Vísir - 04.10.1974, Síða 9
g Vlsir. Föstudagur 4. október 1974. Vlsir. Föstudagur 4. október 1974. 9
Þýzku Ijósmyndararnir eru snjallir í iprottamyndum sinum — þvi höfum viö oft fengiö aö kynnast hér i opnunni. Hér aö
ofan er enn ein þýzk mynd — og hvaö haldiö þiö, aö stúlkan sé aö gera, svo háriö „ris á höföi hennar”? — Jú, hún er aö
slökkva langstökk. Þetta er hin 18ára Birgit Wilkes — og það var ekkert smástökk hjá henni, 6.54 metrar. Þaö er inikíll
áhugi á þessari iþróttagrein i Vcstur-Þýzkalandi siöan Heidi Rosendahl varö Olymplumeistari i Munchen 1972 — og þær
þýzku eru margar hvcrjar stórsnjallar.
Ellefu félög keppo
í Reykjanesmótinu
— Tveimur fleira en í fyrra og nú er i fyrsta skipti
keppt í kvennaflokkum í mótinu
Keykjanesmótiö I handknattleik 1974
hefst i iþróttahúsinu I Hafnarfiröi
sunnudaginn 6. október kl 13.30 meö
leik Hauka og Breiöabliks i 2. fl. karla.
Félögin, sem þátt taka i mótinu, eru 11
alls, en þaö er fjölgun um 2 frá I fyrra.
Nú veröur I fyrsta skipti keppt i
kvennaflokkum og fara þeir leikir
fram I iþróttahúsinu i Njarövlk. Leikir
i 3. og 4. fl. karla fara fram I iþrótta-
húsinu á Seltjarnarnesi, en leikir I
Meistara-, 1. og 2. flokki karla I
Iþróttahúsinu I Hafnarfiröi.
Þátttökufélögin 11 eru: Breiöablik,
H.K., Stjarnan, Grótta, U.M.F.N.,
Víöir, Afturelding, I.B.K., F.H., Hauk-
ar og l.A.
10 kvennaliö og 39 karlalið taka þátt i
mótinu og fjöldi keppenda nálægt 600.
1 fyrra sigruðu Haukar i M.fl., F.H. i
1., 2. og 4. fl., en Stjarnan i 3. fl.
2. fi. karla
A riðill B riðill
Haukar F.H.
Breiðablik H.K.
Grótta Stjarnan
Afturelding l.B.K.
1. fl. karla
A riðill B riðill
F.H. Haukar
Viðir U.M.F.N
Stjarnan Grótta
A riðill
M.fi. karla
B riðill
Haukar F.H.
Stjarnan Grótta
Breiðablik I.B.K.
I.A. Afturelding
Leikir i Iþróttahúsinu i Hafnarfirði
— sunnudaginn 6. okt. kl. 13.30
2. fl. karla A riðillHaukar — Breiðablik
2. fl. karla A riðillGrótta — Afturelding
2. fl. karla B riðill H.K.-Í.B.K.
1. fl. karla A riðill F.H. — Viðir
1. fl. karla B riðill Haukar —U.M.F.N.
M. fl. karla A riðill Breiöablik — l.A.
M.fl. karla A riöill Haukar —Stjarnan
M. fl. karla B riðill Grótta — Aftur-
elding
Bœði liðin taka
leikinn um fallið
mjög alvarlega!
— Akureyringar verða ón fyrirliða síns, Gunnars Austfjörð, i
sem er í leikbanni - en Víkingar eru með flesta sína beztu
Nú er endanlega búið að ákveöa
stað og stund fyrir hinn umtalaða
leik um fallið I 2. deild i íslands-
mótinu I knattspyrnu 1974 á milli
Vlkings og Akureyrar. Leikurinn
fer fram á vellinum i Keflavik
klukkan þrjú á morgun og hafa
forráðamenn beggja liðanna
lofaö að mæta með sinn mann
skap þar
Bæði liðin lefla fram einssterk-
um liðum og kostur er á. Vafa-
samt er þó, hvort Páll Björgvins-
son getur leiki með Vlking og
fyrirliði Akureyringa, Gunnar
Austfjörð, fær ekki að vera með,
þar sem hann er i leikbanni.
,,Ég var kominn með þrjá
bókanir fyrir þennan leik, og
neyðist þvi til að taka út þá
refsingu, sem þvi fylgir i leiknum
á morgun. Það þykir mér anzi
hart, en verð vist að sætta mig við
það, eins og sumir aðrir — þó ekki
allir, eftir þvi sem manni skilst.
Við höfum verið að æfa nú i vik-
unni og sýnist mér áhuginn vera
nokkuðgóður, þó svo að menn séu
almennt á þvi að við eigum ekki
að vera þarna. Þetta er allt hálf-
loðið og asnalegt að okkar áliti”.
Jón Ólafsson, fyrirliði Vikings,
var sammála Gunnari um að
þessi iið ættu ekki að vera I neinni
fallbaráttu. Ef eftir lögum KSI
hefði verið farið hefði aldrei þurft
að koma til þessa leiks.
,,En við mætum með okkar
sterkasta lið og munum gera það,
sem við getum. Áhuginn hefur
verið geysilegur á siðustu æfing-
um — engu minni en i vor, þegar
við vorum að byrja. Þjálfarinn
okkar, Sanders, fór heim aftur i
siðasta mánuði, en kom til baka
til að búa okkur undir þennan leik
um siðustu helgi, og hefur verið
mjög vel mætt á æfingarnar hjá
honum i þessari viku.”
Víkingur hefur leikið þrjá leiki
við Akureyri I sumar. 1 1.
deildinni urðu úrslitin þau, að
Vikingur sigraði I leiknum fyrir
norðan 2:0, en jafntefli varð i
leiknum á Laugardalsvellinum
1:1. Þá léku -iiðin i Bikarkeppni
KSl á Akureyri og þar sigraði
Vikingur 3:2.
Dómari i leiknum i Keflavik á
morgun verður Magnús V.
Pétursson og línuverðir Valur
Benediktsson og Guðjón
Finnbogason. En þetta trió mun
dæma landsleik Luxemborgar og
Ungverjalands i Evrópukeppni
landsliða eftir nokkra daga.
-klp-
Chelsea
rak
Sexton
Þá kom að þvi i gær, sem marg-
ir hafa búizt við lengi — Lundúna-
liðið Chelsea rak framkvænida-
stjóra sinn Dave Sexton, sem hef-
ur verið við stjórnvölinn hjá
félaginu i Suður-Lundúnum a 11
mörg ár.
Eftir fund framkvæmdastjóra
Chclsea I gær var gefin út sú til-
kynning, að I)ave Sexton hefði
veriö leystur frá störfum. Það
væri félaginu fyrir beztu, að hann
hætti. Jafnframt var Ron Stuart,
scm hefur veriö aðstoðarmaður
hjá Sexton siöustu árin, falið aö
sjá um Chelsea-liðið til að byrja
með. Stuart hefur mikla reynslu
sem framkvæmdastjóri — var
eitt sinn hjá Blackpool með góö-
um árangri.
Chelsca hefur staðið sig slak-
lega i haust og er nú meðal neðstu
liða 1. deildar. Á slöasta keppnis-
timabili seldi Sexton ieikmennina
frægu, Peter Osgood og Alan
Hudson, frá félaginu og risu þá
óánægjuöldurnar hátt innan
félagsins. Margir hafa aldrei
fyrirgefiö Sexton að selja þessa
snjöllu, — en um leið erfiöu —
leikmenn, og meðal annars þess
vegna var öxin reidd I gær. Ann-
ars vekur athygii hin mikla ólga
hjá Lundúnafélögunum i sumar
og haust. Nær helmingur þeirra
hefur skipt um framkvæmda-
stjóra — meðal annars West Ham
og Tottenham — og aðrir sitja á
púöurtunnum eins og Bcrtie Mee
hjá Arsenal. —hsim.
Geir löglegur með
FH gegn SAAB!
„Ég get ekki séö annaö en að
mér sé heimilt að leika með FH
gegn SAAB I Evrópukeppninni I
næstu viku, sagði Geir Hall-
steinsson, er við töluðum við
hann i morgun.
„Reglurnar segja, að það
verði að liöa þrlr mánuðir frá
þvi að leikmaður lék slðasta leik
sinn meö öðru félagi, þar til aö
hann getur tekið þátt I Evrópu-
keppni meö sinu nýja félagi.
Ég iék siðasta leikinn meö
Göppingen þann 6. júli og eru þá
þrir mánuðirnir liönir þann 6.
október. Leikurinn viö SAAB I
Sviþjóö fer fram 10. október svo
þarna munar ekki nema fjórum
dögum.
Við sendum skeyti út i gær til
að fá þetta staðfest, ef eitthvaö
skyldi koma upp, og eigum von
á svari einhverntimann i dag.”
FH heldur utan á miöviku-
daginn i næstu viku, en leikur-
inn við SAAB fer fram I
Linköbing I Sviþjóö á fimmtu-
dagskvöidið. F'H fer utan með
sitt sterkasta liö — 13 leikmenn
— og er mikill hugur I mönnum
fyrir leikinn.
SAAB hefur á aö skipa mjög
góðu liöi. 1 þvi eru nokkrir
landsliösmenn, þar á meðal
einn aðalmarkaskorari Svia,
Björn Andersson. Ekki er vist
hvort hann verður með á móti
FH, en hann hefur átt við
meiðsli aö strlöa aö undanförnu.
Það háir FH-liöinu mikið, að
það hefur enga leiki fengið hér
heima — Reykjanesmótið ekki
hafið og Reykjavikurfélögin
veriö upptckin i Reykjavikur-
mótinu.
FH fær þó einn leik áöur en
það heldur utan — gegn Hellas i
Laugardalshöllinni á sunnudag-
inn. Annar leikur iiðsins á þessu
keppnistimabili verður sem sé
Evrópuleikurinn gegn SAAB.
— klp —
Nýtt landslið í
handknattleiknum
— Birgir Björnsson reynir fimm nýja leikmenn gegn
sœnska liðinu Hellas í nœstu viku
Landsliðseinvaldurinn
i handknattleik Birgir
Björnsson hefur valið
landsliðið, sem á að
mæta sænska liðinu
Hellas i næstu viku.
Birgir hefur gert miklar
breytingar á landsliðinu frá
skipan þess sl. vetur. Velur nú
fimm nýja menn, sem hafa aldrei
áður komið nálægt landsliði,
nema þá unglingalandsliði — en
hinir sjö eru allir margreyndir
landsliðsmenn.
Þessir nýliðar eru: Pálmi
Pálmason, Fram, Stefán Þórðar-
son, Fram, örn Sigurðsson, FH,
Pétur Jóhannsson, Fram og Ólaf-
ur Einarsson FH. Hinir sjö eru:
Guðjón Erlendsson, Fram, Hjalti
Einarsson FH, ólafur H. Jónsson
Val, Jón Karlsson Val, Viðar
Simonarson FH, Einar Magnús-
son Viking og Gunnar Einarsson
FH.... sem sé fimm FH-ingar,
fjórir Framarar, tveir Valsmenn
og einn vikingur. -klp-
Hvað — leikmaðurinn hefur fengið sér sæti á heröum mótherjans. Þessi skemmtilega mynd var tekin I
Osló sl. sunnudag, þegar Valerengen og Molde— liðiö, sem Joe Hooley þjálfaði fyrst I vor, en hljóp svo
frá —kepptu i 1. deildinni norsku. Osló-liðiö Valerengen sigraöi I stórskemmtilegum leik 4-3, og viö þaö
missti Molde af forustunni i deildinni eftir aö hafa trónað i efsta sætinu slöustu vikurnar. Meistararnir
undanfarin ár, Viking frá Stavangcr, eru nú I efsta sæti —en um fyrri helgi unnu þeir hinn þýöingar-
mikla leik í Molde (0-2), og náðu þá Moldeliöinu að stigum. Bæöi voru meö 27 stig eftir þann leik.
■ ^ ^ ^ ^ ^ ^ ^ ^ ^ ^ ^ ^ ^ ^ ^ ^ ^ ^
Sáu aðeins upp-
haf slagsmálanna
— og Ijóðalestur kom í staðinn!
Sovézka landsiiðið I isknattleik
sigraði Kanada 5-2 <2-1, 2-1, 1-0) I
afar grófum leik I Moskvu I gær-
kvöldi og hefur nú tvo vinninga
umfram það kanadiska eftir sex
leiki af átta. Sovézka iiöið hefur
unnið báða leikina i Moskvu, 3-2,
á þriðjudaginn — eftir leikina i
Kanada fyrr I haust, voru liöin
jöfn með einn sigur hvort, og tvö
jafntefii.
Leiknum i gærkvöldi lauk með
slagsmáium. Þar voru fremsir i
flokki Rick Ley, kanadiskur
varnarmaður og Valery
Kharlamov, framherji i sovézka
liöinu. Blóðiö streymdi úr andliti
hins sovézka. Milljónir
sjónvarpsáhorfenda i Sovét-
rikjunum, Astur-Evrópu og
Kanada sáu aðeins upphaf
slagsmálanna, þar sem út-
sendingin var stöðvuö mun fyrr
en vera átti. Ljoðalestur kom i
staðinn.
Leikmenn úr báðum iiðum
„köstuðu” sér yfir Ley og
Kharalamov til að reyna að skilja
þá og átökunum lauk eftir tvær
minútur. Siöar tókust svo leik-
menn i hendur, en Kharlamov
hafði þá yfirgefið völlinn.
A blaðamannafundi eftir leik-
inn sagði þjálfari svovézka lands-
liðsins, Boris Kulagin, að I Sovét-
rikjunum yrðu leikmenn, sem
ientu i átökum eftir leik sendir i
fangelsi i 15 daga. Var þessari
yfirlýsingu hans tekið með mikl-
um fögnuði af sovézku blaða-
mönnunum.
Kulagin ásakaði Ley rciöilega
en ekki voru þó uppi áform um að
fangelsa hann. Þjalfari Kanada-
manna, Biil liarris, tók upp
hanzkann fyrir sinn mann á
hlaöamannafundinum, og sagöi,
að það þyrfti tvo til að hefja
slagsmál. Hann svaraði þeirri
spurningu blaðamanna hvort
Kanada ætlaði að hætta keppninni
vegna þcirra vandræða, sem
skapast hafa, að leikmenn hans
væru ákveðnir I að reyna að sigra
i þeim leikjum, sem eftir eru.
Fyrir leikinn kom upp ágrein-
ingur milii Kanadamanna og
framkvæmdanefndar leikjanna
vegna sæta á áhorfendasvæðum
fyrir eiginkonur leikmanna og
fararstjórn, sem lauk með þvi, að
fararstjórarnir yfirgáfu iþrótta-
höliina og horfðu ekki á leikinn.
- hsim.
Sœnsku lið-
in standa
sig á Evrópu-
mótunum
— Atvidaberg
komst áfram í
meistarakeppninni
Sænsku liðin stóðu sig mjög vel
i fyrstu umferð hinna ýmsu
Evrópumóta i knattspyrnunni —
og I gær komst Atvidaberg áfram
i Evrópubikarnum — keppni
meistaraliða — á kostnað
rúmenska liðsins Universitatea
Craiova. Þar með hafa þrjú
sænsk liö komizt I 2. umferð i
Evrópum ótunum.
Atvidaberg sigraði i gærkvöldi
með 3-1 að viðstöddum 2.500
áhorfendum, svo ekki viröist
áhuginn mikill hjá Svium á þessu
stigi keppninnar. Kannski
skiljanlegt, þar sem meistara-
.keppninni er að ljúka. Malmö FF
hefur þegar sigrað i 1 deildinni.
Mörk Atvidaberg i gærkvöldi
skoruðu þeir Andersson og Alm-
quist tvö, annað úr vitaspyrnu, en
Badin skoraði fyrir rúmenska há-
skólaliðið. Það sigraöi i fyrri
leiknum 2-1, — svo sænska liðið
vinnur samtals 4-3. Leikur
liðanna var á dagskrá á miðviku-
dag eins og flestir aðrir leikir
Evrópumótanna -- en var frestað
eftir sex minútur vegna gifur-
legrar úrkomu. Völlurinn varö á
svipstundu likari sundlaug en
knattspyrnuvelli — og ekkert
annað að gera fyrir dómarann en
stöðva leikinn.
t keppni bikarmeistara komst
Malmö áfram á kostnað sviss-
neska liðsins Sion — og i
UEFA-keppninni áttu Sviar tvö
lið. Djurgarden vann stórsigur á
norska liðinu Start — samtals 7-1.
öster féll hins vegar út eftir
mikla keppni við frægasta lið
Sovétrikjanna — Dynamo
Moskvu. Það var jafntefli eftir
báöa leikina — eins og viö sögðum
frá hér i blaöinu i gær — bæði liðin
skoruðu fjögur mörk, en Dynamo
komst áfram á fleiri útimörkum.
Auk árangurs sænsku liðanna
hefur vakið mikla athygli hve
hollenzku og ungversku liðin
stóðu sig vel i Evrópumótunum —
greinilegt, að Holland er orðið eitt
mesta „stórveldi” evrópskrar
knattspyrnu — og Ungverjar eru
aftur að skipa sér i fremstu röð.
— hsim.
Lið Púskas
slegið út!
Griska liðið Panathinaikos,
sein sá frægi kappi, Ferenc
Puskas stjórnar, sigraði sviss-
neska liðið Grasshoppers með 2-1
i Aþenu i gærkvöldi — en það
nægði griska liðinu sem lék fyrir
nokkrum árum i úrslitum
Evrópubikarsins gegn Ajax, ekki,
þar sem Grasshoppers vann fyrri
leik liðanna i UEFA-keppni með
2-ll i Zurich.
i Aþenu hafði svissneska liðið
yfir i leikhléi, þegar Sandrac
skoraði eina mark þess. llins veg-
ar tókst Panathinaikos betur upp
i siöari hálfleiknum. Antoniadas
skoraði tvivegis — en það nægði
skainmt, griska liðið varð að
skora tvö mörk til viðbótar til að
komast áfrain I aöra uinferð.
Ahorfendur voru 15 þúsund.
En strákarnir geta heldur betur ekið ...
^Varlega, Bommi,
c
Búizt undir orrustu
félagar