Vísir - 21.12.1974, Qupperneq 15
Vísir. Laugardagur 21. desember 1974.
15
Ford dregur
saman seglin
Ford-bilaverksmiðjurnar skýra
frá þvi, að þær séu tilneyddar til
að skera framleiðslu sina niður
um fjórðung á fyrstu þrem mán-
uðum ársins 1975. Af þvi leiðir, að
48.700 verkamenn á þeirra snær-
um standa uppi atvinnulausir i
sjö vikur.
Ford ætlar að framleiða 170
þúsund færri fólksbila og 32 þús.
færri vörubila. Upphafleg áætlun
gerði ráð fyrir, að 610 þúsund
fólksbilar væru komnir út úr
verksmiðjunum i marz og 210
þúsund vörubilar.
BÆKUR
YswS.
Næturhiminninn
Bjöllubók, nýkomin út, heitir
Næturhiminninn, og fjallar um
stjörnur og stjarnkerfi. Þetta er
bók miðuð einkum við hæfi barna
og unglinga, en fólk á öllum aldri
mun geta notið hennar engu sið-
ur. 1 bókinni er fjöldi skýringar-
mynda I litum, en þýðingu annað-
ist Guörún Karlsdóttir, bókavörð-
ur. Dr. Þorsteinn Sæmundsson,
stjarnfræðingur, las handritiö
yfir. Bókin er 52 blaðsiður að
stærð og kostar kr. 475,-.
Jón ósmann ferjumaður
Kristmundur Bjarnason hefur
skráð sögu Jóns Ösmanns, hins
landskunna ferjumanns við Vest-
urós Héraðsvatna i Skagafirði, en
Jón var svo stórbrotinn og
sérstæður á flesta lund ', að sög-
urnar um hann eru þjóðsögum
likastar. A kápusiöu segir að
hann hafi vart átt sinn jafningja aö
karlmennsku og llkamsburðum,
,,en eigi var síður rómuð mann-
göfgi hans.” Sýslusjóður Skaga-
fjarðarsýslu og Sögufélag Skag-
firöinga gefa bókina út, hún er 232
blaðslður að stærð og kostar kr.
2230,-
Snati og Snotra
Bókaútgáfan Björk hefur sent
frá sér fjórðu útgáfu barnabókar-
innar Snati og Snotra, sem hefur
yljað mörgu ungmenninu um
hjartarætur bæði fyrr og siðar.
Söguna skrifaöi Steingrimur Ara-
son, sem samdi og þýddi fjölda
barnabóka um dagana, og var
einn virtasti . kennari landsins.
Bókin er 75 bls. að stærð og kostar
kr. 179,-.
Billinn
Blllinn heitir ný Bjöllubók, sem
flestum unglingum mun þykja
skemmtileg og fróðleg. Hún fjall-
ar um og skýrir á einfaldan og
greinilegan hátt helztu hluta blls-
ins, eðli þeirra og tilgang. Marg-
ar myndir eru til skýringar. Arni
Sigurbergsson, flugmaður, þýddi
bókina, en Guöni Karlsson, bif-
reiðaeftirlitsmaður las handritið
yfir. Bókin er 52 slöur og kostar
kr. 475,-
Ljós, speglar og linsur
Ný Bjöllubók er Ljós, speglar
og linsur, og segir hún á einfald-
an hátt frá ýmsum tilraunum og
gerðum tækja til að rannsaka
ljósið og áhrif þess. Góöar
skýringarmyndir eru i bókinni.
Þýðendur eru Herdis Sveinsdóttir
kennari og Ragnhildur Helga-
dóttir, kennari og bókavörður, en
Orn Helgason, eðlisfræðingur, las
yfir. Bókin er 52 siöur og kostar
kr. 475.
FRÁ!
FRÁ!
Þessi frumlega Ijós-
mynd var í fyrra kjörin
fréttamynd ársins 1973 af
íþróttal jósmyndurum í
Þýzkalandi. — Hún var birt
undir fyrirsögninni
„ Endaspretturinn".
Þeir í Þýzkalandi eru
mjög áhugasamir um hjól-
reiðar og eiga margar
kempur í þeirri íþrótt. —
Heldur minnkaði þó hróður
þeirra eftir þessa mynd.
Þar til Ijósmyndarinn
upplýsti, að það hefðu ver-
ið kapparnir, sem fóru
fram úr konunni, en ekki
öf ugt.
Efst á vinsældalistanum
Sem betur fer, eru mörg eða jafnvel flest þeirra
tækja, sem við höfum á boðstólum, vinsæl, en
þessi tvö slá þó öll met. Bæði eru þau framleidd
af SUPERSCOPE verksmiðjunum amerísku, og er
skýringin á vinsældum þeirra einfaldlega sú, að
hvorttveggja eru þetta góð og ódýr tæki. Kassettu-
segulbandstækið heitir C-101, og býður það upp á
alla þá notkunarmöguleika, sem gerast í svona
tæki, m.a. hefur það innbyggðan, sjálfstillandi hljóð-
nema, úttak fyrir aukahátalara og gengur hvort
heldur er fyrir rafhlöðum eða 220V húsarafmagni,
þar sem i því er innbyggður spennubreytir. Sam-
byggða útvarps- og segulbandstækið, sem heltir
CR-1300, er mikið og veglegt tæki, og er útvarpið
með FM-bylgju, langbylgju og miðbylgju. Segul-
bandshluti CR-1300 tækisins hefur alla sömu eigin-
leika og C-101 tækið. — Verðið á SUPERSCOPE
C-101 er kr. 12.900,00 og á CR-1300 kr. 24.700,00.
NESCO HF
Lefaandi fyrírtæki á sviöi sjónvarps-útvarps- og hljómtækja.
Verzlun Laugavegi 10 Reykjavik. Simar: 19150-19192-27788