Vísir - 21.12.1974, Qupperneq 7
Vísir. Laugardagur 21. desember 1974.
7
NESCO HF
Leiöandi fyrirtæki á sviöi sjónvarps-útvarps- og hljómtækja.
Verzlun Laugavegi 10 Reykjavík. Simar: 19150-19192-27788
Jón Oddur og Jón Bjorni
Jón Oddur og Jón Bjarni
Höf.: Guðrún Helgadóttir.
Myndir: Kolbrún S. Kjarval.
Útg.: Iðunn, Reykjavík 1974.
Þótt mikið komi út af
barnabókum fyrir hver
jól/ eru ekki margar nýj-
ar barnabækur, sem að
mínu mati geta talist góð-
ar. Þessi bók er ein af
þeim. Þetta er hressileg
bók, full af kímni og
skemmtilegum atvikum,
sem bæði börn og full-
orðnir hljóta að hafa
gaman at.
Þótt þetta sé fyrsta bók höf-
undar eru ekki á henni að sjá
nein missmiði né viðvanings-
brag. Höfundur ætlar sér hvergi
um of, hann setur sér i upphafi
ákveðinn ramma og gerir efn-
inu fullkomin skil innan hans.
Hvergi er reynt að takast á við
flókna persónusköpun né
félagslega ádeilu. Söguþráður-
inn rennur áfram snurðu- og
áreynslulaust i gegnum lif
bræðranna Jóns Odds og Jóns
Bjarna og fjölskyldu þeirra.
Frásagan verður skemmtileg
af þvi að þetta eru fjörmiklir
strákar, fullir af uppátækjum,
sem höfundur hefur sýnilega
heilmikinn smekk fyrir.
Þótt sagan sé raunsæ mynd af
venjulegri reykviskri ,,mið-
stéttarfjölskyldu” eru efnistök
höfundar nýjung i islenskri
barnabókargerð. Efnið er sótt i
hverdagsheim, sem við könn-
umst ótrúlega vel við, en hann
verður þó aldrei hverdagslegur
eða leiðinlegur séður með aug-
um höfundar. t bókinni er ekki
að finna predikun af neinu tagi.
Ekki gætir heldur óhóflegrar
einföldunar.
En það hefur lengi viljaö
brenna við hér á íslandi sem og
erlendis, að barnabækur væru
með geysilegum einföldunum
og alhæfingum, notaðar til aö
innræta börnum ýktan móral
samfélagsins, sem þau búa i.
Barnabækur hafa þannig aö
nokkru leyti verið heimur út af
fyrir sig, þar sem einfaldar
reglur gilda og eru i heiðri hafð-
ar af öllu góðu fólki. Vonda
fólkið i slikum bókum er alltaf
mjög vont og oftast óforbetran-
legt. Aðalpersónur þessarar
bókar, tviburarnir Jón Oddur
og Jón Bjarni, finna að visu upp
á öllu mögulegu og ómögulegu,
sem ekki fellur I kramið hjá
fullorðna fólkinu og kallast þvi i
daglegu tali prakkaraskapur
eða óþægð. Þeir voru þó á engan
hátt óforbetranlegir. Eiginlega
voru þeir ágætir báðir tveir.
í fjölskyldunni eru auk bræðr-
anna og foreldra þeirra, hálf-
systirin Anna Jóna, sem er
unglingur og litla systir Magga,
sem enn þá pissar i kopp. Einnig
kemur við sögu amma þeirra,
sem þeir kalla ömmu dreka, af
þvi að hún er kölluð erindreki
legar hún flytur fyrirlestra i út-
varpið, og hin ómissandi og lik-
lega fágæta Soffia sem er nokk-
urs konar ráðskona á heimilinu,
þvi að báðir foreldrarnir vinna
utan heimilis. Soffia og amma
dreki eru best dregnu persónur
sögunnar. Lýsingin á Onnu Jónu
er lika ljómandi góð, þótt eigin-
lega sé hún frekar lýsing á heil-
um aldurshóp en á einni
persónu. Um önnu Jónu segir á
einum stað: „En Anna Jóna var
ekki sem best. Hún var ungling-
ur, og það vissu strákarnir að
var einhver veiki. Að minnsta
kosti sagði amma, að þeir yrðu
að sýna henni þolinmæði, þegar
hún lét eins og vitlaus, af þvi að
hún var á þessum erfiöu
unglingsárum. Hún grét oft, ef
hún fékk ekki allt, sem hún
vildi, og stundum bara út af
engu. Svo voru alltaf með henni
stelpur sem voru lika með þessa
veiki, og þær létu alveg eins,
nema þær grétu sjaldan, en
hlógu hins vegar timunum sam-
an, eins og einhver væri að kitla
þær i iljarnar.”
1 góðum bókum kynnumst við
persónunpm I gegnum orð
þeirra og athafnir, rétt eins og 1
inni, i peysu með dúskum og
með barnahúfu. Amma sagði að
hann hefði verið svo vel uppal-
inn. Aumingja pabbi, hann var
ægilega asnalegur á myndinni.
En samt var amma dreki oft
góð. Hún átti jeppa, sem hún
ferðaðist i um landið. Og stund-
um fóru mamma og pabbi og
krakkarnir með henni i biltúr
um helgar.”
Að sumu leyti minnir þessi
bók mig á bækur Anne Cath.
Vestly, sem flestir kannast ef-
laust við. Hvort það stafar af þvi
að fjallað er um lik efni og að-
stæður eru svipaðar eða að bæk-
ur önnu Cath Vestley eru
beinlinis farnar að hafa áhrif á
barnabókargerð hér uppi á Is-
landi, veit ég ekki, enda skiptir
liklega ekki miklu máli hvort
heldur er.
Bókin er með skemmtilegum
og nýstárlegum myndum, sem
falla einkar vel að efni og stil
bókarinnar.
Af þessari bók gætu þeir sem
lengur hafa starfað aö barna-
bókagerð mikið lært.
sjálfu lifinu. Þannig kynnumst
við þeifn ömmu dreka og Soffiu
og reyndar fleiri persónum, sem
of iangt mál yrði upp að telja.
Alla bókina eru að bætast við
drættir i mynd þeirra, hún verð-
ur fyllri og fyllri og i bókarlok
finnst manni að maður þekki
þessar konur allvel, jafn vel svo
að maður myndi heilsa þeim á
götu, ef maður rækist á þær. Um
ömmu dreka segir i byrjun
bókarinnar: „Amma dreki var
á móti blokkum. Hún hafði hald-
ið um það erindi i útvarpið. Hún
sagðí að þær væru ómanneskju-
legar, eða eitthvað svoleiðis. En
það var ekkert nema vitleysa.
Hún gat ekkert vitað um, að þaö
var betra að búa i blokk. Aldrei
þurfti hún að nota vegasölt eða
rólur.” Og seinna segir um
ömmu dreka: „Amma átti
mynd af pabba, þegar hann var
sex ára eins og þeir, og hann var
alveg eins og aumingi á mynd-
eftir Bergþóru
Gísladóttur
Hefuróu hey rt Svartaskóg
nefndan?
Svartiskógur er fremur lítið hérað i suðvestur hluta
Vestur-Þýzkalands. Á þýzku heitir það Schwarz-
wald. í þessu héraði þykja hafa búið einhverjir
beztu handverks- og iðnaðarmenn Þýzkalands, og
hafa þær iðnaðarvörur, sem frá Svartaskógi hafa
komið, þótt vera í svo háum gæðaflokki, að smám
saman hefur orðið til orðatiltækið „Schwarzwálder-
Qualitát", eða Svartaskógar-gæði. — SABA verk-
smiðjurnar víðkunnu eru einmitt í Svartaskógi, enda
hafa þær átt sinn ríkulega þátt i að byggja upp það
ágæta orðspor, sem af héraðinu fer. — Aðaltækið
í þeirri hljómtækjasamstæðu, sem við bjóðum hér,
er frá SABA, og ber það tegundarheitið Studio
8730. Studio 8730 er sambyggt úr eftirfarandi tækj-
um: Útvarp með FM-stereo-bylgju með fimmskiptu
forvali, langbylgju, miðbylgju og stuttbylgju + 2x9
sínus/RMS watta magnari, sem hefur innan við
0,1% bjögun við hámarksútgangsstyrk og er gerður
fyrir stereo- eða fjórvíddarnotkun (SABA quadros-
onic) + 3ja hraða plötuspilari, sem fullnægir vel
öllum kröfum skv. DIN 45.500, eins og aðrir hlutar
Studio 8730, og er með DMS-200 segulþreif. Há-
talararnir eru af gerðinni SCANDYNA HT-35F, og
er tónsvið þeirra 35—20.000 rið og flutningsgeta
hvors þeirra allt að 80 wöttum. — Heildarverð þes-
arar samstæðu, sem er óvanalega vönduð og traust,
er kr. 126.700,00, og er hún fáanleg bæði i valhnotu
og hvítu.