Tíminn - 28.05.1966, Síða 7
LAUGARRAGUR 28. maí 1966
TÍMINN
Þungur áfellis-
dómur
Úrslit bæjar og sveitarstjóma
kosninganna urðu hinn þyngsti
áfeliisdómur um stefnu ríkis-
stjómarinnar. Tapaði Sjálfstæð
isflokkurinn fylgi, sem svarar
til þess, að tíundi hver fylgismað
ur flokksins hafi snúið við lion
um baki. Alþýðuflokkurinn vann
hins vegar fulltrúa í Reykjavík
og bætti við sig 1713 atkvæðum
miðað við borgarstórnarkosning
amar 1962, en íylgi flokksins
stóð sem næst í stað í kaupstóð
unum utan Reykjavíkur. Ekki
endurheimti Alþýðuflokkurinn
þó allt það fylgi í Revkjavik,
sem hann fékk í alþingiskosn
ingunum 1963. Fékk nú 51 at-
kvæði færra en þá og tapaði
því hlutfallslega nokkru fylgi
miðað við þær.
Alþýðubandalagið hélt velli
í kosningunum, jók nokkuð
fylgi sitt í Reykjavík, en tapaði
nokkru fylgi hlutfallslega í öðr
um kaupstöðum.
Framsóknarflokk-
urinn sigraði
Framsóknarflokkurinn varð
sigurvegari kosninganna. Jók
hann heildarfylgi sitt stórlega,
bætti við sig rúmum tvö þúsund
atkvæðum í Reykjavík og var
eini flokkurinn, sem jók fylgi
sitt hlutfallslega, þegar litið er
í heild á kaupstaðina utan
Reykjavikur — utan þá, þar sem
ekki voru hrein flokkaframboð
nú og í síðustu kosningum, en
það er eina rétta leiðin til raun
hæfs samanburðs á heildarfylgi
flokkanna . og allt annað leiðir
til rangra og furðulegra niður
staðna eins og kom bezt í ljós
í yfirliti Ríkisútvarpsins varð
andi atkvæðaaukningu og full-
trúafjölgun Alþýðuflokksins í
(bæjunum. Framsóknarflokkur-
inn er nú orðinn stærsti stjórn
málaflokkurinn í fjórum af
kaupstöðum landsins, Kcflavík,
Akureyri, Sauðárkróki og Húsa
vík. Glæsilegustu kosningasigr-
ar flokksins voru í Keflavík og
á Sauðárkróki og er um svo stór
kostlegar breytingar á fylgi
flokka þar að ræða, að nær
einsdæmi er í sögu kosninga á
íslandi. Bætti Framsóknarflokk
urinn við sig tveimur fulltrúum
á hvorum stað, en fylgi Sjálf-
stæðisflokksins hrundi.
f Vestmannaeyjum vann Fram
sóknarflokkurinn fulltrúa með
glæsibrag og felldi þar meiri-
hluta Sjálfstæðisflokksins í
Eyjum. Á Seyðisfirði vann flokk
urinn fulltrúa og á ísafirði einn
ig. Hins vegar tapaði flokkurinn
fulltrúa í Hafnarfirði naumlega
— og öðrum í Neskaupstað.
Framsóknarflokkurirm bætti
því við sig 5 bæjarfulltrúum í
kaupstöðunum, þegar á heildina
er litið. Vann 7 fulltrúa en lap
aði 2.
Hafnarfjörður
I Hafnarfirði urðu stjórnar-
flokkarnir báðir fyrir stórfelldu
áfalli. Þar vann listi óháðra
borgara glæstan og eftirminni
legan sigur og fékk 3 fulltrúa
kjörna í bæjarstjórn. Fékk listi
óháðra fylgi sitt bæði frá Sjálf
stæðisflokknum og Alþýðu-
Skaftafell í Öræfum.
Menn oo málofni
flokknum og einnig nokkuð frá
Framsóknarflokknum. Einkum
hljóta þessi úrslit að verða íhug
lUnarefni fyrir Emil Jónsson,
,formann Alþýðuflokksins, sem
ráðið hefur nær einn öllu í
Alþýðuflokknum í Hafnarfirði
í áratugi. Nú er svo komið fyr-
ir Alþýðuflokknum í gamla höf-
uðvíginu, Hafnarfirði, þar sem
flokkurinn hafði um langt skeið
hreinan og öruggan meirihluta,
að hann fær aðeins kjörna 2
fulltrúa af 9 í bæjarstjórn!
Hrun Sjálfstæðis-
flokksins.
Sjálfstæðisflokkurinn galt
víða algert afhroð í kosningun-
um. í Reykjavík tapaði flokkur-
inn verulegu fylgi og fékk nú
meirihluta borgarfulltrúa
kjörna á minnihluta atkvæða.
Hrapaði fylgi flokksins úr 52%
í 48% atkvæða. Lafir meirihlut-
inn nú á þeirri hendingu og
heppni Sjálfstæðisflokksins, að
atkvæði skiptust þannig milli
andstöðuflokkanna, að hundruð
atkvæða féllu „dauð“. Hefðu 386
þeirra andstæðinga íhaldsins,
sem kusu Alþýðubandalagið,
kosið Framsóknarilokkinn, væri
íhaldið í Reykjavík fallið. Úrslit
in í Reykjavík sýndu mönnum
því, að það er rangt, sem þeir
voru margir farnir að trúa, að
Sjálfstæðisflokkurinn væri ósigr
andi í Reykjavík.
Hinar „staðbundnu
ástæður*
Forsætisráðherrann lætur
Mbl. segja, að fráleitt sé að
„túlka úrslit kosninganna sem
mótmæli kjósenda á stjórnar-
stefnunni". „Atkvæðatap flokks
ins á einstökum stöðurn" sé
jvegna „staðbundinna ástæðna".
|Sýnist mönnum þessi viðbrögð
jhin vesaldarlegasta tilraun for-
sætisráðherrans til að koma
ósigrinum af sér yfir á Geir borg
arstjóra.
Um langt skeið hefur Sjálf-
stæðisflokkurinn ætíð komið
sterkari út úr bæjarstjórnar-
kosningum en alþingiskosning-
um. Sjálfstæðisflokkurinn tap-
aði nú mjög verulegu atkvæða-
magni, meira atkvæðamagni í
hlutfallstölum en íhaldsflokk-
urinn í Bretlandi í þingkosning-
unum þar í vor og kallaði Morg
unblaðið þau úrslit eins og aðr-
ir stórsigur Verkamannaflokks-
ins. Það er á almanna vitorði, að
fylgishrun Sjálfstæðisflokksins
hefði orðið mun meira ef kosið
hefði verið til Alþingis síðast
liðinn sunnudag. Þess vegna er
miklu nær að segja, að „stað-
bundnar ástæður“ hafi valdið
því, að fylgishrun Sjálfstæðis-
flokksins varð ekki miklu meira
en raun varð á. í kosningunum
lýstu menn andúð sinni á stjórn
arstefnunni og „staðbundnar
ástæður“ gátu ekki bjargað fylg
ishruni flokksins í Reykjavík.
Allir vita, að Geir Hallgrímsson
er vinsælli en Bjami Benedikts
son, samanber allar útsrikanim-
ar á manninum í neðsta sætinu
á lista Sjálfstæðisflokksins, en
algert einsdæmi er, að menn
séu strikaðir út af neðstu sæt-
um framboðslista.
Alþýðublaðið segir í yfirliti
um atkvæðafylgi og fulltrúatölu
flokkanna í kaupstöðunum eftir
kosningarnar, að Alþýðuflokkur
inn hafi verið sá flokkur, sem
mestu fylgi hafi bætt við sig og
aukið við sig 4 bæjarfulltrúum
umfram þá, sem flokkurinn tap
aði. Vitnar Alþýðubl. til óskeik-
ulleika Ríkisútvarpsins í þessu
sambandi.
ísafiörður
Þessi útkoma er fengin með
því að telja Alþýðuflokkinn hafa
unnið tvo nýja fulltrúa á ísa-
firði og einn nýjan á Sauðár-
króki og allt fylgið á bak við
þá nýtt fylgi Alþýðuflokksins
vegna þess að í síðustu Kosn-
ingum hefðu fulltrúar Alþýðu
flokksins verið kjömir af sam
bræðslulistum. Það rétta er, að
Alþýðuflokkurinn hafði einn
fulltrúa á Sauðárkróki og stend
ur þar í stað og á ísafirði hafði
flokkurinn 3 fulltrúa en fékk
aðeins 2 kjörna nú og tapaði þvi
einum til Framsóknarflokksins.
Á ísafirði hénda menn gaman að
þessum útreikningum og finnst
að vonum skrítið, að Alþýðu-
flokkurinn vilji .ekki kannast
við að hafa átt neina bæjar-
fulltrúa og ekkert fylgi á ísa-
firði síðasta kjörtímabil og nokk
uð langt gengið, þegar sá flokk
urinn, sem tapar vemlega seg-
ist hafa unnið hvorki meira né
minna en tvo fulltrúa!
Það er óskiljanlegt, hvers
vegna Alþýðuflokkurinn vill
minna menn á fylgishrun sitt
á ísafirði á undanförnum ánun
með þessum hætti. Síðast þeg-
ar Alþýðuflokkurinn bauð fram
sér lista á ísafirði fékk flokk-
urinn 520 atkvæði og 4 full-
trúa í bæjarstjóm, en nú aðeins
323 atkvæði og tvo menn
•kjöma.
Sé litið á kaupstaðina í heild
stendur fulltrúaauknig Alþýðu
flokksins á núlli. Flokkurinn
vann fulltrúa í Reykjavík, á Ak-
ureyri og Ólafsfirði, en tapaði
jafnmörgum fulltrúum í Hafnar
firði, Seyðisfirði og ísafirði.
Skaftafell
Þau gleðOegu tíðindi hafa nú
gerzt, að gengið hefur verið frá
samningum um það, að Skafta-
fell í Öræfum og Bæjarstaða-
skógur verði þjóðgarður. Skafta
fell er til þess kjörið. Það er 1
afskekktustu sveit landsins, þar
sem íslenzk náttúrufegurð birt
ist jafnt í hrikaleik sem smá-
gervi, og þar er einnig að finna
merkilegar minjar og lifandi
brot hverfandi sveitamenningar.
Vegleysur og stórfljót hafa girt
þangað leið, svo að Öræfingar
hafa löngum verið einir um und
ur sveitar sinnar. Nú er sú ein-
angrun endanlega rofin, og hin
ar viðkvæmustu dásemdir Ör-
æfa í yfirvofandi hættu af á-
troðningi. Þess vegna er ákvörð
unin um þjóðgarð að Skaftafelli
tekin á réttum tíma. En þess ber
um leið að minnast, að ákvörð-
unin er ekki nóg. Á eftir verður
að fylgja myndarleg framkvæmd
verndarin'nar og umhyggjunnar,
sem slíkur þjóðgarður þarf.
Mývatnssveif
En þeir eru fleiri staðirnir á
landinu, sem þurfa að verða
að þjóðgörðum, eða að minnsta
kosti hálfgildings-þjóðgörðum,
þar sem landeigendur, einstakl-
ingar eða hreppar, og ríkið gerir
með sér samkomulag um vernd
un samfara hæfilegri nýtingu.
Aðra staði er réttmætt að gera
að algerum þjóðgörðum með
fullkominni vernd.
Skógrækt ríkisins gerir suma
staði að eins konar þjóðgörðum,
eða veitir þeim hliðstæða vemd.
Má t. d. nefna Hallormsstaða-
skóg, Vaglaskóg, hluta af Skorra
dal og fleiri staði. Við Geysi er
og þjóðgarðsvísir. En fjöldi ann
arra staða bíður vemdar. Jökuls
árgljúfrið neðan Dettifoss ætti
t. d. að verða verndarsvæði, þar
sem viðkvæmur en yndisfagnr
gróður blómstrar í hrikaskjóli
gljúfranna, og með þurfa að
fylgja Hólmatungur og Hljóða
klettar.
En efst í huga hlýtur þó Mý
vatnssveit að vera, einkum með
hliðsjón af þeirri atvinnubylt-
ingu, sem þar er nú að gerast
með tilkomu kisilvinnslunnar.
Mývatnssveit er reitur, sem
ekki á sinn líka í norðanverðri
Evrópu. Þessi vin í eldhraun
inu býr yfir gróðurmætti, sem
er fjölskruðugri að lífi jurta,
skordýra og fugla en nokkur
annar reitur á svo norðlægum
slóðum. Gróðurinn á bökkum
vatnsins er einstæður, fiski-
sældin í vatninu sömuleiðis, og
vatnið og umhverfi þess fugla
paradís, einkum að fjölbreytni
andategunda, sem á sér engan
líka. Við bætast svo merkilegar
og ægifagrar hraun- og eldfjalla
myndanir og brennisteinshverir.
Allt þetta, jafnt hin lifandi sem
dauða náttúra er mjög viðkvæm
og þolir illa átroðning úr hófi
fram. Meðan Mývetningar
bjuggu þar einir, nýttu sveit
sína og vernduðu var þar engu
hætt. Með hinum gífurlega
ferðamannastraumi þangað síð
ustu ár börðu hætíurnar á dyr,
og vafalaust hefur ýmislegt
spillzt á síðustu árum þar. En
þó er enginn skaði skeður enn.
Það er fyrst riú með röskun
vatnsbotnsins og stórauknum á-
troðningi, byggingum og fólks-
fjölgun, sem hættan vofir yfir.
Þó er ekki rétt að ætlast til
þess, að þessu sé vikið brott.
Skyldan er aðeins sú að sam-
ræma hið hagnýta og náttúru-
verndina. Mývatnssveit verður
ekki gerð að þjóðgarði í þeim
skilningi, að ríkið taki þar alla
ráðsmennsku af sveitarbúum,
sem þurfa að nýta þar lönd og
hlunnindi sér tií framfæris. I
því liggur vandinn, að hér þarf
sérstaka tilhögun og mikla og
vandasama samvinnu þriggja að
ila. Þeirri samvinnu hefur ekki
verið stakkur skorinn enn svo
að hæfi, en það má ekki dragast.
Réttmætt er, að hinn aðvíf-
andi kísiliðjuaðili leggi fram
verulega fjármuni til náttúru
Framhald á bls. 11.