Vísir - 21.12.1974, Qupperneq 5
Vlsir. Laugardagur 21. desember 1974
5
ERLEND MYNDSJÁ
Umsjón: G.P.
ÍRAfár í
London
Það gengur ekkert lit-
ið á, þegar hryðjuverka-
menn IRA fara á stúf-
ana. Heilu hverfin i Lon-
don leika á reiðiskjálfi,
þegar sprengjur þeirra
springa.
Uppáhaldsfelustaðir þeirra eru
bflar, sem lagt er fyrir utan ein-
hverjar opinberar stofnanir,
verzlanir eða samkomustaði á
borð við krár og kvikmyndahús.
Það var ekki mikið eftir af bif-
reiðinni, sem þeir notuðu i New
Comptonstræti núna I vikunni.
Leifarnareru uppi á Volkswagen-
bilnum, sem liggur á hliðinni.
Metfangavist
Johnson Van Dyke Grigsby
(89 ára) hrosti breitt, þegar
hann sté út úr Indianarikis-
fangelsinu, og hafði lika
ástæðu til. Hann var loks að
losna úr prisundinni eftir met-
fangavist — 66 ár. Hann var
dæmdur 1908 i lifstiðarfangelsi
fyrir inorð, sem hann framdi
yfir pókerspili, en var nú loks
náðaður á dögunum.
Rausnarvinur
Dick Nixons
„Bebe” Rebozo, bankastjór-
inn og kaupahéðinninn, sem
fyrst komst i fréttir fyrir rausn-
arleg framiög I kosningasjóð
Nixons vinar sins, sést hér á
myndinni fyrir neðan i banka
sinum. Bankinn var rændur á
dögunum. Á meðan ránið var
framið, var „Bebe” staddur I
bæjarþingi að tala fyrir umsókn
sinni og Nixons um að gatan
fyrir framan heimili þeirra
verði gerð að einkavegi og lokuð
almennri umferö.
Horfinn
Myndin hér við hliðina er af
John Stonehouse, fyrrum póst-
málaráðherra Breta, sem hvarf
með dularfullum hætti fyrir
nokkru. Tékkneskur njósnari
segir, að hann hafi njósnað fyrir
Tékka, en Wilson forsætisráö-
herra hefur borið allar fréttir
| um slikt til baka.
Villt'á'ann!
„Fæ ég bara bronzpening?”
sagði Ali, þegar borgarstjóri
New York, Abe Beam, sæmdi
hann æðsta heiðursvott borgar
innar á dögunum. — Borgar-
stjórinn lézt sármóðgaður og
spurði boxarann „hvort ’ann
væri að snapa sér einn á lúður-
inn?”