Vísir - 21.12.1974, Qupperneq 20
20 Visir. Laugardagur 21. desember 1974.
q □AG | D KVÖLD | Q □AG | D KVÖLD | Q □AG | | *
Sjónvarp laugardag kl. 21.05:
Almenningur kaupir
„rammagerðamyndir"
— ný kvikmynd Ólafs Hauks Símonarsonar og Þorsteins
Jónssonar um listneyzlu almennings
„Ég á ekki von á
sliku fjaðrafoki kring
um þessa mynd og varð
um „Fisk undir steini”.
Ég býst við, að fólk hafi
að mestu blásið úr
nösunum um þá mynd.
,,Gagn og gaman”
kemur heldur ekki
beint við hagsmuni
manna, likt og hin
myndin gerði”.
Þetta sagði Ólafur Haukur
Símonarson, rithöfundur, er
Vísir ræddi við hann. A dagskrá
sjónvarpsins i kvöld, laugar-
dagskvöld, verður sýnd kvik-
mynd, sem Ólafur og Þorsteinn
Jónsson hafa gert fyrir sjón-
varpið. Hún nefnist „Gagn og
gaman”, og fjallar um, eins og
segir i dagskránni, stöðu lista-
manna og samband þeirra við
almenning.
,,t þessari mynd ræðum við
við þessa tvo hópa, listamenn og
almenning.
Listamennirnir eru eingöngu
myndlistarmenn. Þeir gera
grein fyrir hverjir séu kaupend-
ur að myndum þeirra. Það kem-
ur m.a. fram, að það er yfirleitt
sama fólkið, sem kaupir
myndirnar.
OLLUM OFAR
JpGudíónsson hf.
Shulagötu 26
• 0rb dagöinö#
•á ^íkureprij
• öími 2 18 40*
J-^ringiíi ogj
• fjluótib!.....•
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Hin
umdeilda
Er komin út á íslenzku
Ognirnar hófust svo hægt, aö þau
heföu getaö gleymt þeim. Hávaöi í herbergi
Regan, undarleg lykt, húsgögn á röngum
staö, fskuldi. Smávægis óþægindi, sem leik-
konan Chris MacNeil, móöir Regan, gat auö-
veldlega skýrt á eölilegan hátt.
Breytingarnar á hinni ellefu ára Regan
voru svo hægfara, aö Chris, sem var önnum
kafin viö nýja kvikmynd, tók um tíma ekki
eftir því, hversu mjög hegöun dóttur hennar
haföi breytzt. Og þegar hún geröi þaö loks-
ins, leiddu endalausar læknisfræöilegar
rannsóknir ekki til neinnar niöurstööu. Sjúk-
dómseinkenni stúlkunnar uröu slfellt haröari
og hræöilegri. Þaö var eins og nýr
persónuleiki heföi tekiö bólfestu I líkama
hennar. Andrúmsioftiö á heimilinu var
þrungiö illsku.
1 örvæntingu sinni sneri Chris sér til
Damien Karras, jesúltaprests, sem jafn-
framt var geölæknir og fróöur um djöfla-
dýrkun og djöfulæöi. Voru einhver djöfulleg
öfl aö verki? Var hægt aö særa sjúkdóminn á ,
brott, þegar geölækningarnar brugöust?
Damien Karras streittist gegn hugmynd-
inni. Kirkjan hefur um langan aldur veriö
vantrúuö á djöfulæöi. En loks var um líf og
dauöa Regan aö tefla. Og þá féllst kirkjan á,
aö tími væri kominn til aö beita særingum í
hættulegri baráttu prests og hins illa anda.
Frásagan af særingunni mun snerta alla
lesendur þessarar óvenjulegu og trúarlegu
bókar. Hún mun llka hafa áhrif á efahyggju
þeirra, sem telja öll fyrirbæri heimsins skýr-
anleg á nátturlegan hátt.
Regan var haldin illum anda
HILMISBÓK
ER VÖNDUÐ BÓK
Ólafur Haukur Slmonarson rit-
höfundur.
Þorsteinn Jónsson kvikmynda-
gerðarmaður.
Við förum á stóra vinnustaði,
og spyrjum fólk þar um lista-
verkakaup þess. Svör fólksins
leiða ýmislegt i ljós. Margir
telja sig ekki hafa efni á þvi að
kaupa svona verk, og aðrir hafa
ekki áhuga fyrir þeim”, sagði
Ólafur Haukur.
Hann sagði ennfremur, að
þegar fólk var spurt, hvað það
notaði af myndlist, þá hefði
komið I ljós, að meirihlutinn
hallaðist að svokallaðri
„rammagerðamyndlist”.
Rætt er við sex myndlistar-
menn i þessari mynd. Meðal
þeirra má nefna Hring Jó-
hannesson, Veturliða Gunnars-
son, og Jónas Guðmundsson.
Auk þess að fjalla um kaup-
endur að verkum sinum, skýra
listamennirnir i fáum orðum
ætlunarverk sin og tilganginn
með þessari iðju sinni.
„Það sem kom mér mest á
óvart i samtölum okkar við fólk
á vinnustöðum, var það hversu
ákveðnar skoðanir það hafði á
myndlist. Það átti mjög auðvelt
með að tjá sig um viðfangsefn-
ið”, hélt Ólafur Haukur áfram
máli sinu.
„Þvi hefur oft verið haldið
fram hjá sjónvarpinu, að það sé
ekki hægt að ræða við almenn-
ing um þessi mál, þvi að fólk
hafi engar fastmótaðar skoðan-
ir um þau. Hér reyndist annað
koma i ljós”.
„Gagn og gaman”, sem er
önnur mynd þeirra félaga ólafs
og Þorsteins um listneyzlu,
hefst kl. 21.05 laugardagskvöld.
—ÓH
Bókakynning
í útvarpi
Sinna jóla-
bókaflóðinu
t jólabókaflóðinu mega fjöl-
miðla*nir hafa sig alla við að
kynna hinar nýútkomnu bækur.
Liklega stendur útvarpið sig
einna bezt hvað þetta snertir,
þótt reyndar sé litið gert af þvl
að fjalla sérstakiega um bæk-
urnar. Mest er gert af þvi að
lesa kafla upp úr þeim.
Um helgina verða þrir bóka-
kynningaþættir.
A laugardag kl. 17.30 verður
lesið úr nýjum barnabókum.
Gunnvör Braga Sigurðardóttir
sér um þáttinn, en Sigrún
Sigurðardóttir kynnir.
Um kvöldið sér Andrés
Björnsson útvarpsstjóri um
kfM;
Það má hafa sig allan við ab
kynna sér hinar nýju bækur, ef
hafa á undan flóðinu, likt og
þessi — ja, strákur eða stelpa,
það er ekki gott að segja — er að
gera.
þáttinn „A bókamarkaðnum”.
Dóra Ingvadóttir kynnir.
Við fáum svo aftur að heyra i
Dóru i sama þætti á sunnudags-
kvöld.
ÓH
Útvarp sunnudag kl. 11.00:
Guðsþjónusta í útvarpssal
Tœknimaður ekki síður
mikilvœgur en prestur
Ctvarpshlustendur fá að
heyra óvenjulega messu á
sunnudagsmorgun.
Messan er nefniiega hijóð-
rituð í útvarpssal, og tónlistin
leikin af piötum.
Það eru æskulýðsfulltrúar
Þjóðkirkjunnar, þeir séra
Guðjón Guðjónsson og Guð-
mundur Einarsson, sem eiga
heiðurinn af undirbúningi þess-
arar messu.
Guðjón sagði i viðtali við Visi,
aö á Þorláksn essu i fyrra hefðu
þeir séð um messu svipaðs eðlis.
Hefðu margir hringt og lýst yfir
ánægju sinni vegna hennar.
„Messan er byggð nákvæm-
lega eins upp og aðrar messur,
og þannig berst hún hlustand-
anum til eyrna. Við gefum
tónlistinni stóran þátt i
messunni. 1 stað þess að heyra i
einum kór eins og venjulega, fá
útvarpshlustendur að heyra það
sem jafnvel má kalla það bezta,
sem völ er á i kirkjulegri
tónlist.
Kaflar úr h-moll messu og
jólaoratoriu Bachs verða fluttir,
og prédikunin verður flutt á
milli kaflanna. Og eins og i
öllum messum verður pistill og
guðspjall”, sagði Guðjón.
Auk þeirrar tónlistar, sem
hann nefndi, má geta sálma-
söngs þriggja kóra, Kirkjukórs
Akureyrar, Skálholtskórsins og
Ljóðakórsins. Einnig leikur dr.
Páll tsólfsson niðurlag Caconnu
sinnar við stef úr Þorlákstiðum.
„Við erum aðeins þrir, sem
sjáum um þessa messugjörð,
þ.e. ég og Guðmundur, og svo
tæknimaður útvarpsins. Hans
hlutur er ekki svo lítill,” sagði
Guðjón að lokum.
—ÓH