Tíminn - 28.05.1966, Page 11

Tíminn - 28.05.1966, Page 11
LAUGARDAGUR 28. maí 1966 TIMINN Ir\ SKARTGRIPIRl jí. HVERFtSGÖTU 16A — SIMl 21355. 1 J Auglýsing um lögtök Samkvæmt beiðni Ríkisútvarpsins dags. 26. maí 1966 úrskurðast hér með, að lögtök fyrir ógreidd- um afnotagjöldum útvarps fara fram að átta dög- um liðnum frá birtingu úrskurðar þessa. Yfirborgarfógetinn í Reykjavík, 27. maí 1966. Kr. Kristjánsson. NOTUÐ SKRIFSTOFU- HðSGÖGN TIL SÖLU Notuð en vel með farin skrifstofuhúsgögn (aðal- lega skrifborð) eru til sölu. Þeir, sem áhuga kynnu að hafa á kaupum, leggi nöfn sín í lokuðum um- slögum inn á afgreiðslu blaðsins fyrir 3. júní n.k. merkt „Skrifstofuhúsgögn”. Skólagarðar Kópavogs taka til starfa í byrjun júní. Innritun fer fram í görðunum við Fífuhvammsveg og Kópavogsbraut dagagna 1. og 2. júní kl. 1—5. Þáttaka er miðuð við böm á aldrinum 9—12 ára. Þátttökugjald er kr. 300,00. Forstöðumaður. Konan mín Guðfinna Andrésdóttir andaðist aS heimili sínu MiSfelli, 'Hrunamannahreppi, fimmtudaginn 26. þ. m. Jón ÞórSarson. AlúSar þakktr færum vlS öllum, er sýndu samúS og vlnarhug viS andlát og jarSarför, Ingveldar Þóru Jónsdóttur GuSmundur Elríksson, börn, tengdabörn, og barnabörn. ElginmaSur minn, faSIr, fósfurfaSir og tengdafaSlr Kristinn Grímssón frá Horni andaSlst aS morgni föstudagsins 7. maí, ( siúkrahúsi Hvítabandsins. GuSný Halldórsdóttir, bðrn, fósturbörn og tengdabörn. Bændur 12 ára drengur, stór eftir aldri, óskar eftir að kom- ast á gott sveitaheimili í sumar. Búinn að taka land- búnaðarnámskeið. Upplýsingar í síma 10372 eftir kl. 6 á kvöldin. HÓTELIN Framhald af bls. 1. over“ gesti Loftleiða, sem stanza í 1—3 daga. Þorvaldur sagði, að miklu stærri hópur íslendinga notfærðu sér hótelin en áður hefði verið, ekki sízt núna um vertíðar- •iokin. Sömu sögu væri að segja um Hótel Holt, nýtingin hefði verið góð og mikið væri bókað fram í september. Hvað þá tæki við, það væri höfuðverkur allra hótelrek- enda. HVAÐ TEFUR Framhald af bls. 1. í daig 48 sttunda hungurverkfaU til þess að mótmiæla stuðningi 3anda ríkjamanna við stjóm Kys. í kvöld var orðrómur á kreiki um, að munkar myndu brenna sig til dauða á torgum í Hue til þess að mótmæla Ky-stjórninni og Bandaríkjamönnum. Um 2000 manns fóru í mófcmæla göngu í Saigon í dag, og réðst lögreglan að þeirn með táragas- sprengjum og dreifði mannfjöldan um. Lítið var um bardaga í Víetnam í dag, en nofckuð um sprengjuárás ir Bandaríkjamanna. Góðar heimildir segja, að Ho Chi Mlnh, forseti Norður-Víetnam, sé nú í Fefcing, eða á leið þangað, og er talið, að tilgangurinn sé að reyna að trygigja að deilan milli Kína og Sovétríkjanna hafi etoki áhrif á stuðning þessara rífcja við Norður-Víetnam. SÍLDARVERKSMIÐJA Framhald af bls. 2 lagt hefði borizt í fyrra 17 þús. mál til verksmiðjunnar. í vetur sagði Magnús, að sótt hefði verið um aðstoð til þess að rekstur verksmiðjunnar gæti hald- ið áfram. Hefði félagsmálaráðu- neytið orðið við þessari beiðni, en sett þau skilyrði, sem ókleift’ væri að uppfylla. Væru skilyrðin á þá leið að semja yrði um allar skuldir verksmiðjunnar og afla aukins hlutafjár, sem næmi hálfri annarri milljón króna í handbær- um peningum. Þá yrði verksmiðj- an og að tryggja sér hráefni. Sagði Magnús, að bæði ríkisstjóm in og aðrir vissu gjörla, að ger- samlega útilokað væri að uppfylla öll þessi skilyrði. Vegna þessa tilboðs sagði Magn ús, að sveitarstjóm Skeggjastaðar- hrepps hefði sent félagsmálaráð- herra Eggert Þorsteinssyni eftir- farandi skeyti: „Hrepi>snefnd Skeggjastaða- hrepps harmar að ráðuneyti yðar sá sér ekki fært að veita þá að- stoð, er Sandvík h.f. þurfti til að halda áfram rekstri síldarverk- smiðju á Bakkafirði. Framundan er uppboð og gjaldþrotaskipti. Með því er kollvarpað eina at- vinnufyrirtæki byggðarlagsins. Fjöldi einstaklinga auk hreppsfé- lags tapa stórfé. Við blasir atvinnu leyisi og upplausn byggðarlagsins." Sagði Magnús að lokum, að sárt væri að horfa á verksmiðj- una fara undir hamarinn á með- an aðrir væru að vinna síldina, því að sínum dómi hefði verk- smiðjan aldrei verið nær því að bera sig fjárhagslega, en nú ug að- eins hefði þurft aðstoð ríkisstjórn- arinnar til þess að koma undir hana fótunum. SJÓNVARP Framhald af bls. 6. Fölsuð mótmæli. Framangreindir reikningar eru miðaðir við, að undirskriftirnar séu allar ósviknar og söfnunar- menn hafi haldið þær reglur, sem þeir sjálfir settu Sér, enda gerir enginn ráð fyrir öðru að óreyndu. Svo undarlega vill þó til, að ekki þarf að skoða nema lítið brot und- irskriftalistanna til að komast að hinu gagnstæða. Fjölmörg dæmi má finna þess, að sama rithönd er á fjölda undir- skrifta, jafnvel heilum listum. Ekki er að efa, að margir þeirra, sem ritað hafa nöfn annarra, hafa gert það með vitnund þeirra og vilja. En ögerlegt er að fullyrða þar um hvert einstakt tilfelli, og und- arlegir eru þeir menn, sem taka við slíkum undirskriftum og senda þær áfram til alþingis. Ekki þarf lengi að leita í list- anum til að finna nöfn fólks inn- an 18 ára aldurs. Þannig rita þar undir Halldór Egilsson, Banka- stræti 11, Garðar Ó. Gíslason, Skaftahlíð 29, Hanna Sigurðardótt- ir, Háteigsvegi 2, og Erna Ágústs- dóttir, Hólmgarði 13, en þau eru öll fædd árið 1952 og verða því 14 ára í ár. Getur hver og einn sannreynt þetta með því einu að fletta upp í íbúaskrá Reykjavíkur. Einnig er þarna átta ára.drengur, Valtýr Grétar Einarsson, Berg- staðastræti 65 (f. 26. jan. 1958) og skorar á alþingi, hvergi smeyk- ur. Þetta eru aðeins örfá dæmi tínd til af nokkrum listum úr einu hinna 14 hefta, sem listarnir eru bundnir í. Margt fleira mætti telja, og aldursflokkarnir 16—17 ára virðast litlu fátíðari á listan- um en 18—19 ára. Brögð eru einnig að því, að fólk hafi skrifað sig oftar en einu sinni á listana. Stundum heyrast menn jafnvel hrósa sér af því, að þeim hafi tekizt að koma nafni sínu á marga lista. Erfitt er að sannprófa þetta, en þó má nefna sem dæmi Enok Guðmundsson, Arnarhrauni 16, Hafnarfirði, en nafn hans kemur fyrir á tveim listum með skömmu millibili í einu heftanna. Margt fleira mætti finna að und- irskriftalistunum, sem gerir þá marklitla sem viljayfirlýsingu. Er- lendum ríkisborgurum virðist hafa leyfzt að skrifa undir, og er það næsta hæpin ráðstöfun. Þá eru sums staðar heilir listar Idipptir út úr dagblöðum, þar sem ekki er tilgreint eitt einasta heimilisfang. Má geta, hvert tækifæri stjórn fé- lagsins hefur haft til að prófa gildi slíkra undirskrifa, aldur þess fólks eða tilvist yfirleitt. Við þetta breytist að sjálfsögðu talsvert hlutfallstala þeirra, sem mótmæla lokun hermannasjón- varpsins, og verður þá enn lægri prósenttala þeirra, sem vilja hafa sjónvarpið áfram. Það skiptir þó ekki mestu máli. Sú tala er þegar nógu lág til að segja sína sögu, þótt ekki sé reiknað með neinum blekkingum. Meira máli skiptir það, sem falsanir undirskriftanna segja um það hugarfar. sem ráðið hefur söfnuninni. Þeir menn, sem þykjast berjast í nafni frelsisins fyrir áframhaldandj sendingum Keflavíkursjónvarpsins, hafa sýnt sig í því að senda alþingi fölsuð og blekkjandi skjöl til framdráttar máli sínu. Engum þurfti að koma á óvart, þótt einhverjir þeirra, sem sáu listana. hafi ekki gert sér ljóst hvað hér var á ferðinni, og, sízt verða börnin ásökuð, þótt þau létu blekkjast til að skrifa undir. En það er óafsakanlegt af stjórn Fé- lags sjónvarpsáhugamanna að af- henda alþingi slík plögg undir því yfirskyni. að þau væru eingöngu áskoranir borgara, sem komnir ^yæru til vits og ára. Ekki lætur stjórn Félags sjón- ______________________________n varpsáhugamanna sér þó nægja að gefa alþingi villandi upplýsing- ar um aldur þeirra og raunveru- legan fjölda þeirra, sem undir skrifa. Hún tekux sér einnig fyrir 'hendur að upplýsa þingið um skoðanir undirskrifenda langt fram yfir það, sem þeir hafa sett nöfn sín undir á undirskriftalist- anum. f bréfi stjórnarinnar til al- þingis er tekið upp nær óbreytt ávarp hennar frá upphafi söfnun- arinnar með öllum þess firrum og því bætt við, að þetta séu einh- ig skoðanir þeirra, sem undir hafi ritað. Síðan heldur stjórnin áfram um hríð að gera undirskrifendum UPP þær skoðanir, sem henni sýn- ist, að sjálfsögðu gersamlega heim ildalaust. Upplýsingar undirskriftanna. Þótt undirskriftasöfnun þessi sé svo hraklega úr garði gerð, er hún þess virði, að henni sé veitt full athygli. Að sumu leyti veitir hún talsvert merkar upplýsingar. Hún gefur að vísu ekki tilefni til neinna fullyrðinga um tengsl Félags sjónvarpsáhugamanna við þá, sem hagnast af sölu sjónvarps- tækja. En hún bendir mönnum á að veita samskiptum þessara að- ila fulla athygli. Er ástæða til að ætlast til þess af stjórn félags- ins, að hún skýri frá, hvernig skiptum þeirra er háttað, t.d. bvað sjónvarpsverzlanir 'hafa áskilið sér í endurgjald fyrir að taka við söfn- unarlistum. Söfnunin sýnir, svo ekki verður um villzt, að almannavilji er ekki með því, að Keflavíkursjónvarpið haldi áfram sendingum sínum til íslendinga, eftir að íslenzkt sjón- varp tekur til starfa. Hlutfallstala á&korenda ér svo lág, að ekki getur stafað af neinu öðru en þvi, að yfirgnæfandi meirihluti lands- manna vilji láta loka hermanna- sjónvarpinu. Loks sýnir undirskriftasöfnun- in, að ekki er ástæða til að taka alvarlega nokkuð það, sem frá Fé- lagi sjónvarpsáhugamanna kemur. Því hefur stundum verið haldið fram í sambandi við áskoranir sextíumenninga og háskóla- stúdenta, að það væri á einhvern hátt móðgun við alþingismenn að senda þeim áskoranir um þessi mál eða önnur. Að sjálfsögðu er þetta mesta fjarstæða, hver maður hlýtur að hafa fullan rétt til að láta í Ijós vilja sinn við fulltrúa sína á alþingi. En það hlýtur að teljast alvarleg móðgun við al- þingi að senda því slíkan ómark- ing, sem áskorun sjónvarpsáhuga- manna er. Gunnar Karlsson. MENN OG MÁLEFNI Framhald af bls. 7. verndarinnar, því að af honum og stafar mesta hættan. Ferða mennirnir verða einnig að leggja fram sinn skerf til verndarinn ar, svo og ríkið. Vafasamt er, að náttúruverndarráð hafi þarna öll verndarráð, þótt þvl beri að hafa forystu um tryggingu og skipun þessara mála, en hitt er líklegra til árangurs að nátt úruverndarráð ríkisins og sveit arfélagið sjálft, eða sérstök verndarsamtök sveitarbúa sjálfra, er stofnuð yrðu til þess að standa á þessum verði, mynd uðu síðan verndarráð sveitarinn ar. Aðgerðirnar yrðu síðan við það miðaðar að koma í veg fyrir náttúruspjöll af völdum kísil vinnslunnar, ferðamanna og vax andi fólksfjölda i sveitinni, en um leið tryggt að búskapur sveit arinnar geti notið sín sem fyrr. Setja mætti ákveðna staði undir sérstaka vörslu en hafa eftirlit með öðrum og vera viðbúinn að grípa í tauma, ef illa horfir. Mikil náttúruspjöll í Mývatns sveit væru óbætanlegur skaði. 1 Slíkt má ekki gerast.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.