Vísir - 21.12.1974, Síða 3
Visir. Laugardagur 21. desember 1974.
3
Brœður tveir lentu í snjóskriðu ó Seyðisfirði:
Annar skorðaðist undir
hluta af fjárhúsþakinu
— hinn bjargaðist
úr skriðunni af
eigin rammleik
— um þriðjungur
fjórins kramdist
til bana
„Þegar Eyjólfi tókst aö klóra
sig upp úr snjóflóðinu, sem hafði
hrifiðhann með sér, tók hann að
kalla á bróður okkar, sem með
honum hafði verið. Þegar hann
heyrði svarað, hljóp hann eftir
hjálp en tók svo að moka á
hijóðið. Eftir svo sem hálftlma
tókst að bjarga yngri bróðurn-
um úr flóðinu.”
Eitthvað á þessa leið skýrði
Daði Kristjánsson á Selstöðum I
Seyðisfirði frá þeim atburöi, er
snjóflóð lenti þar á fjárhúsi, þar
sem tveir bræður hans voru
staddir.
„Það var um hálf ellefuleytið
I morgun að tveir bræður mínir,
Eyjólfur, 23ja ára, og Ómar
Bjarki, niu ára, voru að fara til
gegninga. ómar var kominn inn
I fjárhúsið, en Eyjólfur var að
moka frá þvi. Þá heyrði Eyjólf-
ur allt i einu dyn og sá snjóflóð
koma á miklum hraða. Hann
reyndi að hlaupa undan þvi, en
komst ekki nema fáa metra, áð-
ur en flóðið hreif hann með sér.
Hann barst með þvi nokkurn
spöl, en tókst siðan að rifa sig
upp úr þvi. Þá sá hann ekki örla
á húsunum.
Hann byrjaði strax að kalla á
ómar Bjarka, og var fljótlega
svarað. Eftir svo sem hálftima
varkomið niður á strákinn, sem
lá undir hluta af fjárhúsþakinu,
alveg skorðaður. Hann hafði
staðiö upp við stoð I húsinu og
skorðast þar. Hann var alheill
og hinn hressasti.
Björgunarsveitir frá Seyðis-
fjarðarkaupstað komu fljótlega
á vettvang með báti og komust á
land á gúmmibáti. Það var ekki
vogandi að fara á snjóbil vegna
snjóflóðahættu. Núna undir
kvöldið er verið að ljúka við að
moka upp úr rústunum. 1 húsinu
voru 130 ær og eru um 40 þar af
dauðar. Þær höfðu kramizt og
sumar þeirra, sem lifa, eru lim-
lestar. Við getum þrengt þeim,
sem eftir verða, i önnur hús hér
heima. Við höfum tvö önnur
fjárhús og hesthús.
Fyrir ofan fjárhúsið, sem
varð fyrir flóðinu, var litil
hlaða. Hún og fjárhúsin færðust
fram um þrjá til fjóra metra og
lögðust svo fram yfir sig. Þetta
var lítil hlaða og ekki með miklu
heyi, en það sem i henni var er
dreift um allt. Aðalheyið var i
stórri hlöðu við annað fjárhús-
anna, sem eftir standa. Annars
munaði ekki nema hársbreidd,
aðflóöið lenti lika á öðru þeirra.
Þetta snjóflóð er um 60-70
metrar á breidd, og rann alla
leið fram i sjó. Við höldum, að
það hafi komið hátt ofan úr
eggjum. Við höfum ekki séð upp
eftir fjallinu, þvi að hér er
glórulaus hrið, en það má ætla,
aö fleiri flóð geti komið hér.
Annars hefur ekki komið snjó-
flóð á þessum stað fyrr.
Fönnin er orðin býsna mikil
hér, tekur manni i mjöðm.”
Selstaðir standa um 10 km út
með Seyðisfirði að norðanverðu.
Bóndi þar er Kristján Eyjólfs-
son, og heimilismenn eru sjö
talsins. _ sh
=ss~ 38 þúsund „vel boðlegt"
Við höldum verðbólgujól.
Hversu dýr eru þau fyrir meðal-
fjölskyldu? Það er geysi mis-
jafnt, úr hve miklu menn hafa
að spila, og einnig er mikill
munur á, hvernig menn taka
hátlöirnar. Okkur telst þó til, að
38 þúsund krónur gætu veitt
fimm manna fjölskyldu mjög
„boðlegt” jólahald, I verald-
legum gæðum reiknað. Margir
munu ekki ráða við sllka eyðslu.
Sumir fá vlxil.
Hve mikið fer i hátiðamatinn?
2500 krónur á hverja máltið væri
nokkuð gott fyrir þessa fjöl-
skyldu. Sé ein hátiðamáltið á
dag, aðfangadag, jóladag og
annan i jólum, kosta þær alls
7500 krónur.
Menn gefa mismikið, en tvö
þúsund króna jólagjöf er boðleg
hverjum sem er. Ef fimm
manna fjölskyldan gefur
„sjálfri sér” fimm gjafir,
kostar það 10 þúsund. Viö
hugsum okkur að tvær slikar
gjafir séu gefnar öðru fólki.
Þetta verða alls 14 þúsund.
Þótt biskup sendi ekki jóla-
kort, munu flestir halda þeim
sið til streitu. Algengt virðist, að
fólk sendi um 30 kort, þótt það sé
mjög misjafnt. Kostnaður við
kortin yrði þá um 1000 krónur.
Svo má ekki gleyma fata-
kaupunum Nú virðist talsvert i
tizku, að telpur fái siða kjóla til
að spóka sig i um jólin. Eftir
viðtöl’við fjölskyldur höfum við
sett 10 þúsund krónur til fata-
kaupa fimm manna fjölskyldu
fyrir jólin. Um þetta má
auðvitað lengi deila.
Vinföng kaupa mjög margir
til jólanna, þvi er ekki að neita,
og ætlum við tvö þúsund krónur
til þess.
Jólatré gæti kostað þúsund
krónur. Rjómaisterta kostar
ekki minna en 3-400, og allmörg
hundruð munu fara i bakstur, öl
og gos, skreytingar og fleira.
Að öllu samanlögðu fáum við
út úr þessu dæmi um 38 þúsund
krónur. Margir komast af með
minna, en margir eyða lika
miklu meiru.
—HH
Nœr öll
mannvirki
sópuðust
burtu
Þetta er skipulagskort,
sem almannavarnir höfðu I
gærkvöldi á stjórnborði sínu,
og sýnir það svæðið, sem
snjófíóðið lagði undir sig og
þau mannvirki, sem flest
hver eyöilögðust I snjó-
flóöinu.
Útilokað er að gizka á
hvert verðmætatjón hefur
orðið i snjóflóðinu, en örugg-
lega nemur það hundruðum
milljóna eða jafnvel millj-
örðum króna.
Mest er þó manntjóniö,
sem aldrei verður bætt.
—JBP—
%■-
:v
•v
«• • ■ *
Styttur
Tékkneskar,
þýzkar og Italsk-
ar fjölbreyttar
geröir.
Bæheimskristall hand-
skorinn og mótaður, i
mjög miklu og fallegu úr-
vali.
Smlðajárna „skúlptúr”
með og án kertastjaka.
Sérstök gjafavara, aðeins
örfáir hlutir.
Kynnið ykkur okkar
mikla og góða vöruúrval.
Gjafavörur á verði fyrir
alla.
Við keppum að því
að geta aðstoðað
þig við gjafakaupin.
Hvernig er með laxveiði-
manninn i fjölskyldunni? Er
ekki hægt að friða hann núna
i skammdeginu og gefa hon-
um styttu af Laxi?
SKÓLAVÖRÐUSTÍG 16
SÍMI 13111