Vísir - 16.11.1974, Qupperneq 5
Vlsir. Laugardagur 16. nóvember 1974.
ERLEND MYNDSJÁ
Umsjón Haukur Helgason
12 óra stúlka
myrt í Noregi
Aðalmáliö í Noregi i vikunni var hvarf tólf ára
stúlku/ Bodil Brungot/ og leitin að henni. Stúlkunni
var nauðgað og hún myrt. Tveir bræður viður-
kenndu morðið og vísaði annar þeirra lögreglunni á
staðinn, í sandnámu, þar sem hann hafði grafið
líkið (efst til vinstri á myndinni).
Strjúka kvið sinn....
Þarna sitja vestur-þýzki landbúnaðarráðherrann Josef Ertl (til hægri)
og annar fulltrúi á matvælaráðstefnunni i Róm. Menn hafa borið saman
rikulegan matseðil fulltrúanna og viðfangsefnið, hungrið i heiminum.
TIL HÖFUÐS ARAFAT
Félagi i öfgasamtökum bandariskra Gyðinga, veif-
andi fána ísraels, er hér fjarlægður frá húsi Sam-
einuðu þjóðanna i New York. Samtökunum hafði
ekki tekizt að koma fram hótun sinni um morð á
Arafat og hans mönnum, þegar siðast fréttist.
ÞEIR HERÐA ÓLINA
Denis Healey, fjármálaráöherra
Breta, veifar hinni frægu fjár-
lagatösku. Niöurskuröur er á
dagskrá hjá Bretum og heröing
jnittisólarinnar.
Sykurleysi
í gnœgð
17 þúsund tonn af sykri söfnuðust fyrir i Tate and Lyle
sykurverksmiðjunum í Silvertown, Bretlandi, en hús-
mæður fengu engan sykurinn. Verkamenn lögðu tveggja
vikna bann á keyrslu sykurs frá verksmiðjunum/ af þvf
að þeir óttuðust, að 9000 verkamönnum yrði sagt upp,
þegar sykurinnflutningur vex frá löndum Efnahags-
bandalagsins.
i l
r 1 i
(