Vísir - 23.12.1974, Qupperneq 3
Fyrst og fremst eru það börnin,
sem til jólanna hlakka. Á jólunum
fær litla fólkið nefnilega flestar
sinar óskir uppfylltar. Meö
jólatrjám og gjöfum reyna þeir
sem eldri eru að gera þeim jólin
sem ánægjulegust.
Skóiarnir, annað heimili
barnanna, láta ekki sitt eftir
liggja og þar er allt skreytt i hólf
og gólf. Ljósmyndarar Visis
komu við I tveim skólum I siðustu
viku og tóku þar myndir af
skreytingunum.
JB
Á jólunum verður reikningur
og skrift að hverfa af skóla-
töflunum. Drátthagir nemendur
búa sig út með litakritum og
verj& heilu og hálfu dögunum
fyrir framan töflurnar. Hér
sjáum við árangurinn af vinnu
barna i tveim tólfa ára bekkjum
i Álftamýraskóla.
Ljósm. Bj.Bj.
Til mikils að vinna
Þeir, sem leysa getraunina
hér til hiiðar eiga möguleika á
að vinna giæsileg verðlaun.
Sendið meðfylgjandi úrlausnar-
seöil til ritstjórnar Vfsis, Siðu-
múla 14, eöa afgreiðslunnar á
Hverfisgötu 44, fyrir föstudags-
kvöldið 10. janúar.
Dregið verður úr réttum
lausnum og fær sá eða sú
heppna giæsilegan skiðagalla I
verðlaun. Vinningurinn er úr
verzluninni Sportval, Lauga-
vegi 116, og er verðmæti hans
um 10 þúsund krónur.
Verið því dugleg við að senda
inn iausnirnar. Allir hafa mögu-
leika á aö verða sér úti um
glæsileg skfðaföt fyrir þarnæstu
skfðaferö.
~*-v
k ; T:.fx V
9 1 1 ! 1:.
[ : | 'S ' ■ ;i!
| s
I Hlfðaskóla hafa nemendurnir tekiö sig til sem fyrr og prýtt stóra rúðu á gangi þessari faliegu
Betlehemmynd.
m - m
!
Ljósm. Bragi.