Tíminn - 24.04.1966, Qupperneq 2
14
TÍMBNN
SUNNUDAGUR 24. apríl 1966
MASSEY - FERGUSON
MOKSTURSSAMSTÆÐUR
Meðal þeirra fjölmörgu aðila, sem komið hafa
auga á kosti þess að nota Massey-Ferguson mokst-
urssamstæður við starfsemi sína, eru Verktakar,
Fiskvinnslustöðvar, Síldarsöltunarstöðvar, Síldar-
verksmiðjur og Bæjarfélög. Ótvíræðir kostir Mass-
ey-Ferguson moksturssamstæðnanna koma bezt
í Ijós, ef litið er á eftirtalin atriði:
1. Góð yfirsýn ökumanns auðveldar rétta beitingu
skóflu við vinnu.
2. Vökvakúpling (MF 205 Mk II og 3165R) gefur
hraðari skiptingu áfram og afturábak en á nokk
urri annarri dráttarvél, svipaðrar stærðar.
3. Vökvakerfi, sem leyfir samhliða hreyfingu
skóflu og moksturstækis.
4. Hagkvæm tenging arma moksturstækisins við
hliðarrammana auðveldar mokstur og tryggir
stöðugleika við erfiðar aðstæður.
Getum afgreitt nokkrar moksturssamstæður í
maí, ef pantað er strax.
Biðjið um nánari upplýsingar
Suðurlandsbraut 6 — Sími 38540 — Reykjavík.
Hvers virði
Þegar ég var um tvítugt var ég
háseti á erlendu skipi og þá stadd
ur í Kaupmannahöfn. Þá sá ég
í fyrsta skiptið íslenzkt gufuskip,
það lá við íslandsbryggjuna þar,
nýkomið úr skipasmíðastöðinni.
skipið hét „GOÐAFOSS". Það var
fallegt skip, og hugur minn fyllt-
ist stolti og þó hógværu þakklæti.
Ég hafði oftar en einu sinni orð-
ið áhorfandi að því, að landar mín
ir sem alltaf höfðu þurft að sækja
allt til annarra hvað flutninga til
og frá landinu og með ströndum
þess áhrærði, höfðu orðið að þola
jafnvel dressugum kolamokur-
um á erlendum skipum. Ég hafði
séð fátæklega klœtt kvenfólk og
bðrn, leita sér skjóls á grindum
yfir vélarúmi skipa, og verið rek-
in þaðan burt út í næðinginn á
þilfarinu, því fólkið hafði hvergi
hðfði sínu að að halla, að maður
nú ekki tali um, ef það hefði gerzt
svo „ós*ífið“ að tylla sér á bekki
í reykingasal annars farrýmis. Því
voru sannarlega ekki vandaðar
kveðjumar, bót í máli, að fæstir
skildu tungu þessara þjóna herra-
þjóðarinnar.
Það var árið 1915, sem ég sá
þetta skip. Þá geisaði styrjöld um
alla Norðurálfu og víðar, og herra
þjóðin treysti sér ekki að birgja
landið upp að lífsnauðsynjum, og
voru þær þó minni og fábrotnari
en nú er orðið, íslendingar urðu
því að fá' leigt skip og sækja sér
lífsbjörg til Vesturheims.
50 ár er ekki langur tími þegar
hann er liðinn. En mikið lifandis
ósköp hefur orðið mikil breyting
hér á íslandi á þessum 50 árum
Nú eigum við skip til allra flutn-
inga, jafnvel olíuflutninga, sem
er sízt vanþörf á, þar sem sagt er,
að % hluti innflutningsins séu olí-
ur og benzín, og öll okkar afkoma
bæði til lands og sjávar, byggist
nú orðið á því, að þessi flutningar
teppist ekki. Það er tvímælalaust
mikil nauðsyn, að við séum þess
megnugir að geta flutt nauðsynj
ar okkar sjálfir. Því að enginn
veit, hvenær kann að kastast svo
í kekki milli þeirra stóru, að við
kæmumst í sömu aðstöðu og 1914.
Þá var slæmt að vera með allt upp
á aðra kominn. En þó yrði það
margfalt verra nú oröið.
Þau tíðindi spurðust á árinu
1963, að núverandi valdamenn á
íslandi hefðu samið við erlent stór
veldi um kaup á allri olíu og benz
íni sem við þyrftum að nota og
flutning á henni til landsins
Flutningstilboðið pr smálest var
allmiklu lægra en ráðamenn olíu
flutningaskipsins töldu sig þurfa
að fá, svo ekki yrði reksturshálli
á olíuflutningaskipi okkar. Út af
þessu hafa spunnizt miklar um-
ræður og blaðaskrif. Formælend-
ur þeirra, sem létu hafa sig til að
taka undirboði á olíuflutningum,
hafa látið dólgslega og verið með
brigzlyrði við þann mann, sem
fæst við útgerð olíuflutningaskip.s-
: ins, sérstaklega síðan hann lét þau
| orð falla, að því, að ekki hefði
nú þurft að leggja nema einn eyri
á hvern olíu- og benzínlítra, til
þess að fært hefði verið útgerð-
inni að skaðlausu, að flytja olíuna
á okkar eigin skipi
í Staksteinsgrein, sem birtist í
ísafoldarblaði 22. febrúar sl. hef-
ur höfundi greinarinnar þótt sig-
urstranglegra að sýna, hvað þetta
væri í raun og veru þungur skatt
ur á landsmenn, sem „SÍS herr-
arnir“ vildu nú ólmir fá að leggja
á landsfólkið „Svo þeir græddu
sem mest“ Það eru bara hvorki
meira né minna en 6 (sex) millj-
ónir. Ég hélt nú satt að segja, að
þeim blessuðum myndi ekki of-
bjóða svo mjög þessi upphæð, Og
staðreynd er það, að stjórnarherr
arnir hækkuðu toll á benzíni um
síðustu áramót um kr 1,10 os er
benzín síðan á kr 7,05 F.r \ygg,
að fáir notendur hefðu fundið
átakanlega til þess, þótt benzínið
kostaði 7,06 í stað 7,05 En þetta
sýnir bara, hve áróðurinn getur
verið háskalegur, þegar honum er
beitt af stráksskap, og við grunn
j hyggna lesendur er að eiga.
j Fyrir 50 árum var ekki óalgeng
i sjón á fátækum bændabýlum, að
sjá 25 krónu hlutabréf í Eim-
skipafélagi íslands innrömmuð á
veggjum sem stofuprýði. Þetta
veggskraut er nú horfið, enda
munu hlutabréfin vera komin á
fáar hendur. 2f5 krónur var tals-
verður peningur 1915, og fjöldi
þátttakenda í þessu rnikla þjóð-
þrifafyrirtæki sýndi bezt. hversu
vinsælt það var að reyna eftir
beztu getu að vera sjálfstæður. Nú
er ekki verið að ýta undir fólk
að sýna sjálfstæðisvilja og fórna
einum eyri til að vera ekki upp
á aðra kominn. ó. nei, nú eru þeir
menn taldir vargar í véum, sem
benda á leið til að vera sjáifstæð
ir. Gleypa ekki við undirboði stór
veldis, heldur fórna lítils háttar í
þágu sjálfstæðisins. En setjum nú
svo, að annað stórveldi byði okk-
ur að flytja til okkar allar nauð-
synjar, og afurðir okkar frá okk-
ur fyrir miklu lægra gjald en við
getum flutt það sjálfir Væri þá
ekki sjálfsagt að taka því boði?
Og með því að hrekja öll okkar
flutningaskip út úr landinu, eða
selja þau? Við kannski högn-
uðumst á því í bili, um 12 millj-
ónir til viðbótar. ég býst við, að
höfundi Staksteina yrði ekki skota
skuld úr að reikna dæmið rétt,
jafnvel þótt S.Í.S herrarnir“ ættu
ekki í hlut Þetta tókst honum Sól
on íslandus að reikna tvíburana
annan svartan og hinn hvítan í þá
afríkönsku, svo það ætti nú ekki
að vera sérlega mikill vandi að
„reikna barn í hana Jónku gömlu“
Guðmundur á Brjánslæk.
Á páskadag voru gefin saman í
hjónaband af séra Frank M. Halldórs
syni ungfrú Sigríður H. Þorvaldsdótt
ir og Gunnar Ó. Kvaran, Kaplaskjóls
vegi 45 (Nýja myndastoían, Lauga
vegi 43b sími 15125).
* BSLLINN
Rent an Ioeoar
sfmi 1 8 8 33
U ' ', ' I ítU
\V vl ^