Tíminn - 10.05.1966, Qupperneq 2
2
TÍMINN
ÞRIÐJUDAGUR 10. maí 1966
Frambjóðendur hafa orðlð
Veitum þeim ráðningu
Ríkisstjórnin hvatti þjóðina
og launþega sérstaklega til
þess að ganga áfram á þeirri
heillahraut, sem júnísamkomu-
lagið í fyrra hefði lagt. Það
er rétt, að með júnísamkomu-
laginu var með ýmsum haetti
farið inn á nýja braut, og
verkalýðsfélögin gengu þar
með heilindum til samstarfs við
ríkisstjómina um að reyna að
hafa taumhald á dýrtíðinni.
Síðan er senn liðið ár, og
því er rétt að athuga, hver sú
helllabraut er, sem við höfum
gengið. Það er skemmst af að
segja, að verkalýðsfélögin hafa
haldið fullkomlega sinn þátt
samkomulagsins, ekki hækkað
grunnkaup á árinu og ekki tor-
veldað ríkisvaldinu á neinn
hátt að vinna gegn dýrtíðinni.
En ríkisstjómin hefur gersam-
lega brugðizt að sínum hluta.
Hún hefur misst út um fálm-
andi greipar sínar eitt vísitölu-
stigið af öðru, dýrtíðin hefur
hækkað jafnt og þétt, og laun-
þegar aðeins fengið hluta af
hækkuninni bættan í kaup-
gjaldsvísitölu. Nú síðast hefur
ríkisstjómin gersamlega gefizt
upp og með síðustu stórhækk-
unum á brýnum neyzluvörum
almennings hefur hún innsigl-
að svik sín við verkalýðsstétt-
irnar. Og nú vill ríkisstjórnin
um fram allt halda áfram á
þessari braut, sem gengin hef-
ur verið síðan júní-samkomu-
lagið var gert. Það er eina
heillabrautin, sem hún sér. Sú
heillabraut er þannig, að ríkis
stjórnin geri samning við verka
lýðsfélögin og þau haldi hann
alveg að sínum hluta, en ríkis-
valdið sviki hann gersamlega
að sínu leyti og fái óhindrað
að láta dýrtíðina flæða yfir al-
menning.
Vilja launþegar ganga þessa
heillabraut? Það er spurning
dagsins, og henni er fljótsvar-
að. Verkalýðsfélög og launþeg-
ar almennt telja sig hrapa-
lega svikin og hlunnfarin, og
þau vita, að nú er hörð bar
átta fram undan til þess að
reyna að rétta hlut sinn, erfið-
ari samningar en fyrr vegna
brigða stjórnarinnar, og þau
telja heillabraut ríkisstjómar-
innar einmitt það, sem öðru
fremur verði að varast í næstu
samningum. Einmitt vegna
þess hvemig stjómin hefur
svikið júnísamkomulagið, neyð
ist verkalýðsstéttin til þess að
bera fram harðari kröfur en
fyrr og krefjast haldbetri trygg
inga en falsloforð klofinnar
tungu.
Krafa verkalýðsfélaganna
sem jafnan fyrr verður stöðv-
un dýrtíðarinnar, en nú munu
þau krefjast miklu haldbetri
trygginga en áður fyrir því,
að samningar um það verði
haldnir, og þau hljóta nú að
smíða sér eitthvert sverð, er
þau geti haft að staðaldri yfir
höfði ríkisstjórnarinnar og
neytt hana með því til þess
að standa við samninga og gef-
in heit.
Þessum árangri verða launa-
stéttirnar að ná í kjarabarátt-
unni, sem fyrir dyrum er, en
þær ná honum ekki, og engri
stöðvun dýrtíðarinnar verður
komið fram, ef stjórnarflokk-
amir tapa ekki atkvæðum í
borgarstjórnarkosningunum.
Ef þeir koma jafnréttir úr
þeim, munu þeir telja sér óhætt
að halda áfram á heillabraut
Óðinn Rögnvaldsson
ríkisstjórnarinnar, standa ekki
við samninga, láta dýrtíðar-
ófreskjuna herja á almenning
en neita launþegum um rétt-
mæta hlutdeild í vexti þjóðar-
tekna. Þá verða engar kjara-
bætur í sumar. Þess vegna er
launþegum það meiri nauðsyn
en nokkru sinni fyrr að láta
þessi mál hafa áhrif á atkvæði
sitt í þessum borgarstjómar
kosningum. Að gera það ekki
jafngildir því að leika af sér
og gefa síðan taflið. Það meg-
um við ekki gera, og allra sízt
þeir, sem hafa fyrir börnum
og fjölskyldum að sjá. Þeirra
ábyrgð er mest.
Óðinn Rögnvaldsson.
Bílar á kjördag
Þeir stuðningsmenn B-listans,
sem geta lánað bíla á kjördag,
eru vinsaimlegast beðnir að hafa
samband við skrifstofu Frarn-
sóknarflokksins, Tjamargötu 26,
símum 16066, 15564, 12942 eða
23757 hið fyrsta.
Hreppsnefndarkosn
ingar á Reyðarfírði
EJ-Reykjavík, mánudag.
Mikil' aðsókn var að
skemmtisiglingum um sund-
in með björgunarskipinu Sæ
björgu, sem Slysavamar-
deildin Ingólfur efndi til á
sunnudaginn. Farnar voru
sex ferðir og var uppselt
í þær allar. Munu því á
sjötta hundrað manns hafa
farið í skemmtisiglingamar.
Jón Alfreðsson hjá Slysa-
yarnarfélaginu tjáði blaðinu
í dag, að reynt yrði að
halda þessum skemmtisigl-
ingum áfram á kvöldin í
þessari viku, ef veður leyf-
ir. Verðið er 50 krónur fyr-
ir manninn.
Allur hagnaður af ferðum
þessum rennur til greiðslu
á hinni nýju og full-
komnu fjalla- og sjúkrabif-
reið, er björgunarsveit Ing
ólfs er að fá. (Bj. Bj. tók
myndina j samb. við sigl
Framsóknarfélagið á Reyðarfirði
ákvað að standa að lista framfara
sinnaðra kjósenda (M lista). Á
honum eru:
1. Marinó Sigurbjörnsson, verzl-
unarstjóri.
2. Hjalti Gunnarsson, útgm.
3. Egill Jónsson, verkstjóri
4. Aðalsteinn J. Eiríksson, bif-
vélav.
5. Valtýr Sæmundsson, kennari.
6. Steingrímur Bjarnason, bifstj.
7. Björn Egilsson, bifvélavirki
8. Bjarni Garðarsson, sjómaður.
9. Hans Jakob Beck, bóndi.
10. Björn Stefánsson, bryggjuv.
12. Gunnar Hjaltason, vélstj.
13. Erlendur Friðjónsson, bóndi.
14. Bóas Jónsson, skipstjóri.
Ýmsir Framsóknarmenn á Reyð
arfirði bera fram lista (B-lista)
og á honum eru:
1. Björn Eysteinsson, skrifstofus.
2. Guðjón Þórarinsson, rafv.m.
3. Baldur Einarsson, bóndi
4. Einar Sigurðsson, trésmiður.
5. Hermann Ágústsson, gjaldk.
6. Sigurður M. Sveinsson, bif-
reiðaeftirlitsm.
7. Pétur V. Jóhannsson, bóndi.
8. Guðgeir Einarsson, verkam.
9. Jóhann Björgvinsson, bóndi.
10. Hörður Hermóðsson, bifr.stj.
11. Jón G júlíusson, bifr.stj.
12 Hörður Bermann, verzlunarm.
13. Ólafur Sigurjónsson, verzlm.
14. Þorsteinn Jónsson, fyrrv. kaup
félagsstjóri.
VERÐBRÉFALÁN
Framhald af bls. 1.
verið hentugt, þegar eigandi vill
selja eða fá innleystan hluta af
skírteinaeign sinni. Hins vegar
getur eigandinn haldið bréfunum
allan lánstímann, sem er 12 ár,
og nýtur hann þá fullra vaxta og
verðtryggingar allt það tímabil.
3) Verðmæti skírteinanna tvö-
faldast á tólf árum. Vextir og
vaxtavextir af skírteinunum leggj
last við höfuðstól, þar til innlausn
fer fram. Sé skírteinunum haldið
! í 12 ár tvöfaldast höfuðstóll þeirra,
en það þýðir 6% meðalvexti allt
lánstímabilið. Ofan á innlausnar
upphæðina bætast síðan, eins og
áður segir, fullar verðbætur sam-
kvæmt vísitölu byggingarkostnað-
ar.
4) Skattfrelsi. Skírteinin njóta
alveg sömu fríðinda og sparifé við
banika og sparisjóði, og eru þann
ig undanþegin öllum tekju- og
eignarsköttum, svo og framtals-
skyldu.
5) Hagstæðar bréfastærðir. Lögð
er áherzla á, að þessi bréf verði
að stærð hagsitæð öllum almenn-
ingi. Verða bréfin í tveimur stærð
um 1.000 og 10.000 krónu bréf.
KOSNINGASKRIFSTOFUR
FRAMSÓKNARFLOKKSINS
Sauðárkrókur — Suðurgata 3, sími 204.
Kópavogur — Neðstatröð 4, sími 4-15-90.
Hanarf jörður — Norðurbraut 19, sími 5-18-19 — og
Strandgötu 33, sími 5-21-19.
Keflavík — Framnesvegur 12, sími 1740.
Akureyri — Hafnarstræti’ 95, sími 1-14-43 og 2-11-80.
Vestmannaeyjar — Strandvegur 42, síini 1080.
Garðahreppur — Goðatún 2, sími 52261, 52262 og
52263.
i Hverfaskrifstofur
B-listans / Rvík
Hverfaskrifstofur B-listans í Reykjavík eru á
eftirtöldum stöðum:
Fyrir Melaskólann: Hringbraut 30. sími 1-29-42.
Fyrir Miðbæjarskólann: Tjarnargata 26, sími 1-55-64.
Fyrir Austurbæjarskólann: Laugavegur 168, sími 2.35-19.
Fyrir Sjómannaskólann: Laugavegur 168, sími 2-35-18.
Fyrir Laugarnesskólann: Laugavegur 168, sími 2-35-17.
Fyrir Álftamýrarskólann: Álftamýri 54, sími 3-85-48
Fyrir Breiðagerðisskólann: Búðargerði 7, sími 3-85-47.
Fyrir Langholtsskólann: Langholtsvegur 91, símar
3-85-49 og 3-85-50.
Allar skrifstofurnar verða opnar frá kl. 2—10 nema
hverfamiðstöðin að Laugavegi 168 sem verður opin frá
kl.'lO—10, simi 2-34-99.
Stuðningsfólk B-listans' Hafið samband við hverfaskrif-
stofurnar á viðkomandi stað Veitið þeim allar þær upp-
lýsingar, sem að gagni mega koma við kosningaundir-
búninginn.