
frillu sinni i húsinu hryllilega.
Skikkjuklædd vera kemur með
exi og þar með er gamanið búið
hjá lögfræðingnum og frillunni.
Eftir þetta vig kallar veran á
alla meðlimi þorpsráðsins til að
finna sig i húsinu, og þeir hlýða og
fá ekki aftur snúið.
Siðan rennurupp fyrir mönnum
samband verunnar og fórnar-
lambanna, en þá er það um sein-
an. Allir leikarar myndarinnar,
að undantekinni einni stúlku, eru
látnir. En ekki er vert að fara
nánar út i efnisþráðinn.
Leikaratilburði leikendanna er
bezt að tala sem minnst um. Það
má eiginlega segja, að sá sem
þarna leikur gamlan og sljóan rit-
stjóra, komist bezt frá hlutverki
sinu. Ritstjórinn er nefnilega
mállaus, svo að leikarinn þarf
ekki að segja aukatekið orð.
Tæknihliðin er sú eina i gerð
myndarinnar, þar sem örlar á
smá sköpunargleði. Viðlinsu er
nokkrum sinnum beitt á
skemmtilegan hátt en þó alls ekki
nýstárlegan og tæknibrögðin eiga
auk þess mestan þátt i bezta kafla
myndarinnar. Það er atriði, þar
sem myndavélin er látin færast
aftur til ársins 1935 og þeir at-
burðir rifjaðir upp, sem eru und-
anfarar hryðjuverkanna.
Hreyfingarnar eru á óeðlileg-
um hraða, liturinn brúnn og film-
an gróf. Að visu eru þessar tilfær-
ingar engin nýjung i nútima kvik
myndum, heldur er tækninni
Allt samkvœmt
gamalli
þarna nokkuð kunnáttusamlega
og skemmtilega beitt. Til góðra
atriða má lika telja fallegan
Jagúarbil, sem er sifellt á ferð-
inni út alla myndina og 2 leikkon-
ur, sem eru ekki siður fallegar en
Jagúarbillinn og með akkúrat ná-
kvæmlega jafn mikla leikhæfi-
leika og hann. Þá eru góðu punkt-
arnir taldir, en eftir standa þeir
slæmu, sem gera myndina að 2.
flokks hryllingsmynd, með marg-
tuggnum söguþræði.
Kópavogsbió hefur nú fengið til
landsins nokkuð af nýjum kvik-
formúlu
myndum frá Cannon kvikmynda-
félaginu. Hljóð nótt-blóðug nótt er
fyrsta myndin, sem kvikmynda-
húsið sýnir af þessum myndum,
en vonandi eru þær, sem eftir eru,
eitthvað vandaðri.
Þá er einnig vert að geta þess,
að Kópavogsbió hefur nú til
reynslu tekið upp sama sýning-
artima og Stjörnubió, þ.e. kl. 6, 8
og 10. Virðist sem sú nýbreytni
þessara tveggja kvikmyndahúsa
ætli að gefast nokkuð vel og verða
vinsæl meðal gesta þeirra.
Hryllingurinn á aö felast I afskræmdum andlitum og
straumum blóðs.
FROSNAR VORUR
14 TEGUNDIR
Grænarbaunir4oz Kr. 56,- Rósinkál 12 oz Kr. 181,-
Grænarbaunir8oz Kr. 98,- Maisstönglar Kr. 191,-
Grænar baunir 16 oz Kr. 185,- Franskar kartöflur 8 oz Kr. 98,-
Blandað grænmeti 8oz Kr. 91,- Franskar kartöflur 12 oz Kr. 134,-
Skornar belgbaunir 8 oz Kr. 119,- Franskar kartöflur 16 oz Kr. 169,-
Rósinkál 6 oz Kr. 108,- Broccoli stönglar 9oz Kr. 219,-
Rósinkál 8 oz Kr. 138,- Mais — laus 5 oz Kr. 63,-
KOMIÐ OG SKOÐIÐ I KISTUNA OKKAR