Vísir - 23.12.1974, Qupperneq 14
38
Vísir. Mánudagur 23. desember 1974.
SJÓNVARP UM JÓLIN
Sjónv., annan jólad. kl. 20.35: Heimsókn:
^Mér var úthlutað
einum degi til þess að
taka mynd á islenzkum
sveitabæ að vetrar-
lagi”, sagði ómar
Ragnarsson, sem er
með Heimsókn á annan
dag jóla.
„Þaö þýddi, áð velja varð bæ,
þar sem búast mætti við þvi
með sæmilegum likindum að fá
ekki auða jörð og rigningu. Þess
vegna varð bærinn að standa
sæmilega hátt og vera á réttum
stað á landinu. Svo merkilega
vildi til, að þegar búiö vár að
yfirfara alla bæi, var það aðeins
Staðarbakki i Hörgárdal, sem
uppfyllti öll skilyrði.
A Staðarbakka búa þrjár kyn-
slöðir, þar er meðalbú, bærinn
er hæfilega afskekktur, þar sem
hann stendur i Hörgárdalnum
beint bak við Hraundranga. Við
vorum þarna einn dag frá
morgni til kvölds og fylgdumst
með venjulegu heimilisfólki á
venjulegum degi. Það átti alls
ekki aö sýna frægt fólk á
þekktum stað, heldur aðeins
hversdagsleikann eins og hann
er. Ég efa stórlega, að al-
menningur i þessu landi, sem að
mestu leyti er þéttbýlisfólk og
geysist fram hjá sveitabæjun-
um I rykmekki á sumrin, hafi
nokkurn tima dvalið daglangt á
sveitabæ að vetri til, nema til-
tölulega fáir”.
VENJULEGUR DAGUR
- VENJULEGT FÓLK
A
ifi ^
Þessi heimsókn var gerð
snemma I desember og hefur
þátturinn þvi verið fullgerður á
tiltölulega mjög skömmum
tima
—SH
Ómar Ragnarsson, þulur I myndinni um Hraundranga, hefur
skipt um hlutverk við tæknimennina og brugöið sér á bak við
myndavélina. A þessari mynd sem hann tóli, má sjá t.v. Haraid
Friöriksson, Þránd Thoroddsen og Odd Gústafsson, hljóðupp-
tökumann.
SJÓNVARP •
Mánudagur
23. desember
20.00 Fréttir og veöur.
20.30 Dagskrá og auglýsingar.
20.40 Onedin skipafélagið.
Bresk framhaldsmynd. 12.
þáttur. Trúboðinn. Þýðandi
Óskar Ingimarsson. Efni 11,
þáttar: Skip, sem James
hefur á leigu, er i höfn I
Frakklandi. Ahöfnin, meö
stýrimann i broddi Tylking-
ar, ris upp gegn skipstjóra
slnum. James er kvaddur
til. Hann trúir skipstjóran-
um betur en hásetunum og
er ákveðinn i að draga þá
fyrir dóm.
21.35 tþróttir.
22.10 Stigðu ekki á skuggann
þinn. Finnsk fræðslumynd
úr flokki mynda um
Tansaniu og þjóðfélags- og
atvinnuhætti þar. í þessari
mynd eru borin saman lifs-
kjör smábænda i Tansaniu
og Finnlandi. Þýðandi og
þulur Hrafn Hallgrimsson.
(Nordvision—Finnska sjón-
varpið).
22.40 Dagskráriok.
JpGudjónsson hf.
\ Skulagötu 26
\ írMinao
PLOTUPORTIÐ
Laugavegi 17
Létt tóulist — millimúsik....
ottulega lát»t verft. Afteins kr. 710.00.
Duke Klliiij’ton — Wt* love you madly.
I’ats Doinino — Mv hliu* heaven.
Nat King (’ole — l.ovt* is a many splendor thing.
('arpenters — Tlie youiij’ lover song book.
I.iberace — Stranjfers tbe nigbt.
l.iherace — |t> tbe time I get to Pboenix.
Iloek n’Holl Kestival I, — Nill llaley, o.fl.
Tbe Kingston Trio.
Hurl Ives — Tbe big roek eandy mountain.
Dustv Springfield — VYishin & Hoping
i lie Kingston i’rio — VVbere bave a 11 tbe flowers gone
Stars Sliine -- Nal King ('ole. Dean Marlin, (ilen ('ainp-
bell. Judy (iarland. Tennesee Krnie Kord o.fl.
I’ats Dontino — Hluberry bill.
Klla l'it/.gerald — Misty Hlue
IMatters — Super llits.
I.ouis Armstrong — Naine
Tbe Mills Hrotbers — I.a/.y Hiver.
Kings of ing — Artie Sbaw, Henny (ioodinan. Duke
Kllinglon o.fl. o
Kountain — lligb Soeiety. I
Pete i
Hill llaley and tbe (’oininets — Hocking. /
Hoger Miller — King of tbe Koad t
Tennessee Krnie Kord — Sixleen Tons. g .
SJÓNVARP •
Þriðjudagur
24. desember
Aðfangadagur jóla
14.00 Fréttir og veöur.
14.10 Hreindýriö. Rúdolf rauð-
nefur. Bandarisk teikni-
mynd um litinn kálf, sem.
ekki á góöu atlæti að fagna
heima hjá sér. Hann slæst
þvi I fylgd með Sankti-
Kláusi og lendir i mörgum
ævintýrum. Sögumaður er
Burl Ives, og syngur hann
jafnframt nokkur lög. Þýð-
andi Heba .Júliusdóttir.
15.00 Juiie Andrews Breskur
þáttur með söngvum og
ýmiss konar skemmtiefni i
sambandi við jólin. Þýðandi
Heba Júliusdóttir.
15.50 Biáa teppið. Tékknesk
ævintýramynd um prins,
sem lærir vefnaö og hefur af
margvislegt gagn i lifinu.
Þýðandi Þorsteinn Jónsson.
16.35 Hlé.
22.00 islensk tónlist. Sjón-
varpsupptaka frá setningar-
athöfn Listahátiðar 1974.
Sinfóniuhljómsveit íslands
flytur Passacagliu eftir dr.
Pál isólfsson. Stjórnandi
Páll P. Pálsson. Sinfóniu-
hljómsveit íslands og kór
Félags islenskra ein-
söngvara flytja ísland eftir
Sigfús Einarsson. Stjórn-
andi Garðar Cortes.
22.20 Jólaguðsþjónusta i sjón-
varpssal. Biskup Islands,
herra Sigurbjörn Einars-
son, predikar og þjónar
fyrir altari. Kirkjukór og
drengjakór Akraness
syngja. Organleikari og
söngstjóri Haukur Guð-
laugsson. Guðsþjónusta er
flutt samtimis I sjónvarpi og
hljóövarpi.
23.10 Gömul guðshús I Skaga-
f irði.
Mynd um tvær skagfirskar
torfkirkjur, i Gröf og aö
Viöimýri. Litast er um i
kirkjunum og rifjuð upp at-
riði úr sögu þeirra.
Umsjónarmaður Olafur
Ragnarsson. Fyrst á dag-
skrá 29. mars 1970.
23.30 Dagskrárlok.
Þjónninn Scanarelle og húsbóndi hans Don Juan ræðast viö. Don
Juan tekur lifinu létt, en það er þungt yfir Scanarelle, sem of-
býður kæruieysi húsbóndans.
Sjónv. annan í jólum kl. 21.15: „Don Juan":
Kvennabósinn
og lygarinn
Don Juan (frb. Don Sjúan)
sá frægi kvennabósi og iyga-
laupur trónar á skerminum
annan i jóium.
Þaö er uppfærsla Leikfélags
Akureyrar á þessu leikriti
Moliéres, sem þá verður
sýnd.
Upptakan var gerö i sjón-
varpssal, og stjórnaði Egill
Eövarösson henni, en Magnús
Jónsson er leikstjóri.
Leikritið fjallar um Don
Juan og þjón hans Scanarelle.
Arnar Jónsson leikur Don
Juan, en Þráinn Karlsson
þjóninn.
Rauði þráðurinn I leikritinu
er sú óheillaþróun hjá Don
Juan, að hann gerir sifellt
meira af þvi að svikja og
ljúga, og sér Scanarelle, aö
hannerað ánetjast djöflinum.
Þegar mest gengur á, lætur
hinn annars dyggi og hlýðni
þjónn til sln heyra, likt og
hann væri samvizka Don
Juan.
Ein þeirra kvenna, sem Don
Juan svikur og hleypst á brott
frá, er Donna Elivira, sem
Þórhildur Þorleifsdóttir (kona
Arnars) leikur.
Eftir brotthlaupið frá Donnu
Eliviru lendir Don Juan á
öörum kvenmanni. Meðan
hann hallar sér aö henni, hittir
hann Donnu Eliviru aftur.
Hann lýgur aö henni til að
bliöka hana, en hún sér i
gegnum hann.
Að venju svikur Don Juan
þennan slöasta kvenmann og
lendir næst I ástarævintýrum
með tveimur sveitastúlkum.
Af tilviljun hittast öll þrjú I
einu, en á meistaralegan hátt
lýgur Don Juan sig út úr
vandræðunum.
Þannig heldur leikurinn
áfram, og óheillaferill Don
Juan lengist i sifellu, þrátt
fyrir ábendingar þjónsins,
M.a. lýgur Don Juan pabba
sinn fullan og segist vera að
bæta ráð sitt. En honum
hefnist að lokum fyrir lygina.
Fæstir leikaranna, sem
leika I Don Juan, hafa sézt
áður i sjónvarpi. —OH
Donna Eiivira, leikin af Þórhildi
Þorieifsdóttur. Hún reynir allt
hvað af tekur til þess að næla I
Don Juan, en það tekst ekki.